Morgunblaðið - 23.03.1976, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976
Niðurstaða kvið-
dómsins í Hearst-mál-
inu kom mjög á óvart:
San Francisct), Los An^eles,
New York 22. marz Reuter — AF
■ Ijögl'ræöingar
Patriciu Hearst, sem á
laugardagskvöld var sek
i'undin af kviðdómi í San
Fransisco um aöild aó
vopnuðu bankaráni,
rnunu fara þess á leit viö
alríkisdómarann i
málinu, Oliver Carter, aó
hann komi í veg fyrir aö
hún veröi flutt til Los
Angeles þar sem hún á í
vændum réttarhöld
vegna annarra ákæru-
atriða. Albert Johnson
sem var aðstoðarmaður
Patty á nú í vændum
enn frekari réttarhöld
verjandans, F. Lee
Bailey, sagði að slíkur
flutningur væri tillits-
laus vió Patriciu eins og
nú stæöi á og hann myndi
biðja Carter dómara að
fresta flutningnum þar
til hann hefur kveðið upp
refsingu yfir henni 19.
apríl. El' slíkri óformlegri
beiðni yrði vísað á bug
myndi hann fara fram á
að málið færi fyrir dóm.
0 Kviðdömurinn í
bankaránsmálinu til-
kynnti um niðurstöðu
sína á laugardagskvöld
eftir að hafa rætt málið í
aðeins 12 klukkustundir.
Nióurstaðan um sekt
Patty Hearst kom mjög á
óvart eftir svo skamma
stund. Kviðdómendurnir,
sjö konur og fimm karlar,
vióurkenndu þar með
málflutning ákæruvalds-
ins, sem James Brown-
ing, saksóknari, flutti,
þ.e. að Patty hafi gerzt
félagi í Symbíónesíska
frelsishernum eftir aó
henni haföi verið rænt og
tekið þátt í starfsemi
hans af frjálsum vilja.
Browning gaf i skyn á
blaðamannafundi í gær
að Patty gæti hugsanlega
sloppió við frekari
fangelsisvist vegna
bankaránsákærunnar ef
hún féllist á að bera vitni
gegn tveimur af félögum
Symbíónesfska frelsis-
hersins, William og
Emily Harris, þegar að
því kemur aó þau verða
ákærð fyrir að hafa rænt
henni.
Réttarhöldin í Los Angeles,
sem veröa vegna skotbardaga
fyrir utan sportvöruverzlun
eina þar eftir bankaránið í San
Fransiseo árið 1974, geta
hugsanlega orðið alvarlegra
mál fyrir Patty því að þar getur
hún átt von á lifstíðarfangelsis-
dómi. Hámarksrefsing vegna
bankaránsins er hins vegar 33
ára fangelsisvist. I Los Angeles
verður Patty, ásamt William og
Emily Harris, ákærð fyrir rán,
likamsárás og mannrán.
• VIOBRÖGÐ
Er kviðdómendur höfðu lýst
Browning — sigraði öllum á
óvart.
Bailey — tapaði öllum á óvart
niðurstöðu sinni á laugardag
sagði Carter dómari, að hún
væri „í góðu samræmi við
sönnunargögn málsins." Patty
sat grafkyrr er úrskurðurinn
var lesinn upp og sást ekki
bregða. Yngri systur hennar
tvær snöktu hins vegar,
móðir hennar, Catherine, brast
í grát er hún fór út úr dómshús-
inu, og faðir hennar, blaða-
kóngurinn Randolph Hearst,
viknaði einnig. Hann sagði
fréttamönnum: „Við áttum
sannarlega ekki von á þessum
sektarúrskurði."
Verjandi Patty, F. Lee
Bailey, einn kunnasti lögmaður
Bandaríkjanna, sem við réttar-
höldin þótti sýna mikla leikni
en um leið nokkurn leikara-
skap, sagði, að er úrskurðurinn
hafði verið tilkynntur, hefði
Patty spurt sig: „Ætli ég hafi
nokkurn tíma átt nokkra mögu-
leika". Bailey sagði að hún
hefði alla tíð verið svartsýn um
úrslit málsins. Hann sagði að
hann hygðist áfrýja dómnum,
en myndi ekki skýra frekar frá
því fyrr en Carter hefur kveðið
hann upp í næsta mánuði.
Browning , saksóknari, sem
við réttarhöldin þótti hafa gert
ýmis mistök og fallið i skugga
hins kraftmikla og slóttuga
verjanda, var augljóslega
ánægður með nióurstöðu kvið-
dómsins, og sagði að það hefði
komið sér að liði að hann væri
San Fransisco-lögmaður og
þekkti því hugsunarhátt og við-
horf borgarbúa betur en
Bailay. Því hefði hann skilið
betur hvernig átti að höfða til
kviðdómendanna. Browning
sagði að það sem að hans mati
hefði verið vitnisburður henn-
ar sjálfrar. „Ég held að hann
hafi verið svo ótrúleg saga“.
• SAMUÐIN VÉK
FYRIR SÖNNUNUM
Einn kviðdómenda, Norman
Grim, segir í samtali við viku-
ritið Newsweek að honum hafi
þótt lítið til málflutnings
Baileys verjanda koma. Þá
sagði hann að kviðdómendurnir
hefðu í upphafi haft miklasam-
úð með Patty. „En siðan þokaði
samúðin fyrir sönnunum.“
Skýring verjendanna um að
Patty hefði verið heilaþvegin
gæti ekki skýrt öll atriði máls-
ins. „Ég ímynda mér að unnt sé
að þvinga manneskju", sagði
hann, „en ég held ekki að það
sé mögulegt að þvinga hana á
þennan hátt allan þennan
tima.“
Félagarnir úr Symbíonesíska
frelsishernum, Harris-hjónin,
sögðu í yfirlýsingu sem lög-
fræðingur þeirra birti eftir að
kunngjört hafði verið um nið-
urstöðu kviðdómenda: „Okkur
er það ekkert gleðimál að
Patricia Hearst eða einhver
annar skuli hafa verið fundinn
sekur, en við getum ekki ann-
að en borið virðingu fyrir kvið-
dómi, sem ekki lætur málsvörn
sem byggð er á blálaldri fölsun
veruleikans beygja sig — máls-
vörn sem Bailay og Hearstfjöl-
skyldan útbjuggu, ekki aðeins
til að fá Patriciu sýknaða, held-
ur lika til að flokka byltingar-
sinna sem „nauðgara" og
„heilaþvottarmenn" og gera
fjölda annarra saklausra
manna meðseka. Við vonum að-
eins að Patricia sjái að siðleysi
lyga og svika eyðileggur fólk en
frelsar það ekki“.
Danmörk:
Átök vegna munaðar-
leysingja frá Víetnam
Kaupmannahöfn 22. marz — Reuter
ANKER Jörgensen, forsætisráð-
herra Iianmerkur, sagði í dag, að
vestur-þýzkur blaðamaður.
Henning Becker, sem tekið hefur
að sér 200 vietnamska munaðar-
leysingja, og stuðningsmenn hans
kynnu að verða fangelsaðir ef
þeir reyndu að ná sambandi við
börnin eftir ofbeldi og átök um
helgina. Forsætisráðherrann
sagði þetta eftir sérstakan ríkis-
stjórnarfund, sem kallaður var
saman eftir átökin.
Becker þessi kom með börnin
sem öll urðu munaðarlaus í Víet-
namstyrjöldinni, til Danmerkur i
apríl s.l. Aður hafði danska
félagsmálaráðuneytið látið loka
inni allmörg börn víetnömsku
barnanna eftir að þau höfðu með
ólátum mótmælt því að vera tekin
frá Becker. 28 barnanna brutu
húsgögn og rúður á dvalarheimili
því sem þeim hefur verið komið
fyrir á.
Það var s.l. föstudag sem
lögreglan tók börnin úr húsi því
Spænska
íhaldið
áhyggjufullt
Madrid 22. marz — Reuter
Hin áhrifamiklu samtök fyrrver-
andi herforingja á Spáni skoruðu
í dag í lokayfirlýsiogu þings síns í
Madrid á ríkisstjorn landsins að
afnema ekki bann við starfsemi
stjórnmálaflokka og vísa á bug
þrýstingi erlendis frá um umbæt-
ur á stjórnarfari í lýðræðisátt.
Samtök þessi, sem í eru dyggir
stnðningsmenn Francostjórnar-
innar, lýsa því yfir að upplausn sé
að skapast og allt pólitískt frum-
kvæði komi nú frá undirróðurs-
öflum. Þá segir að samtökin muni
ekki þola að stjórnarhættir þeir
sem Franco, einræðisherra, kom á
verði afnumdir. Samtök þessi
eiga mikil ítök á þingi Spánar —
Cortes.
Víðtæk Loch
Ness-rannsókn
síðar á árinu
Boston 22. marz — Reuter
UM 40—50 vísindamenn frá
bandarlskum, kanadískum og
brezkum háskólum munu gangast
fyrir víðtækri rannsókn á hugsan-
legri tilvist Loch Ness
skrímslisins í Skotlandi sfðar á
þessu ári, að þvf er dr. Robert
Rines gamalkunnur Nessie-
veiðari, skýrði frá í gær en hann
er yfirmaður vísindaakademíu í
Boston. Hann sagði að mikill
fjöldi háskóla og vísindastofnana
hefði tekið höndum saman með
akademiunni um skipulagningu
tilrauna, fjárveitingu og mann-
afla. Rines nefndi ekki við-
komandi stofnanir eða vísinda-
menn, en kvað akademíuna sam-
ræma starf þeirra. Akademían
varð miðpunktur mikilla deilna
nýlega vegna Ijósmynda sem hún
lagði fram og kvað sannanlega af
skrímslinu. Dr. Rines sagði ekki
hvenær rannsóknin myndi
hefjast en að sumir vísinda-
mannanna hefðu þegar hafið und-
irbúning.
■ ■■ ’
\f/
ERLENT .
sem þau hafa dvalið i með Becker,
sem var sviptur umráðarétti yfir
þeim í síðasta mánuði. Hafa átt
sér stað blóðug átök milli
lögreglumanna, félagsmálafull-
trúa og nokkurra barnanna um
helgina. Ýmis blöð í Danmörku
hafa krafizt þess að Becker verði
rekinn úr landi vegna þáttar hans
í málinu, en Anker Jörgensen
visaði þvi á bug.
Mótmæli
gegn USA
í Bangkok
Bangkok 22. marz — Keuter
FJÓRIR biðu bana og 70 særðust í
Bangkok í gær í sprengingu sem
átti sér stað við mótmælaaðgerðir
stúdenta gegn Bandaríkjunum.
Var heimagerðri sprengju varpað
inn í göngu mótmælenda sem var
á leið til bandaríska sendiráðsins.
Mótmælaaðgerðirnar voru að
öðru leyti friðsamlegar, en þeim
var ætlað að ýta á éftir kröfum
stúdenta um að Bandaríkjamenn
tækju saman allar föggur sínar og
hyrfu á brott með þær herbæki-
stöðvar sem þeir hafa enn I land-
inu, og að ákvörðun ríkisstjórnar-
innar á laugardag um að Banda-
ríkjastjórn flytti heim 4000 starfs-
mann bandaríska hersins 1 Thai-
landi á fjórum mánuðum yrði
framfylgt.
Brezk blöð
gagnrýna
prinsessuna
AP-simamynd
Snowdon lávarður á blaða-
mannafundi í Hong Kong í
fyrri viku áður en tilkynnt var
um skilnað þeirra Margrétar
prinsessu.
London 22. marz, Reuter
MARCIRÉT Bretaprinsessa
dvaldi í Windsor með
drottningunni systur sinni og
móður yfir helgina í ró og
næði, en varð hins vegar fyrir
óvenjulegri gagnrýni í tveim-
ur brezkum blöðum f gær. t
forsíðugrein í Sundav Mirror
eftir Audrey Whiting, sem
skrifað hefur um málefni
hirðarinnar, segir að vegna
þess að Margrét hefur verið
ófær um að sinna opinberum
skvldum sínum að fullu und-
anfarna mánuði hafi Anna
prinsessa orðið að taka þær á
sig. Segir blaðamaðurinn, að
Margrét verði snarlega að gera
það upp við sig hvort hún ætli
að verða ábyrgðarfullur og
virkur meðlimur konungsfjöl-
skyldunnar eða hvort hún ætli
að snúa aftur til síns fyrra lífs
— „hvort hún sé reiðubúin til
að snúa baki við hinum létt-
lynda og næstum því óábyrga
félagsskap sem hreif hana svo
lengi“. t forsíðuleiðara segir
Sunday People að í hreinskilni
hefði Margrét ekki unnið fyrir
þeim 35,000 sterlingspundum
sem ríkið greiðir henni árlega
og spyr hvort hún gefi
fordæmi sem vænzt sé af
brezku konungsættinni.