Morgunblaðið - 17.06.1976, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JtJNÍ 1976
Gagnfræða-
skólinn
á Akureyri
Gagnfræðaskólanum á Akur-
eyri var slitið 31. maí sl. Nemend-
ur skólans voru alls 618 í vetur og
skiptust í 5 bekki og 26 bekkjar-
deildir. Kennarar voru 43 auk for-
fallakennara, 35 fastakennarar og
8 stundakennarar. Gagnfræða-
prófi luku 97 nemendur; þar af
fékk 21 réttindi til inngöngu í
menntaskóla, 16 framhaldsdeild-
arréttindi og 12 að auki endur-
tökurétt. Undir landspróf mið-
skóla, sem nú var þreytt í síðasta
sinn, gengu 117; þar af fengu 83
menntaskólaréttindi 14 fram-
haldsdeildarréttindi og 12 að auki
endurtökurétt. Þrír eiga ólokið
sjúkraprófum.
Við skólaslitin voru nokkrum
veitt verðlaun fyrir góðan náms-
árangur á liðnum vetri og forystu
í félagsmálum nemenda. Hæstu
einkunnir hlutu þessir nemend-
ur: I 5. bekk Ingibjörg Ingólfs-
dóttir, 8.0, í 4. bekk Harpa Hall-
dórsdóttir 7.67, f 3. bekk Helgi
Már Barðason 9.1, í 2. bekk Anna
Þ. Árnadóttir 9.26 og í 1. bekk
Ólöf Jónsdóttir 9.16.
Við skólaslit töluðu Gísli Bragi
Hjartarson fyrir 20 ára gagnfræð-
inga og Sigríður Eysteinsdóttir
fyrir 10 ára gagnfræðinga, en báð-
ir þessir afmælishópar færðu
skólanum stórgjafir í hljóðfæra-
sjóð.
Skólastjóri, Sverrir Pálsson,
þakkaði gjafir og góðan hug,
ávarpaði brautskráða nemendur
og sleit skólanum.
Vörðuskóli
VÖRÐUSKÓLA I Reykjavík var
slitið laugardaginn 29. mai sl. I
skólanum voru í vetur tæpl. 400
nemendur í 3. og 4. bekk gagn-
fræðastigs og auk þess tvær deild-
ir í 1. bekk menntaskóla. Engrar
lágmarkseinkunnar er krafizt af
þeim nemendum, sem óska skóla-
vistar í skólanum eða í einstökum
deildum hans. Þannig fá nemend-
ur eðlilega mynd af því mannlífi,
sem bíður þeirra utan veggja
skólans. Hæsta einkunn í skólan-
um fékk Ragnhildur Hjartardótt-
ir, 9,10. Nokkrum nemendum
skólans voru við skólaslitin veitt-
ar viðurkenningar fyrir góða
frammistöðu í einstökum grein-
um.
Tónlistar-
skólinn í
Keflavík
Tónlistarskölanum f Keflavfk var
slitið 22. maf sl. í tónleikasal skól-
ans. Við það tækifæri léki fimm
nemendur úr framhaldsdeildum
skólans einleik á fiðlu, cello, vald-
horn og píanó. Fyrstu vortónleik-
ar nemenda að þessu sinni fóru
fram í Keflavíkurkirkju 9, maf og
voru þeir tónleikar fyrir styrktar-
félaga tónlistarfélagsins. Þar lék
strengjasveit skólans ásamt þrem
einleikurum, þeim Rúnari Guð-
mundssyni á cello, Steinari Guð-
mundssyni sem lék á orgel kirkj-
unnar og Unni Pálsdóttur á fiðlu,
en stjórnandi strengjasveitarinn-
ar var Arni Arinbjarnarson.
I vor lauk 19. skólaárinu, en
skólinn hóf starfsemi sfna haustið
1957. Nemendur í skólanum voru
um 200 en kennarar við skólann
voru 11 og þar af sex fastráðnir,
en aðalkennarar við skólann eru
Arni Arinbjarnarson, Herbert H.
Ágústsson og Pétur Þorvaldsson.
Skólastjóri er Ragnar Björnsson.
Flúðaskóli
Barna- og unglingaskólanum að
Flúðum, Hrunamannahr., var slit-
ið föstud. 28. maí s.l. Um 170
nemendur stunduðu nám f skól-
anum s.l. vetur. Fastráðnir kenn-
arar voru 8 og stundakennarar 5,
og í mötuneyti og við ræstingu
störfuðu 5 manns. Skólastjóri er
Bjarni Ansnes. 15 luku gagn-
fræðaprófi að þessu sinni. Hæstu
einkunn hlaut Anna B. Arnljóts-
dóttir 8.04. Landspróf þreyttu 8
nemendur og stóðust allir með
glæsibrag. Meðaleinkunn á lands-
prófi var 7.5, sem mun vera eins-
dæmi. Hæsta einkunn hlaut Sig-
urður Tómas Magnússon 8.9.
Unglingaprófi lauk 21 nemandi.
Hæstar urðu og jafnar Kristín
Guðmundsdóttir og Guðbjörg Sif
Kjartansdóttir með einkunnina
8.0.
Ýmsir aðilar veittu verðlaun fyrir
góðan námsárangur. Viðurkenn-
ingu fyrir góða framkomu, sem
veitt er nemendum f unglinga-
prófi, hlaut Árni Svavarsson.
Að afloknum prófum var haldin
athyglisverð sýning á handavinnu
nemenda.
Nemendur í gagnfræða- og
landsprófi fóru f þriggja daga
ferðalag norður í land ásamt
skólastjóra og kennara.
Á Flúðum er nýlegt skólahús,
sem þegar er orðið allt of lítið,
vegna þess hve ör vöxtur skólans
hefur orðið. Er aókallandi að
bæta við kennsP'stofum. Vc
að reisa kenr„raibúðir ac
um.
I sumar verður eins og undan-
farin ár hótelrekstur í húsnæði
skólans og jafnfraint í félags-
heimilinu að Flúðum.
Laugaskóli
Laugaskóla f Suður-
Þingeyjarsýslu var slitið í 51. sinn
24. maí sl. I vetur stunduðu 124
nemendur nám í skólanum í 5
bekkjardeildum. Fimmti bekkur
framhaldsdeildar gagnfræðaskóla
var starfræktur við skólann f
fyrsta sinn og voru f honum 11
nemendur, sem allir luku prófi.
Hæstu einkunn úr 5. bekk hlaut
Helgi Laxdal, Nesi, Grýtubakka-
hreppi. Næsta vetur er áformað,
að 5. bekkur starfi í a.m.k. 3 deild-
um, bóknámsdeild, viðskiptadeild
og iðndeild. Einnig verður nem-
endum gefinn kostur á námi í
Grunnskóla l.S.l.
Við skólaslit ávarpaði skóla-
stjóri viðstadda og lýsti skóla-
starfinu. Tíu og tuttugu ára gagn-
fræðingar færðu skólanum mynd-
arlegar peningagjafir til kaupa á
skiðalyftu. Síðan var gestum boð-
ið til kaffidrykkju.
Fastráðnir kennarar voru niu
auk skólastjórans, Sigurðar Krist-
jánssonar.
Að þessu sinni luku 8 nemendur landsprófi frá Flúðaskóla og sjást
þeir hér ásamt skólastjóranum, Bjarna Ansnes (lengst til hægri) og
umsjónarkennara sfnum, Jóhannesi Sigmundssyni.
(Jr borðsal mötuneytis Menntaskólans á tsafirði.
Blómlegt félagslff hefur sett svip sinn á starf Menntaskóians á
tsafirði. Myndin er frá sýningu nemenda á „Lýsiströtu“ undir
leikstjórn Bryndfsar Schram.
Menntaskólinn á ísafirði
brautskráir 35 nýstúdenta
MENNTASKÓLANUM á
ísafirði var slitið laugar-
daginn 5. júní sl. og lauk
þar með 6. starfsári skól-
ans. Skólaslitaathöfnin
fór fram í Alþýðuhúsinu
á ísafirði að viðstöddu
f jölmenni. Að þessu sinni
brautskráði skólinn 35
nýstúdenta.
Hæstu einkunnir hlutu:
Jónas Guðmundsson frá Siglu-
firði, af eðlisfræðikjörsviði,
með fullnaðareinkunnina 8,0,
Stefán Jóhann Stefánsson, frá
Isafirði, af náttúrukjörsviði,
með fullnaðareinkunnina 7,8,
og Sigríður Hrafnkelsdóttir frá
ísafirði, af félagsfræðikjör-
sviði, með einkunnina 7,8. Alls
voru nemendur skólans í vetur
161 f 9 bekkjardeildum og voru
70 Isfirðingar við nám I skólan-
um, 32 annars staðar að af Vest-
fjörðum og 59 voru búsettir
utan Vestfjarða.
Skólameistari, Jón Baldvin
Hannibalsson ræddi í upphafi
skólaslitaræðu sinnar helztu
nýmæli, sem upp voru tekin í
starfi skólans á liðnu skólaári.
Þ.á m. má nefna, að kennslu-
tímum hefur verið fjölgað, og
námsefni aukið f efna- og eðlis-
fræði á raungreinakjörsviði, og
tekin upp í fyrsta sinn kennsla f
stjörnufræði. Á félagsfræða-
sviði hefur stærðfræðikennsla
verið aukin, sem og kennsla í
íslenzkum og erlendum sam-
tímabókmenntum. Þá má geta
þess, að valgreinum, sem
nemendur á 2.—4. ári gefst
kostur á að nema, hefur fjölgað
verulega. Meðal nýrra val-
greina, sem upp voru teknar á
liðnu skólaári, má nefna: heim-
speki, sálarfræði og mann-
fræði, spænsku, viðbótarnám f
stærðfræði og námskeið fyrir
leiðbeinendur f íþrótta- og
æskulýðsstarfsemi (Grunnskóli
ÍSI). Alls voru 20 valgreinar í
boði, en 15 hlutu næga þátt-
töku. Menntaskólinn hefur náið
samstarf við aðra skóla á staðn-
um, tónlistarskólann, vélskóla
og stýrimannaskóla, tækniskóla
og húsmæðraskóla. Nemendur
M.I. stunda sumar valgreinar
sinar við þessa skóla. Um 20
menntaskólanemar stunda
jöfnum höndum tónlistarnám
við tónlistarskólann. 5 daga
kennsluvika var tekin upp i
fyrsta sinn í vetur, og mun sú
skipan haldast framvegis. Alls
störfuðu 17 kennarar við skól-
ann á liðnu skólaári, þ.a. 12
fastráðnir, en 5 stunda-
kennarar. Einn kennaranna
gegnir jafnframt starfi skóla-
bókavarðar í 'A starfi.
Af 161 nemanda, sem hóf
nám við skólann við upphaf
skólaárs 1975, höfðu 11 (6,8%)
helzt úr lestinni af ýmsum
ástæðum áður en lokapróf hóf-
ust. Af 150 nemendum, sem
þreyttu próf, stóðust 128 í fulln-
aðareinkunn (85,33%), en 30
nemendur urðu að þreyta
endurtektarpróf í einni eða
fleiri greinum og stóðst 21. Alls
hafa því 132 nemendur staðist
próf við skólann á þessu vori
(88,67 %) og þar með tryggt sér
rétt til áframhaldandi náms. 17
af þeim 150 nemendum, sem
próf þreyttu, stóðust ekki lág-
markskröfur (11,33%). Alls
hafa því 28 nemendur ýmist
horfið frá námi yfir veturinn
eða fallið á lokaprófum
(17,3%).
Á lokaári þreyttu 35 stúd-
entsefni stúdentspróf og stóð-
ust þeir allir (þ.a. 1 utanskóla).
Alls hefur skólinn útskrifað 94
stúdenta. I hópi nýstúdenta i ái
voru 15 stúlkur og 20 piltar, 15
útskrifuðust af félagsfræða-
Framhald á bls. 20