Morgunblaðið - 17.06.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.06.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1976 17 BLÚM VIKUNNAR UMSJÓN: ÁB. Garðakobbar Allir þekkja jakobsfífilinn íslenzka, sem ennþá skreytir þúfnakolla og holtabörð um land allt þar sem átroðningur og ræktun hafa ekki útrýmt honum. Jakobsfífillinn (Erigeron) er af körfublóma- ætt. Sá íslenzki er smávax- inn, gulur með bláum eða hvítum tungukrónum, lagleg steinhæðajurt í þurrum, létt- um jarðvegi. Nú eru tvær útlendar tegundir af erigeron búnar að vinna sér þegnrétt meðal fjölærra garðplantna hér á landi og virðast láta sig engu skipta kulda og mis- jafnt tíðarfar. Það eru GARÐAKOBBI og GULLJAK- OBSFÍFILL. Garðakobbinn (Erigeron speciosus) er um hálfur metri á hæð. Upp úr myndarlegri blaðhvirfingu vaxa margir stinnir stönglar með allt að 6—7 blómum sem eru með gulri miðju en bláum tungukrónum 4—5 sm í þvermál. Blómin eru í hálfsveip og springa út svo að segja öll í einu svo þetta er mjög skrautlegur brúskur þegar hann er orðinn sæmi- lega stór og hann stendur lengi í blóma. Blómin eru mjög góð til borðskreytinga. Gulljakobsfífillinn (Eriger- on aurantiacus) er allur minni, 30 sm á hæð og blómin rauðgul, færri á hverj- um stöngli og ekki eins stór. Báðir eru „kobbarnir" afár harðgerðir og mynda með tímanum stóra fallega toppa sem vagga sér mjúklega í golunni svo yndi er á að horfa. Þeir ættu skilið meiri útbreiðslu. Báðum tegund- unum er auðvelt að fjölga með skiptingu. H. P. Grein þessa fékk BLÓM VIKUNNAR senda norðan úr Hörgárdal og er ekki fyrsta greinin sem því hefur borizt utan af landsbyggðinni, því nú þegar hafa verið birtar þrjár ættaðar úr Austur- Skaftafellssýslu, og eru fleiri væntanlegar þaðan og einnig frá Akureyri. Ekki hirðum við um að gera frekari grein fyrir höfundum pistlanna að sinni en hyggjum á allsherjar út- tekt í því efni á áramótum ef þættinum verður svo langra lífdaga auðið. Okkur er það óblandin ánægja hversu vel tilmælum okkar um að senda pistla hefur verið tekið og viljum hvetja fleiri að láta sér þetta að fordæmi verða. Utanáskriftin er: Garð- yrkjufélag íslands — Blóm vikunnar — Pósthólf 209, Reykjavík. ÁB Engin útsala Rém, 15. júní — AP, NTB. EKKERT varð úr kjötútsölunni f Róm, sem kommúnfskir skærulið- ar þar f borg kröfðust sem lausn- argjalds fyrir kjötkaupmann, er þeir rændu í gær. Lögreglan fékk í dag ábendingu um aðsetur mannræningjanna, réðst inn í fbúðina og leysti kjötkaupmann- inn úr haldi. Einn ræningjanna var handtekinn. Borgarskæruliðarnir, sem nefna sig „kommúníska bardaga- sveit“, réðust á kaupmanninn, Giuseppe Ambrosio, í gær er hann var að fara að heiman, settu yfir hann poka og köstuðu honum inn í bíl, sem svo var ekið á brott. Kröfðust þeir þess að nautakjöt yrði selt i Róm i dag á 1.500 lirur kílóið (um 325 krónur), en það er um þriðjungur venjulegs útsölu- verðs. Sögðu ræningjarnir að ef 70 lestir af nautakjöti yrðu ekki seldar á þessu verði í dag, yrði Ambrosio tekinn af lifi. Mannræningjarnir földu Am- brosio í húsi einu í miðborginni, sem er i eigu hins opinbera, en hefur staðið autt og ónotað um skeið. Þar vildi svo til að eftirlits- maður átti leið um i embættiser- indum í dag. Þegar hann kom upp á aðra hæð, var ráðizt á hann og hann keflaður. Tókst honum að komast undan og kalla á hjálp. Þegar lögreglan kom á vettvang fann hún Ambrosio bundinn uppi í rúmi. Verð á nautakjöti hefur hækk- að um 20 — 25% á undanförnu ári, og er stór liður í verðbólg- unni, auk þess sem innflutningur á nautakjöti á sína sök á miklum gjaldeyrisskorti þar í landi. Ránið á Ambrosio er 28. mann- ránið á Italíu á þessu ári. ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU <§> Philips hljóðritarar gera öllum, sem þurfa að skrifa bréf og skýrslur lifið mun léttara. Þeir sem handskrifa slíkt, nota til þess allt.að 15 sinnum lengri tíma en nauðsynlegt er. Þannig fer mikill nýtanlegur tími til spillis — tími sem til annars væri betur varið og kostar peninga. Philips hljóðritarakerfið er fjölbreytt og með tæki til hvers konar nota. Veljið milli borðtækja eða vasaminnistækja til að skrá minnispunkta, i bílnum, úti við, á sýningum og fundum. Öll tækin nota sömu spólu, „mini-kassettuna", sem tekur allt að 30 minútna efni. Kassettuna erauðvelt að pósta. Philips hljóðritarakerfið er fullkomn- asta kerfi sinnar tegundar. Leitið nán- ari upplýsinga strax í dag. | Vinsamlegast sendið mér nánari upplýsingar um | Philips hljóðritara I 1 Nafn ___________________________________________ I I Fyrirtæki -------------------------------------- I I Heimilisfang ----------------------------------- heimilistæki sf Sœtúni 8 þjónusta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.