Morgunblaðið - 17.06.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 17. JUNI 1976
21
Bílasal-
an Braut
— Nýlega tók ný bilasala til
starfa hér í Reykjavík — Bila-
salan Braut. Er hún í húsnæði
því, er Persía hafði áður í Skeif-
unni 11. Er þar stór sýningarsal-
ur, sem rúmar 30 — 40 bíla. Eig-
endur bílasölunnar eu Haukur og
Hafsteinn Haukssynir, en sölu-
menn eru alls fjórir. Sjást þeir
hér á myndinni í sýningarsalnum.
Bílasalan er opin frá kl. 8. á
morgnana til kl. 7 á kvöldin alla
daga nema sunnudaga.
Fjölmenni á torfærukeppni á Hellu
LAUGARDAGINN 15. mal s.l. var
haldin við Varmadalslæk á Rang-
árvöllum fjórða torfærukeppni
F.B.S. Hellu.
Keppni hófu 8 þátttakendur, 6
luku við hana. I keppninni bar
mest á Willys-jeppum eða 6, en
auk þeirra voru 2 Bronco jeppar,
sem skipuðu sér í 1. og 2. sæti.
Hlutskarpastur varð Kristinn
Kristinsson með 1110 stig, hann
ók Bronco árg. 1974, 8 cyl., R 8871.
Kristinn varð nr. 2 í keppninni í
fyrra. Annar varð Karl Ólafsson
með 995 stig, einnig á Bronco árg.
1974, 8 cyl., L 879. Þriðji varð
Þórður Valdimarsson með 970
stig. Þórður, sem var í 1. sæti í
fyrra, ók Willys árg. 1974 8 cyl. R
696. I fjórða sæti varð Hafsteinn
Hafsteinsson með 910 stig, hann
ók Willys árg. 1973, 8 cyl., R
23423.
Á fjórða þúsund áhorfendur
fylgdust með keppninni, sem
fram fór I blíðskaparveðri.
Konur og unnustur félaga f Björgunarsveitinni Albert á Seltjarnarnesi styrkja starfsemi sveitarinnar
með kaffisölu f Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi 17. júnf.
Stúlkurnar eru hlédrægar og verða að mestu við störf f eldhúsinu, en björgunarsveitarmenn munu
sjálfir ganga um beina og hafa fengið forláta svuntur svo sem hæfa þykir.
Flytur inn beint frá útlöndum
Skagaströnd 10. júní 1976.
Skagaströnd þótti snemma álit-
legur verzlunarstaður og öldum
saman höfðu kaupmenn hér
verzlun og fluttu inn erlendar
vörur f skiptum fyrir framleiðslu
landsmanna. Þessi tilhögun mun
svo hafa lagzt af f kringum sfð-
ustu aldamót. Nú hefur þessi
þráður verið aftur upp tekinn að
nokkru leyti af Hallbirni J.
Hjartarsyni, kaupmanni, sem
hefur hafið innfiutning á ýmsum
vörum beint til Skagastrandar.
Hallbjörn opnaði í dag sýningu á
frönskum fellihýsum og tjald-
vögnum, sem notið hafa mikilla
vinsælda erlendis og eru sérlega
þægilegir f meðförum, þarf aðeins
eitt handtak til þess að upp úr
kerru, sem er að fyrirferð svipuð
sæmilegri jeppak'crru, spretti
fullbúið hjólhýsi. A meðfylgjandi
mynd má sjá nokkrar gerðir þess-
ara vagna, fyrir og eftir uppseui-
ingu.
Fréttaritari.
Stefán Ágúst Kristjánsson:
Þó næSi stormnr vakna vorsins IjóS
og vlgja þennan dag til sigurgöngu.
Eg sé I anda fyrir æva löngu,
er ættarland var numiS, reis upp þjóS
viS frumstæS kjör, en konungslund og þor,
hér kappar reistu hof til sigurs goSum.
En skip sln margir brutu é landsins boSum. —
Á breiSum, mjúkum söndum hurfu spor.
ÞiS horfiS yfir hýra íslands byggS
og hlustiS. njótiS radda biérra fjalla,
þiS heyriS vorsins kliS til ykkar kalla:
Ó komiS! ÆttjörS heitiS djúpri tryggS.
Hve jörSin angar, brekkusóley bleik
og blágresiS, þaS litkar hvamm I skjóli.
en vorperlan þar vex 6 öldnum hóli,
sem veitir bömum yndi, i kátum leik.
Hér birtist eg, sem meitluS draumsins mynd
þess munaSar, sem lyftir hulinstjaldi
og varpar Ijóma, tign og töfrafaldi
um tinda þá, sem speglar f jallsins lind
og hnjúkana, sem hæst við loftiS ber,
en heljarstormar sorfið hafa aS brúnum,
þeir gnæfa yfir dalsins grænu túnum,
þó grálynd þoka aS vöngum hossi sér.
Og vorsins bam, þaS fagnar fjallsins tind
erfegurst sólin skin, og þangaS sækir
á brattann, þar sem byltast kátir lækir
í blómahltS, þaS finnur sina mynd
viS enduróm úrfirS, viS fuglakvak. —
Þvi finnst, sem huldar dísir syngi og dansi
og sveipist fósturfoldin brúSarkransi.
— ÞaS finnur sinna drauma vængjablak. —
Eg veit þiS tigniS mig á margan hátt.
En moldin gefur flestum brauS til þarfa.
þarfinnur barniS blessun sinna starfa
og bóndinn sina framtiS. trú og mátt. —
— En hafiS ólgar, huga margra dró
til hreystiverka. — Gull úrdjúpi stigur. —
En yfir landiS loftsins gandur flýgur
og leitar yfir höf og bláan sjó.
Eg sé I ykkar augum mæra mynd.
sem móSir hefur barnssálinni gefiS,
i hennar faSmi fyrsta bænastefiS
af foldu steig, aS himins blárri lind.
Þar lærSuS þiS hið Ijúfa andans flug
og lituS fósturjörS í æSra veldi,
þá nærSist ykkar sál af sólareldi,
er sóruS henni ykkar hug og dug. —
Lit upp min þjóS, i dag skal dáSa til
viS dyn hins nýja tima kynslóS risa,
er kyndli trúar vilji veginn lýsa
og verjast kúgun. — Þróist aldabil,
er leiSi þjóS i hverjum vanda vel
þeir völdu synir lands. er fólkiS treystir.
Ó GUÐ VORS LANDS! sem ánauSalla leystir.
Gef óttalausa framtiS. VÍKI HEL.
Athugasemd varðandi
sjónvarpsstrákinn Palla
Að marggefnu tilefni í blaða-
skrifum um barnatima Sjónvarps-
ins, „Stundina okkar“, og fjar-
veru „Páls Vilhjálmssonar" i
tveimur siðustu þáttunum á þessu
vori skal þetta tekið fram:
Um siðustu áramót, þegar
Guðrún Helgadóttir tókst á hend-
ur að semja þann texta, sem Palli
átti að flytja, og Gísli Rúnar
Jónsson tók við stjórn brúðunnar
og flutningi textans, var samið
um ákveðnar greiðslur til þeirra
fyrir hvern þátt, sömu upphæð til
beggja, og gengu þau umtölulaust
að þeim skilmálum, sem þeim
voru boðnir. Eftir um það bil tvo
mánuði, þegar sýnt var, að þessi
samvinna gafst vel og Palli hafði
náð vinsældum, voru greiðslur
þessar hækkaðar um þriðjung eft-
irtölulaust. Af Sjónvarpsins hálfu
var litið svo á, að um bindandi
samkomulag væri að ræða, á með-
an „Stundin okkar“ væri á dag-
skrá i vor, þ.e. fram á hvítasunnu.
Þegar eftir var að taka upp þátt
Palla í tveimur síðustu „Stundun-
um“ á þessu vori, kom Gísli Rún-
ar að máli við undirritaðan og
krafðist hækkunar á þóknun
sinni. Rökstuddi hann kröfuna
aðallega með þeim vinsældum,
sem honum hefðu hlotnazt í gervi
Palla, auk þess sem hann sagðist
eiga verulegan hlut í textanum.
En samkomulag hafði verið um
það milli þeirra Guðrúnar, að
honum væri heimilt að vikja til
orðum frá handriti, eftir þvf sem
honum þætti fara betur í munni.
Upptöku á samtölum þeirra
Palla og Sigríðar M. Guðmunds-
dóttur hefur verið hagað þannig,
að tekið hefur verið upp á einum
degi efni í þrjá barnatima. Til
undirbúnings taldi Gisli Rúnar
sig hafa þurft annan dag. Fyrir
þessa tvo daga hefur hann fengið
greidda þóknun, sem nemur tíma-
kaupi dagskrármanna í Sjónvarp-
inu fyrir rúmlega 44 vinnustundir
eða meira en fjórðungi mánaðar-
launa. Þessa upphæð þótti ekki
fært að hækka, m.a. vegna for-
dæmis.
Það skal tekið fram, að Guðrún
Helgadóttir hefur engar kröfur
gert i þessu sambandi, og hefur
samvinna við hana verið hin
ánægjulegasta að öllu leyti. Og
vonir standa til, að Palli komi
hress og kátur úr sveitinni með
haustinu.
14. júni 1976
Jón Þórarinsson,
dagskrárstjóri.