Morgunblaðið - 17.06.1976, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 17.06.1976, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. jUNt 1976 25 Skákverðlaun afhent SKAKSAMBAND tslands efndi til kaffisamsætis f Hreyfilshúsinu s.I. föstudags- kvöld. Voru þar afhent verð- laun í helztu mótum vetrarins, svo sem Skákþingi tslands og fyrir deildakeppnina I skák. Myndin sýnir Einar S. Einars- son, forseta Sí, afhenda Hauki Angantýssyni, Skákmeistara tslands, 1976, verðlaunagrip- inn. Á minni myndinni er grip- ur sá, sem keppt er um í kvennaflokki. Heitir hann „Skákdrottningin“, og er unn- in úr Hallormsstaðabirki af Halldóri Sigurðssyni kennara og bónda, Miðhúsum, Egils- stöðum. Tímaritið skák gaf gripinn, og handhafi hans nú er Birna Norðdahl. Hún gat ekki verið viðstödd verðlauna- afhendinguna vegna veikinda. Annar gripur var einnig af- hentur í fyrslta skipti, bikar fyrir sigur f deildakeppninni. Skákfélagið Mjölnir hlaut bik- arinn, en hann er gefinn af Samvinnubankanum. Ljósm. Sigurjón Jóhannsson. Helgi Ölafsson sigraði í „Skák í hreinu lofti” HELGI Ólafsson bar sigur úr být- um f skákmótinu „Skák f hreinu lofti“, sem Skáksamband tslands og Taflfélag Reykjavfkur efndu til. Mót þetta var sem kunnugt er haldið vegna Winston- skákkeppninnar. I kvennaflokki sigraði Margrét Ponzi með 5 vinn- inga og f flokki 14 ára og yngri sigraði Jóhann Hjartarson með 6V4 vinning. Heildarverðlaun f Helgi Ólafsson tekur við verð- launum sfnum. mótinu voru 250 þúsund krónur. Þátttakendur voru 122 og þar af luku 110 keppni. Lokastaðan f flokki 15 ára og eldri varð þessi: Tefldar voru 11 umferðir. 1. Hclgi Ólafsson 9 v 68W 2. Gunnar Gunnarsson 9 v 68 3. Jónas P. Erlingss. 9 v 63W 4. Margeir Pétursson 8Vi v 70 5. Sævar Bjarnason 8Vi v 66Vi 6. Jón L. Árnason 8W v 65Vi Margrét Ponzi tekur við verðlaun- um úr heiidi Guðfinns Kjartans- sonar formanns TR. Starfsmenn Garða- bæjar stofna félag HINN 20. maí s.l. var stofnað starfsmannafélag bæjarstarfsmanna í Garða- bæ. Samþykkt var á fundinum að sækja um inngöngu f B.S.R.B. Kristján Thorlacius, form. B.S.R.B. kom á fundinn og skýrði frá samningamálum o.fl. í stjórn og varastjórn voru kosin: Jón M. Björgvinsson, aðal- bókari, formaður, Gísli Valdi- marsson, forstöðum,, Soffia Haraldsdóttir, gjaldkéri, Kjartan Bjarnason, verkstjóri og Erla Jónsdóttir, bókavörðjlr. Dregið hefur verið í happdrætti hestamanna- félagsins Mána. Vinningur Mallorka ferð kom á miða númer 498.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.