Morgunblaðið - 25.06.1976, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNÍ 1976
EFTIR INGIBJÖRGU Á JOHNSEN:
ALDALANGUR draumur
mannkynsins hefur verið um
bættan heim. Beztu menn hvers
tíma, hverrar kynslóöar, hafa
sett sér það markmið að stuðla
að fegurra mannlífi, glæða og
efla guðseðlið i mannssálinni. I
fegursta dæminu, Kristi, er
ekki hægt að komast lengra í
fórn og friðþægingu, kærleika
og umburðarlyndi. Þótt sá boð-
skapur hafi nú hljómað í nær
2000 ár, er ástæða til að staldra
við andartak og íhuga nokkuð
hvar við erum á vegi stödd.
Margir hafa tekið upp merkið
og aldrei hveikað frá hugsjón
sinni. En öfl haturs og heiftar,
úlfuðar og ómenningar hafa
lika átt sína talsmenn, sem
reynt hafa að særa manssálirn-
ar til fylgis við sig. Alltaf hefur
tíminn þó leitt í ljós að sterkari
stofn var af hinu góða og fagra,
að sól sigrar hríð og kærleikur
hatur. Mörg eru í dag þau öfl
þjóðfélagsins, sem vinna að því
að grafa undan siðgæði og
menningu lands okkar, bæði til
orðs og æðis. Oft verður þeim
furðumikið ágengt og hafa þá
afgerandi áhrif á almennings-
álitið, spinna upp tízkutildur án
hugsunar, án gildis fyrir betra
mannlif og oft til hins verra.
Samt hafa þau öfl aldrei þá
rödd, sem vekur til þroska og
fegurra lífs, örvar til nýrra
dáða og starfa í þágu þess
draums sem við hljótum að
vona að verði veruleikinn að
lokum.
Að leggja hönd á plóginn til
hins betra getur hver og einn á
Gegn orðskrípinu
„áfengismenning” og
aðstandendum hennar
sinum stað, sinni stund. Hvert
ráð á sína rödd. Nefna vil ég
rödd reglu okkar, Góðtemplara-
reglunnar. Hvað skyldi hún
boða? — Hvað skyldi hún bjóða
friðvana mannkyni í leit að
hamingju og heillum. Hún boð-
ar okkur baráttu gegn einu
versta böli, sem heiminn þjáir,
áfengisbölinu. Hún býður okk-
ur til starfs fyrir göfuga hug-
sjón grundvallaða á kristni,
hugsjón sem í veruleikanum
býður betra mannlíf. Með orðs-
ins brandi skal baráttan háð,
með beittu sannleikans sverði
skal höggvið.
Öll þekkjum við áfengisbölið,
sem er andstæða mannlifsins i
sannri og eðlilegri mynd. Öll
þekkjum við þau öfl, sem vinna
með ráðum og dáð að aukinni
áfengisneyzlu þjóðarinnar auk-
inni ómenningu hennar, þau öfl
sem eru háð hugsunarlausri
tízku, öfl peninga þeirra sem
hagsmuna eiga að gæta. Öll vit-
um við um orðskripið áfengis-
menning, sem hljómar af vör-
um þeirra sem bjóða æsku jafnt
sem elli að bergja af bikar þess
eiturs, sem lamar viljaþrótt og
siðgæðisþrek framar öllu öðru
og berst mót guðsneistanum í
hvers manns sál.
Til baráttu Reglunnar um
áratugi hefur að vonum andað
köldu frá boðberum þessarar
frumstæðu menningar. Þeir
hafa haldið þeirri kenningu að
fólki að þar sem ekki væri vin
væri engin menníng. Sjálfs-
ánægja hófdrykkjumannanna
minnir á úlfinn i sauðagær-
unni. Þeir forðast að halda sig
við staðreyndir en ginna æsk-
una til fylgis við sig með fagur-
gala og blekkingum. Loka aug-
unum fyrir öllu því illa sem af
áfengi stafar, loka augunum
fyrir því slysi sem áfengið er,
svo sem raun ber vitni í okkar
þjóðfélagi sem öðrum. Sjálf-
stæðir vilja menn vera og eiga
að vera, en áfengi á ekki sam-
leið með sjálfstæðum manni,
því það gerir ekkert annað en
auka á samfélagsvandamálin
um leið og reisn einstaklingsins
fjarar út. Þeir menn sem boða
áfengi sem sjálfsagðan granna í
tilveru okkar eru hættulegustu
andstæðingarnir sem við er að
glíma, það eru fyrst og fremst
þeir sem skapa hið óhugnan-
lega almenningsálit sem svo
víða mætir manni á opinberum
vettvangi sem í helgustu véum
heimilisins þar sem allt virðist
leika í lyndi á yfirborðinu.
Orsakanna til svo almennrar
ofneyzlu áfengis má víða leita.
Ein meginorsökin er sú hömlu-
lausa áfengissala, sem rikið
stendur að. Það verður að telj-
ast vafasamur heiður ungu lýð-
Landsmálafélagið Vörður
Sumarferð
Varðar
um Þingvelli, Þjórsárdal, Sigöldu og
Landssveit sunnudaginn 27. júní 1976
| | Varðarfélagið mun efna til ferðar um
Þingvelli — Þjórsárdal — Sigöldu —
Landssveit, sunnudaginn 27. júni n.k.
Mannvirkin við Sigöldu verða skoðuð
undir leiðsögn. Áætlað fargjald er kr.
2.500 - fyrir fullorðna og kr. 1 .500 - fyrir
börn. Innifalið í verðinu er hádegis- og
kvöldverður. Lagt verður af stað frá Sjálf-
stæðishúsinu, Bolholti 7 kl. 8.00árdegis.
| | Til að auðvelda undirbúning óskast
þátttaka tilkynnt sem fyrst í sima 82900.
| | Miðasala í Sjálfstæðishúsinu Bolholti
7.
[J Einstakt tækifæri til að ferðast um stórbrotið landslag.
| | Varðarferðir eru ódýrar; bjóða upp á traustan og ódýran ferðamáta í góðum
félagsskap.
[[] Allir eru velkomnir í Varðarferðina.
Innifalið í fargjaldi hádegis- og kvöldverður Miðasala alla daga til kl. 21.
Vonin
æsku landsins
veldi að byggja eina aðaltekju-
lind sína á því að eyðileggja
þjóðfélagsþegnana i stað þess
að hlynna að þeim, rífa niður i
stað þess að byggja upp. Vald-
hafar á Islandi eru líka hrifnir
af vínmenningunni, því að í öll-
um opinberum veizlum nema
hjá núverandi menntamálaráð-
herra, flóir vin á borðum og oft
er þar lítill munur á skömm og
heiðri. Á almennum vettvangi
sjáum við æ oftar drukkna
karla og konur, unga sem
aldna, streyma úr samkomu-
húsunum og hanastélsboðum
og almenningsálitið stendur
glottandi álengdar, oft með
sýndarmennsku hófdrykkju-
mannsins i svipnum.
Sorglegasta afleiðingin af
víninu er þó ofdrykkjumaður-
inn. Maðurinn, sem hefur glat-
að trú á lifið og sjálfan sig og
lifir aðeins til þess að drekka
meira. Þessar hryggðarmyndir
götunnar vekja þó furðu fáa til
umhugsunar um þessi mál og
lítils vilja verður vart hjá því
opinbera til að gera eitthvað til
bjargar þessum fórnarlömbum
ofdrykkjunnar. Þannig er þjóð-
líf okkar og almenningsálit ger-
spillt í þessum málum. Ríkis-
valdið sjálft vinnur að þvi að
leggja framtíð fjölda þegna
sinna í rústir og stuðlar þannig
að afbrotum, heimilisófriði,
sorg mæðra, eiginkvenna,
barna og siðast en ekki sízt,
viðheldur almenningsálitinu og
andvaraleysi þeirra sem
sofandi fljóta að feigðarósi.
Á allra siðustu árum hefur
bindindisstarfsemi í landinu
nokkuð vaxið fiskur um hrygg,
en í gegn um tíðina er það
aðeins ein hreyfing í landinu,
sem aldrei hefur misst sjónar á
draumi hugsjónar sinnar og
aldrei hvikað í oft vonlítilli bar-
áttu sinni gegn myrkraöflum
þjóðfélagsins. Þetta er sú
hreyfing sem ég sagði áðan að
byði okkur til starfs og baráttu
fyrir fagurri hugsjón, betra
mannlífi. Eina hreyfingin sem
vínmenningarpostularnir óttast
að ráði er Góðtemplarareglan,
sem er skipulögð og byggð upp í
trú á manninn sjálfan. Þess
vegna hefur verið ráðizt á
Regluna af óvægnum boðber-
um þeirrar hentistefnu, sem
ríkjandi er í áfengismálum.
Þegar á reynir, skjótast
rógberarnir í felur, þvi að þeir
vita vafalaust, að skúma-
skot hæfa bezt iðju þeirra.
En þrátt fyrir árásir og löggjöf
sem brýtur í bága við hugsjón
Reglunnar, hefur hún barizt
ótrauðri baráttu og líf sitt á
hún að þakka göfugri hugsjón.
Heyra má menn kasta fram
þeirri firru að starfið hafi
engan árangur borið, en rök og
staðreyndir stenzt sú firra ekki.
Ég vil spyrja, hvar værum við á
vegi stödd í áfengismálum ef
engin Góðtemplararegla hefði
verið, engin hreyfing sem
spornað hefði á móti og barizt á
móti hvers konar áfengis-
nautn? Ég vil ekki hugsa þá
hugsun til enda, því að þá vær-
um við að tala um sökkvandi
skip á rúmsjó. -— Til heilla
hefur starf AA-samtakanna
eflzt í okkar landi og þar hefur
Regian eignazt góðan banda-
mann, enda er góð samvinna á
Hjallabraut — Leiguhúsnæði.
Til leigu nú þegar 5 — 6 herbergja íbúð við
Hjallabraut í Hafnarfirði. Teppi í gólfum.
Gluggatjöld fylgja. Semja ber við undirritaðan,
sem gefur allar nánari upplýsingar.
Hilmar Ingimundarson,
hæstaréttarlögmaður,
Ránargötu 9, sími 27765.
Fósturheimili
Gott heimili hjá eldri konu eða hjónum í
Reykjavík, óskast gegn endurgjaldi fyrir rólega
°g snyrtilega 46 ára konu. Uppl. veitir Sigrún
Júlíusdóttir yfirfélagsráðgjafi, Kleppsspítala í
síma 38160 eða 21428.