Morgunblaðið - 25.06.1976, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNl 1976
Tjónvaldar á ferð
við Lögreglustöðina
SLYSADEILI) lögreglunnar hef-
ur beðið Morgunblaðið að auglvsa
eftir vitnum að eftirtöldum
ákeyrslum.
A tímabilinu frá 16. — 18. júní
var ekið á bifreiðina R—48666,
sem er Austin-mini-fólksbifreið,
þar sem hún stóð við husið nr. 11
við Leifsgötu. Bifreiðin er dælduð
og rispuð hægra megin að aftan.
Mánudaginn 21. júní var ekið á
bifreiðina G—9942, sem er gul
Mazda-fólksbifreið, þar sem hún
stóð í sundi vestan við hús númer
27 við Laugaveg. Gerðist þetta á
tímabilinu kl. 9.30 til 10.30 að
morgni. Vinstri hurðir eru
skemmdar.
Miðvikudaginn 23. júni var ekið
á bifreiðina R—45284, blá Lada-
fólksbifreið, þar sem hún var á
merktum stöðureit við austur-
enda Lögreglustöðvarinnar við
Hverfisgötu, Rauðarárstígsmegin.
Þetta gerðist á tímabilinu 16.05 til
16.20. Hægri framhurð var dæld-
uð og rispuð.
Loks var fimmtudaginn 24. júní
ekið á bifreiðina R—75, bronz-
gula Pontiac-fólksbifreið, þar sem
hún stóð annaðhvort á Lindargötu
við Skuggasund eða á bifreiða-
stæðinu við Lögreglustöðina að
norðanverðu. Gerðist þetta á
tímabilinu 15.30 til 16.00. Aftur-
aurbretti vinstra megin töluvert
dældað.
Prestastefnan
hefst á þriðjudag
PRESTSTEFNA íslands í ár
hefst á þriðjudaginn með messu í
Dómkirkjunni kl. 10.30, en fundir
hennar verða að öðru leyti f
Bústaðakirkju í nýju safnaðar-
heimili þar. t nýútkomnu Frétta-
bréfi Biskupsstofu er viðtal við
biskupinn, herra Sigufbjörn
Einarsson, þar sem hann greinir
m.a. frá þvf, að aðalumræðuefni
prestastefnunnar verði um sál-
gæzlu. Flutt verða fjögur erindi
um sálgæzlu og umræðuhópar
munu starfa út frá þeim erindum.
Þá verða einnig flutt útvarps-
erindi á vcgum prestastefnunnar.
I viðtalinu segir biskup einnig
um hvað hann haldi að verði
athyglisverðasta mál prestastefn-
unnar: „Eg reikna með því að
Vilcabamba
fundin?
Lima 24. júní. Reuter.
PERUSKUR rannsóknaleiðangur
staðhæfir að hann hafi fundið
hina týndu Inkaborg Vilcabamba,
en hún var síðasta höfuðborg
þeirra. Segir leiðangurinn að
borgin sé inni í þéttum frumskóg-
inum fyrir austan Cuczo.
Inkarnir flýðu frá borginni á
16. öld þegar Spánverjar herjuðu
á þá. Einn fulltrúi í leiðangrinum
segir að komið hafi verið að borg-
inni þann 6. júní. Hafi hún verið
hulin frumskógargróðri og sé að
flatarmáli um 15 ferkílómetrar.
I Reuterfrétt segir að svo virð-
ist sem ekki hafi lifandi vera
nálgazt borgina síðan á 16. öld.
Rannsóknum þessum stjórnar
sagnfræðingurinn Edmundo
Guillen. Komst hann að borginni
eftir að hafa kynnt sér fornar
heimildir og frásagnir Spánverja
um það er þeir reyndu að vinna
borgina.
Nýr framkvæmda-
stjóri umferðarráðs
FRAMKVÆMDANEFND um-
ferðarráðs hefur veitt Pétri
Sveinbjarnarsyni, framkvæmda-
stjóra ráðsins, leyfi frá störfum í
eitt ár, frá og með 1. júlí, vegna
starfa sem framkyæmdastjóri Is-
lenzkrar iðnkynningar. Nýr fram-
kvæmdastjóri h-efur verið settur
fyrir þetta tímabil og er það Árni
Þór Eymundsson.
k’erndum
Kemdúm
voLndi
þetta verði allt athyglisvert, en
þarna eru fjögur erindi um þetta
mikilvæga mál, sálgæzlu, það er
þáttur í starfi prestsins, sem ekki
er mikið auglýstur og það er hins
vegar ákaflega ríflegur hluti af
starfi hvers prests, sem starf sitt
rækir, en gerist yfirleitt I kyrr-
þey. Það leita fjölmargir á fund
presta I margvíslegustu erindum
og vegna margvíslegustu vanda-
mála, sem presturinn reynir að
bæta úr eftir beztu getu. Ef svo
ber undir vinnur presturinn þetta
starf I samvinnu við aðra aðila,
oft er nauðsynlegt að leita sam-
starfs við lækni t.d. ef auðsætt er
að um vanheilindi er að ræða, sem
Iæknar geta bætt úr. Eins kemur
það fyrír, þar sem samstarf presta
og lækna er eðlilegt, að læknar
vísi sjúklingum til presta."
— Góðtemplara-
reglan
Framhald af bls. 18
Góðtemplarareglan hefir staðið af
sér storma og hafrót mestu um-
brotatíma sem gengið hafa yfir ís-
land — frá öndverðu að flestra
dómi Starf hennar verður aldrei
metíð til fjár Og það er erfitt að
afmarka og meta raunsönnu mati
þýðingu þess fyrir þjóðfélagið og
fyrir einstklinginn
Leiða má llkur að þvi að reglan
hafi markað djúp spor á vegferð
Islenzku þjóðarinnar Og það fer
ekki á rrrilli mála að hún hefir bjarg-
að mannslifum
Einstaklingurinn er ætið dýrmæt-
ur en ekki sizt i litlu samfélagi Innt
inni bera íslendingar djúpa virðingu
fyrir llfinu þótt ekki fari ætíð mikið
fyrir þvi á hrjúfu yfirborði hvers-
dagsleikans
Liðsveitir góðtemplara etja kappi
við voldugan óvin sem gervallt
mannkyn skelfur fyrir. Varla er
nokkrum Ijósari en þeim þö.rfin fyrir
betri vopn og verjur, þörfin fyrir enn
harðari baráttu við bölvaldinn En
það sem unnizt hefur má aldrei
vanmeta
Slysavarnafélögin eru viðurkennd
og vinna ómetanlegt starf Góð-
templarareglan helgar sig sannar-
lega slysavörnum á afmörkuðu sviði
að vísu, en I orðsins fyllstu merk-
ingu Þvl skal hún virt vel."
FRUMSKILYROI AÐ
ÆSKANTAKI UPP
HANSKANN
Helgi Seljan alþingismaður sagði
m.a. I ræðu sinni:
„Og nltiu ára starfsafmæli þessar-
ar hreyfingar verður ekki á verðugri
hátt minnzt en með því að leitast við
að fá svar við þeirri spurningu hvað
unnt sé að gera i dag, hversu á ný
megi sækja fram, þó ekki væri til
endanlegs sigurs, heldur til þess
eins að hefja okkur upp úr þeim
öldudal sljóleika og kæruleysis, sem
I dag ríkir hjá öllum þorra þjóðarinn-
ar.
Reisi bindindismenn innan regl-
unnar ekki merkið með liðsstyrk
annarra þeirra, er leggja vilja hönd á
plóginn verða ekki aðrir til þess Og
frumskilyrði þess, að árangur náist,
er að æskan I landinu, hið hrausta
glæsilega æskufólk, sem nú fyllir
öldurhúsin I samfylgd áfengis sem
hins imyndaða gleðígjafa, að sú
djarfa æska megi snúast á sveif með
okkur, að liðsinni hennar megi fást
til athafna og átaka."
— Bókun 6 . . .
Framhald af bls. 2
Bretlandi og Danmörku áður en
þau gengu I bandalagið, verða
strax 1. júlí 1976 tollfrjáls á nýjan
leik. Þannig lækkar tollur á flök-
um í stofnríkjum EBE úr 15% I
3% 1. júlí 1976 og verður svo
alveg felldur niður 1. júlí 1977.
Hins vegar fellur strax niður 12%
tollur, sem verið hefur í gildi í
Bretlandi og Danmörku. Á sama
hátt lækkar tollur á frystri rækju
í stofnríkjum bandalagsins úr
20% í 4% og verður svo afnuminn
að ári, en í fyrri aðildarríkjum
EFTA, Bretlandi og Danmörku,
fellur 16% tollur alveg niður
strax.
Slíkur tollamunur í eitt ár verð-
ur samt ekki á ísfiski, sem féll
ekki undir EFTA samkomulagið,
heldur verður sami tollur á íáfiski
I öllum bandalagslöndum, 3.7% á
þorski, ýsu og ufsa í stað 12% og
15% og 2% á karfa í stað 6.4% og
8%.
Með framkvæmd á bókun nr. 6
hefur fríverzlunarsamningur Is-
lands og Efnahagsbandalagsins
frá 22. júlí 1972 tekið að fullu
gildi. Við samningsgerðina var
talið, að vörusvið samningsins
næði til 71% af heildarútflutn-
ingi íslands, en auk þess voru þá
19% af útflutningnum, þ.á m.
saltfiskur og síld, tollfrjáls i Efna-
hagsbandalaginu. Verður því
magnið af útflutningi Islands til
ríkja Efnahagsbandalagsins toll-
frjáls og óhindrað af innflutn-
ingshöftum framvegis.
Vegna tímabundinna ákvæða
bandalagsins eru ákveðnar teg-
undir sjávarafurða tollfrjálsar
eða á lækkuðum tollum, venju-
lega til eins árs í senn. Eru þessar
undanþágur veittar vegna þarfa
fiskiðnaðar innan bandalagsins.
Þar má sérstaklega nefna frystan
lax og ísvarða grálúðu eða frysta.
Þessar fisktegundir eru tollfrjáls-
ar. Þá er saltaður ufsi, heill, haus-
aður eða skorinn i stykki með 7%
tolli, sömuleiðis söltuð ufsaflök,
og síld, krydduð og söltuð í tunn-
um fyrir fiskiðnað, ber 8% toll.
— Iþróttir
Framhald af bls; 35
sinni voru þeir Óskar Tómasson
og Eiríkur Þorsteinsspn í Víkings-
liðinu, en af Þrótturum þeir Bald-
ur Hannesson og Jóhann Hreið-
arsson, Dómari var Sævar Sig-
urðsson og var hann seinn að átta
sig er línuverðirnir veifuðu auk
þess sem sá brotlegi hagnaðist oft
á dómum hans.
— Þriðjungur
hefur fallið . .
Framhald af bls. 36
janúar hefðu hins vegar verið
haldið próf í bókfærslu þar sem
71 gekkst undir próf og 32 ekki
staðizt eða 45%. 1 almennu rekstr-
arhagfræðinni hefðu 63 gengizt
undir próf I maí 1975 og 20 fallið
eða 32% en I almennu rekstrar-
hagfræðinni hefðu nú i mai 67
gengizt undir próf og 18 mistekizt
að ná tilskildu lágmarki eða 27%.
Árni sagði síðan, að ef bókfærslu-
prófin og rekstrarhagfræðin
væru tekin saman í eina heild
fyrir bæði árin kæmi í ljós að
fallprósentan væri nákvæmlega
hin sama eða 36% I hvorri grein.
Árni kvaðst hafa tilgreint þess-
ar greinar sérstaklega, þvi að í
þeim báðum væru gerðar strang-
ari kröfur á fyrsta ári viðskipta-
fræði en i öðrum, þar eð til að
standast þyrftu nemendur að
hljóta 6V4 stig af 10 en I öðrum
greinum væri lágmarkið 4 stig.
Einnig sgaði Árni að mætti
nefna til þriðju greinina í fyrri-
hluta námsins, þar sem sett væri
hátt lágmark en það væri almenn
þjóðhagsfræði, sem venjulega
væri tekin til prófs á öðru ári.
Árið 1975 hefðu 36 gengizt undir
prófið og 9 fallið eða 25% en í ár
hefði 51 tekið prófið og 13 mistek-
izt eða einnig 25%.
— Vígvöllur
Framhald af bls. 1
in vildi að sögustaðurinn yrði
varðveittur i þágu brezkra þjóðar-
hagsmuna og til minningar um
varanleg tengsl Bandaríkjanna og
Bretlands á tvö hundruð ára af-
mæli Bandaríkjanna.
Seinna sagði brezka stjórnin að
hún ætlaði aðeins að halda víg-
vellinum sjálfum og klaustrinu
sem Vilhjálmur bastarður reisti
eftir sigur Normanna við Hast-
ings, siðustu orrustunni þar sem
enskir hermenn biðu ósigur fyrir
erlendu innrásarliði á enskri
grund.
Borgarar í Hastings reyndu að
koma í veg fyrir uppboðið þar
sem þeir óttuðust að staðurinn
yrði gerður að skemmtigarði eins
og ýmsir aðrir merkir sögustaðir
en allt kom fyrir ekki.
Uppboðið var haldið i Mayfair-
leikhúsinu i London. 450.000
pund höfðu verið boðin þegar
tveir dularfullir skeggjaðir menn
hækkuðu boðið. Viðstaddir klöpp-
uðu þegar tilkynnt var að silfur-
skeggjaður maður, sem eignin var
slegin, væri fulltrúi brezku
stjórnarinnar.
— ítalskir
Framhald af bls. 1
vinnu við sósialista.
Yfirlýsing de Martinos i dag var
svar við áskorun formanns Kristi-
lega demókrataflokksins, Amin-
tore Fanfani, þess efnis að sósíal-
istar og litlir miðflokkar mynd-
uðu stjórn með kristilegum demó-
krötum til að bjarga ítalíu úr
sjálfheldunni eftir kosningarnar.
— Rhódesíu-
menn
Framhald af bls. 1
er að þeir ræddu um var sá mögu-
leiki að flytja hvita Rhódesíu-
menn til Vestur-Efrópu og Suður-
Afríku ef meirihlutastjórn
blökkumanna verður mynduð.
Hann sagði að viðræður sem
þessar væru nauðsynlegar til að
leiðrétta misskilning og til þess að
hvor aðili gæti kynnst sjónarmið-
um hins. Hann sagði að viðræð-
urnar hefðu verið „mjög árang-
ursríkar", en vildi ekki fara út í
einstök atriði.
„Ég komst að raun um að hann
var reiðubúinn að hlusta á mig á
sama hátt og ég var reiðubúinn að
hlusta á hann“, sagði Vorster.
„Hvaó sem gerist hlýtur gott eitt
að leiða af slíkum viðræðum,"
bætti hann við.
Kissinger kvaðst hafa kynnzt
betur hugmyndum Vorsters og
ráðherra hans um Suður-Afriku
og Suðvestur-Afrfku (Namibiu) á
fundum þeirra. Hann kvaðst hafa
tekið eftir þvi að „skilning á
nauðsyn lausnar" væri að finna
hjá Suður-Afrikumönnum og
sagði að hafin væri þróun í átt til
myndunar meirihlutastjórn.
Jafnframt tilkynnti Kissinger
að hann mundi senda aðstoðarráð-
herra sinn til blökkumannarikja
Afríku til að skýra frá viðræðun-
um við Vorster og sagði að þegar
leiðtogar þeirra hefðu látið í ljós
skoðanir sínar mætti athuga
hvaða ráðstafanir skyldi gera
næst.
Bandarískir embættismenn
segja aðeins að Bandaríkjamenn
og Suður-Afríkumenn . muni
standa í nánu sambandi en
Vorster sagði blaðamönnum að
annaðhvort yrði þetta samband
beint eða milli sendiherra land-
anna. Seinna fór Vorster til Bonn
til viðræðna við Helmut Schmidt
kanzlara en dr. Kissinger fór til
London.
Kissinger sagði að hann vonaði
að Bretar tækju virkan þátt i þvf
að finna lausn á Rhódesíumálinu.
Hann kvaðst gera ráð fyrir að á
fundi vestrænna ríkja um efna-
hagsmál á Puerto Rico um helg-
ina gæfist tækifæri til að ræða
afstöðunatil suðurhluta Afríku.
I Suður-Afríku lagði lögregla
hald á flugmiða í námabænum
Witbank 120 km austur af
Jóhannesarborg. Þar voru námu-
menn hvattir til verkfalla gegn
hækkun húsaleigu og lögregla fór
á vettvang til að bæla niður
hugsanlegar óeirðir.
M. Botha Bantumálaráðherra
sagði á þingi að deiluna um
tungumálakennsluna í Soweto
yrði að leysa fyrir byrjun næsta
skólaárs en fór ekki út í einstök
atriði. Beiðni skólastjóra þar um
sameiginlega útför þeirra sem
féllu í óeirðunum var hafnað á
þeirri forsendu að það gæti leitt
til óeirða.
— Mars
Framhald af bls. 1
þessar séu þær beztu og skýr-
ustu sem nokkurn tima hafa
verið teknar af reikisstjörn-
unni. Þær sýna hátt fjall rísa
upp af miðju gfgs, með vfðáttu-
miklum, eyðilegum breiðum f
kring sem virðast lagskiptar og
eru taldar vera storknað hraun.
Á myndunum eru einnig gfgar,
margir kflómetrar f þvermál og
— að þvf er talið er — upp-
þornaður árfarvegur. Yfirborð
reikisstjörnunnar virðist alsett
litlum holum sem klettar er
þeytzt hafa upp í sprengingum
f gfgunum eða loftsteinar virð-
ast hafa valdið.
Ánægja vfsindamannanna
var þó nokkuð blandin vegna
þess að þetta ójafna yfirborð
kann að reynast hættulegt er að
lendingu Vfkings kemur.
Myndirnar eru teknar úr um
1000 mílna hæð, eða úr nánast
sömu hæð og myndirnar sem
Mariner 9. tók á árunum
1971—72. Vísindamenn segja
hins vegar að þessar myndir
séu tvöfalt skýrari, einkum
vegna betri myndavéla og
minna ryks i lofthjúpnum yfir
Mars.
Ef það er rétt að á myndun-
um sjáist uppþornaður árfar-
vegur skammt frá lendingar-
stað Vikings er þar líklegur
staður til að leita að merkjum
um líf á reikistjörnunni. Hins
vegar hefur þetta vatn runnið á
Mars fyrir ævalöngu, því loftið
þar er nú of þunnt til þess að
vökvi geti verið á yfirborðinu.
Vísindamenn telja að mikil
veðurfarsbreyting hafi skyndi-
lega orðið á reikistjörnunni.
Víkingur mun taka mun
fleiri myndir áður en ákveðið
verður 1. júlí hvort lendingar-
staður verður óbreyttur eða
hvort hann verður færður til.
— Azevedo
Framhald af bls. 1
væru 50:50. I kvöld var ekki sagt
að hann væri úr lífshættu.
Innanrfkisráðherrann, Vasco
Almeida e Costa sjóliðsforingi,
hefur tekið við starfi forsætisráð-
herra til bráðabirgða.
Antonio Ramlaho Eanes hers-
höfðingi hefur verið talinn sigur-
stranglegastur í kosningunum þar
sem hann nýtur stuðnings sósíal-
ista, alþýðudemókrata og mið-
demókrata og sigurlíkur hans
hafa enn aukizt við veikindi
Azevedos. Kosningabáráttunni er
haldið áfram, en er miklu rólegri
en áður.
Gert er ráð fyrir að kjósendur
sem hafa verið tortryggnir í garð
Eanes vegna fyrri ferils hans
fylki sér um hann en kjósi ekki
kommúnistann Octavio Pato eða
frambjóðanda róttækra vinstri-
manna, Otelo Carvalho major.
Andstæðingar Eanes hafa
vonað að hann fái ekki hreinan
meirihluta þannig að kjósa verði
aftur, en nú er talið vafasamt að
þeim verði að ósk sinni. „Fylgi
Eanes mun aukast þar sem
Azevedo aðmíráll var sá fram-
bjóðandinn sem gagnrýndi hann
mest,“ sagði Carvalho í dag.
Sá möguleiki er fyrir hendi að
Azevedo dragi framboð sitt til
baka, hann hefur frest til mið-
nættis í dag til að undirrita skjal
þar að lútandi.