Morgunblaðið - 25.06.1976, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JUNI 1976
21
Ulf Andersson
í millisvœðamót
Frá því var slýrt í skákþætti
hér í blaðinu fyrir nokkru, að á
svæðamótinu í Pula í Júgósavíu
í haust urðu þeir Ulf Anderson
og Búlgarinn N. Padevskv jafn-
ir í öðru til þriðja sæti. Þeir
tefldu einvígi um sætið í milli-
svæðamótinu og lauk því með
sigri Anderson 2.5 gegn 1.5.
Með þvi er tryggt, að Norður-
lönd eigi fulltrúa á millisvæða-
móti, og Sviar eiga þar fulltrúa
aftur eftir 21 ár. Enginn Svíi
hefur komist í millisvæðamót
síðan Gideon Sthálberg tefldi í
Gautaborg árið 1955. Við birt-
um nú 3. einvígisskák þeirra
Andersson og Padevsky og er
stuðzt við skýringar Andersson
í Tidskrift för Schack.
Hvítt: U. Andersson
Svart: N. Padevskv
Enskur leikur
1. Rf3 — g6, 2. g3 — Bg7, 3. Bg2
— e5, 4. d3 — d6, 5. 0 - 0 — Rfg,
6. c4 — 0-0, 7. Rc3 — Rc6, 8.
Hbl — a5, 9. a3 — Bf5, 10. b4
— axb4, 11. axb4 — Dd7, 12. b5
— Rd4, 13. Be3
(Eftir 13. Rxd4 — exd4, 14. Rd5
— Rxd5, 15. cxd5 — Ha2 hefur
svarturgott mótspil).
13.-c5.
(Skemmtilegur möguleiki var
13. — Rxf3, 14. Bxf3 — c6).
14. Bg5
(Svartur hagnaðist á uppskipt-
unum bxc6 o.sv.frv. Hugmynd-
in að baki textaleiknum er að
koma riddaranum til d5).
14. — Ha3, 15. IIcl
(Auðvitað hvorki 15. Dcl né 15.
Dd2 vegna Hxc3).
15. — Be6, 16. Bxf6 — Bxf6, 17.
e3 — Rf5, 18. Rd2 — Bg7, 19.
Rdbl
(19. Df3 — Hb8, 20. Rde4 kom
einnig til greina).
19. — IIa5, 20. Rd5 — Re7, 21.
Skák
eftir JÓN
Þ. Þór
Rbc3 — Rxd5, 22. Rxd5 — Kh8,
23. Dd2 — Ha7, 24. Hal —
Hxal, 25. Hxal — e4.
(Svartur hyggst loka skálin-
unni, auk þess sem hann hótar
að skapa sér hættulegt frípeð
með 26. — Bxd5, 27. cxd5 —
exd3).
26. Rc3 — exd3, 27. Dxd3 —
Bf5, 28. Dd2 — De6, 29. Ha4 —
De5, 30. Rd5 — h5, 31. h4 —
Be4, 32. De2 — Hb8, 33. Bf3 —
Df5, 34. Kg2 — Bd3, 35. Del
(Ekki 35. e4? vegna Dx5! og
svartur hefur að minnsta kosti
jafnt tafl).
35. — He8, 36. Rf4 — Be4, 37.
De2 — Be5, 38. Rd5 — Dg4, 39.
Ha2 — Kg7, 40. Rb6 — He6. 41.
Bxe4 (biðleikurinn) —Dxe4+,
42. Df3 — d5,
(Betra var 42 — Dbl. Nú vinn-
ur skákin sig sjálf fyrir hvit-
an).
43. Dxe4 — dxe4, 44. Rd5 —
Bb8, 45. Kfl — He8, 46. Rc3 —
f5, 47. Hd2 — Kf7, 48. Ra4 —
He5, 49. Ke2 — Ke8, 50. Rc3 —
IIe6, 51. Ha2 — IId6, 52. Rd5 —
Ild8, 53. Kd2 — Kf7, 54. Kc2 —
He8, 55. Kb3 — g5. 56. b6 —
gxh4, 57. gxh4 — Be5, 58. IIa7
— Hb8, 59. Ha4 — Bh2, 60. Kb5
— Bd6, 61. Rf4 — Be7, 62. Rxh5
— Bxh4, 63. Ha2 — IId8. 64.
Rf4 — Hdl, 65. Rd5 — Ilfl, 66.
ÍIa7 — Bxf2, 67. Hxb7 — Kg6.
68. Ha7 — Hbl 69. Kc6 og
svartur gaf.
Bústaðakirkju berst
rausnarleg gjöf
8. júní s.l. andaðist Elíseus
Jónsson. Var hann fæddur að Ósi
i Arnarfirði 1. júlí 1902, sonur
Jóns Dagbjarts Guðmundssonar
útvegsbónda Ósi og i Hokinsdal
og konu hans Bjarnfriðar Benja-
mínsdóttur frá Litla-Múla í Saur-
bæ, en Benjamín, faðir Bjarnfríð-
ar, var sonur Hjálmars skálds
Jónssonar í Bólu. Jón/ faðir
Elíseusar andaðist árið 1907, en
móðir hans dó árið 1950. Ölst
Elíseus upp hjá hjónunum Elíasi
Elíseussyni og Hallfriði Jóns-
dóttur i Skógum í Arnarfirði eftir
lát föður síns, og lifir Hallfríður
enn háöldruð.
Elíseus fluttist hingað suður í
atvinnuleit þegar um tvítugt og
gekk að ýmsum störfum, en í 23
ár starfaði hann hjá hf. Shell á
Islandi.
Konu sína, Ingibjörgu
Guðmundsdóttur, missti hann 16.
júlí 1971. Attu þau saman eina
dóttur, en auk þess gekk hann
fjórum dætrum konu sinnar frá
fyrra hjónabandi hennar i föður-
stað. Nú hefur Sigrún, dóttir
Elíseusar og Ingibjargar fært
Bústaðakirkju í Reykjavík stór-
gjöf til minningar um föður sinn,
en hann unni þeirri kirkju mjög.
Hafði hann, meðan hann var
búsettur í Hólmgarðinum í rúm
— Vænlegri
afkoma
Framhald af bls. 13
leyti yrði ekki fjallað um einstak-
ar framkvæmdir. Fjárlög og láns-
fjáráætlun fyrir árið 1977 gætu
verið upphaf þessa verks. Könn-
un á útgjaldaáformum hins opin-
bera virðist sérlega mikilvæg
vegna þeirrar miklu athygli, sem
óefað mun beinast að skiptingu
þjóðarútgjalda milli hins opin-
bera og einkaaðila á næstu árum
og þar með stefnunni í skattamál-
um.
20 ár tekið þátt i áætlunum safn-
aðarins um að reisa hús Guði til
dýrðar og lét hann ekki þar við
sitja að fagna vigslu kirkjunnar,
heldur sótti hann þangað helgar
tíðir, meðan heilsan leyfði. Var
hann líka jarðsunginn frá þeirri
kirkju 16. júní s.l.
Fyrir hönd safnaðarins leyfi ég
mér að færa þeim hjónum
Sigrúnu Elíseusdóttur og Herði
Jónassyni innilegar þakkir fyrir
höfðingsskap þeirra og efa ég það
ekki, að þar hafa þau framkvæmt
verk, sem hefur verið hinum
látna að skapi, svo vildi hann veg
þessarar kirkju sem mestan og
þráði, að hún mætti á allan hátt
vera veglegur rammi safnaðar- og
félagslifs i hverfinu.
Blessuð sé minning góðs
drengs.
Ólafur Skúlason
— Lýst yfir . . .
Framhald af bls. 17
Grænlandi, makríll, kclmúli og
sild úti fyrir Nova Scotia, Nýju-
Brunswick og Nýja Englandi.
Kanada og Bandarikin setja það
skilyrði fyrir áframhaldandi
starfi innan ICNAF að ríkin við-
urkenni væntanlega 200 mílna út-
færslu þeirra á næsta ári.
— Carter
F’ramhald af bls. 17
að aðkallandi væri að taka upp
nánari samvinnu við lönd V-
Evrópu, Japan, ísrael, Ástra-
líu. Kanada og Nýja-Sjáland.
Hann sagði að þyngstu
áhyggjur sinar væru ekki
vegna þess augljósa harmleiks
sem Víetnam hefði verið, held-
ur vegna almenns siðgæðis-
skorts, sem hefði's'ett sitt mark
á stefnu Bandaríkjanna gagn-
vart umheiminum.
— Réttur USA
Framhald af bls. 17
nam draga ekki dulur á, að þar sé
við mikla erfiðleika að stríða síð-
an styrjöldinni lauk fyrir 14 mán-
uðum. Þeir segja, að efnahags-
ástandið i S-Víetnam sé í rúst. og
enda þótt verksmiðjur séu nú óð-
um að taka til starfa að nýju sé
verulegur skortur á hráefnum. Sú
staðreynd kann að vera til marks
um þessa erfiðleika, að N-
Víetnamar segja Bandaríkin hafa
gefið loforð um 3.250 milljón dala
efnahagsaðstoð árið 1973, en
Bandarikjastjórn neitar þvi hins
vegar að hafa gefið nokkurt lof-
orð um ákveðna upphæð.
Áður en þingfundurinn hófst i
dag komu þingmenn saman við
grafhýsi Ho Chi Minhs og vottuðu
hinum látna foringja virðingu
sína. Engin hætta er á því, að
þingmenn gleymi hinum látna
foringja. þvi að mikið likneski af
honum gnæfir yfir þeim í salnum.
þar sem þingfundurinn var hald-
inn í dag.
— I tilefni af . .
Framhald af bls. 24
okkur hafa áhuga á umbótum í
þessum efnum. ættum ekki að
hnýta i einn eða neinn, sem að
þessum umbótum vinnur. þó
starfsaðferðir séu eitthvað frá-
brugðnar. Það hentar ekki
öllum það sama í þessum efn-
um frekar en mörgum öðrum.
Einn getur aðhyllst Góð-
templararegluna, annar AA-
samtökin. þriðji sértrúarsam-
tök, fjórði beina la'knisaðgerð
o.s.frv. — Hver um sig getur
haft meira eða minna gagn af
sinni aðferð.
En öruggasta slysavörnin í
þessum efnuni er að drekka
aldrei fvrsta sopann.
19. júní 1976
Guðgeir Jónsson
■■Kdí) w » ibm
NYKOMIÐ
Dömudeild
Hvítar gallabuxur
Kápur
Kúrekastígvél
Herradeild
Mittisjakkar
Bolir
Kúrekastígvél
OPIÐ TIL KL. 22 I KVOLD
LOKAÐ LAUGARDAG
BANKASTRÆTI 9 — SÍMI 1-18-1 1