Morgunblaðið - 25.06.1976, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25 JUNi 1976
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
bílar
Til sölu
Benz árg. 61, 34 manna bíll í góðu
ásigkomulagi. Framdrif fylgir. Uppl. í
síma 97-421 7, 92-4250.
óskast keypt
Land óskast
Óska eftir landi til túnþökuskurðar, gegn
góðri greiðslu.
Egill G. Jónsson, sími 72525
veiöi
Laxveiðimenn
Til sölu eru nokkur veiðileyfi i Haukadalsá
efri, Haukadal, Dalasýslu, í júlí og ágúst.
Allar nánari upplýsingar í síma 251 27.
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 62.,
63. og 64. tölublaði Lögbirtingarblaðsins
1 975, á Kársnesbraut 79, —hluta —,
þinglýstri eign Indriða Indriðasonar, fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 30.
júní 1 976 kl. 11.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl Al'GLYSlR l .M AI.LT I.AM) ÞEG.AR
ÞL ALGLÝSIR I MORGLNBLAÐINL
wt$m
Vinsamlega birtið eftirfarandi smáauglýsingu
« Morgunblaðinu þann: ...........
I I I I I I I I I I I I I I I I I I i I Fyrirsögn
1 I I I I 1__1 I i__l l_l l_l I I I I I I I I I I I I I 360
T-y-
‘ Athugið
Skrifið með prentstöfum og •
„ setjið aðeins 1 staf í hvern reit.
Áríðandi er að nafn, heimili
ogsímifylgi.
i""1 '.'."y........y.....y <j-
r./'x A£/S.u......................... .
;0JJC,Wt JM 7fiJC,A a '
<2,JJt JUáA J6.Ú6, ,/, 6S/UA /y/Z).- **
átWJt, JAW J’jr.JA,/, j/Æ/n/Aj.
J'J’JAJJ./W.G./t./C, S//*A .Táoat •
-« ‘ ‘ -
-jl, Á Am
80 Auglýsingunni er veitt móttaka á eftirtöldum stöðum:
I I I I I I I I I I I L
_l__1_I__I I I 540
REYKJAVÍK:
HAFNARFJÖRÐUR:
i i i
J I L
J I I L
J I I I I I I I I I I I
I I I
J I I I L
LJÓSMYNDA-
OG GJAFAVÖRUR
Reykjavíkurvegi 64,
<!
i i i i i i i i i
i i i
I L
J I I I I I I I I I L
Hver lína kostar kr. 1 ðO Meðfylgjandi er greiðsla kr.
NAFN: ....
KJÖTMIOSTÖÐIN, Laugalæk 2,
720 SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
Háaleitisbraut 68, - - „
‘ J ‘ ‘ ‘ 1 ‘ 1 1 1 ' J 900 KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, Stigahlíð45—47, VERZLUN <
i i i i i i i i i i i i 1080 HÓLAGARÐUR, Lóuhólum 2 —6 ÞÓRÐAR ÞÓRÐARSONAR, <
, , , ................... slAturfélag suðurlands Sl,9urgo,u 36-________
1—I—l-J—L_L_I_L_J—l_l_l Álfheimum 74, KÓPAVOGUR______________
RRfBhEJQRKJC)R' ÁSGEIRSBÚÐ, Hjallabrekku2’
noraoæ y, BORGARBÚOIN, Hófgerði 30
HEIMILI: ...................................................SÍMI: ................
n A Í A. A A ...A............yy ..a. -A....K-—a ---------A.......K....,.A.....
Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsingadeildar
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.
Iim ——...........A....A r. ö Á A-
A A a
Islenzk grafik
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi athugasemd frá sýningar-
nefnd Yfirlitssýningarinnar á ís-
lenzkr-i graffk:
Vegna blaðaskrifa undanfarið
um Yfirlitssýninguna á íslenskri
grafík að Kjarvalsstöðum vill sýn-
ingarnefnd sýningarinnar koma
eftirfarandi á framfæri:
1.
Vegna yfirlýsingar Kristins
Péturssonar listmálara, sem birst
hefur í fjölmiðlum, þá viljum við
taka fram að okkur var kunnugt
um fjölmörg önnur grafísk verk,
auk þeirra, sem valin voru á sýn-
ínguna eftír Kristin, en töldum
þau ekki eiga erindi á þessa sýn-
ingu.
2.
Varðandi hlutfallið milli eldri
og yngri manna á sýningunni, var
markmiðið að gefa sýnishorn af
því nýjasta í grafík, og var öllum
félagsmönnum f félaginu íslenzk
grafík gefinn kostur á að taka
þátt í sýningunni. Boðsbréf þess
efnis var sent til allra félags-
manna í maí s.l.
3.
I hugleiðingum um sýninguna,
sem Bragi Ásgeirsson birti i
Morgunblaðinu 17. júní s.l., segir:
„Auk þess sem sýningin gefur
ekki alls kostar rétta mynd af
framlagi margra hinna eldri, þá
vantar ýmis nöfn með öllu t.d.
Höskuld Björnsson o.fl.“
Satt að segja væri ánægjulegt
ef Bragi Ásgeirsson upplýsti hver
þau eru, þessi „ýmsu nöfn“ og
„o.fl.“, af eldri mönnum, sem sýn-
ingarnefnd á að hafa gleymt við
samsetningu sýningarinnar.
Fullyrðingar Braga eru einnig
kyndugar í ljósi þess að hann var
ráðunautur sýningarnefndarinn-
ar — og gaf ýmsar góðar ábend-
ingar — honum var því í lófa
lagið að koma áðurnefndum upp-
lýsingum á framfæri, þegar unnið
var að sýningunni. Leitt er, að
hann skuli ekki hafa komið þess-
um upplýsingum á framfæri í
tæka tíð.
Bragi finnur einnig þann ágalla
við sýninguna að það vanti marg-
ar af hans bestu tréristum, málm-
ætingum og steinþrykkjum. Þar
sem eðlilegt er að hverjum þyki
sinn fugl fagur, þá kemur þessi
vöntun á áðurnefndum verkum
að dómi Braga m.a. í veg fyrir að
kalla megi sýninguna yfirlitssýn-
ingu, hún er fremur undirbúning-
ur að annarri og réttari sýningu,
þar sem hlutur hans sjálfs verði
ATHUGASEMD
vegna skrifa um
Y firlitssýninguna
vonandi bættur. Það er því skylt
að það komi fram að Bragi bar
einn fullkomlega ábyrgð á sinu
framlegi til sýningarinnar, en
hann átti þar 16 verk. Af einstök-
um listamönnum, sem kynntir
voru á sýningunni, var því þáttur
hans einn sá veigamesti. Ef Bragi
er ósáttur við þetta framlag sitt
hefur hann við engan að sakast í
þeim efnum nema sjálfan sig, þar
sem hann ber einn ábyrgð á eigin
framlagi og var kunnugt um að
sýningin væri fyrirhuguð frá því
um vorið 1975, og hefur hann því
haft nægan tima til undirbúnings.
4.
Við teljum að í þeim blaðaskrif-
um sem verið hafa um sýninguna
undanfarið hafi ekkert það komið
fram sem hnikar markmiði sýn-
ingarinnar, en það var skilgreint í
sýningarskrá á þá lund „að gera
úttekt á því besta sem gert hefur
verið i grafík undanfarna ára-
tugi“.
Sýningarnefnd Yfirlitssýningar á islenskri
grafík: Jón Reykdal, ólafur Kvaran. Richard
Valtingojer Jóhannsson, Þórður Hall.
Guðgeir Jónsson, bókbindari:
í tilefni af Rabbgrein
1 Lesbók Morgunblaðsins 20.
tbl. 29. maí sl. er rabbgrein um
áfengisvandamálið.
1 grein þessari er, að mínu
áliti, borið verðugt lof á starf
AA-samtakanna við að reyna að
hjálpa ofdrykkjumönnum í við-'
leitni þeirra til að komast aftur
á réttan kjöl.
Aftur á móti skil ég ekki að
greinarhöfundur hafi nauðsyn-
lega þurft að lítilsvirða Góð-
templararegluna i þessu sam-
bandi. Það er áreiðanlegt að
Góðtemplarareglan hefur átt
mikinn þátt, og á enn, i þvi að
draga úr áfengisnautn þjóðar-
innar.
Reglan starfar jöfnum hönd-
um að því að reyna að hafa þau
áhrif á drykkjumenn að þeir
gerist bindindismenn og jafn-
framt reynir hún að hafa þau
áhrif á unga menn, pilta og
stúlkur að þau byrji ekki að
neyta áfengis.
Það getur vel verið að
hóflega drukkið vín gleðji
mannsins hjarta. — En ætli að
sú gleði verði ekki æði oft
skammvinn. Hófsemin nokkuð
óákveðin og ekki mun sami
skammtur hæfa öllum.
Mig langar til að minna á
eftirfarandi viðvörun, sem lesa
má í Bihlíunni: „Ilorf þú ekki á
vínið, hve rautt það er, hversu
það glóir í bikarnum og rennur
ljúflega niður.
Að síðustu bítur það sem
höggormur og spýtir eitri sem
naðra“. (Orðskv. 23. 31)
Góðtemplarareglan hefir frá
öndverðu haldið því fram, að
algert áfengisbindindi væri
eina örugga vörnin gegn því að
verða ofdrykkjumaður. Þessa
kenningu virðast vísindalegar
kannarnir hafa sannað. Við
þessar kannanir hefir komið í
ljós, að sem svarar tiundi hver
áfengisneytandi verður of-
drykkjumaður.
Fyrir nokkru var frá því sagt
í blöðum og útvarpi, að lítil
telpa hefði farið ein sins liðs út
á hafnarbakka og fallið fram af
í sjóinn. Maður var þar á báti
nálægt, hann stakk sér í sjóinn
og bjargaði telpunni.
Ef einhver maður hefði verið
á hafnarbakkanum, séð
telpuna, skynjað hættuna,
gengið til telpunnar og ieitt
hana brott frá hættunni. þá
hefði það ekki þótt frásagnar-
vert, þó einhverjir hefðu um
það vitað, enda ekki unnt að
fullyrða fyrirfram að telpan
hlyti að detta í sjóinn ef hún
væri látin afskiptalaus;
Það eru þannig slysavarnir
sem fáir vita um og ekki verða
sannaðar.
Svipað er að segja um mann,
sem byrjar að neyta áfengis,
það er ekki hægt að fullyrða
hvort hann verður ofdrykkju-
maður eða ekki.
Ef slys er orðið er oftast hægt
að gera tilraun til björgunar og
sem betur fer oft með góðum
árangri.
Mér finnst að við. sem teljum
Framhald á bls. 21