Morgunblaðið - 25.06.1976, Side 36

Morgunblaðið - 25.06.1976, Side 36
Viðskiptafræðideildin: /?, hefur fallið á 1. án FALLPRÓSENTAN í bókfærslu og almennri rektrarhagfræði á f.vrsta ári í viðskiptafræði hefur verið nákvæmlega hin sama sfð- ustu tvö árin og hefur liðlega þriðjungur stúdenta fallið í þess- um tveimur greinum þessi tvö ár, að sögn Arna Vilh jálmssonar, deildarforseta viðskiptafræði- deildar Háskólans. Árni tjáði Morgunblaðinu, að hann hefði borið saman árangur sl. 2 ár nemenda i þremur greinum á fyrsta hluta námsins. t fyrsta lagi hefði það verið útkoman í tveim- ur prófum sem venja væri að fyrsta árs nemendur gengjust undir — þ.e. í bókfærslu og al- mennri rekstrarhagfræði. í janúar 1975 hefðu 63 gengizt und- ir próf í bókfærslu en 25 ekki staðizt það, þannig að fallprósent- an hefði verið um 40%. I vetur í Framhald á bls. 20 Arfleiddi þjóðkirkjuna að r Arbæjarhjáleigu í Holtum „ÞJÓÐKIRKJUNNI hefur verið tilkvnnt það með bréfi til biskups að Guðni heitinn Ólafsson apótek- ari í Ingólfsapóteki hafi arfleitt þjóðkirkjuna að jörðinni Árbæj- arhjáleigu i Holtum skuldlausa með húsum og mannvirkjum," sagði Egill Sigurgeirsson hrl. f viðtali við Morgunblaðið í gær, en Egill er skiptaráðandi f dánarbúi Guðna. Egill kvað jörðina því koma til umsjónar og ráðstöfunar fyrir biskup, en 60 hektarar ræktaðs lands eru á jörðinni, nýstandsett 7 herbergja hús auk eldhúss og kjallara og peningshús eru ný- reist, en Guðni heitinn rak þar sauðfjárbúskap og var með 60—80 hross. Egill kvað Guðna hafa rætt þessi mál við biskup og hafði Guðni óskað eftir því að jörðin yrði notuð sem sumardvalarheim- ili á vegum þjóðkirkjunnar fyrir unglinga, prestsekkjur, gamla presta eða annað starf á vegum kirkjunnar. Einnig kom til orða að þjóðkirkjan gæti rekið jörðina í sambandi við Skálholt. Fákamyndin vítt um Evrópu „B*ði sendi- og hlustunartæki” — segir deildarstjóri jarðyísindastofu Raunvísindastofnunar Háskólans Ljósmvnd Mbl. RAX. SÖGULEG þingsetning var f Alþingishúsinu f gær, en þar var sett 90. þing Stórstúku tslands og var skipað f hvert sæti þingmanna f sal Alþingis og ráðherrar rfkisstjórnarinnar, biskup, borgarstjóri og konur þeirra voru við þingsetninguna, en Stórstúka Islands var stofnuð f Alþingishúsinu 24. júnf 1886 og voru ir.argir af framámönnum hennar þá úr hópi þingmanna. Sjá frétt á bls. 18. SJÓNVARPSKVIKMVNDIN Fákar vakti mikla athygli á Stokkhólmskvikmyndahátfðinni, sem fram fór um sfðustu helgi. Var mvndin seld til margra landa Evrópu og fleiri myndir frá ís- lenzka sjónvarpinu vöktu einnig mikla athygli. Má þar nefna leik- ritin Sigur og Keramik eftir Þor- varð Helgason og Jökul Jakobs- son. Lúðvfk Albertsson skrif- stofustjóri Sjónvarpsins var á þessari hátíð sem fulltrúi Islands, en Norðurlöndin tóku sig saman um þessa sýningar- og kynningar- hátíð og buðu til hennar sjón- varpsmönnum vfðs vegar að úr heiminum. Að sögn Emils Björnssonar frétta- og dagskrárstjóra var myndín Fákar seld til allra Norð- urlandanna og auk þess til margra landa Vestur-Evrópu, m.a. til Belgíu, Hollands, Vestur- Þýzkalands, Sviss og einnig til Austur-Þýzkalands og Pbllands. Gæzluvarðhald framlengt GÆZLUVARÐHALD mannsins sem rannsóknarlögreglan í Kefla- vík hefur til yfirheyrzlu vegna fíkniefnamáls, hefur nú verið framlengt um 15 daga en maður- inn var upphaflega úrskurðaður í 10 daga gæzluvarðhald. Að sögn Hauks Guðmundssonar, rann- sóknarlögreglumanns hefur þetta mál reynzt umfangsmeira en í fyrstu virtist. Sjónvarpsleikritin Sigur eftir Þorvarð Helgason og Keramik eft- ir Jökul Jakobsson vöru einnig seld til allra Norðurlandanna og til ítaliu og Hollands, en leikstjóri þeirra beggja var Hrafn Gunn- laugsson. Rússnesku duflin: RUSSNESKA hlustunarduf lið, sem fannst við Krfsuvfkurbjarg, er það sjöunda sem finnst við landið á tveimur árum. S.l. ár fundust 5 slfk dufl og eitt 1974. Morgunblaðið leitaði upplýsinga um þessi dufl hjá Raunvfsinda- stofnun Háskólans og Landhelgis- gæzlunni, en báðar stofnanir hafa rannsakað þessi tæki. „Við höfum skoðað eitt af þess- um duflum af sömu tegund og þau eru flest," sagði Sveinbjörn Björnsson deildarstjóri jarðvís- indastofu Raunvisindastofnunar- innar. „Við eigum nú þetta dufl,“ hélt hann áfram," en hér er um að ræða tæki, eða dufl, til þess bæði að senda hljóðmerki og taka á móti þeim. Á duflunum eru alls !32 hljóðnemar f 4 röðum, en við eigum eftir að mæla út hvort rað- irnar eru samsíða tengdar eða eitthvað sérstaklega innbyrðis. Þessi dufl eru til þess að hlusta á hijóð af ákveðinni tíðni og geta sent frá sér hljóð á sömu tíðni og þannig er til dæmis eftir því sem við teljum mögulegt, unnt að trufla önnur hlustunarkerfi sem ef til vill eru að hlusta eftir ferð- um kafbáta eða annarra skipa, en allt virðist þetta miðast við hljóð- bylgjur sem berast í hafinu. Þessi rússnesku dufl hafa fundizt á Ströndum og á svæðinu frá Stokksnesi og að Krísuvíkur- bjargi, en við teljum mögulegt að þau hafi verið tjóðruð á um 400 m dýpi í sjó, lóðrétt við botn.“ Berent Sveinsson hjá Landhelg- isgæzlunni kvað þá hafa kannað þessi rússnesku dufl og fylgzt með þvi hvar þau hafa fundizt og í dag kvað hann þá ætla að kanna nýjasta duflið, en það er í geymslu hjá lögreglunni i Kefla- vík. Berent kvað Landsímann einnig hafa kannað gerð þessara tækja. „Keppzt við endann á pjooveginum „Við erum að keppast við að ljúka við endann á þjóðveginum hér,“ sagði Páll Zóphóníasson bæjar- stjóri í Vestmannaeyjum i samtali við Mbl. í gær þegar við inntum frétta af ferjubrúnum fyrir nýja Eyjaskipið, Herjólf. „Þetta tefst þó aðeins hjá okkur vegna þess að pöntunin á stáli í brúna lenti á flakki milli Pontíusar og Pílatus- ar hjá Innkaupastofnuninni og það munar því að brúin verður ekki tilbúin hér fyrr en líklega um 10. júlf eða nokkrum dögum eftir að Herjólfur kemur. Að öðru leyti er allt tilbúið í brúna, en í Þorlákshöfn verða þeir því miður ekki tilbúnir fyrr en um mánaða- mótin júlí-ágúst.“ Röðull tíl sölu VEITINGAHUSIÐ Röðull hefur nú verið auglýst til sölu og er um að ræða annaðhvort sölu á starf- seminni eingöngu með leigurétti að húsnæðinu, eða sölu á húsnæð- inu sjálfu ásamt starfseminni. Hafsteinn Baldvinsson hrl., sem er umbjóðandi seljenda, kvað fyrri kostinum fylgja leigusamn- ingur fyrir skemmtistaðinn til 10 ára og væri gert ráð fyrir að fyrir hann yrðu greiddar 20 millj. kr. Söluverð hússins yrði hins vegar líklega 50—55 millj. kr., en hér er um 800 fm húsnæði að ræða. Herjólfur gamli til sölu „FRAMUNDAN er að selja Herjólf," sagði Guðjón Teits- son forstjdri Skipaútgerðar rfkisins þegar við inntum eftir þvf hvað yrði um gamla Herj- ólf þegar nýja Eyjaskipið, sem einnig heitir Herjólfur, kemur til landsins um mánaðamótin. „Við höfum sett Herjólf á söluskrá hjá Ottó Daníelssen í Kaupmannahöfn," sagði Guð- jón, „og við settum um 100 millj. ísl. kr. á skipið, en litil hreyfing hefur verið á málinu sfðan skipið fór á söluskrá fyr- ir liðlega mánuði. Við höfum engin not fyrir Herjólf hér eftir að hann hætt- ir í Eyjaferðunum, Skipið er ekki hentugt fyrir margar hafnir þar sem það hefur að- eins eina lest, djúpa, og ekkert millidekk. Þá er farþegarými ekki heldur til skipta á margar hafnir þar sem aðeins eru 20 kojur í klefum.“ Guðjón kvað tekjur Herjólfs s.l. ár hafa verið 32 millj. kr. og þar af hefðu 18.7 millj. komið inn fyrir stykkjavöru, 1.2 millj. kr. fyrir bíla og fargjöld fyrir 13.262 farþega á árinu hefðu gefið 10.8 millj. kr. Guðjón kvaðst telja hyggi- legast eins og málin stæðu að stefna að því að fá þriðja skip- ið að líkri gerð og Hekla og Esja, bæði til öryggis ef eitt- hvað færi úrskeiðis með hin skipin og til þess að gegna þjónustu þegar álag væri mik- ið þannig að unnt væri að tryggja örugglega reglulegar ferðir á milli hafna lands- byggðarinnar. Til dæmis kvað Guðjón aðeins annað skipið í strandferðum nú, því Esja væri í Rotterdam í viðhaldi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.