Morgunblaðið - 28.07.1976, Page 1
36 SÍÐUR
163. tbl. 63. árg.
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
200 mílna fiskveiði-
lögsaga við strendur
-ríkja fyrir 1. okt
BrUssel — 27. júli — AP — NTB
AÐILDARRÍKI Efnahagsbandalagsins hafa koinið sér
saman um sameiginlega stefnu í hafréttarmálum, og var
hún samþykkt á fundi utanríkisráðherra ríkjanna níu í
Brússel í dag. Þar með er ljóst að ríki bandalagsins
munu standa saman sem ein heild á hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í New York á
mánudaginn.
Á ráðherrafundinum var samþykkt að færa
fiskveiðilögsögu við strendur EBE-ríkjanna út í 200
mílur fyrir 1. október n.k., fari svo að ekki náist
samkomulag um 200 mílna grundvallarreglu á
hafréttarráðstefnunni í New York.
Ríki EBE munu beita sér fyrir því á
hafréttarráðstefnunni, að samþykkt verði 200 mílna
efnahagslögsaga við strendur ríkjanna, og munu þau
ennfremur áskilja sér rétt til nýtingar auðlinda á
landgrunni við strendurnar, jafnvel þar sem
landgrunnið nær úr fyrir 200 mílur. Þá styðja EBE-ríkin
þá tillögu, að komið verði á fót sérstakri alþjóðastofnun,
sem tryggði réttláta skiptingu auðlinda á hafsbotni á
alþjóðlegum hafsvæðum.
EBE
Handtekinn
fyrir að
„ófrægja”
Sovétríkin
Moskvu — 26. júlí — AP
SOVÉZKI sagnfræðingurinn
Pavel Bashkirov var handtekinn i
síðasta mánuði, er hann ætlaði að
vitja Andrei Tverdokhlebov, sem
er f útlegð f Síberíu. Bashkirov
starfar við listasafn f Yakútsk f
austanverðri Síberíu. Honum er
gefið að sök að hafa „ófrægt"
Sovétríkin, og er talið, að hann
geti hlotið allt að þriggja ára
fangelsisdóm. Heimildarmenn
AP-fréttastofunnar í Moskvu
segja, að lögreglan hafi við hand-
tökuna lagt hald á biblfu
Rashkirovs, svo og rit um
mannréttindi í Sovétríkjunum,
Framhald á bls. 34
Tókió, 27. júlí — AP
KAKUEI Tanaka fyrrum for-
sætisráðherra Japans var hand-
tekinn f Tókfó f dag sakaður um
að hafa þegið mútur frá
bandarfsku Lockheed-
flugvélasmiðjunum. Tanaka
sagði af sér embætti forsætisráð-
herra f desember 1974.
Miki
Saksóknarinn í Tókió segir að
Tanaka og Toshio Enomoto, sem
var einkaritari hans meðan
Tanaka var forsætisráðherra, hafi
samtals þegið mútur að upphæð
500 milljón yen (um kr. 315
milljónir) á timabilinu frá 9.
ágúst 1973 til 18. febrúar 1974, en
Framhald á bls. 34
Fulltrúi framkvæmdanefndar
EBE sagði að fundinum loknum,
að hér væri um að ræða timamót i
sögu bandalagsins. Hingað til
hefðu aðildarríkin leitazt við að
samræma stefnu sina þegar
fulltrúar þeirra voru komnir á
hafréttarráðstefnuna, og hefði
það ekki ævinlega tekizt sem
skyldi.
Samkomulag um skiptingu
aðildarrikjanna innbyrðis um
nýtingu auðlinda innan 200
milnanna hefur enn ekki tekizt.
Bretar og írar krefjast þess enn
sem fyrr, að hvert aðildarriki fái
einkarétt á hagnýtingu auð-
linda innan 200 milna við
strendur sinar, og er ljóst að
þessar þjóðir hafa fyrst og fremst
í huga olíulindir við strendur
Bretlandseyja. Önnur riki
bandalagsins krefjast þess hins
vegar, að EBE fái umráðarétt yfir
auðlindum innan 200 mílnanna
við strendur aðildarríkjanna, þar
sem það sé i samræmi við lög og
grundvallarreglur Efnahagsbanda-
lagsins.
Skýrsla QECD:
Hagvöxtur
heldur áfram
— en hægari
París — 27. júlí — AP
HAGVÖXTUR I iðnríkjunum
mun halda áfram á n. sta ári, þótt
heldur muni draga úr hraða hans,
að því er segir í skýrslu sem Efna-
Framhald á bls. 34
Handtaka Tanaka
styrkir stöðu Miki
Stjórn Kenya setur
Úgandamönnum kosti
Nairobi — 27. júlí —
Reuter — AP.
KEN Y ASTJÖRN setti Uganda-
mönnum ákveðin skilyrði I dag, I
því skyni að tryggja friðinn og
koma á eðlilegum samskiptum
ríkjanna, en Uganda hótaði ný-
lega að segja Kenya strfð á hend-
ur.
Skilyrðin eru f sjö liðum, og er
m.a. krafizt að hersveitir Uganda
verði fluttar frá landamærum
ríkjanna og að Uganda geri ekki
framar tilkall til landsvæða í
Kenya.
Viðbrögð Ugandastjórnar við
þessari yfirlýsingu eru enn ekki
kunn, að öðru leyti en því, að í
útvarpinu í Kampala var frá því
sagt eftir að yfirlýsing Kenya var
birt, að framkvæipdastjóri Ein-
ingarsamtaka Afríkúríkja (OAU)
væri væntanlegur til Nairobi og
Framhald á bls. 34
„Sjálfstæður persðnuleiki”
segir Friðrik um Kortsnoj
„ÞETTA kemur mér ekki á
óvart,“ sagði Eriðrik Ólafsson
stórmeistari f gær, þegar Mbl.
færði honum fréttirnar um
Kortsnoj. „Ég frétti af þvf á
IBM-mótinu í Amsterdam á
dögunum, að Kortsnoj hefði
rætt við dr. Euwe og aðra
forystumenn skákmála þar f
landi um þessar ráðagerðir
sínar. Hins vegar átti ég ekki
von á þvf að þetta myndi gerast
svona snöggt. Ég átti frekar von
á þvf að hann m.vndi fara f
gegnum ísrael og sfðan aftur til
Hollands eða eitthvað annað,
þvf hann er Gyðingur. En
ráðagerðir hans hafa greinilega
eitthvað breyzt,“ sagði Friðrik.
Friðrik sagði að Kortsnoj
Spasskí vill flytja
frá Sovétríkjunum
Friðrik Olafsson
hefði aldrei verið Rússunum
þægur, hann væri sjálfstæður
persónuleiki eins og flestir
þeir, sem leggja fyrir sig
atvinnumennsku í skák. Eftir
einvigi Karpovs og Kortsnojs
um réttinn til að skora' á
Fischer, en það einvigi vann
Karpov, lýsti Kortsnoj þvi yfir í
viðtali við blað i Júgóslavíu að
Karpov ætti ekki neina
möguleika i Fischer og skákstíll
hans væri þungiamalegur og
ekki vænlegur til árangurs
fyrir skákmeistara. Þessi
ummæli ollu miklu fjaðrafoki i
Sovétrikjunum að sögn
Friðriks og i opinberu skjali
undirrituðu af nokkrum
Framhald á bls. 34
Amsterdam — 27. júlí — AP—Reuter.
SOVÉZKI stórmeistarinn f skák, Viktor Kortsnoj, leitaði í dag hælis í
Hollandi sem pólitískur flóttamaður. Kortsnoj sneri sér til útlendinga-
eftirlitsins í Amsterdam með málaleitan sína, en hann tefldi á
IBM-skákmótinu, sem nýlokið er í Amsterdam, og varð þar f fyrsta sæti
ásamt brezka stórmeistaranum Anthony Miles.
Dómsmálaráðuneytið í Haag
hefur fengið mál Kortsnojs til
meðferðar, og er honum heimilt
að fara allra sinna ferða meðan
fjallað er um umsókn hans, að því
er lögreglan i Amsterdam greindi
frá í dag.
Hollenzki stórmeistarinn Donn-
er segir ástæðuna fyrir þvf, að
Kortsnoj leitaði hælis f Hollandi
þá, að hahn hafi óttazt að fá ekki
framar leyfi sovézkra yfirvalda til
að tefla erlendis.
Donner sagði i dag, að þeir
Kortsnoj hefðu rætt þetta mál s.l.
sunnudag: „Kortsnoj lét þá í ljós
miklar áhyggjur vegna gagnrýni
sinnar á Skáksamband Sovétríkj-
anna. Hann ákvað að sækja um
hæli sem pólitískur flóttamaður
eftir að júgóslavneskt blað hafði
eftir honum gagnrýni á sovézka
skáksambandið nýlega," sagði
Donner.
Hollenzki stórmeistarinn segir
að Kortsnoj sé ákaflega opinskár
maður. Hann telur ósennilegt, að
Kortsnoj muni dveljast langdvöl-
um í Hollandi, heldur hafi hann
hug á því að ferðast sem mest, og
tefla mun meira en hann hefur
gert hingað til.
Viktor Kortsnoj er 45 ára að
aldri. Frá því að hann hóf skák-
feril sinn 13 ára að aldri, hefur
hann verið meðal beztu skák-
manna í heiminum. Árið 1974
lýsti Alþjóðaskáksambandið Kort-
snoj þriðja bezta skákmann
heims, — Bobby Fisher var þar i
fyrsta sæti, en Anatoli Karpov í
öðru. Kortsnoj hefur aldrei tekið
Kortsnoj og Guðmundur Sigurjónsson að tafli I skákmótinu I Amster-
Framhald á bls. 34 dam.
Kortsnoj yfírgefur
Sovétríkin
— leitar hælis
í Hollandi