Morgunblaðið - 28.07.1976, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.07.1976, Blaðsíða 36
SPÁÐ er hægri suðvestlægri átt í dag, sólarlausu og lítils háttar úrkomu á Suóvesturlandi til Vestfjarða. Annars staðar er spáð hægri breytilegri átt og yfirleitt sólarlitlu. Hiti breytist lítið frá í gær. MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLt 1976 Starfsmaður Bifreiðaeftirlitsins klippir númer af einum bflanna í gærkvöldi. 80 bílar færðir til skoðunar: Ljósm. Mbl.: Brynjólfur Helmingur missti númerin LÖGREGLAN f Reykjavfk og Bifreiðaeftirlit rfkisins voru f gær með herferð á hendur bif- reiðaeigendum, sem hafa trassað að koma með bifreiðar sfnar til skoðunar. Á tfmabilinu frá kl. 17 til kl. 20 færðu lögreglumenn 80 bíla að bækistöðvum bifreiðaeftirlitsins og var gert ráð fyrir að halda herferðinni áfram fram eftir kvöldi. Morgunblaðið fékk þær upplýsingar hjá Bald- vin Ottóssyni varðstjóra f gærkvöldi, að af þess- um 80 bflum hefðu þrfr bflanna reynzt vera f fullkomnu lagi, en um helmingurinn hefði misst númerin. Notkun var bönnuð á öðrum bílum um tfma eða mönnum var veittur frestur f smátfma til að koma bifreiðum sfnum f full- komið lag. Sfðastliðin fimmtudag var samskonar aðgerð af hálfu yfirvalda og voru þá færðir milli 60 og 70 bflar til skoðunar. Voru númerin klippt af um helmingi þeirra bfla. VL M, , w j* Ljosm. Brynjolfur. Verið að útbúa bát á hrefnuveiðar í Reykjavfkurhöfn f gær. 300 TONNA BÁTUR Á HREFNUVEIÐAR 4 norskir hrefnuveiðimenn með í ferðinni Skattskráin í Reykjaneskjördæmi: 5,5 milljarðar lagðir á 20681 einstaklinga MÓTORBÁTURINN Oskar Hall- dórsson RE fer á hrefnuveiðar eftir næstu helgi. Óskar Halldórs- son er 300 tonna bátur og hefur svo stór bátur ekki áður stundað hrefnuveiðar hér við land. Að sögn Ólafs Óskarssonar útgerðar- manns verður báturinn þrjár vik- ur í veiðiferðinni og verða hrefnurnar skornar um borð og geymdar í ís. 1 ferðinni verða fjórir norskir hrefnuveiðimenn, þar af ein skytta. Ólafur Óskarsson sagði að ágæt- ur markaður væri fyrir hrefnu- kjöt erlendis, einkum í Noregi. Ekki má báturinn sjálfur siglá með aflann út og verður hann því settur í land hér, frystur og síðan fluttur út með vöruflutningaskip- um. Að sögn Ólafs er Ieyfilegt að veiða 300 hrefnur hér við land árlega og sagði hann að þetta væru nokkurs konar tilraunaveið- ar hjá Óskari Halldórssyni. Sjávarútvegsráðuneytið veitti leyfi til veiðanna. Aðalveiðisvæð- ið er fyrir vestan og norðan land. Skipstjóri á bátnum er Eggert Þorfinnsson en áhöfnin er 9 Framhald á bls. 34 SKATTSKRÁIN í Reykja- neskjördæmi kemur út í dag. AIIs nema álögð gjöld á einstaklinga í kjör- dæminu rúmum 5,5 milljörðum króna, en fjöldi gjaldenda er 20681. Á 1142 félög eru lagðar 848 milljónir króna. I fyrra voru lagðir tæplega 3,9 milljarðar á 19887 ein- staklinga og 590 milljónir á 1071 félag. Hækkun álagðra gjalda á einstakl- inga nemur um 43,8%. Álögð gjöld . skv. skatt- skrá nema að meðaltali á gjaldanda í kaupstöðum í Reykjaneskjördæmi eftir- farandi upphæðum: kr. Garðabær 369.958. Seltjarnarnes 307.715 híjarðvík 278.857 Grindavík 271.289 Kópavogur 262.939 Keflavík 259.681 Hafnarfjörður 254.365 1 hreppunum er meðal- talsálagning lægri og undir 200 þús. í þremur hrepp- um. Tveir hæstu gjaldendur í röðum einstaklinga í um- dæminu eru Grétar Sveins- son húsasm., Hafnarfirði, og Sveinn Skaftason fram- kvæmdastjóri, Kópavogi. Báðir greiða þeir rúmlega 12 milljónir króna í opin- ber gjöld. Listi yfir hæstu skatt- greiðendur í kaupstöðum og hreppum í Reykjanes- umdæmi er birtur á bls. 3. Stöðugt unnið í hassmálinu STÖÐUGT er unnið að rannsókn nýjasta fíkni- efnamálsins, sem upp hef- ur komið, að sögn Ásgeirs Friðjónssonar dómara viö Fíkniefnadómstólinn. Sagði Ásgeir að ekkert frekar væri hægt að ségja um málið í fjölmiðlum en þar hefði komið fram. Einn maður situr í gærzluvarð- haldi í sambandi við rann- sóknina, en hann var úr- skurðaður í allt að 30 daga gæzluvarðhald. Jökulsá á Fjöllum flæðir yfir bakka sína MIKILL vöxtur hefur verið í Jökulsá á Fjöllum aó undan- förnu og hefur áin flætt yfir bakka sína á Skógareyrum í Axarfirði og e.t.v. víðar. Sig- urður Björnsson bóndi í Skóg- um sagði f samtali við Mbl. í gær að áin flæddi mest yfir austurbakkann og rynni f svo- nefnt Skógalón, en slfkt hefði ekki gerzt áður f mannaminn- um. Sagði hann að mikið land væri nú undir vatni að viildum þessara flóða og hefði vaxið mikið í kýlnum sem rennur gegnum túnin á Skógum og túnin þar blotnað mjög. Sagði hann að mjög erfitt væri að vinna í heyskap við þessar að- stæður, en sér hefði þó tekizt að ná nokkru heyi í hús. Sagði Sigurður að illa horfði fyrir veturinn ef flóðum þessum linnti ekki. Hann sagðist telja að vatnavextirnir f Jökulsá stöfuðu af landsigi sem varð f Axarfirðinum í vetur af völd- um jarðskjálftanna en miklar landbreytingar hefðu orðið á svæðinu þar nyrðra frá því f vetur. Sigurður sagði að fyrir skömmu hefði verið grafinn nýr ós í Jökulsá og hlaðið í skörð sem voru f árfarveginum, en nú væri sýnt að þessar að- gerðir nægðu ekki og þyrftu frekari framkvæmdir að koma til við ána. Kaup á 10—20 skipum rannsökuð AÐ UNUANFÖRNU hefur verið til rannsóknar hjá Sakadómi Reykjavfkur hvort um gjaldeyrishrot hafi verið að ræða við kaup á sanddæluskipinu Grjótjötni til landsins og liggur nú fyrir að svo hefur verið. Mun uppgefið kaupverð og raunvrrulegt verð ekki vera hið sama. Gjaldeyriseftirlit Seðlahankans hefur nú til rannsóknar hvort um fleiri brot sömu tegundar geti verið að ra-ða hjá öðrum aðilum sem keypt hafa skip til landsins á undanförnum fjprum árum. Alls mun eftirlitið vera að athuga kaup á 10—20 skipum frá a.m.k. þremur Alviðra: Stjórn Land- verndar fjallar um málið í ágúst 1 TILEFNI fréttar f blaðinu sl. laugardag um að fyrrverandi eigandi jarðarinnar Alviðru, sem gaf jörðina Árnessýslu og Landvernd fyrir nokkrum ár- um, vildi nú rifta gjöfinni, sneri blaðið sér til Hákonar Guðmundssonar formanns stjórnar I.andvcrndar og Framhald á bls. 34 löndum, en gera má ráð fyrir að þessi rannsókn taki nokkurn tíma, því miserfitt er að fá upplýsingar um viðskipti af þessu tagi erlendis frá. Dráttarvélar í sveitum ekki skoðunarskyldar VEGNA slysa og óhappa sem orðið hafa á dráttarvélum i sumar sneri Mbl. sér til Öryggiseftirlítsins og spurðist fyrir um hvernig eftirlit með dráttarvélum og öðrum tækjum í sveitum væri háttað. Friðgeir Grímsson öryggismálastjóri sagði Mbl. að Öryggiseftirlit ríkisins hefði ekkert af þessum vélum að segja, því búvélar væru undanþegnar skoðunarskyldu. Hins vegar væru dráttarvélar sem ekki væru notaðar við búskap skoðunarskyldar og væri eftir því gengið að þær væru færðar til skoðunar. Sagði Friðgeir að hann hefði mælt með þvi við viðkomandi yfirvöld að dráttarvélar í sveitum og önnur slík tæki yrðu gerð skoðunarskyld, en ekki kvaðst hann vita hvort breytinga væri að vænta á þessu sviði á næstunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.