Morgunblaðið - 28.07.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JULÍ 1976
Arnarflug:
Leiguflug fyrir Flug-
leiðir og Air Lingus
FLUGFÉLAGIÐ Arnarflug hefur
nú starfað f nokkurn tíma og að
sögn Magnúsar Gunnarssonar
framkvæmdastjóra félagsins, hef-
ur flug félagsins gengið ágætlega
til þessa.
— Við höfum haldið þeirri
áætlun, sem við settum í upphafi.
Við sjáum um flug fyrir Sam-
vinnuferðir og Ferðaskrifstofuna
Sunnu. auk þess sem við fljúgum
til Þýzkalands á laugardögum.
Höfum við komizt í að fara tvær
ferðir á laugardegi milli íslands
og Þýzkalands og flutt 340 far-
þega í þessum tveimur ferðum,
sagði Magnús.
Magnús sagði, að auk þessa
hefði félagið farið í leiguflug
fyrir Flugleiðir og Air Lingus á
írlandi. Fyrir það félag hefur ver-
ið flogið til Frakklands.
Aðspurður sagði Magnús, að um
þessa mundir væri verið að vega
og meta hvernig starfsemi
félagsins yrði háttað í vetur, en
nú væru stjórnendur félagsins
búnir að átta sig vel á rekstrinum.
Tólf manns eru nú fastráðnir
hjá Arnarflugi, en samtals starfa
24 manns hjá félagínu i sumar.
Húsavík:
Unnið á hverju kvöldi
1 frystihúsinu
Húsavík 27. júlí.
Í*R YDISGOTT atvinnuástand
hefur verið hér á Ifúsavík í
sumar. Unnið hefur verið fram á
kvöld í frystihúsinu hvern ein-
asta dag, enda afli verið góður. 1
vikulokin fer allt starfsfólk
frystihússins í 10 daga sumarfrí
og verður ekki tekið við neinum
fiski á meðan.
Fáar skatt-
skrárkærur
í Reykjavík
MBL. fékk þær upplýsingar á
skattstofunni í Reykjavfk í
gær, að ekki hefði enn borizt
mikið af skattskrárkærum, en
mikið væri um að fólk kæmi á
skattstofuna til að ieita sér
upplýsinga og fá skýringar á
sköttum sfnum. Kærufrestur í
Reykjavík er til 5. ágúst og
undanfarin ár hafa flestar
kærur borizt rétt áður en
kærufrestur rennur út.
Bátarnir fengu góðan iínuafla í
júní út við Kolbeinsey og þeir
hafa einnig fengið reytingsafla í
júlí. Er heildaraflinn orðinn
heldur meiri en hann var á sama
tíma í fyrra.
Verklegar framkvæmdir hafa
verið miklar og góð atvinna við
þær. Eins og venjulega er mikið
byggt af íbúðarhúsnæði og auk
þess er bærinn að láta byggja við
gagnfræðaskólann og unnið er við
byggingu dagheimilis. Þá er
einnig unnið að undirbyggingu
Garðarsbrautar, frá Melum að
Hjarðarholti, en meiningin er að
leggja þar olíumöl.
Af þessu má sjá að nóg er fyrir
alla að gera og hér er því ekkert
atvinnuleysi.
Fréttaritari.
Rífandi
atvinna
á Horna-
firði
Hornafirði 27. júli.
HÉR hefur verið rífandi atvinna
að undanförnu og ekki er mér
kunnugt um að neinn sé á at-
vinnuleysisskrá. Hefur næga at-
vinnu verið að fá bæði við fisk-
vinnsluna og verklegar fram-
kvæmdir.
Humarbátarnir eru allir hættir
eftir ágæta vertíð og sjómennirn-
ir komnir í frí. Frystihúsið hefur
einnig tekið á móti fiski úr
tveimur linubátum svo og skut-
togaranum okkar Hornfirðinga.
Þá er einn togbátur nýlega
byrjaður veiðar.
Heldur minna er byggt af
íbúðarhúsnæði en undanfarin ár.
Þó eru nokkur einbýlishús í smið-
um og eitt raðhús. Stærsta
verkefnið er samt bygging heilsu-
gæzlustöðvarinnar, en unnið er að
byggingu hennar.
Heyskapur hér í nágrannasveit-
um hefur gengið vel og flestir
bændur munu vera búnir að hirða
mikið af heyi af túnum.
— Gunnar.
Ljósmynd Ol.K.M.
Ja, hver skrambinn.
I Nissa fóru þeir einmitt gegnum holræsi núna um daginn þegar
þeir smugu inn í banka þar á staðnum og komust undan með
stærsta ránsfenginn sem sögur fara af. Myndin hér sýnir þó ekki
upphafið á endalokum Útvegsbankans (sem er þarna I bakgrunnin-
um) heldur eru mennirnir að hafa áhyggjur af því að í gærdag
byrjaði allt í einu að vætla eitthvað óhreint inn í kjallara bankans
og var holræsinu þvíarna vfst kennt um. Ékkert tjón þó og allt orðið
fínt og fágað aftur þegar við könnuðum málið
Rauðhetta ’76
á Úlfljótsvatni
A ÚLFLJÓTSVATNI verður
haldið mót um verzlunarmanna-
helgina og hefur það hlotið nafn-
ið Rauðhetta ‘76. Það er skáta-
samband Islands, sem stendur
fyrir mótinu, en forráðamenn
þess tóku það skýrt fram að það
væri ekki skátamót og væri öllum
opið, en það hefst á föstudags-
kvöld og lýkur á mánudag.
Að sögn Tryggva Jónssonar hjá
Skátasambandinu er aðstaða tii
útivistar mjög góð við Úlfljóts-
vatn. Skátar hafa unnið undanfar-
ið við undirbúning og hafa skipu-
lagt fjölbreytta dagskrá. Hljóm-
sveitirnar Cabarett, Paradís og
Experiment leika fyrir dansi, en
dansað verður til 02.00 á föstu-
dagskvöld, en 04.00 laugardags-
og sunnudagskvöld. Fjölbreytt
skemmtidagskrá verður og sagði
Tryggvi að þar væri ýmislegt ný-
stárlegt til skemmtunar, s.s. mara-
þon dans- og kossakeppni, báta-
leiga, tívolí o.fl. Þá verða iþróttir
á dagskrá og farið verður í göngu-
ferðir um nágrennið.
Framhald á bls. 34
Tvær veltur
í Hvalfirði
TVÆR bílveltur urðu í Hvalfirði
á sunnudag og mánudag. I fyrra
slysinu meiddist kona nokkuð og
var flutt á sjúkrahúsíð á
Akranesi, en farþegi sem í bíln-
um var slapp ómeiddur þegar bíll-
inn fór út af veginum skammt frá
Miðsandi. Á mánudeginum valt
bíll út af veginum við Þyril og fór
langa leið niður brekkuna þar.
Einn maður var í bílnum og slapp
hann lítt meiddur.
2000 lestir af loðnu veidd-
ust síðasta sólarhring
SÍÐASTLIÐINN sólarhring tilkynntu sjö ioðnubátar um
afla, alls 1960 iestir. Bátarnir héldu tii hafna víðs vegar
á landinu eða frá Keflavík til Neskaupstaðar. Bræðsla á
ioðnunni gengur vfðast hvar frekar hægt og virðist
nokkrum vandkvæðum bundið að bræða loðnuna.
Bræðslu lauk í Síldarverk- mjög illa að ná loðnunni úr
smiðju ríkisins í Siglufirði í fyrri- geymsluþróm inn í verksmiðju og
unnu starfsmenn verksmiðjunnar
að því í gær að breyta inntaksbún-
aði.
Eftirtaldir bátar tilkynntu um
loðnuafla s.l. sólarhring: Börkur
450 lestir, sem farið var með til
Neskaupstaðar, Guðmundur 300
lestir fór til Keflavíkur, Magnús
250 lestir, fór til Krossaness, Jón
Finnsson 270 lestir, fór til Krossa-
ness, Árni Sigurður 220 lestir, fór
til Siglufjarðar, Asgeir 300 lestir,
fór til Siglufjarðar, og Helga 2.
230 lestir, fór til Siglufjarðar.
#3 á atvinnu-
leysisskrá
í landinu
í lok júní sL
Atvinnulausir á skrá á landinu
öllu 30. júní sl. voru 403, en í lok
maí voru 653 á atvinnuleysisskrá.
Fjöldi atvinnuleysisdaga í júní-
mánuði var 6672 á landinu öllu,
en í maí voru atvinnuleysisdagar
alls 6951. í kaupstöðum voru 289
atvinnulausir 30. júní, en 524 I lok
maí. í kauptúnum með 1000 íbúa
og meir voru 14 á atvinnuleysis-
skrá í lok júni en 27 mánuði áður.
í öðrum kauptúnum voru 100 á
skrá yfir atvinnulausa í lok júni,
en 102 í mailok. Flestir voru á
skrá í Reykjavík í júnílok eða alls
200 en næstflestir á Þórshöfn eða
47. Atvinnuleysisdagar í Reykja-
vik í júni voru alls 2148, en á
Þórshöfn voru 698 atvinnuleysis-
dagar í júni.
Ávísanafalsið:
nótt, en ekki verður farið að taka
á móti loðnu þar á ný fyrr en um
hádegi í dag. Starfsmenn verk-
smiðjunnar unnu sleitulaust að
því i gær að hreinsa vélar verk-
smiðjunnar, en það er nauðsyn-
legt að hreinsa þær þegar hráefn-
ið er ekki betra til vinnslu en
raun ber vitni um.
Jón Reynir Magnússon fram-
kvæmdastjóri SR sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöidi, að
óskandi væri ,að loðnan skemmd-
ist ekki eins fljótt á næstunni og
verið hefði. Sagði hann ac) ástæð-
an til þess að loðnan skemmdist
svona fljótt væri fyrst og fremst,
að mjög mikil áta væri í loðnunni.
ISifira; B. Bjarnason,” sagði gjaldkerinn í Iðnaðarbankanum
í allt
Urskurðaður
að 14 daga varðhald
Fór strax að gruna manninn þegar ég sá nafnið Jón
una ,um leið og henni væri dælt
um borð, en það bindur eggja-
hvítuefníð í loðnunni og er um
leið rotvarnarefni. — En það sem
er mikilvægast, er að ekki fari
sjór í lestar skipanna þegar dælt
er um borð. Það verður að miða
dælingarhraðann við þann síu-
búnað, sem skipin hafa, sagði Jón
Reynir.
Eins og fyrr sagði ætlar SR að
hefja móttöku á ný um hádegi i
dag. Verður fyrst í stað tekið á
móti 1000 lestum og í gærkvöldi
var þegar búið að tilkynna 750
lesta afla til Siglufjarðar.
Síldarvinnslan í Neskaupstað
hóf loðnubræðslu í fyrrakvöld.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið fékk hjá Ás-
geiri Lárussyni, fréttaritara
blaðsins í Neskaupstað, þá gekk
RANNSÓKNARLÖGREGLÚ-
MAÐÚRINN, sem fyrir helgina
varð uppvís að stórfelldu ávísana-
falsi var á laugardaginn úrskurð-
aður I allt að 14 daga gæzluvarð-
hald á meðan rannsókn málsins
fer fram. Að sögn Guðmundar
Jóhannessonar dómara við bæjar-
fógetaembættið í Hafnarfirði,
sem annast rannsókn málsins, var
rannsóknarlögreglumaðurinn
kallaður fyrir á laugardaginn og
staðfesti hann þar fyrri framburð
sinn. Guðmundur sagði að hann
hefði ekki ennþá fengið í hendur
öll gögn málsins, en bjóst við að
fá megnið af þeim I dag, en starfs-
menn Sakadóms Reykjavfkur
hafa unnið að þvf að safna saman
þeim ávfsunum, sem vitað er að
rannsóknarlögreglumaðurinn gaf
út.
Morgunblaðið spjallaði í gær
við Hrafnhildi Baldvinsdóttur
gjaldkera í Háaleitisútibúi Iðnað-
arbankans, en þaó var hún'sem
með árvekni kom upp um ávisana-
falsið.
„Rannsóknarlögreglan hafði
sent okkur bréf,“ sagði Hrafn-
hildur, „þar sem voru mjög grein-
argóðar upplýsingar um númer
reikninga, manna- og fyrirtækja-
nöfn, sem falsarinn notaði, ásamt
sýnishornum af fölsuðum ávisun-
um frá honum. Við vissum að
hann hafói nýlega stofnað reikn-
ing í Breiðholtsútibúinu og vor-
um því mjög vel á verði gagnvart
ávísunum á það útibú, sérstaklega
ef þær voru háar.
Svo var það um klukkan 11 á
föstudagsmorguninn að maðurinn
kom. Hann bað um eyðublöð fyrir
Breiðholtsútibúið og skrifaði inn-
legg, 150 þúsund krónur. Þegar
ég sá nafnið á innlegginu, Jón B.
Bjarnason fór mig strax að gruna
að ekki væri allt með felldu, því
þetta var eitt af þeim nöfnum,
sem falsarinn hafði notaó. Og þeg-
ar hann rétti mér ávísunina var
ég alveg viss um að þetta væri
rétti maðurinn, þvi ávísunin var
gefin út af verzluninni Klaustur-
hólum, en það var eitt þeirra fyr-
irtækjanafna, sem hann hafði not-
að við fölsunina. Eg var ekki
alveg viss hvað ég átti að gera,
stimplaði innleggið og kvittaði
fyrir, þvi ég vissi að það var ekk-
ert tap fyrir bankann að gera það.
Hann hefur líklega talið að mig
grunaði ekkert fyrst ég stimplaði
innleggið, þvi hann hallaði sér n'í
Framhald á bls. 35