Morgunblaðið - 28.07.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JULI 1976
7
Hafréttar-
ráðstefnan
' Sameinuðu þjóðanna
kemur saman að nýju I
New York á mánudaginn
kemur. Af því tilefni er
birt stutt samtal við Hans
G. Andersen, sendiherra, í
Morgunblaðinu i gær. Þar
kemur m.a. fram að
haldnir verða sérstakir
undirbúningsfundir nk.
fimmtudag og föstudag í
svokölluðum strandrlkja-
hópi, þar sem farið verður
yfir helztu atriðin, sem
fjallað verður um á ráð-
stefnunni.
í viðtalinu kemur fram
að Hans G. Andersen
sendiherra, sem gjörþekk-
ir stöðu mála eftir langan
og farsælan starfsferil
sem helztur hafréttarráðu-
nautur íslenzkra stjórn-
valda, er bjartsýnn á að
hagsmunamál íslendinga
komizt heil i höfn i loka-
samþykkt ráðstefnunnar.
Eftir er þá að ná sam-
komulagi við svokölluð
landlukt og landfræðilega
afskipt ríki um þeirra rétt-
indi. Eftir er einnig að ná
samkomulagi um nýtingu
alþjóða hafsbotssvæðis-
ins.
Ekki er þó einsýnt um
að endanlegt samkomu-
lag náist i þessari funda-
hrotunni, sem áætlað er
að Ijúka muni hinn 16.
september nk. Hins vegar
er talið nokkuð öruggt að
lyktir náist á næsta fundi,
sem þá yrði væntanlega
haldinn öðru hvorum
megin við næstu áramót.
Það er þvi Ijósara með
hverjum deginum sem líð
ur að rétt var að biða ekki
lykta hafréttarráðstefn-
unnar með útfærslu fisk-
veiðilandhelgi okkar i 200
sjómílur, sérstaklega þeg-
ar Ijóst er, hve hætt fisk-
stofnar þeir, sem afkoma
okkar byggist á, voru og
eru komnir.
Gott var að
þeir reiknuðu
ekki út,
skattana
Þeir Þjóðviljamenn hafa
undanfarið verið að flytja
fréttir af skattskrám sem
eðlilegt er um þessar
mundir. Reikningskúnst
þeirra virðist samt ekki
upp á marga fiska, eða
hroðvirkni fréttaflutnings
í meira lagi. Þannig birt-
ust leiðréttingar á baksíðu
blaðsins í gær þar sem
segir, efnislega, að deila
þurfi með tlu I reiknings-
legar niðurstöður I fyrri
fréttaflutningi þess; átt
hafi að standa hundruð
milljóna þar sem talað
hafi verið um milljarða
(þ e þúsundir milljóna). j
annarri leiðréttingu er
þess getið að aðili, sem
„sagður var eiga þrjá
milljarði en átti að vera
340 m.kr. eða þar um bil,
og siðan hinir tveir i sam-
ræmi við það (!!)" Þá
kemur fram i leiðrétting-
unni að fjórði aðilinn hafi
verið „sagður eiga þriggja
milljarða virði (þ.e. þrjú
þúsund milljónir) „og átti
ekki einu sinni að vera
300 milljónir heldur um
180", eins og segir i blað-
inu.
Það fór vel á þvi að
slíkur margföldunarmeist-
ari var ekki settur i það að
deila niður sköttum á gest
og gangandi i þjóðfélag-
inu. Hætt er við að
„glaðningurinn" eins og
sumir kalla skattseðilinn,
hefði þá orðið einum of
grár.
Prentvillupúk-
inn kemur til
hjálpar
En þegar neyðin er
stært er hjálpin næst. í
frásögn Morgunblaðsins
af skattálagningu á Reyk
víkinga f fyrradag hefur
snúizt við tala, prentast
31 í stað 1 3. Allir skynug-
ir lesendur áttuðu sig á
þessum mistökum sem
ávallt geta átt sér stað.
Þjóðviljinn slær þessum
mistökum hins vegar upp,
með feitu letri, við hliðina
á öllum leiðréttingunum
við eigin flumbrufréttir, til
að vera ekki einn um hit-
una. Þar segir I upphafi:
„Vegna þeirra allt of
mörgu sem enn lesa
Morgunblaðið, skal á það
bent að Morgunblaðið
gerir álögur á Reykvík-
inga þrefalt hærri en þær
eru með frétt á baksíðu i
gær (!!)". Morgunblaðið
þakkar Þjóðviljanum um-
hyggjuna við lesendur
þess, þessa „allt of
mörgu", eins og það er
orðað.
Það er alltaf hugg-
un harmi gegn, eins og
þegar tala snýst við í
prentun, að eiga vísan
drengskap og samúð
Þjóðviljans. „Sá er vinur
sem í raun reynist", segir
máltækið. En í þessari at-
hugasemd blasir þó við
ein staðreynd, sem vert er
að íhuga: Hvað þeir
Alþýðubandalagsmenn
kysu helzt, ef þeir mæta
hér sömu tökum og skoð-
anabræður þeirra fyrir
austan tjald.
BINDINDIS^
* GLEÐIN í *1
GALTALÆKJARSKÓGI
30.júlí - 2.ágúsl 1976
Enn einu sinni verður bindindisgleðin haldin í Galta-
Iækjarskógi með fjölbreyttri dagskrá við allra hæfi.
Þetta er skemmtun allrar fjölskyldunnar en bindindis-
gleðin hefur ávallt tryggt gestum sínum ánægjulega og
friðsama dvöl í fögru umhverfi.
Ferðir verða frá umferðarmiðstöðinni.
Br,
Baldi
•diaur >
7a/isso/i
Barnaskemmtun í umsjá
Eddu Þórarinsdóttur,
Tjaldvagnar
Síðasta sending af þýzku tjaldvögnunum í
sumar var að koma.
0 Svefnpláss fyrir 7 — 8 manns.
0 Eldhúskrókur
0 Undirvagn er úr stáli, þverfjöður,
demparar og 1 3" felgur (fólksbílafelgur)
Innifalið i verði er fortjald, innra tjald, topp-l
grind og yfirbreiðsla. Camptourist er rykþétturj
og þolir okkar malarvegi.
Gísli Jónsson og Co. hf.
Sundaborg Klettagörðum 1. — Sími 86644.
motuneyti,
sjúkraliiis
Eigum fyrirliggjandi
niðursoðnar
MANDARÍNUR
stærð 1 1 oz.
Garri h.f.
Langhoksvegi 82 -Reykjavík -Sínú 83018
RiiHlindisncfnd.