Morgunblaðið - 28.07.1976, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JULl 1976
27
••
Ossur Skarphéðinsson, formaður Stúdentaráðs:
„Sannleikans gata er grýtt...”
Svar til Magnúsar Asgeirssonar
Mér er óljúft að eiga orðastað
við mann, sem sniður hugsun
sinni jafn óvandaðan búning og
Magnús Ásgeirsson. Grein hans
dæmir sig sjálf og sá dómur reyn-
ist honum vafalaust þungbærari
en nokkur ádrepa af minni hálfu.
Mig tekur einnig sárt að sjá um-
ræðu okkar haslaðan völl á þeim
harðbala sem Magnús temur mál
sitt við, og þykir miður, hversu
hann hefur dregið stúdentapóli-
tík niður á stig málefnasnauðrar
persónugerðrar illdeilu. En jafn
óljúft er mér að sitja þegjandi
undir ávirðingum Magnúsar. Ég
kýs því að mæta honum á þeim
velli er hann velur og birti svar
mitt á síðum þessa blaðs, — að svo
miklu leyti sem mögulegt er að
svara svo raka- og innihaldslausri
grein sem Magnúsar. Ég hef þó
ekki í sinni að gerast efnissmiður
Mbl. frekar en orðið er.
skólafélaga sina ..— Hér brjál-
ar piltur heldur betur orð min.
Slíku hef ég aldrei haldið fram
um Vöku. Mér er heldur ekki i
huga, að svo fornemt selskab
leggi sig i aurinn með þeim hætti.
Hins vegar staðhæfi ég — og styð
rökum í fyrri svargrein minni —
að Vaka hafi nýtt Magnús til áróð-
urs af síðum Mbl. Hversu óhönd-
uglega hefir tekist til með þann
málarekstur skrifa ég á reikning
Magnúsar en ekki Vöku.
6) Magnús staðhæfir ennirem-
ur, að hægri menn njóti ekki eðli-
legrar fyrirgreiðslu í Stúdenta-
blaðinu. Því hafi hann leitað til
Morgunblaðsins með birtingu á
greinarstúf sínum. Þessa órétt-
mætu ásökun hlýt ég að taka til
mín sem útgáfustjóri blaðsins.
Hluta hennar hefur Magnús
reyndar sjálfur borið til baka i
kostulegri athugasemd, er hann
birtir þann 21. þ.m. við sina eigin
grein. Þar biður hann einnig vel-
virðingar á gönuhlaupi sinu, sem
honum er ljúfmannlega veitt hér
og nú af stakri ánægju. En at-
hugasemd hans sýnir e.t.v. best
hversu sanngildi greinar hans er
rýrt að vöxtum. Til að sýna fram á
réttmæti þess hluta staðhæfingar
Magnúsar, sem enn stendur
óhaggaður af hans hendi, þykir
mér rétt að taka eftirfarandi
fram: Löngu eftir að skilafrestur
á efni til siðasta tölublaðs Stú-
dentablaðsins var út runninn,
kom til min Hannes Hólmsteinn
Gissurarson — einn af jungherr-
um Vöku — og fór fram á birt-
ingu skætingsklausu sem beint
var gegn höfundi þessara lina. Að
sjálfsögðu varð óg góðfúslega við
þeirri bón eins og Hannes Hólm-
steinn getur staðfest. Að auki sá
ég til þess að klausan var birt
feitletruð i heild. Það er vafalaust
þetta sem Magnús Asgeirsson á
við, þegar hann fullyrðir, að
Vökumenn njóti óeðlilegrar fyrir-
greiðslu.
Orðfæri Magnúsar
Þó Magnús sé grunlaus um þá
þörf sem ber til að rökstyðja mál
sitt, verður honum þó oftlega
gripið til orðperlna á borð við
„Lygavefur Össurar-', „persónu-
legt skítkast", „trúðsleg fífla-
læti“, „drambsemi Össurar", „að-
dróttanir“ og fleira i þeim dúr. A
slíkar perlur glittir víða i mál-
flutningi Magnúsar þó rökin
skorti.
„Hófstiliingin markar meistar-
ann“, sagði Goethe. Hvaö segir
Magnús um það?
Kor. 1.13,11.
Að endingu vil ég loka þessum
skrifum mfnum til Magnúsar með
þvi að benda honum á gullkorn i
höfuðbók kristinna manna, sem
Magnús gæti reyndar margt af
lært hvað varðar rósemi hugans
og stillingu tungunnar. Það er að
finna í fyrra bréfi Páls til
Korintumanna kafla 13, vers 11.
Þar segir svo:
„Þegar ég var barn, talaði ég
eins og barn,
hugsaði eins og barn og álykt-
aði eins og barn,
þegar ég var orðinn fulltiða
maður, lagði ég niður barnaskap-
inn.“
Væri ekki ráð að athuga þetta
Magnús?
Össur Skarphéðinsson
Málflutningur Magnúsar hrakinn
1) Magnús telur, að ég sé hör-
undsár vegna „sannleikans um
slágsmálasveit stúdenta”. Með því
staðhæfir hann enn, að til sé ein-
hver slagsmálasveit og vekur enn-
fremur til tengsla milli mín og
hennar.
Nú er mér sama, þó Magnús etji
í órum sínum kappi við ímyndaða
slagsmálasveit og aðrar forynjur.
Draumar hans og veruleikaskyn
eru mér framandi og skipta mig
litlu máli. En þegar þessar
draumsýnir hans eru birtar sem
óbrjálaður veruleiki á siðum við-
lesnasta blaðs landsins tekur mál-
ið alvarlegri stefnu. Það er því
rétt skilið hjá Magnúsi að mér er
óljúft að sæta ámælum hans. Þvi
skora ég á hann að upplýsa:
a) Hver sé skilgreining hans á
hugtakinu slagsmálasveit?
b) Hvar sú „sveit“ hafi haft sig
í frammi?
c) Hverjir séu þeir menn er
skipi þá sveit?
d) Hvaða sönnur hann geti fært
á tengsl mín og þessarar sveitar?
Að öðrum kosti telst Magnús
ómerkur orða sinna.
2) Á öðrum stað segir Magnús:
„Lygavefur Össurar er margfald-
ur ...“ Ekki verður annað sagt, en
orðfæri Magnúsar veki aðdáun.
Hér slær hann fram óheflaðri
fullyrðingu, án raka og án rök-
stúdds tilefnis. Hún dæmist þvi
ómerk.
3) Magnús segir einnig: „Ég
ætla mér ekki að svara hinum
persónulegu aðdróttunum sem
hann (þ.e. össur — innsk. höf.)
lætur í ljósi...“ Ekki furðar mig
á þvi, þar sem allar þær staðhæf-
ingar er ég set fram í grein minni
eru studdar rökum. Þær geta þvi
ekki kallast aðdróttanir fyrr en
þau rök eru hrakin. En hvar er
reynt að hrekja rök min í grein
Magnúsar?
4) Þá segir Magnús einnig: „Eg
er í nefndri grein kallaður óbein-
um orðum lygari og trúi nú hver
sem vill...“ Hér brestur Magnús
skyn til að skilja, að hann er ekki
kallaður neitt „óbeinum orðum".
Honum eru einfaldlega settir þeir
kostir að sanna staðhæfingu sina
um „líkamsmeiðingar'* á þingpöll-
um, en heita ósannindamaður
ella. Skinhelgi hans birtist hins
vegar vel í orðunum „... trúi nú
hver sem vill". Þannig vill nefni-
lega til, að téður Magnús reit
grein i Mbl. fyrr á þessu ári. Þar
veittist hann að fylkingu vinstri
manna í Háskóla íslands á miður
heiðvirðan hátt. Og þar voru
sannanlegar lygar, sem mál er að
rekja, þó ekki kjósi ég Mbl. til
sliks.
5) A öðrum stað segir Magnús:
„Össur heldur því fram, að Vaka
geri út menn til að niðurlægja
öll þessi skuldabréf eru seld.Tilkynning þessi birtist aðeins af formlegum ástaeðum.
Ný útgáfa
16. júlí 1976
LYÐVELDIÐISLAND
12,000,000 evrópskar reikningseiningar
9%% 1976-1986 skuldabréf
CRÉDIT COMMERCIAL DE FRANCE
FIRST BOSTON (EUROPE)
Limited
KREDIETBANK S.A. LUXEMBOURGEOISE
ARAB FINANCIAL CONSULTANTS COMPANY S.A.K.
BANQUE BRUXELLES LAMBERT S.A.
MANUFACTURERS HANOVER LIMITED
SOCIÉTÉ GÉNÉRALE DE BANQUE S.A.
WESTDEUTSCHE LANDESBANK GIROZENTRALE
ALAHLI BANK OF KUWAIT (K.S.C.)
ALGEMENE BANK NEDERLAND N.V.
AMSTERDAM-ROTTERDAM BANK N.V.
A. E. AMES & CO.
Limited
ARAB FINANCE CORPORATION S.A.L. BACHE HALSEY STUART INC. BANCA COMMERCIALE ITALIANA BANK GUTZWILLER, KURZ, BUNGENER (OVERSEAS)
Limited
BANQUE ARABE ET INTERNATIONALE D’INVESTISSEMENT (B.A.I.I.)
BANK MEES & HOPE NV
BANQUE DU BENELUX S.A.
BANQUE INTERNATIONALE A LUXEMBOURG S.A.
BANQUE NATIONALE DE PARIS
BANQUE DE PARIS ET DES PAYS-BAS
pour le Grand-Duchó de Luxembourg
BAYERISCHE LANDESBANK GIROZENTRALE
BROWN HARRIMAN & INTERNATIONAL BANKS LTD.
COMPAGNIE AUXILIAIRE DE GÉRANCE FINANCIÉRE
BANKHAUS HERMANN LAMPE
Kommanditgesellschaft
BANQUE DE COMMERCE S.A. BANQUE GÉNÉRALE DU LUXEMBOURG S.A.
BANQUE DE L’INDOCHINE ET DE SUEZ
BANQUE IPPA S.A. BANQUE LAMBERT - LUXEMBOURG S.A. BANQUE LOUIS-DREYFUS
BANQUE DE PARIS ET DES PAYS-BAS BANQUE DE PARIS ET DES PAYS-BAS - BELGIQUE
BANQUE DE L UNION EUROPÉENNE BANQUE WORMS H. ALBERT DE BARY & CO. N.V.
BERGEN BANK
BERLINER HANDELS- UND FRANKFURTER BANK
CAISSE DES DÉPÖTS ET CONSIGNATIONS
BLYTH EASTMAN DILLON & CO.
International Limited
CITICORP INTERNATIONAL BANK
Limited
COMPAGNIE DE BANQUE ET DTNVESTISSEMENTS (UNDERWRITERS) S.A. CONTINENTAL BANK S.A.
COOPERATIEVE CENTRALE RAIFFEISEN-BOERENLEENBANK G. A. (CENTRALE RABOBANK) CRÉDIT GÉNÉRAL CRÉDIT INDUSTRIEL D ALSACE ET DE LORRAINE
S.A. de Banque
CRÉDIT INDUSTRIEL ET COMMERCIAL CRÉDIT LYONNAIS CRÉDIT DU NORD CREDIT SUISSE WHITE WELD CREDITANSTALT-BANKVEREIN
Limited
DRESDNER BANK EFFECTENBANK-WARBURG
Aktiengesellschaft Aktiengesellschaft
EUROPEAN BANKING COMPANY FINACOR GENOSSENSCHAFTLICHE ZENTRALBANK AG - VIENNA ANTONY GIBBS HOLDINGS LTD.
DEN NORSKE CREDITBANK
DEWAAY & ASSOCIÉS INTERNATIONAL S.C.S.
Limited
GIROZENTRALE UND BANK DER ÖSTERREICHISCHEN SPARKASSEN E. F. HUTTON & CO. N.V. INDUSTRIEBANK VON JAPAN (DEUTSCHLAND) INTERUNION-BANQUE
Aktiengesellschaft Aktiengesellschaft
KANSALLIS-OSAKE-PANKKI KLEINWORT, BENSON KREDIETBANK N.V. MERRILL LYNCH INTERNATIONAL & CO. NEOERLANDSCHE MIDDENSTANDSBANK M
Limited
NORDIC ÐANK ORION DANK POSTIPANKKI PRIVATBANKEN
Limited Limited Aktieselskab
SLAVENBURG OYENS & VAN EEGHEN N.V. SMITH BARNEY, HARRIS UPHAM & CO.
Incorporated
SOCIÉTÉ GÉNÉRALE ALSACIENNE DE BANQUE SOCIÉTÉ SÉQUANAISE DE BANQUE SVENSKA HANDELSBANKEN SWISS BANK CORPORATION (OVER
SCANDINAVIAN BANK
Limited
SOCIÉTÉ CENTRALE DE BANQUE
SKANDINAVISKA ENSKILDA BA *■
SOCIÉTÉ GtNEr
UNION DE BANQUES ARABES ET EUROPÉENNES - U.B.A.E.
Socióté Anonyme
Limited
VEREINS- UND WESTBANK
Aktiengesellschaft
WILLIAMS, GLYN & CO.
WOOD GL>U
Limited