Morgunblaðið - 29.07.1976, Síða 5

Morgunblaðið - 29.07.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JULI 1976 5 ORÐ í EYRA Frá Oddvita Heill og sæll, Jakob gódur. Heldur hefur það nú oróið svona í undandrætti að hripa þér fáeinar línur um Menningu og þviumlíkt hérna hjá okkur. Er það meðfram vegna þessa eilífa útstáelsis á Oddvitanefnunni. En allur þungi sveitarstjórnarinnar leggst á mig þegar hann er fjarri. Hann var víst mánuð og gott betur á Búnaðarþingi þó marg- ir hér Heima hefðu við orð að betra hefði verið að aðrir hefðu sótt Þingið en hann. Fyrir hæversku sakir nefni ég eingin nöfn. Nú og svo var það Böðunin. Er þar þá fyrst til máls að taka að morgun einn snemmendis í annarri viku sumars berst mér njósn af því að Hreppsi kallinn sé kominn á stúfana og hyggist baða fjalla- fé mitt frjálsborið að mér forn- spurðum. — Ég sendi þegar á ýmsa bæi og brugðu menn skjótt við, vopnuðust harð- fengilega og héldu að rausnar- garði þeim er ég hef setið og frændur mínir um hálfrar aldar skeið og vel það. Komu báðir til bæjar jafn- snemma og laust svo saman fylkingum millum fjóshaugs og safnþróar. Hlaut þar marg- ur áverka nokkurn. Voru tveir kögursveinar Hreppsa strýktir eins og óþægir pottormar, mykju meykt ótæpilega á úníform hans sjálfs og afgang- urinn af liðinu barinn grjóti. Voru þeim jafnframt valin hin hæðilegustu orð og fengu ekki baðað utan hrútgarm einn, ónýtan og aflóga. Unnu það þrekvirkið tveir húskarlar Hreppsa, Jón lumma og Gvuómundur nokkur Gvuó- mundsson, ættlaus maður undan Jökli. Að sjálfsögðu mun ég eigi láta við svo búið standa. Ég er ákveðinn i að sækja mál á hendur þeim er óboðnir stigu fæti á bæjarhlöð mín morgun þennan en einkum og sér í lagi mun ég krefjast þess að þeir er hendur lögðu á bekrann og böóuðu verði sakfelldir. Hreppsa bíóur væntanlega hvorki meira né minna en embættismissir enda telja margir ýmsa betur fallna til þess starfa en búra þann. Mun væntanlega innan tíðar í ljós koma hvort nokkur snefill rétt- lætis skrimtir enn á landi hér. Meira seinna. Filipus Vara-Oddviti. STORKOSTLEGT VORUURVAL □ DENIM-BUXUR □ DENIM JAKKASKYRTUR □ DENIM MUSSUR □ DENIM KÁPUKJÓLAR , □ DENIM PILS □ KÖFLÓTTAR BLÚSSUR □ KÖFLÓTTAR HERRASKYRTUR □ STUTTERMA JERSEY HERRASKYRTUR □ DÖMU OG HERRABOLIR □ SÓLBOLIR □ STUTTJAKKAR □ STRIGASKÓR FRÁ KICKERS □ KÚREKASTÍGVÉL □ HLJÓMPLÖTUR OG KASSETTUR O.M.M.FL. KL. 8 ANNAÐ KVOLD TfZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptiborði 28155

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.