Morgunblaðið - 29.08.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.08.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. ÁGUST 1976 (JR JANE EYitE: Isabelle Rosin sem Adele og Sorcha Cusack sem Jane Eyre. HÖFUNDUR JANE EYRE: Chariotte Bronté og systkinihennar % CHARLOTTE Bronté, höfundur sögunnar „Jane Eyre“, sem íslenzkir sjón- varpsáhorfendur hafa fengið að kynnast undanfarna sunnudaga í sjónvarpsgerð BBC, er ekki sfður hnýsilegt athugunarefni en þau verk sem hún ritaði. „Jane Eyre“ hefur í meir en hundrað ár verið ein mest lesna skáldsaga enskrar tungu, og það sem þykir hafa valdið þar mestu um er það einkennilega og áhrifamikla andrúm sem hið magnaða hugmyndaflug Bronté laðar fram og hleður með sögu, sem að uppistöðu er ósköp venjuleg ástarsaga af barnfóstru og vinnuveitenda hennar. Þetta hugmyndaflug var ekki einkaeign, Charlotte Bronté. Hér var nánast um fjölskyldueinkenni að ræða. Systkini og þó fyrst og fremst systur Charlotte Bronté hafa einnig unnið sér sess í brezkri bókmenntasögu, eins og mörgum er kunnugt. Og persónusaga Bronté-systkinanna, — í senn viðkvæmur og myrkur hugarheimur þeirra hefur haldið jafnt fræðimönnum sem bókmennta- unnendum almennt föngnum áratugum saman. Hér á eftir skal að nokkru greint frá ævi þessara sérkennilegu og hæfileikarfki systkina. (JR JANE EYRE: Michael Jayston sem Rochester og Sorcha Cusack sem Jane. m fltt'lfð Já m Y$ \ |f Wtfmm (JR JANE EYRE: Sorcha Cusack og Megs Jenkins sem frú Fairfax. Þau voru börn írsks mótmæl- enda prests, Patrick Brontö og Maria Branwell frá Cornwall. Faðirinn var meþódisti og áhrif frá meþódisma skjóta víða upp kolli í verkum systranna og mót- aði mjög persónuleika og líferni þeirra. Elztu systurnar tvær, Maria Elizabeth, sem urðu mjög skammlífar, fæddust 1813 og 1814 í Hartstead í Yorkshire, en skömmu sfðar flytur klerkur til Thornton, lítils þorps á Yorks- hireheiðunum þar sem hann ger- ist sóknarprestur. Þar fæðist Charlotte 21. apríl 1816, bróðirinn Patrick Branwell 26. júní 1817, Emily Jane 30. júlí 1818 og Anne 17. janúar 1820. Þremur mánuð- um eftir fæðingu Anne varð faðir þeirra sóknarprestur í Haworth, afskekktu þorpi á heiðunum, og þar bjó hann alla sína ævi. Og þar lézt móðirin úr krabbameini árið 1821. HINN KLOFNI HEIMUR ÆSKU OG UPPVAXTAR Móðursystir þeirra, Elizabeth Branwell, flutti inn á heimilið og annaðist það. Hún gerði skyldu sína gagnvart þeim, en var þeim að öðru leyti f jarlæg, og hinn strangi meþódismi hennar verk- aði þrúgandi, — einkum á Anne. Branwell naut hins vegar mennt- unar og alúðar föður sfns, sem var greindur og orkaði hvetjandi á sjálfstætt vitsmunalíf barna sinna, þðtt sérvitur og einrænn væri. Börnin voru þvf mest upp á sjálf sig komin. Það sem fljótt átti hug þeirra allan var lestur. Þau gleyptu f sig allt lestrarefni sem þau gátu náð í, þ. á m. dagblöð. En á móti heimi bóka og blaða komu hinar dul- mögnuðu heiðar með ofsafengn- um vindum og veðrum. Þar reik- uðu Bronté-systkinin löngum, og áhrifa þeirra gætir á afar áber- andi hátt f vérkum þeirra, jafn- framt því sem þær settu mark sitt á sálarlff þeirra. Hið einangraða líferni leiddi hins vegar til mikillar feimni hjá stúlkunum og Branwell átti ekki samneyti við jafnaldra af sínu kyni, sem vafalaust hefur átt sinn þátt í reikulu skaplyndi hans og örlögum. Charlotte og Emily fóru sex og sjö ára að aldri f skóla fyrir prestsdætur ásamt þeim Maria og Elizabeth. Agi var þar strangur og aðbúnaður slæmur. Minningar Charlotte um þennan skóla koma einmitt fram í lýsingunni á skól- anum í „Lowood" í „Jane Eyre“, og hún leit ekki á þá lýsingu sem ýkjur. 1 þessari skólavist horfði Charlotte upp á eldri systur sfnar tvær, Maria og Elizabeth, veikjast og fluttar heim til þess eins að deyja. Sú reynsla skildi eftir sig djúp spor hjá bæði Charlotte og Branwell. SKÁLDSKAPAR- HEIMURINN Þær Charlotte og Emily sneru sjálfar heim úr heimavistarskól- anum árla sumars og í meir en fimm ár dvöldu börnin f föður- húsum við leik og nám. Á þeim tíma leita þau út úr einangrun sinni inn í tilbúinn ævintýra- og skáldskaparheim, sem æ síðan hefur þótt sérkennilegt rannsókn- arefni fræðimanna. Til þess að hafa ofan af fyrir sjálfum sér og um leið veita auðugu hugarflugi útrás tóku þau að búa sér til furðulegustu leiki og gera mikinn fjölda örsmárra bóka eða kvera, skrifaðra með nánast smásæju letri, 1 þessum skáldheimi barn- anna urðu til f ljóðum og fanta- stfskum sögum heil rfki. Char- lotte og Branwell skrifuðu sín ævintýri í kringum konungdæmið Angríu, en Emily og Anne upp- diktuðu eyríkið Gondal á Kyrra- hafi. 1 þessum rfkjum stýrðu börnin sjálf stjórnmálaum og styrjöldum, ástum og átökum. Þessar flóknu rómantísku sögur voru samdar af stúlkunum allt fram á þrítugsaldur. Þótt ekki teljast sögur þessar til sígildra bókmenntaverka voru þær eins konar sandkassi fyrir skáldgáfu systranna. Stef og við- fangsefni síðari verka þeirra eiga upptök sín þarna. Því miður eru öll prósaverkin um Gondal glötuð, en talsvert er til af Angríusögum, og þær eru hið forvitnilegasta at- hugunarefni frá sálfræðilegu sjónarmiði. Charlotte fann snemma til sektar vegna þeirra andstæðna sem voru annars vegar hið einangraða, hversdagslega lff hennar og hins vegar hið taum- lausa, frjálsa lff ímyndunarafls- ins. Þessi togstreita olli verulegu sálarstríði hjá henni, og ef til vill hjá systrum hennar tveim að ein- hverju leyti líka. Harmleikurinn f lífi Branwells var á hinn bóginn sá að hann virðist hafa, er á leið, glatað hæfileikanum til að greina á milli ofsafenginna dagdrauma og raunveruleikans í kringum hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.