Morgunblaðið - 29.08.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. ÁGUST 1976
19
Formaður stjórnar Laxárvirkjunar:
Vill hraða framkvæmd-
um við byggðalínuna
Akureyri 27. ágúst
VEGNA nýbirtrar skýrslu jarð-
vfsindamanna um jarðfræðilegt
ástand Kröflusvæðisins sneri
fréttamaður Mbl. sér í dag til
Vais Arnþórssonar, formanns
Laxárvirkjunarstjórnar og spurði
hann, hvort stjórn Laxár-
virkjunar hefði nokkuð hugleitt,
hvernig hún teldi réttast að
bregðast við og leita annarra
leiða tii orkuöflunar fyrir
Norðurland, ef framkvæmdir við
gufuöflun til Kröfluvirk junar
tefðust verulega eða jafnvel eld-
gos yrði á svæðinu. Valur hafði
þetta að segja:
— Um þetta hefur ekki verið
rætt formlega í Laxárvirkjunar-
stjórn, en ég get hiklaust lýst
þeirri persónulegu skoðun minni,
að með hliðsjón af nýjustu
fréttum um Kröflusvæðið sé
ekkert vit í öðru en menn fari að
hugleiða það í fullri alvöru hvern
kost skuli upp taka ef svo illa
tekst til að Kröfluvirkjun kemst
ekki í gagnið í vetur.
— Auðvitað óska 'állir þess að
allt gangi samkvæmt áætlun við
Kröflu, en við getum ekki lokað
augunum fyrir þvi að illa gengur
að beizla gufuna og boranir ganga
seint og illa, þó að ekki komi til
eldgos, sem hamingjan forði
okkur frá, en virðist þó vera full-
komlega hugsanlegt og jafnvei
Flughátíð á
Sandskeiði
FYRIR 40 árum, f ágúst 1936, var
flug endurvakið á Islandi. Þann 6.
ágúst það ár var Agnar Kofoed-
Hansen skipaður f hið nýja
embætti flugmálaráðunauts rfkis-
ins. Að hans forgöngu var Svif-
flugfélag Islands stofnað 20.
ágúst og 25. ágúst stofnaði hann
einnig Flugmálafélag Islands.
Þessi tvö félög urðu sú lyftistöng
sem þurfti til að endurvekja
áhuga á flugi og flugmálum hér á
landi.
Fyrsti formaður Svifflugfélags
Islands var Agnar Kofoed-Hansen
en núverandi formaður er Þór-
mundur Sigurbjarnarson. Fyrsti
forseti Flugmálafélags Islands
var einnig Agnar Kofoed-Hansen,
en núverandi forseti þess er
Björn Jónsson.
Þessara tímamóta verður
minnzt um næstu helgi með flug-
hátíð og flugsýningu á Sand-
skeiði. Flugsýningin mun hefjast
á Sandskeiði kl. 14 laugardaginn
28. ágúst, ef veður leyfir. Ef
veður hamlar verður flugsýning-
in daginn eftir, sunnudaginn 29
þ.m. en til vara verður svo næsta
helgi þar á eftir.
A sýningunni verður aðallega
reynt að sýna stöðu flugiþrótta-
greinanna, eins og hún er hér á
landi eftir 40 ára starf. Þar
verður sýnt vélflug, svifflug,
þyrluflug, módelflug með radió-
stýrðum módelum, fallhlifar-
stökk, flug I loftbelg og dreka-
flug. Listflug verður sýnt á vél-
flugum, svifflugum og á flug-
módelum. Þá verður mikið af
gömlum og nýjum flugvélum,
svifflugum og þyrlum til sýnis.
Sumar og sól
FRÉTTARITARI Morgunblaðs-
ins á Neskaupstað, Ásgeir Lárus-
son, skýrði Morgunblaðinu frá því
í gær, að Norðfirðingar gengju
þar um götur sem væru þeir á
Italíu eða Spáni. Ungir sem aldnir
voru þar mjög léttklæddir, enda
voru 23 gráður.í forsælu og í
sólinni kvaðst Asgeir hafa mælt
39 stiga hita. Á Norðfirði var f
gær blankalogn.
Sömu sögu var að segja frá
Siglufirði I gær. Þar var einhver
heitasti dagur sumarsins.
sennilegt fyrirbrigði samkvæmt
nýframkominni skýrslu fjögurra
jarðvísindamanna.
— Ég kem þá ekki auga á aðra
leið skjótari og ódýrari sem vara
leið til að leysa orkuskort Norður-
lands en leggja kapp á að fullgera
byggðalinuna að sunnan og þá
fyrst og fremst flöskuhálsinn
syðra, lagningu línu frá Geithálsi
að Grundartanga og skiptingu
línu þaðan að Andakílsárvirkjun.
Aðrir hlutar byggðalinunnar eiga
að verða fullgerðir fyrir áramót.
Við Norðlendingar getum ekki
hugsað okkur einn vetur enn með
tilfinnanlegum orkuskorti, hvað
þá lengri tíma, líka þegar þess er
gætt, að búið er að kosta geysi-
miklum fjárfúlgum til orkumála á
Norðurlandi.
—Sv.P.
Dauðadómar
í Búkarest
Búkarest 27. ág. NTB.
HERDÓMSSTÓLL f Búkarest hef-
ur dæmt tvo Rúmena til dauða
vegna þess að þeir seldu leynileg-
ar viðskiptalegar upplýsingar til
erlendra samtaka. að þvf er
rúmenska fréttastofan Agerpress
skýrði frá I dag. Mennirnir tveir
hafa verið áhrifamenn f iðnaði og
innflutningi I landinu. Ekki var
frá því greint hvenær réttarhöld-
in fóru fram, en tekið fram að
upplýsingarnar, sem þeir létu af
hendi, hefðu skaðað þjóðarhag.
Hinir dauðadæmdu áfrýjuðu til
Hæstaréttar, en hann vfsaði
náðunarbeiðni þeirra á bug.
Úgandaher á
brott frá landa-
mærum Kenýa
Nairóbl — 27. ágúst — Reuter
KENVA-útvarpið skýrði frá þvf f
dag, að hersveitir Ugandamanna
væru á brott frá landamærum
ríkjanna, en brottkvaðning her-
sveitanna var liður f friðarsamn-
ingi þeirra nýlega.
Samskipti Uganda og Kenýa
versnuðu mjög eftir að Uganda-
stjórn sakaði Kenýamenn um að
hafa veitt ísraelsmönnum aðstoð
við björgun gíslanna á Entebbe-
flugvelli 4. júlí s.l., og hefur her-
lið Ugandamanna verið við landa-
mærin lengst af síðan árásin átti
sér stað.
Senn kvengeim-
farar í þjálfun?
Houston, 27. ág. Ntb.
RÖSKLEGA eitt þúsund banda-
rfskar konur hafa áhuga á þvf að
mennta sig fyrir geimferðir að
þvf er segir í fréttum frá banda-
rfsku geimferðastofnuninni.
Vilja þær taka þátt f hinni nýju
geimferðaáætlun Bandarfkjanna
sem hefst árið 1980. Fram að
þessu hafa einvörðungu karlar
hlotið þjálfun til geimferða, en
forystumenn bandarfskra geim-
vfsinda eru hinir glöðustu vfir
því hversu mikinn áhuga konur
sýna.
Einn forstöðumanna þjálfunar-
hópsins segir að til að byrja með
verði teknir til þjálfunar þrjátíu
nýir geimfarar og verði það allt
karlar. Hins vegar verði sfðar
tekið tilathugunar áð fleiri verði
þjálfaðir og þá megi ætla að
konur komi til álita.
Þessi mynd var tekin af ,, skógarhögginu" 1 8 ágúst
Hvað gerðist í
Norður-Kóreu?
MORÐIN á Bandaríkja-
mönnunum tveimur, sem
voru að höggva tré á hlut-
lausa beltinu í Kóreu mið-
vikudaginn 18. ágúst, átti
sér nokkurn aðdraganda.
Tveimur vikum fyrr eða 5.
ágúst, sendi stjórn N-Kóreu
frá sér yfirlýsingu þess
efnis, að Bandarfkin væru f
þann mund að ráðast á N-
Kóreu. Þessari yfirlýsingu
var ekki veitt hin minnsta
athygli, jafnvel þótt hún
væri harðorðaðri en aðrar
yfirlýsingar af svipuðu tagi,
sem stjórnin í N-Kóreu hef-
ur verið að senda frá sér
með reglulegu millibili nú
um nokkurt skeið. N-
Kóreumenn höfðu hrópað
„Úlfur, úlfur" of oft.
Það var daginn eftir, 6.
ágúst, sem fyrsta „skógar-
höggið" kom, eftir þvi sem
N-Kóreustjórn heldur fram
Þá segjast þeir hafa „flæmt á
brott skemmdarvarga óvinar-
ins" og þar með haldið uppi
virðingu hlutlausa beltisins
N-Kóreumenn túlkuðu þvi
atburðinn 18. ágúst sem
mótaðgerð, og sögðu að
Bandarikjamönnum hefði átt
að vera fullljós áhættan, en
þeir hafi haft fullan hug á að
egna N-Kóreumenn til bar-
daga í þeim tilgangi að hafa
siðar gilda afsökun fyrir
striði
Til þess að renna stoðum
undir þessi rök segja N-
Kóreumenn að þeir „14
glæpamenn, sem báru axir
og önnur skaðvænleg vopn"
hafi fljótlega fengið hjálp frá
„30 skemmdarvörgum", sem
legið höfðu i leyni, þar eð
búizt var við vopnaskakinu
N-Kóreumenn halda þvi
fram, að það hafi verið alveg
augljóst að Bandarikjamenn
skipulögðu atburðina i þeim
tilgangi að hrinda af stað
striði Sjónauka liðsforingja
var komið fyrir uppi á hæð
Liðsmenn óvinarins
„stjórnuðu ögrunaraðgerð-
um, undirbjuggu myndatöku
og meir en 100 vtgreifir her-
menn biðu með 3 skriðdreka
eftir væntanlegum átökum "
En það kemur varla á
óvart, þótt yfirmaður
bandariska hersins i N-Kóreu
hafi gert slikar varúðarráð-
stafanir, þegar hafður er i
huga atburðurinn 6 ágúst,
og að hann hefur viljað festa
á filmu allt, sem gerðist, i
þeirri von að geta seinna sýnt
svart á hvitu, hvað raunveru-
lega átti sér stað Það, sem
kemur meir á óvart, er, að
N-Kóreumenn, virðast hafa
verið staðráðnir í þvi að færa
Bandarikjamönnum upp i
hendurnar þá „tylliástæðu"
sem þeir segja Bandarikja-
menn hafa verið að sækjast
eftir.
Framkoma N-Kóreumanna
virðist harla óskynsamleg
Það er hægt að segja sem
svo, að N-Kóreumenn hafi
ekki drepið bandarisku her-
mennina af ásettu ráði,
heldur hafi þeir áðeins ætlað
að skjóta þeim skelk i bringu,
líkt og þeir gerðu 6. ágúst-
og að sú áætlun hafi siðan
gengið of langt. En ef þessi
skýring er rétt, þá er orsaka
þessara „mistaka" að leita i
yfirlýsingu N-Kóreumanna
frá 5. ágúst Þeirri yfirlýsingu
var fylgt eftir með þvilikum
áróðri gegn Bandarikjunum,
að ekki er hægt að lá N-
Kóreumönnum að lita á
smávægilegustu atburði sem
undanfara styrjaldar
Sé hegðun kóreönsku her-
mannanna skiljanleg i Ijósi
þess striðsótta, sem greip um
sig eftir 5 ágúst, — hvernig
ber þá að skilja yfirlýsinguna
sjálfa? í henni eru talin upp
ótal dæmi um ögranir
Bandarikjanna og her-
væðingu, aukin herafla,
vopn og flugvélar, heræfing-
ar og heimsóknir fyrirmanna
úr bandariska hernum til
Kóreu
Og þótt Norðanmönnum
hafi ekki tekizt að sannfæra
umheiminn með þessum yfir-
lýsingum um hervæðingu
Bandarikjamanna i Kóreu, þá
er ekki óhugsandi, að N-
Kóreustjórn hafi tekizt að
sannfæra sina heimamenn
um, að Ford forseti væri að
urrdirbúa hernaðaraðgerðir.
Víst er, að ekki ófáir framá-
menn i Washington hafa um
nokkurt skeið litið stjórn N-
Kóreu illu auga Þeir hafa
margir haldið þvi fram, að
varúðarráðstafanir séu nauð-
synlegar til að koma i veg
fyrir að N-Kóreumenn hefji
aðgerðir meðan á kosninga-
baráttunni stendur i
Bandarikjunum Þvi er
fleygt, að um slikar ráð-
stafanir hafi þegar verið að
ræða
Kóreustjórn hlyti að lita á
slikar ráðstafanir sem stað-
festingu á ótta sinum At-
burðirnir i Mayaguez vöktu
mikla athygli þeirra á sinum
tima og mótmæli yfirvalda i
Kóreu voru miklu harðorðaðri
en annarra kommúnistarikja,
því Mayagues var eins og
forskrift að hugsanlegri árás
Bandarikjanna á N-Kóreu
Þau áhrif, sem Mayaguez
hafði á stjórnmálalegar vin-
sældir Fords forseta fóru ekki
fram hjá stjórnarherrunum i
Pyongyang N-Kóreustjórn
getur þvi vel hafa komizt að
þeirri niðurstöðu, að Ford
ætlaði sér að endurtaka
Mayaguez meðan á
kosningabaráttunni stendur
Og þegar þeir þóttust sjá
merki um undirbúning
hernaðaraðgerða, þá má vel
vera að þeim hafi virtzt sem
annað Mayaguez væri yfir-
vofandi og þvi gefið út yfir-
lýsinguna 5 ágúst
Það eru margir — jafnvel
ve.stan tjalds, — sem tor-
tryggja þá Ford og Kissinger
og gruna þá um að vilja
koma af stað nýju Mayaguez-
ævintýri til að styrkja stöðu
Fords i kosningunum Og for-
ráðamenn Norður-Kóreu eru
tortryggnari i garð Bandarikj-
anna en nokkurt annað
kommúnistariki
Victor'Zorza (The Guardian,
þýð.)