Morgunblaðið - 29.08.1976, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. AGUST 1976
tizkuverzlumn
r\ /
ÚTSALA
20—70%
afsláttur
Laugavegi 54. Sími 18046.
Merkisafmæli:
Guðrún og Oskar Bjartmarz
Fátt er í rauninni fegurri gjöf á
lífsleiðinni en traustir og góðir
samferðamenn, sannir vinir. En
þar taka fáir fram þeim hjónun-
um Guðrúnu og Óskari Bjartmarz,
sem lengi hafa búið við Berg-
staðastræti hér í borg, en eru nú
flutt í eitt af nýju hverfunum,
Gautland 19 í Fossvogi.
Þau eiga einmitt bæði merkisaf-
mæli á þessu sumri. Hann er
fæddur 15. ágúst og var þá 85 ára.
Hún er fædd 4. sept. og er þá 75
ára. Þau eru bæði úr Dalasýsl-
urini en hafa þó lengst átt heimili
sitt hér í Reykjavík, kannski allt-
af. Og hér er þeirra lífsstarf unn-
ið, með sérstökum sóma og dáð-
um, svo varla mun finnast gróm
Einu sinni var reynt að telja
upp þá mannkosti, sem Breiðfirð-
ingafélagið hlyti að meta mest hjá
sínum félögum og heiðursfélög-
um. En þeir voru þessar; Trú-
mennska, þolgæði, lipurð, fórnar-
lund, drengskapur, gestrisni,
mælska söngást, forsjá og höfð-
ingsskapur.
Vel munu Bjartmarz hjónin
standa sig á því prófi, þótt hvor-
ugt syngi einsöng eða flytji stól-
ræður. En hér vil ég þó bæta einu
við. Þótt oft hafi verið ágæt sam-
fylgd þeirra á samkomum í borg-
inni og ekki síður á ferðalögum á
sumardegi um sveitir og óbyggðir
heimahaga eru þau mér ógleym-
anlegust í danssal. Glæsileg, sam-
stillt og ástfangin, svo unga fóikið
allt mætti af læra. Og þannig hef-
ur og verið öll þeirra samleið og
heimilisllf til fyrirmyndar. Engar
kröfur á annarra hendur, en Is-
lenzkar dyggðir ástúðar, nægju-
semi og reglusemi, ræktuð skraut-
blóm I hverju horni og fylgsni
hugar, hjartna og heimilis. Og
vissulega hafa þessar dyggðir gert
litla húsið þeirra I miðborginni að
Ásgarði fjölskyldunnar og kon-
ungshöll hollustu við allt, sem ís-
lenzkt er og heillir beztu veitir.
Þótt Óskar hafi verið forstjóri
við Skólavörðustíginn, þá hefur
hann samt alltaf verið íslenzkur
bóndi og hestamaður, vaxinn úr
jarðvegi aldanna sem áttu vor-
gleði yfir ull og kambi og um varð
sagt orðum skáldsins:
Knapinn á hestbaki er
kóngur um stund
kórónulaus á hann ríki
og álfur.
Mér þykir satt að segja líklegt,
að hann eigi enn þá bæði fé og
hross. Og Guðrún sýslumanns-
dóttirin frá Sauðafelli hefur sízt
latt hann slíkra tómstundaiðkana
og ávallt átt ómandi strengi og
indæl bros til að samgleðjast hon-
um við búskapinn.
Þannig hafa þau haldið velli
sem íslenzk bændahjón I borginni
og þó ekkert skort á háttvlsi og
kurteisi, sem I höllum og sölum
stórmenna þykir vel fara. íslenzk
mennt var af aðli borin, og vel sé
þeim, sem varðveitir þann sjóð til
vaxta I sannri dyggð.
Annars eru þau mér kunnust
fyrir starf sitt I Breiðfirðingafé-
laginu. En þar hefur hann og
raunar þau bæði (þvf fátt mun
verða sundurgreint i áhugamál-
um þeirra) verið I fararbroddi frá
upphafi og fram á þennan dag á
ýmsan hátt og eru þar heiðursfé-
lagar.
Hann er einn af fyrstu riturum
félagsins og þar tók Björn sonur
þeirra við um mörg ár þótt hann
yrði sióar formaður.
En lengst og bezt hefur Óskar
starfað sem skrifstofustjóri eða
framkvæmdastjóri Breiðfirðinga-
heimilisins og þannig orðið aðal-
húsbóndinn I Breiðfirðingabúð
frá upphafi og til þessa dags,
lyklavörður hússins fyrir okkur
minni spámennina.
Hann átti víst á sínum tíma ekki
slzt heiðurinn af þvl að Breiðfirð-
ingabúð varð til sem félagsheimili
né bláþráður á hamingjuþræði og
heiðursvoð. Samt hafa þau alltaf
fyrst og fremst verið Dalabörnin,
vormenn frá upprisumorgni alda-
mótanna sfðustu hér á íslandi.
Heimalandsmót og átthagaást
þeirra mun vissulega hafa litað
flest eða allt, sem þau hafa snert
og hugsað. Og þar er það Breið-
firðingafélagið, sem verið hefur
sá vettvangur sem bezt varðveitti
tengslin opinberlega og gaf rúm
til umsvifa og athafna.
í því félagi hafa þau starfað frá
upphafi þess á svo traustan og
fórnfúsan hátt, að um engan
skugga yrði rætt. Það var I þessu
félagi sem fundum okkar bar
saman og kynni hófust, sem ávallt
hefur veitt ánægju og yndisauka
og sveipar nú þessi heiðurshjón,
sem alltaf verða ung, þótt árunum
fjölgi, ljóma kvölds eftir langan
dag.
eúsJ?im
Fnnahófð1 v\ r-
li____i
Smiðshöfði
Hamarshötði
Dvergshöf ði
Vagnhöf ði
Tangarhöf ði
Blldshöf ði
Vesturlandsvegurl
Esso I
Árbæja rhverfi
Við erum fíutt ínýtthúsnædi að
FUNAHÖFÐA 19
Verið velkomin á nýja staðinn og kynnið yður
STAR-innréttingarnar vinsælu ásamt
SCADANIA inni- og útihurðum. Lágt verð - sænsk gæði.
STAR-SKÁPA í ALLT HÚSIÐ eru okkar einkunnarorð.
BÚSTOFN h/f, Funahöfói 19, Reykþvik símar 81663 - 81077
ÁTT ÞÚ
HEFILBEKK?
GUNNAR ÁSGEIRSSON HF.
BYGGINGAVÖRUVERZL KÓPAVOGS
Kynningarverð
kr. 19.980.—
'”c?'
Framhald á bls. 29