Morgunblaðið - 29.08.1976, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. ÁGUST 1976
31
Og á meðan maður hefur áhuga,
þá gengur þetta. Þegar áhuginn
minnkar, þá fækkar ráðning-
unum hjá hijómsveitunum og þá
er sjálfhætt.
— Er starf umboðsmannsins
óheiðarlegt?
Ef einn maður væri með
margar hljómsveitir þá gæti orðið
ruglingur í þessu, en ef hann er
eingöngu með eina hljómsveit, þá
getur hún fylgzt með því hvað
hann er að gera. Sumir hljóm-
listarmenn halda alltaf að um-
boðsmaðurinn græði, en ekki þeir
sjálfir.
— Er umboðsmaðurinn snikju-
dýr?
Hann sér hljómlistarmönnun-
um fyrir starfi og kemur þeim á
framfæri, þeir þurfa bara :ð
spila. Þeir leita til hans með alls
konar vandamál sem þarf að
leysa. Hann sér um auglýsingar
og fleira og bókar þá langt fram í
timann. Ef ég væri með einka-
skrifstofu þá kæmi sima-
reikningur upp á 30—40 þúsund
krónur sem þeir yrðu að borga
með mér, en ég legg þetta með
mér i útgerðina á móti þeirra
framlagi, spilamennskunni. Um-
boðsmaður á tslandi gerir alla
mögulega hluti og hann vinnur
alveg fyrir sínu kaupi.
laugardegi, þá hefst vinnan á
þriðjudegi. Það þarf að skrifa
veggspjöld, semja um sætaferðir,
tala við menn hér og þar á réttum
stöðum um hvort þeir ætli ekki að
skreppa á ballið. Ég sé um auglýs-
ingar og líka um hitt, að kynna
hljómsveitina almennt, útvega
viðtöl og fleira. Strákarnir eiga að
lifa, æfa og spila og ég á að sjá um
hitt. Ég er búinn að vera hljó-
færaleikari og það er smá hug-
sjónakennd í því sem ég er að
gera.
— Hver eru laun þín fyrir
umboðsstarfið?
Ég tek 10% af nettóhagnaði og
ef hljómsveitin fær ekkert þá fæ
ég ekkert. Á meðan við erum að
borga skuldirnar, eina og hálfa
milljón, þá fær hljómsveitin ekk-
ert kaup í eigin vasa og ég ekki
heldur. Nú er hljómsveitin búin
að vera lifandi í hálfan mánuð
(byrjaði um verzlunarmannahelg-
ina áð spila opinberlega) og ég er
hreykinn af að geta sagt, að við
erum búnir að borga 800 þúsund,
af skuldunum. Við tökum yfirleitt
hús á leigu og höldum dansleikina
sjálfir. Það er eina tryggingin fyr-
ir að við getum staðið við okkar
skuldbindingar. Annars eru laun-
in mjög lág. Það eru sömu tölur i
þessu og þegar ég var að byrja i
Haukum fyrir löngu. Gjöld hús-
anna hafa hækkað það mikið, að
hlutur hljómlistarmannanna hef-
ur ekkert hækkað.
— Er mikil samkeppni milli
umboðsmanna hér?
Þetta er erfitt starf vegna þess
að umboðsmenn hafa ekkert sam-
starf sin á milli. Það er bara hægt
að vinna með tveimur: Baldvin
Jónssyni og Axel Einarssyni. Ég
get hringt í þessa menn og fengið
verkefnaskrána hjá þeim og þeir
hjá mér. Umboðsmenn eiga að
starfa mjög þétt saman til þess að
fá sem bezta nýtingu út úr mark-
aðnum sem við höfum. Þetta er
aðeins 35 þúsund manna markað-
ur sem við vinnum við og hann
ber 4—5 topphljómsveitir, en við
erum með 11 hljómsveitir. Þess
vegna eiga þessir strákar í hljóm-
sveitunum ekkert fé. Það er of
mikið af áföllum. — Jón Hildi-
berg og Ámundi vinna öðru visi,
þeir hugsa bara um að ota sínum
tota og hugsa ekkert um aðra.
Hinir tveir vita að það er til fólk i
kringum þá. — Mér finnst
Ámundi vera eins og I Austur-
bæjarbíói í gamla daga. Hann var
þar að selja hasarblöð og hann
rekur þennan poppbissness alveg
á sama hátt. Ámundi er með um-
boðsskrifstofu og útvegar allar
hljómsveitir, en er ekki umboðs-
maður fyrir neina hljómsveit
sjálfur. Fólk hringir þangað, þvi
að þar er hægt að fá hljómsveitir.
Auðvitað er líka til ráðningar-
skrifstofa Félags íslenzkra hljóm-
listarmanna, en bara á pappírn-
um. Við höfum fengið eina ráðn-
ingu í gegnum Ámunda og þá tók
hann sín umboðslaun sem f þessu
tilviki voru 20 þúsund krónur. —
En það kemur að því að allar
okkar ráðningar fara í gegnum
FlH. Við viljum að allar hljóm-
sveitir geri það, við viljum að
ráðningarskrifstofan verði sterk.
En ég tel samt nauðsynlegt að
hver hljómsveit hafi sinn fram-
kvæmdastjóra. Hver hljómsveit
er gifurlega mikið fyrirtæki. Ef
hér væru til fyrirtæki eins og til
dæmis í Ameríku, sem eru með
menn til að annast allt það sem
getur komið upp i rekstri einnar
hljómsveitar, þá þyrftu hljóm-
sveitir hér ekki framkvæmda-
stjóra. Hér hefur verið gerð ein
tilraun með slika skrifstofu. Það
var Demant og það fyrir
\ tæki var hugsað ákaf
lega vel, en ekki
byggt á traustum
grunni. En það var
með 65—70% af
markaðnum
á meðan það var
og hét og átta
hljómsveitir og sá
um öll þeirra mál.
Þetta er
draumurinn, en það
þurfa að vera góðir
Helgi Steingrfmsson hef-
ur verið starfandi I poppheimin-
um í nær 16 ár og þekkir hann því
betur flestum þeim mönnum, sem
nú eru i sviðsljósinu. Helgi hóf
feril sinn sem hljómlistarmaður í
Brúartríóinu árið 1960, lék með
bróður sínum og Gunnari Kvaran
i 40 manna bragga á Hrútafirði og
laun tríósins voru þrjú þúsund
krónur fyrir fyrsta kvöldið. Síðan
stofnaði Helgi Hauka 1962, og var
driffjöðurin í þeirri hljósveit allt
til ársins 1974, að undanskildum
stuttum tíma er hann lék með
Örnum, en á meðan tóku Haukar
sér hlé á fluginu. Eftir að Helgi
hætti hljófæraleik fyrir tveimur
árum hefur hann starfað að
umboðsmennsku og átti aðild að
umboðsfyrirtækinu Demant hf.,
sem nú er farið á hausinn. Nú er
hann umboðsmaður hljómsveitar-
innar Celcius.
— Hvers vegns gerðistu um-
boðsmaður?
Ég hef alltaf verið forsvarsmað-
ur fyrir þeim hljómsveitum sem
ég lék með, nema síðustu tvö árin
í Haukum. Ég vildi alltaf ná sem
beztum kjörum fyrir hljómsveit-
ina og sem beztum samskiptum
við aðra og treysti sjálfum mér
bezt í þessa hluti.
— En hvers vegna hélztu áfram
umboðsmennsku eftir að þú hætt-
ir að spila?
Ég hef gaman að þessu að sumu
leyti. Maður er bara ungur einu
sinni og ég held að þegar ég hætti
að vera hrifinn af þessum bransa
þá sé ég orðinn gamall.
— 1 hverju er starfið fólgið?
Þessi bransi er æðislega mis-
skilinn hér. Það er bara litið á
umboðsmenn sem sníkjudýr. 1
minu starfi eru aðeins 10—15%
vinnunnar að ráða hljómsveitina.
Aðalatriðið er að skapa þessum
strákum aðstöðu til að þeir geti
virkilega náð árangri. — Svo er
vinna við bókhald. Ég sé um bók-
anir og ber ávísanir á milli og
reyni að standa í skilum okkar
vegna. Þetta eru 40—50% af tím-
anum. En í rauninni er umboðs-
starfið 24 tímar á sólarhring. Það
þarf að skipuleggja ótrúlegustu
hluti. T.d. ef dansleikur er á
^ RÉTT áður en Slag-
brandur fór (prentun
barst honum til eyrna
að von væri á Stuð-
mannaplötunni um og
eftir helgina. Ekki
gafst Brandi tækifæri
til að kynna sér efnis-
innihald eða aðrar
upplýsingar um plöt-
una enda verður vænt-
anlega f jallað nánar
um hana nú á næst-
unni. Stuðmenn eru
eitt af merkilegri fyr-
irbrigðum (sl. popp-
menningar og ef að
Ifkum lætur er platan
sú arna forvitnileg
fyrir margra hluta
sakir, — ekki sfður en
hin fyrri.
Stuomanna
platan
ao koma
Lónlf Blú Bojs taka á móti gullplötunum.
Laddi, Halli og GFsli Rúnar sem verða með F förinni áttu
Hótel Sögu.
Ljósmynd F'rióþjófur
.stjörnuleik" á skemmtuninni á
• ÞAÐ er ekki amalegt
veganestið, sem þeir félagar f
Lónlf Blú Bojs taka með sér f
sína fyrstu dansleikjaferð um
landið: Tvær gullplötur sem
þeir hafa hlotið fyrir metsölu á
breiðskffunum tveimur “Stuð,
stuð, stuð“ og „Hinn gullni
meðalvegur“. GuIIplöturnar
voru afhentar á stórgóðri
skemmtun á Hótel Sögu nú ný-
verið þar sem Halli, Laddi og
Gfsli Rúnar fóru á kostum og
sönnuðu að fslenskir háðfuglar
geta verið á heimsmælikvarða.
Ekki má heldur gleyma
Baldurs þætti Brjánssonar sem
lék hinar ótrúlegustu listir af
mikilli fagmennsku. En svo
vikið sé aftur að ferð Lónlf BIú
Bojs verður ekki annað sagt en
undirbúningur sé allur eins og
best verður á kosið. Á fundi
með fréttamönnum sem hald-
inn var f tilefni fararinnar
afhentu liðsmenn hljóm-
sveitarinnar ávarp til þjóðar-
innar og segir þar m.a.:
„Þar kom að því, — eitt best
varðveitta leynivopnið. á ísl.
poppmarkaðinum, Ðe Lónlí Blú
Bojs, hefur verið afhjúpað.
Þeir Njáll, Páll, Valdimar og
Sörli eru engir aðrir en Gunnar
Þórðar, Rúni Júl., Berti Jensen
og Bjöggi Halldórs." — 1
Með goll-
plötor í veganesti
ávarpinu er þess sérstaklega
getið að Þórir Baldursson mun
gera sér sérstaka ferð heim frá
Þýskalandi til að leika með
strákunum í túrnum svo og
trommuleikarinn Terry Doe
sem leikið hefur á öllum plöt-
um hljómsveitarinnar. í tilefni
af ferðinni hafa verið fram-
leiddir minjagripir s.s. merki,
bolir og auglýsingaspjöld og
hundraðasti hver gestur fær
frítt eintak af Lónli Blú Bojs
hljómplötu. Karnabær hefur
tekið að sér að hressa upp á
útlit drengjanna og Halli,
Laddi og Gísli Rúnar munu
halda gestum við efnið i hléum.
Valið lið vina og vandamanna
verður með i förinni s.s. Gústi
rótari, Tommi „Stuðmaður",
sem sér um tækniþjónustu og
dugir ekki minna en 36 manna
langferðabifreið undir mann-
skap og tækjakost.
Fyrsti dansleikurinn verður í
Sjálfstæðishúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 2. september, þá
verður farið á Húsavík og á
laugardagskvöldið verður
þrumað í Miðgarði i Skagafirði.
Búðardalur verður sóttur heim
sunnudaginn 5. september og
þriðjudaginn 7. verður yngri
kynslóðinni i Tónabæ gefinn
kostur á að heyra og sjá Lónlí
Blú Bojs. Þá munu þeir félagar
skemmta í Sigtúni fimmtudags-
kvöld 9. september, í Stapa á
föstudagskvöldið og Aratungu
á laugardagskvöld. Sunnudags-
kvöldið 12. september er óráðið
en líklega verður þá slegið upp
dansleik i Reykjavik. Á dans-
leikjunum mun hljómsveitin
leika eigin lög eingöngu og
verða þá m.a. kynnt lög af
væntanlegri 12 laga hljómplötu
sem koma mun út I byrjun
október, en hún ber nafn
ferðarinnar: „Lónli Blú Bojs á
ferð“.