Morgunblaðið - 29.08.1976, Side 48
AUGLÝSINGASÍMINN EH:
22480
AUGLÝSCSGASÍMINN ER:
22480
Krafla:
Mann-
virki
og vélar
tryggðar
ÖLL mannvirki, vélar og búnaður
á vegum Kröflunefndar hafa frá
upphafi verið tryggð gegn ýmiss
konar tjóni, svo sem af völdum
jarðskjálfta og mistaka við upp-
setningu, að því er Jón Sólness,
formaður Kröflunefndar, tjáði
Morgunblaðinu. Hann sagði, að
rfkisvaldið væri sfðan með
náttúruhamfaratryggingu þar
sem væri viðlagatryggingi og hún
bætti m.a. tjón af völdum eldgosa.
Morgunblaðið sneri sér til Jóns
Sólness í gær og spurðist fyrir um
hvort nokkrar ráðstafanir hefðu
verið gerðar á vegum Kröflu-
nefndar til að flytja á brott véla-
samstæðurnar á Kröflusvæðinu
með tilliti til vaxandi goshættu.
Jón svaraði þvi þá til að á vegum
Kröflunefndar hefði fljótlega ver-
ið gengið frá þvi að tryggja öll
mannvirki, vélar og tæki á staðn-
um. Hefði tryggingin verið tekin
hjá Brunabótafélagi Islands og
það síðan endurtryggt hjá erlend-
um aðiljum, svo sem venja væri.
Jón kvað þessa tryggingu m.a.
ná til tjóns og skemmda af völd-
um vatns, storms, jarðskjálfta og
mistaka við uppsetningu, en síðan
væri þess að gæta að á vegum
ríkisins væri sérstök náttúruham-
faratrygging þar sem væri við-
Tagatryggingin, og hún bætti m.a.
tjón af völdum eldgosa.
Jón sagði að þannig mætti ljóst
vera að Kröfiunefnd hefði gengið
þannig frá hnútum að bætur
fengjust ef tjón yrði á verðmæt-
um á Kröflusvæðinu og þar af
leiðandi gæti það naumast talizt í
verkahring nefndarinnar að
flytja verðmæti á brott með tilliti
Framhald á bls. 46
I sól og sumaryl.
SUNNUDAGUR 29. ÁGUST 1976
Morðmálið:
Síldin:
Viðræður
við Sovét-
Lögreglumenn virða fyrir sér
karlmannsjakkann og frakkann,
sem fundust við leit í runna á
Miklatúni á föstudaginn og talið
er að geti tengzt málinu.
menní
september
Ljósm. Mbl. RAX
MBL. sneri sér f gær til Gunnars
Flóvenz framkvæmdastjóra
Sfdarútvegsnefndar og innti hann
eftir horfum á sölu saltaðrar
Athygli lögreglu beind-
ist að dnum manni í gær
% R ANNSÓKNARLÖGREGLAN hefur yfirheyrt ýmsa menn í tengslum við morðið
á Lovísu Kristjánsdóttur f húsinu að Miklubraut 26, en í gær dag beindist athygli
lögreglumanna þó aðallega að ákveðnum manni. Um það leyti sem Morgunblaðið fór
í prentun í gær var verið að yfirheyra hann frekar og kanna til hlítar ferðir hans á
fimmtudag um það leyti sem ódæðisverkið var framið.
Allt lið rannsóknarlög-
reglunnar hefur meira og
minna unnið að rannsókn
þessa máls og notið liðsinn-
is v-þýzku sérfræðinganna,
eins og áður hefur komið
fram. Var unnið langt fram
á nótt aðfararnótt laugar-
dagsins en síðan tekið til
við að nýju í morgun. Hef-
ur lögreglan yfirheyrt
ýmsa meijn í tengslum við
þetta mál, en eins og áður
segir beindLst athyglin I
gær einkum að einum
ákveðnum manni en rann-
Framhald á bls. 46
Meginlandsástand að
skapast í Neskaupstað
EINDÆMA góóviðri og þurrkatíð
hefur verið f Neskaupstað sfðustu
daga. Segja heimamenn, að helzt
megi Ifkja veðráttunni við þá sem
ríkti við Miðjarðarhafið og
fbúarnir ganga léttklæddir og á
stuttbuxum um götur bæjarins. Á
hádegi f gær mældist 21 stigs hiti
f forsælu f Neskaupstað.
Góðviðrið og þurrkarnir hafa þó
sínar dökku hliðar, að þvf er Þór-
leifur Ólafsson, fréttamaður Mbl.
í Neskaupstað, sagi f gær, því að
þar er að sumu leyti að verða
hliðstætt ástand og víða á þurrka-
svæðunum f Evrópu, enda þótt í
minna m'æli sé.
Til dæmis er nú farið að bera
töluvert á vatnsskorti í bænum
um þessar mundir. í sumum hús-
um er aðeins að fá vatn úr krön-
um yfir bfánóttina en strax og
kemur fram á fótaferðartfma í
bænum hverfur vatnið.
Vatnið sem bæjarbúar nota er
aðallega uppsprettuvatn og úr
Framhald á bls. 46
sfldar til Sovétrfkjanna f ár.
Gunnar sagði að samkomulag
hefði nú tekizt um að formlegar
samningaviðræður hæfust í
Moskvu mánudaginn 13. septem-
ber nk. og hefðu Sovétmenn fall-
izt á að ræða um kaup á 60 þúsund
tunnum. Síldarútvegsnefnd hefði
óskað eftir þvf að viðræðurnar
hæfust mun fyrr, en af óviðráðan-
legum ástæðum hefði það ekki
reynzt unnt. Sovétmenn, sem á sl.
ári keyptu héðan eingöngu
heilsaltaða sífd, hafa tjáð sig
reiðubúna til að ræða nú jafn-
framt um kaup á takmörkuðu
magni af kryddsíld, en þeir
keyptu lftils háttar af síðar-
nefndu tegundunum fyrir nokkr-
um árum.
Leiguflugið milli íslands og Fiji:
Sparar um 3—400 dollara á
leiðinni Ástralía-Evrópa
„ÉG TEL að á flugleiðinni frá
Ástralfu til Evrópu megi spara
ferðamönnum 3—400 Banda-
rfkjadollara á hvorri leið með
þvf að fara f gegnum Fiji og
Island“, sagði brezki athafna-
maðurinn Michael Bartlett,
sem hyggst hefja leiguflug
milli tslands og Fiji á vegum
flugfélags sfns, Air Hibiscus,
en Mbl. náði sambandi við
Bartlett f fyrrakvöld f Sydney f
Ástralfu.
Bartlett sagði að hugmyndin
væri sú að farþegar frá
Ástralíu og Nýja-Sjálandi færu
þaðan fljúgandi eða með skip-
um til Fiji og dveldust þar í
einn til tvo daga, en siðan fljúg-
andi með Air Hibiscus til ís-
lands með viðkomu á Hawaii-
eyjum og í Kanada. Síðan yrði
höfð víðdvöl á íslandi í einn til
tvo daga áður en haldið yrði
áfram til Evrópu með Flugleið-
um. Bartlett sagðist hafa verið
með flug þetta í undirbúningi f
8. ár og til undirbúningsins
hefði verið varið um 4,5
milljónum dala. Hann sagðist
reikna með að hefja flugið í
kringum 10. október og þegar
komið yrði fram í desember eða
janúar sagðist hann vonast til
að geta flutt 5—600 farþega
hvora leið á viku. Bartlett sagði
að markaðurinn á leiðinni
Ástralía-Evrópa væri geysistór
og þvf góð von um að vel tækist
til með þetta flug.
Mbl. spurði Bartlett hvort til
greina kæmi :ð skipuleggja
ferðir fyrir Islendinga til Fiji-
eyja. Hann sagðist hafa leitt
hugann örlítið að þeim mögu-
leika og kvaðst telja að mögu-
legt, væri að bjóða upp á 12
daga ferðir þangað fyrir 700
dollara (um 130 þúsund ísl.
krónur) að meðtalinni hótel-
dvöl og ferðum til annarra ná-
Framhald á bls. 46