Morgunblaðið - 08.09.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1976
13
urstræti, slfk er ösin. Mörg
þeirra heilsa upp á okkur með
því að þeyta skipslúðrana. Já,
það er rólegt og heilsusamlegt
að vera á stað sem þessum. Það
væri synd að segja annað,“
sagði Björn Kári við okkur.
Magdalena var alveg á sama
máli og eiginmaðurinn hvað
snertir umhverfið. Hún sagði
okkur að þeir væru margir sem
legðu leið sfna út að vitanum til
að virða fyrir sér fegurðina.
Margir kæmu einnig til að for-
vitnast um lff þeirra og starf, og
væri því mjög gestkvæmt á
staðnum. Hún sagði að þá væri
gott að eiga bita í búri til að
víkja að gestum, og ekki fóru
tíðindamenn Mbl. varhluta af
góðu kaffi húsfreyjunnar og
meðlætinu sem voru rjóma-
pönnukökur og kleinur. Magda-
lena kveið dálítið vetrinum
hvað matföng snertir, þvf búast
mætti við að ófært yrði út að
vitanum nokkuð langan tíma
vetrar og því þyrftu kæli-
geymslur að vera rúmgóðar svo
að hægt væri að kaupa birgðir
til langs tíma.
Vinnudagur þeirra hjóna er
nokkuð fastákveðinn. „Við tök-
um veður á 3 klst. fresti, frá 9 á
morgnana til miðnættis, og sím-
um það til Reykjavíkur. Þá fer
maður daglega f vitann til að
líta eftir málum þar, skipta um
hylki svo og halda glerjum og
Ijósum hreinum. Þá er hér lftill
aukaviti sem farið er f einu
sinni í viku til eftirlits, og svo
lftum við einnig eftir radíó-vita
sem hér er, en hann er afar
þýðingarmikill flugvélum og
skipum og því mikilvægt að vel
sé litið eftir honum. Þetta er
svo sem ekki nein átakavinna,
en afar nauðsynleg þó,“ sagði
Björn Kári.
„Það verður lítill vandi að
finna sér eitthvað til dundurs f
skammdeginu. Ég hef gaman af
þvi að mála og einnig fæst ég
svolítið við bóklestur, en auk
þess má örugglega finna upp á
einhverjum fjandanum. Ætli
Malla prjói ekki eins og kven-
fólk gerir flest. Sumir verða
skáld á svona stöðum, en það
fær framtiðin ein skorið úr um,
hvort við eigum eftir að senda
eitthvert ritverk frá okkur,"
sagði Björn Kári og hló við.
Hvað varðar þjónustu og að-
drætti sögðu hjónin okkur að
póst yrðu þau að sækja í Hafnir
um 16 km leið. Alla matvöru og
þess háttar sækja þau annað-
hvort til Keflavíkur eða
Reykjavíkur, ef þau eiga þá leið
þangað.
Það kann að láta undarlega í
eyrum að f Reykjanesvita skuli
ekki vera nema um handvirkt
sfmasamband að ræða, svo sem
nú tfðkast nær eingöngu f af-
skekktari sveitum, og þetta
samband þeirra er aðeins til
símstöðvarinnar í Höfnum, en
þar er sérstök neyðarbjalla fyr-
ir vitann, eftir lokun símstöðv-
arinnar kl. 6 á daginn. „Jú,
óneitanlega er það nokkuð sér-
stætt að við skulum ekki hafa
hér sjálfvirkt simasamband við
umheiminn, eða þá talstöð, því
staðurinn er eins og kunnugt er
á jarðhitasvæði og enginn veit
hvenær gosið gæti. Sfmasam-
bandið er nokkuð lélegt, þ.e.
illa heyrist í simanum og þetta
allt getur verið afar bagalegt á
hættustund, hvort sem það
væru náttúruhamfarir eða
skipsskaðar sem um væri að
ræða,“ sagði Björn Kári. Hann
sagði okkur að á hverjum degi
væru jarðhræringar. Þær væru
ekki neitt sérlega sterkar, en þó
nægilegar til að vekja fólk upp
á nóttunni.
Björn Kári sagði okkur að
vitaverðir væru að mörgu leyti
nokkuð sérstætt fólk. Hann
taldi það fylgjast betur með þvf
sem væri að gerast en til dæmis
fólk f Reykjavík, því i vitunum
væri rólegt og nógur tími til að
lesa mikið af blöðum og ritum
um hin ýmsu mál, en slfkt er
afar erfitt eða ómögulegt f
kapphlaupinu í borgunum.
Björn Kári hefur undanfarin
11 ár ferðazt um landið og ann-
azt viðgerðir og viðhald á vitum
og því taldi hann sig þekkja vel
til vitavörzlufólks, sem hann
sagði vera ákaflega gott fólk.
„Hvað laun og aðbúnað snert-
ir þá er eftir nokkru að slægjast
f dag,“ tjáði Björn Kári okkur,
„og það er að mjög miklu leyti
honum Jóhanni Péturssyni
vitaverði á Horni að þakka.
Hann hefur átt stóran hlut að
máli í að gera starfið að þvf sem
það er í dag. Hann hefur lengi
slegizt við „þá á mölinni" um
kaup og kjör, en áður en
Jóhann fór að beita sér fyrir
bættum hag vitavörzlufólks var
þetta ekki eftirsóknarvert
starf,“ sagði Björn Kári.
Björn Kári sagði að allt væri
óráðið með framtíðina, en þó
ætlaói hann sér aó vera lengur
en árið ef möguleiki væri á.
Hann taldi það ákaflega þrosk-
andi að vera á svona stað og þvf
væri það draumurinn að ílengj-
ast. „Róin og kyrrðin gera fólk-
ið betra, og þvi viljum við
gjarnan vera hér. Fyrrum
vinnufélagar mínir töldu mig
mundu verða hræddan hér,
vegna reimleika og þess háttar,
og sögðu að ég entist hér ekki
nema f 2—3 mánuði. Ég er
hræddur um að þeir verði ekki
sérlega sannspáir," sagði Björn
Kári Björnsson að lokum.
—ágás.
Þegar gott er skyggni sést Reykjanesviti mjög langt að. Vitinn gnæfir hátt
yfir umhverfi sitt, enda efst á hól, sem sennilega hefur eitt sinn verið
eldfjall. Þessi mynd er kannski eitthvað óskýr, en hún er tekin mjög langt
að og hefur Ijósbrot í andrúmsloftinu dregið úr gæðum hennar, þótt bjart
hafi verið þennan dag.
ÍSLENSK FÖT/76
LAUGARDALSHÖLL 8.-12. SEPT.
30 framleiðendur sýna úrval islenskrar fataframleiðslu
i aðalsal Laugardalshallarinnar.
Stærstu og glæsilegustu tískusýningar hérlendis eru
á sýningarpöllum í aðalsalnum, þar sem jafnframt er
veitingasala.
Allt besta sýningarfólk landsins (Karon og Modelsamtökin)
sýnir það nýjasta í íslenskri fatagerð, við tónlist og
Ijósskreytingu.
Tískusýningar verða: Miðvikudag, fimmtudag og föstudag
kl. 17.30 og 21.00.
Laugardag og sunnudag kl. 15.30, 17.30 og 21.00.
í veitingasal fást Ijúffengir smáréttir, og auðvitað kaffi
og kökur og öl, þar geta gestir því fengið sér hressingu
um leið og þeir horfa á tískusýningarnar.
í anddyri eru hárskerar og hárgreiðslufólk með
hárgreiðslusýningu, þar verður starfrækt hárgreiðslu-
og rakarastofa þar sem gestir geta séð nýjustu klipþingar,
og jafnvel fengið sig klippta. í anddyrinu verða einnig
kjólameistarar og klæðskerar með sýningardeildir.
í ókeypis gestahappdrætti verður dreginn út vinningur
daglega; úttekt á íslenskum fatnaði fyrir 25.000 krónur,
og í sýningarlok verður dreginn út aðalvinningurinn,
föt á alla fjölskylduna fyrir krónur 200.000.
Opið kl. 3-10 daglega, svæðinu lokað kl. 11.
og kl. 2-10 laugardag og sunnudag.
Verð aðgöngumiða: Fullorðnir kr. 400
Börn kr. 100
Opnum í dag kl.4
Veriö velkomin - strax í dag.