Morgunblaðið - 08.09.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1976
15
Líbanon:
Sífelldar árásir
Þráttað
um dýrmæt-
asta dem-
ant heims
Nýju Delhi
7. september — Reuter
SAMACHAR fréttastofan i
Indlandi sagði I dag, að Ind-
verjar væru hinir réttu eigend-
ur Koh-i-noor demantsins, sem
Pakistanar hafa krafizt að fá
afhentan af Bretum. Hafði
hún það eftir indverskum gim-
steinasérfræðingi, að gim-
steinninn væri indverkur að
uppruna og Indverjar væru
þvi einir um að geta gert lög-
lega tilkall til hans.
Koh-i-noor, sem er 109 karöt
og álitinn dýrmætasti demant-
ur veraldarinnar, hefur verið i
umsjá Breta siðan 1849 og er
meðal gimsteina krúnunnar,
sem nú eru til sýnis I London.
Ali Bhutto forsætisráðherra
Pakistan hefur skrifað brezka
forsætisráðherranum og óskað
eftir þvi, að steininum verði
skilað.
Indversku sérfræðingarnir,
sem fréttastofan nefndi ekki,
segja að Koh-i-noor hafi fund-
izt i indverskri námu og að
hann hafi verið eign margra
indverskra þjóðhöfðingja. Sfð-
astur þeirra var Dalip Singh,
sem var neyddur til að af-
henda demantinn Brezka Aust-
ur-Indiufélaginu, sem hafði
bækistöðvar i Punjab. Nú er
Punjab innan landamæra
Pakistan.
FLÓÐ Það var engu líkara en að ökumenn, sem leið áttu um Lovere-Sarnico
þjóðveginn á Ítalíu í síðustu viku, ækju fram á Skógafoss. Miklar rigningar ollu
því, að á nokkur flaut yfir bakka sína og streymdi vatnið niður vegginn og á
veginn.
á friðargæzlulið
Beirút 7. september NTB-Reuter.
SPENNA fer vaxandi í Beirút eft-
ir að hermenn hægri manna hafa
fjóra daga í röð haldið uppi skot-
hríð á sameiginlegt friðargæzlulið
Arababandalagsins, að því er yfir-
menn i liðinu sögðu i dag. Virðist
súdanska deildin í gæzluiiðinu
vera sérstakt skotmark hægri
sveitanna, og hefur hún orðið fyr-
ir daglegum árásum frá því á
laugardag. Friðargæzluliðið
stendur vörð um hina svokölluðu
„grænu línu“ á hlutlausa beltinu
sem skilur að austurhluta Beirút,
sem hægri menn ráða yfir, og
vesturhlutann, sem vinstri menn
hafa á sinu valdi. 1 gær var því
haldið fram, að hermenn gæzlu-
liðsins hefðu orðið fyrir sprengju-
vörpuárásum, en yfirmaður þess,
Mohammed Hassan Ghoneim
hershöfðingi sagði nýlega, að ef
skothríðinni á liðsmenn hans
héldi áfram yrðu þeim gefnar
skipanir um að svara í sömu
mynt. Bardagarnir í Líbanon í
dag voru almennt harðari en ver-
ið hefur þar í margar vikur.
29 fórust
Jóhannesarborg
7. september — Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 29 menn fór-
ust og 70 slösuðust þegar tvær
járnbrautalestir rákust saman við
Benoni, sem er 24 kílómetrum
fyrir utan Jóhannesarborg. Tals-
maður suður-Afrísku járnbraut-
anna sagði, að í annarri lestinni,
sem var hraðlestin frá Jóhnnesar-
borg til Maputo, höfuðborgar
Mósambique, hafi verið
mósambískir námuverkamenn á
leið heim. Ók hin lestin aftan á
hraðlestina, þar sem hún var
kyrrstæð. Óstaðfestar fréttir
segja, að 35 menn hafi farizt.
Slökkviliðsmenn urðu að nota log-
suðutæki til að losa særða og
látna úr lestarflökunum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla í
Svíþióð um kjarnorku?
Stokkhólmi
7. september — NTB
ÞAÐ getur farið svo að
þjóðaratkvæðagreiðsla
verði um fjölgun kjarn-
orkuvera í Svíþjóð. Æ
fleiri sænskir stjórnmála-
menn hafa lýst sig
fylgjandi því að kjósendur
fái sjálfir að skera úr um
málið.
Gösta Bohman, leiðtogi
Hægfara einingarflokks-
ins, sagði í sjónvarpsviðtali
á mánudagskvöld, að hann
gæti hugsað sér að haldin
yrði þjóðaratkvæða-
greiðsla um kjarnorku-
verin ef þingið getur ekki
komið sér saman um málið.
Leiðtogi Miðflokksins
Thorbjörn Falldin, hafði
áður sagt að hann væri
fylgjandi þjóðaratkvæða-
greiðslu, þar sem það hefði
sýnt sig að vera ógerlegt að
komast að samkomulagi
um málið á þinginu. Mið-
flokkurinn berst af hörku
gegn frekari byggingu
kjarnorkuvera og vill láta
hætta rekstri þeirra, sem
fyrir eru.
Leiðtogar annarra
stjórnmálaflokka, þeir Olof
Palme forsætisráðherra,
Per Ahlmark, formaður
Þjóðarflokksins, og Lars
Werner, leiðtogi það vel koma til álita að
kommúnista, hafa einnig þjóðaratkvæðagreiðsla
lýst því yfir, að þeir telji verði haldin um þetta mál.
Novosti dregur
saman seglin
Moskvu 7. september
— Reuter.
SJÓNVARPSDEILD hinnar hálf-
opinberu sovézku fréttastofu,
Novosti (APN), sem gerir frétta
og fræóslumyndir til sýningar er-
lendis, verður lokað í næstu viku
að sögn talsmanns fréttastofunn-
Indversk stjórnvöld
leita að földum fjársjóði
MIKIL leit er nú gerð I Ind-
landi að fjársjóði löngu liðins
maharjah (indversks prins),
sem gæti verið meir en 500
milljarða króna virði, og er við
leitina stuðzt við undarlega frá-
sögn fátæks sfgauna. Embættis-
menn stjórnarinnar eru við
uppgröft I konunglega virkinu
við Amber, 25 kflómetrum suð-
vestur af höfuðborginni, þar
sem álitið er, að mikið af gulli
og gersemum hafi verið falið f
leyniherbergi fyrlr 250 árum.
Það eykur vonir manna um
árangursrfka leit, að fyrir
skömmu fundust neðanjarðar-
göng i virkinu, sem ekki var
vitað um áður.
Leiðin að fjársjóðnum hófst
eftir að dularfullur og óþekkt-
ur maður, sem álitið er að sé
sigauni, afhenti starfsmönnum
skattyfirvalda skjal, sem átti að
sýna, hvar hinn frægi herprins,
Maharajah Jai Singh af Jaipur,
hafði komið fyrir hluta hins
mikla ríkidæmis síns.
Maðurinn sagði'- að forfeður
hans hefðu verið trúnaðarmenn
maharajahns, en skattyfirvöld
voru vantrúuð. Samt sem áður
sendu þeir skjalið til sérfræð-
ings, sem staðfesti að það væri
200 til 250 ára gamalt. Annar
sérfræðingur sagði blekið einn-
ig vera um það bil tveggja alda
gamalt.
Því næst var leitað með
málmleitartæki og gaf það upp-
örvandi niðurstöðu, og í lok
júnf fyrirskipaði bankamála-
ráðherrann, Pranab Mukher-
jee, að leit skyldi hefjast. Skjal-
ið segir, að fjársjóðurinn sé
13.3 milljarða rúpia virði, sem
mun nú vera um 26 milljarðar
rúpía (500 milljarðar islenzkra
króna).
Meir en 120 verkamenn og
embættismenn frá fjórum ráðu-
neytum taka þátt i leitinni, og
styrktist von þeirra, þegar þeir
fundu neðanjarðargöngin. Þau
fundust undir stað, sem grafið
var á vegna þess að málmleitar-
tækin gáfu til kynna, að þar
undir væri málma að finna.
Virkið stendur á hæð yfir höll,
Framhuld á bls. 25
ar. Starfsliði fréttastofunnar
verður koniið i vinnu hjá útvarps
og sjónvarpsnefnd ríkisins. Tals-
maðurinn sagði ástæðuna fyrir
þessu vera hagræðingu en vest-
rænn sjónvarpsfréttamaður hefur
það eftir einum ritstjóra Novosti,
að stofnunin hafi ekki skilað
neinum hagnaði því sé hún lögð
niður. Novosti útvegar erlendum
sjónvarpsfréttamönnum mynda-
tökumenn og selur eigin myndir
til útlanda. Stofnunin tekur einn-
ig að sér verkefni fyrir erlend
fyrirtæki.
Múhameðskir
lestrarhestar
í Kórankeppni
Kuala Lumpur 6. sept. — AP.
ÁTJÁN lönd hafa tilkynnt þátt-
töku í alþjóðlegri keppni i Kóran-
lestri i Kuala Lumpur, höfuðborg
Malaysiu í næstu viku, að því er
Syed Nasir Ismail, formaður mið-
stjórnar Kóranlestrarkeppninnar
upplýsti i dag. Sum lönd senda þó
aðeins þátttakendur til keppni í
karlaflokki, þrátt fyrir þa'ð að
þeim hafi verið boðin þátttaka í
bæði karla- og kvennaflokki, að
sögn formannsins. Nýir þátttak-
endur eru frá Jórdaníu, Alsir,
Bahrain, Líbýu, Öman, Saudi-
Arabíu, Gambiu og Comoroeyj-
um.