Morgunblaðið - 08.09.1976, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1976
| raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Tónlistarskóli
Árnessýslu
tekur til starfa í byrjun október. Getum
enn bætt við nokkrum nemendum.
Sendið umsóknir hið fyrsta í pósthólf
228, Selfossi. Umsóknaeyðublöð fást í
verzl. K.Á. Selfossi og útibúum þess og
einnig í skrifstofu skólans á Selfossi
Viðtalstími skólastjóra þar er á þriðjudög-
um kl 15 —19 (kl. 3 — 7 síðdegis). Sími
1717.
Skólastjóri.
Frá
Barnamúsíkskóla
Reykjavíkur
Innritun nemenda fer fram dagana
9. —11 september (fimmtudag, föstu-
dag og laugardag) í skrifstofu skólans,
Iðnskólahúsinu, 5. hæð, inngangur frá
Vitastíg, sbr. bréf til foreldra eldri nem-
enda
Skólinn getur innritað örfá 6 og 7 ára
börn í Forskóladeildir, sem starfræktar
verða í Iðnskólanum og í Breiðholti (Fella-
helli). Skólastjóri.
Auglýsing
Að gefnu tilefni vill ráðuneytið taka fram
eftirfarandi:
Óheimilt er að fara með skip til viðgerðar
erlendis nema fyrir liggi heimild gjald-
eyrisyfirvalda fyrir yfirfærslu gjaldeyris
vegna viðgerðarkostnaðar eða leyfi fyrir
ráðstöfun gjaldeyristekna til greiðslu slíks
kostnaðar. Umsóknir skulu sendast Gjald-
eyrisdeild bankanna, Laugaveg 77.
I/idskip taráðuneytid
5. september 1976.
Skattar í Hafnarfirði
Garðakaupstað
og Kjósarsýslu.
j Gjaldendur eru hér með enn minntir á
greiðslu þinggjalda 1976.
Lögtck eru hafin.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
og Gardakaupstað.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýs/u.
Fimleikafélagið Björk
Hafnarfirði
Vetrarstarfið er að hefjast. Innritun í
barna- og unglingaflokka miðvikudaginn
8. sept. í íþróttahúsi Lækjarskóla, og í
síma 51385 milli kl. 1 9 og 21. Frúarleik-
i fimi auglýst síðar.
Heimdallur S.U.S.
Fulltrúaráðsfundur
Fulltrúaráð Heimdallar er hvatt saman til fundar n.k. fimmtu-
dag 9. september kl. 8.30. siðdegis i Sjálfstæðishúsinu við
Bolholt 7. Umræðuefni. Stjórnmálsályktun aðalfundar og
félagsstarfið framundan.
Stjórnin.
Austurland
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi
verður haldinn i barnaskólanum á Egilsstöðum, laugardaginn
1 1. september n.k. og hefst kl. 1 1 f.h.
Stjórnin
Austurland
Orkumál
Austurlands
Laugardaginn 1 1. september
n.k. heldur kjördæmisráð Sjálf-
stæðisflokksins fund um orku-
mál Austurlands i barnaskólan-
um á Egilsstöðum og hefst hann
kl. 2 e.h. Frummælendur verða:
Jónas Eliasson prófessor og
Sverrir Hermannsson alþingis-
maður. Á fundinn er boðið öllu
stuðningsfólki Sjálfstæðisflokks-
ins.
Stjórnin
Austurland
Haustmót
Haustmót Sjálfstæðismanna á austurlandi verður haldið í
Valaskjálf Egilsstöðum laugardaginn 11. september n.k. og
hefst með borðhaldt kl. 20. Undirbúningsnefnd.
— Hver fékk
umboðslaunin?
Framhald af bls. 12
ist út sú saga, að ég hefði stolið
eldavélunum og selt þær.
Mér fannst þetta að vonum mik-
ið grin. En einhverju sinni, er ég
var á ferð í Breiðholti, vatt sér að
mér kona og sagði: „Ég er nú bara
hissa, að þú skulir þora að láta sjá
þig hér Guðmundur." Ég varð
auðvitað alveg undrandi og
spurði, hvað hún ætti við. „Ja, við
vitum ýmislegt hér," sagði hún
ákveðin.
Þegar ég gekk á hana með
spurningum svaraði hún: „Hvar
eru eldavélarnar?" Allar minar
tilraunir til skýringa strönduðu.
„Það er fólk hér, sem hefur séð
eldavélarnar," sagði hún.
Ég verð að játa, að þetta var
mér mikil alvörustund. Ég var
þarna staddur sjálfur og gat eng-
an veginn hrakið söguburðinn,
sem tók á sig ótrúlegustu myndir.
Við gerð húsanna á Höfn í
Hornafirði og Neskaupstað gerðu
Norðmennirnir rei.kningsskekkju
við útreikninga á ofnastærð.
Þetta var leiðrétt strax og það
HURÐIR
Skeifapnja
GJÍ9V
GUNNAR ÁSGEIR$§Otyi'/Hl.FjnA.JfUREYRI.
VERZL. BRIMNES, VESTMANNAEYJUM.
uppgötvaðist og að sjálfsögðu á
kostnað Norðmanna.
Samt stormuðu menn upp á
verkfræðistofu til mín og skömm-
uðu mig fyrir að hafa stolið ofn-
um úr húsunum og selt þá. Slðan
töldu þeir er ljóst var, að ég kæm-
ist ekki frá málinu, að ég hefði
látið Viðlagasjóð kaupa ofna, sem
ég hefði umboð fyrir sjálfur.
Þannig mætti lengi telja.
Hvað er að
gerast?
Ég hefi lengst af látið mér þetta
I léttu rúmi liggja. Söguburður
hefur alla tíð viðgengist á Islandi.
Nú er hins vegar svo komið, með
þeirri rógsöldu, sem ríður á þjóð-
inni, að ekki verður hjá komist að
bera hönd fyrir höfuð sér.
Þeir, sem þannig tala og lævís-
lega dylgja um náunga sinn,
verða að bera ábyrgð orða sinna.
Mér er raunar undrunarefni,
hvernig allar þessar sögu verða
til.
Mér er sagt að hópur manna
hafi þá iðju að breiða út slúður-
sögur um pólitíska andstæðinga.
Ég hef ekki viljað trúa því.
Ég hef heyrt svo margar fárán-
legar sögur um sjálfan mig, að ég
trúi engum sögum lengur.
Höfum það, er
sannara reynist
Ég held, að þjóðin hafi öll staðið
saman um að axla þær byrðar,
sem hlutust af gosinu I Vest-
mannaeyjum. Fjöldi manna vann
I því sambandi mikið og fórnfúst
starf. Ég þekki fjölda manna, sem
lögðu dag við nótt og gerðu sitt
besta. Flestir hafa þeir fengið
skömm I hattinn og sumir mega
hafa sig alla við að glata ekki
ærunni vegna tilbúinna sögu-
sagna.
Ég hef ekki trú á því, að Vest-
mannaeyingum sé greiði gerður
með þvl að allir þeir menn, sem
fremstir stóðu I þessum náttúru-
hamförum séu dregnir niður I
skítinn.
Ég trúi því, að flestir Ve§b,
mannaeyingar hafi skömm á
skrifum Arna Johnsen — T'
Sjálfur er ég tilbúinn til opinna
kappræðna um öll þau mál, er að
mér sneru, hvort heldur væri úti I
Vestmannaeyjum eða I Reykja-
vík.
Reykjavík, 6. sept. 1976.
Aths. ritstj.
I GREIN þessari gerir höfundur
ítrekaða tilraun til að eigna Morg-
unblaðinu þær skoðanir sem Árni
Johnsen setur fram I umræddri
grein. Af þvl tilefni er ástæða til
að undirstrika, að Árni Johnsen
skrifar grein þessa undir fullu
nafni og á eigin ábyrgð. Það er
blaðamönnum Morgunblaðsins
frjálst sem öðrum. Sjónarmið
Morgunblaðsins er að finna I rit-
stjórnargreinum blaðsins og þar
hefur ekki verið fjallað um þau
málefni sem Árni Johnsen gerir
að umtalsefni.
Ristj.
' r r
Arsþing U.I.A.
UNGMENNA- og íþróttasamband
Austurlands heldur 33. ársþing
sitt á Vopnafirði dagana 11. og 12
sept. n.k.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verða eftirtalin mál reifuð
og rædd: Skiðamiðstöð á Austur-
landi, Mínjasafn Austurlands og
framtíð þess, gönguleiðir á Aust-
urlandi, niðurstöður ráðstefnu
um æskulýðsmál, sem haldin var
á Hallormsstað I sumar, sumarhá-
tíð Uí A og lagabreytingar.
Tillögur, sem óskast teknar fyr-
ir á þinginu, verða að hafa borizt
stjórn sambandsins eða fundar-
stjóra áður en þing er sett.
t
jA ■***'_
#* "