Morgunblaðið - 08.09.1976, Síða 30
30
MOKGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1976
INGUNN Á 12,0 SEK.
ÍNGUNN Einarsdóttir, tR, setti
nýtt tslandsmet I 100 metra
hlaupi fyrri dag Reykjavlkur-
meistaramótsins I frjálsum
(þróttum, sem fram fór á Laugar-
dalsvellinum I fyrrakvöld. Hljóp
hún á 12.0 sek. og bætti þar með
eigið met um 1/10 úr sek. Er
afrek Ingunnar hið athyglisverð-
asta ekki slzt vegna þess að að-
stæður voru ekki alltof góðar.
Fremur kalt var I veðri og braut-
in of mjúk fyrir spretthlaup.
Hins vegar hjálpaði það nokkuð
að meðvindur var, þó ekki ólög-
lega mikill.
Afrek Ingunnar og 200 metra
hlaup Vilmundar Viðhjálmsson-
ar, KR, voru ljósustu punktar
Reykjavíkurmeistaramótsins i
fyrrakvöld, en Vilmundur hljóp
200 metrana á 21,7 sek. og nálgast
því met Hauks Clausens og Hilm-
ars Þorbjörnssonar í greininni, en
það er 21,3 sek. Gildir hið sama
hjá Vilmundi og Ingunni — að-
stæður voru ekki alltof hagstæð-
ar.
Þátttaka í Reykjavikurmótinu
var furðulega lítil, ekki sizt vegna
þess að þarna er nánast um sið-
asta tækifæri frjálsíþróttafólks-
ins til keppni i sumar að ræða.
Þannig var t.d. aðeins einn kepp-
andi í sumum greinum.
Eftir fyrsta dag mótsins hefur
ÍR tekið algera forystu, en mótið
er jafnframt stigakeppni milli fé-
laga, og eru gefin stig eftir stiga-
töflunni. Hafa ÍR-ingar hlotið
24.584 stig, KR er með 8.383 stig
og Ármenningar með 4.402 stig.
Er greinilega af sem áður var, er
félögin, sérstaklega þó IR og KR,
háðu harða keppni sin á milli um
Reykjavíkurmeitaratitilinn.
Ingunn gerði meira en að setja
met i 100 metra hlaupinu í fyrra-
kvöld, þar sem hún hljóp einnig
ágætt 400 metra hlaup — á 56,6
sek., en í þeirri grein varð Lilja
Guðmundsdóttir, IR, önnur á 59.5
sek.
Af öðrum úrslitum má nefna,
að Guðni Halldórsson, KR, sigraði
í kringlukasti, kastaði 49,44
metra, en Hreinn Halldórsson,
KR, varð annar, kastaði 48,96
metra. Elías Sveinsson, KR, sigr-
aði í hástökki, stökk 1.90 metra,
en ungur Skagfirðingur, Þor-
steinn Þórsson, sem keppti sem
gestur, setti nýtt sveinamet með
þvi að stökkva 1.85 metra. Þeir
Hafsteinn Jóhannesson, UBK og
Guðmundur R. Guðmundsson,
FH, sem einnig kepptu sem gestir
stukku, einnig yfir þá hæð.
Lilja Guðmundsdóttir, ÍR, varð
Reykjavíkurmeistari í 1500 metra
hlaupi á 4:57,2 mín. Lára Sveins-
dóttir, Á, varð Reykjavíkurmeist-
ari í langstökki, stökk 5,33 metra
og sveit ÍR sigraði í 4x100 metra
boðhlaupi kvenna á 50,1 sek.
1 800 metra hiaupi varð Haf-
steinn Öskarsson, IR, meistari,
hljóp á 2:03,9 mín., en sigurvegari
í hlaupinu varð Einar P. Guð-
mundsson, FH, sem hljóp á 2:01,6
mín. Annar gestur sigraði í 5000
metra hlaupinu: Ágúst Þorsteins-
son, UMSB, og hljóp hann á sin-
um bezta tíma, 15:46,2 mín.
Reykjavíkurmeistari varð hins
vegar Hreggviður Jónsson, KR, á
20:32,6 min. og þarf senniiega að
fara langt aftur til að finna svo
lélegan árangur nægja til Reykja-
víkurmeistaratitils.
Mikill áhugi á landsleiknum
— ÞAÐ hefur verið mjög mikil sala í aðgöngumiðunum, sagði hinn
góðkunni vallarvörður Isleifur Þorkelsson. þegar Morgunblaðs-
menn litu við hjá honum í sölutjaldi KSÍ við Utvegsbankann í gær.
— Það hefur selzt meira af miðum en í forsölunni fyrir leikinn við
Belgíumenn, og ég held að það sé mikill áhugi ríkjandi á leiknum.
Landsleikurinn við Hollendinga hefst kl. 18.15 í dag, en forsala
aðgöngumiða verður á Laugardalsvellinum frá kl. 13.00. Er fólki
sem ætlar að sjá leikinn eindregið ráðlagt að notfæra sér forsöluna,
þannig að ekki þurfi að koma til langra biðraða við miðasöluna I þá
mund að leikurinn er að hefjast. Þannig var m.a. þegar leikið var
við Belgíumennina s.l. sunnudag og misstu því margir af fyrstu
mínútum leiksins.
Hollenzku leikmennirnir tóku létta æfingu á Laugardalsvellinum fljótlega eftir komuna I fyrrakvöld og þá tók RAX
þessa mynd af þeim.
Cruyff og Neeskens nógu góðir
en þeir fengu ekki farar eyfi
- sagði Zwartkruis,
framkvæmdastjóri
hollenzka liðsins
— ÞAÐ ER ekki af þvf að
þeir Johan Cruyff og Jo-
han Neeskens séu ekki
nógu góðir, að þeir komu
ekki hingað með okkur,
heldur vegna þess að félag
þeirra á Spáni, FC Barce-
iona, vildi ekki gefa þá eft-
ir, sagði framkvæmda-
stjóri hollenzka landsliðs-
ins, Zwartkruis, í viðtali
við Morgunblaðið í gær.
Zwartkruis er nýr fram-
kvæmdastjóri liðsins og
stjórnar liðinu í fyrsta
sinn í landsleiknum f dag.
Hann hefur hins vegar
mjög mikla reynslu sem
þjálfari, og hefur m.a. haft
með þjálfun allra hol-
lenzku landsliðsmannanna
að gera áður, þar sem hann
var yfirþjálfari hjá hol-
lenzka hernum.
— Þeir Cruyff og Neeskens
léku með Barcelona á laugardag-
inn var og þá skoraði Cruyff tvö
mörk. Þeir eiga einnig leik með
liðinu n.k. laugardag. Þótt þeir
séu ekki með hollenzka landslið-
inu að þessu sinni, er ekkert sem
mælir gegn því, að þeir geti leikið
með því siðar, og vel kann að vera
að þeir verði kallaðir til lands-
leikja fyrir Holland, ef þess er
kostur vegna leikja þeirra með
FC Barcelona.
Zwartkruis sagði að f liði sínu
nú væru sjö leikmenn sem tekið
hefðu þátt í úrslitakeppni síðustu
heimsmeistarakeppni, og hann
hefði mikið álit á liði sínu um
þessar mundir — það ætti að geta
leikið góða knattspyrnu.
— En við gerum okkur grein
fyrir því að leikurinn I kvöld
verður okkur erfiður, sagði
Zwartkruis. íslenzka liðið er
örugglega miklu betra nú en það
var er við lékum síðast við það I
Hollandi. Það sýna t.d. úrslítin í
leiknum við Belglumenn á sunnu-
dagskvöldið. En við stefnum að
sigri í leiknum í dag — það er
okkur aðalatriði, ekki hversu
mörkin verða mörg.
Hollenzka landsliðið æfði á
Laugardalsvellinum í gærmorg-
un, og áformaði að æfa þar aftur
Rob Rensenbrink — af mörgum talin
jafnoki Johans Cruyff á knattspyrnu-
vellinum.
siðdegis I gær, en um hádegisbil
var ákveðið að fella þá æfingu
niður. — Völlurinn er svo erfiður,
að ég taldi ekki rétt að fara með
leikmennina á aðra æfingu á hon-
um í gær, sagði Zwartkruis. Vafa-
laust verður völlurinn okkur
mjög erfiður viðureignar í leikn-
um i dag, en hann ætti hins vegar
að vera ykkar mönnum i hag.
Zwartkruis sagði, að eftir æf-
inguna í gærmorgun hefðu leik-
menn hollenzka liðsins fundið til
þreytu f fótunum sem orsakast
hefði af þvi hve völlurinn hefðu
verið mjúkur, og það hefði fyrst
og fremst verið þess vegna sem
hann hefði ákveðið að gefa þeim
frí frá annarri æfingu í gær.
Sem fyrr greinir starfar Zwart-
kruis sem þjálfari hjá hollenzka
hernum og er það hans aðalstarf.
Ekki mun enn afráðið hvort hann
tekur við framkvæmdastjórn hol-
lenzka landsliðsins til frambúðar,
en sjálfsagt kann það að fara eftir
þvi hvernig liðið kemur út undir
hans stjórn í landsleiknum við
ísland í dag og i leik sem liðið á
við Norður-Irland í næsta mán-
uði.
— stjl.
Ekki auðveldur leikur
en við ætlum að sigra
- sagði Rensenbrink frægasta stjarna Hollendinganna
— VIÐ erum komnir hingað til
þess að vinna leikinn, en við ger-
um okkur grein fyrir þvi að það
verður ekki auðvelt, sagði fræg-
asta stjarna hollenzka landsliðs-
ins, Rob Rensenbrink, f viðtali
við Morgunblaðið I gær. — Við
vitum að tslendingar eru nú betri
en nokkru sinni fyrr og eiga
marga góða knattspyrnumenn.
Þannig þekkja flestir hollenzkir
knattspyrnumenn Ásgeir Sigur-
vinsson, og vita að hann er I
fremstu röð i belgfsku knatt-
spyrnunni. Þá höfum við heyrt að
fleiri fslenzkir leikmenn séu nú
orðnir atvinnumenn, og verði
með á móti okkur.
— En það er ekkert efamál, að
hollenzka landsliðið er mun betra
en það íslenzka, eða á í það
minnsta að vera það, sagði Rens-
enbrink — við eðlilegar aðstæður
eigum við að vera 4—5 mörkum
betri en Belgíumennirnir, og þeir
eru betri en þið.
Rensenbrink sagði að vallarað-
stæðurnar kynnu að leika stórt
hlutverk í leiknum í dag. — Völl-
urinn ykkar er gffurlega þungur
og erfiður, sagði hann, mun erfið-
ari fyrir okkur en ykkur sem eruð
honum vanir. Ef til vill kunna
þessar aðstæður að veróa okkur
fjötur um fót.
Þegar Rensenbrink var að því
spurður hvort hann teldi að fjar-
vera Johans Cruyff og Johans
Neeskens veikti hollenzka liðið
mikið, svaraði hann þvi til, að
hann teldi að svo væri alis ekki.
Okkar lið er mjög gott um þessar
mundir og inn í það hafa verið að
koma ungir og mjög góðir leik-
menn, sem skila stöðum sfnum
með mikilli prýði. Sem lið held ég
að hollenzka liðið sé sfzt verra
með þessum leikmönnum en ef
þeir Cruyff og Neeskens væru
með. Þetta er léttleikandi lið og
vinnur vel saman.
Rensenbrink sagði að hollenzka