Morgunblaðið - 08.09.1976, Blaðsíða 32
ALGLÝSINGASIMINN ER:
22480
ALGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHorgunblafcib
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1976
Kanna járnblendi-
verksmiðjur erlendis
FJÓRIR embættismenn fara f
fyrramálið utan til þess að kanna
gerð járnbiendiverksmiðja með
tilliti til mengunar, sem þær
hugsanlega valda. Eru það Ólafur
Ólafsson, landlæknir, Páll Sig-
urðsson, ráðuneytisstjóri, Hrafn
V. Friðriksson, yfirlæknir heil-
brigðiseftirlitsins, og Eyjólfur
Sæmundsson, verkfræðingur
heilbrigðiseftirlitsins.
Þeir félagar munu fara utan til
Skandinaviu og munu einkum
skoða járnblendiverksmiðju í
Noregi. Ýmislegt hefur verið unn-
ið að þessum málum að undan-
förnu og má sem dæmi nefna að
hingað kom til landsins í fyrra
sérfræðingur alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar gagngert þessara
erinda — þ.e. að upplýsa um hætt-
ur af rekstri járnblendiverk-
smiðja. Sérfræðingurinn, sem
kom í fyrra, er jafnframt for-
stöðumaður vinnuverndunar-
skrifstofu Noregs.
Gísla saga Súrssonar
kvikmynduð í Vatnsfírði
SÆNSKUR kvikmyndagerðar-
maður, Sverke Hállen að nafni,
hyggst næsta sumar gera hér
kvikmynd eftir Gfsla sögu Súrs-
sonar. Myndin verður væntanlega
tekin að miklu leyti f Vatnsfirði
og verður f svart/hvftu. Hefur
Hállen hlotið styrk til kvik-
myndagerðarinnar frá Sænsku
kvikmyndastofnuninni og hyggst
hann nota sænska leikara f aðal-
hlutverkin en fslenzka leikara f
ýmis aukahlutverk eftir þvf sem
næst verður komizt.
Hállen var hér á ferð fyrr í
sumar ásamt væntanlegum fram-
leiðanda myndarinnar og fóru þá
m.a. í Vatnsfjörð. Föluðust þeir
þar eftir því að fá Flókalund tek-
inn á leigu allan júnímánuð næsta
sumar og jafnframt gerðu þeir
ráðstafanir til að fá ýmsa forna
Framhald á bls. 18
Ljósm. RAX.
Kennsla hófst f barnaskólunum f gær. Þessi mynd var tekin f Kársnesskóla f Kópavogi, f söngtfma hjá 7
ára börnum, en þar sungu þau af hjartans list og tilheyrandi látbragði: „... þá kom Iftið héraskinn...“
300 kennara vantar að grunnskólunum:
Skólarnir geta ekki tekið til
starfa vegna kennaraskorts
Hvergi óhultir
fyrir þjófum
ÞAÐ kemur æ betur f Ijós að
menn eru hvergi óhultir fyrir
þjófum og hnuplurum — ekki
einu sinni f aðalstöðvum rann-
sóknarlögreglunnar f Reykja-
vfk. Þar uppgötvaði einn rann-
sóknarlögreglumaðurinn ný-
lega, að veski hans hafði verið
stolið úr jakka hans meðan
hann brá sér smástund úr her-
bergi sfnu. I veskinu voru
nokkrar þús. króna. auk ým-
issa persónuskilrfkja. Rann-
sóknarlögreglumaðurinn hef-
ur sfðan ekki séð tangur né
tetur af veski sfnu, en hins
vegar var þjófurinn bfræfni
svo hugulsamur að senda hon-
um ökuskfrteinið f pósti.
MARGT bendir nú til þess að
fjölmargir grunnskólar vfðs veg-
ar um land geti ekki tekið til
starfa á réttum tfma vegna kenn-
araskorts. Að þvf er Sigurður
Helgason fulltrúi f menntamála-
ráðuneytinu tjáði Morgunblaðinu
f gær vantar enn rösklega 300
kennara til starfa af 2350 stöðum
við grunnskólana, og er þetta
mun verra ástand en verið hefur
undanfarin ár.
Sigurður Helgason sagði, að
mjög erfitt væri að fá kennara til
starfa og væri ekki nema hluti af
þeim kennurum, sem settir hefðu
verið f haust, með kennararétt-
indi.
— Það hefur fylgzt að, að ekk-
ert framboð er af fólki með kenn-
araréttindi og einnig hefur dregið
úr eftirspurn hjá fólki sem ekki
er með tilskilinn réttindi. Þar sem
enn vantar hátt i 20% kennara
við grunnskólana eða vel yfir 300,
sér maður fram á, að margir skól-
ar eeta ekki hafið starf á réttum
tíma vegna kennaraskortsins, I landi, Vestfjörðum og Vestur-
sagði Sigurður. landi, sem kennaraskorturinn er
Að sögn Sigurðar er það eink- mikill.
um á Austurlandi, Norðaustur- I Þá sagði hann, að það virtust
Friðrik með betra
tafl gegn Najdorf
Sjfi einnig bls. 14.
(JRSLIT eru kunn f öllum skák-
um nema tveimur úr 11. umferð
Reykjavíkurskákmótsins, sem
tefld var f gærkvöldi.Skák þeirra
Friðriks og Najdorf fór f bið, en
að sögn Jóns Þ. Þórs var skákin
fjörug, og var Friðrik með frum-
kvæðið lengst af. Telur Jón
Friðrik hafa betri stöðu, en þó sé
erf itt að spá um úrslit.
Skák þeirra Inga R. >g
Antoshins fór einnig f bið. Jón
sagði okkur, að Ingi hefði unníð
skiptamun, en leikið sfðan af sér f
tfmahraki.
(Jrslit annarra skáka:
Westerinen — Haukur 1—0
Keene — Vikcevic 1—0
Matera — Margeir, jafntefli
Björn —Gunnar 1—0
Timman — Helgi 1—0
Guðmundur — Tukmakov,
jafntefli.
En staðan i mótinu er óljós
vegna biðskáka en efstir eru
Najdorf og Timman með 7,5
vinninga og biðskák, þá
Tukmakov með 7 og 2 biðskákir
og Friðrik með 7 og eina biðskák.
Staðan í biðskákunum úr 11.
umferð Friðrik — Najdorf og Ingi
— Antoshin, er birt á bls 14.
einkum vera tvær ástæður fyrir
þvi að fólk fengist ekki til
kennslustarfa. I fyrsta lagi væru
launin lág. Byrjendalaun kennara
með gamla kennaraskólaprófið
væru 84 þús. krónur á mánuði og
þessi laun skertust um 1/12 hjá
þeim skólum, sem störfuðu úti á
landi I 8 mánuði í stað 9 eins og
víðast er; og í öðru lagi útskrifuð-
ust miklu færri kennarar frá
Kennaraháskólanum en frá gamla
Kennaraskólanum.
Morgunblaðið hafði samband ið
Hjört Þórarinsson skólastjóra að
Kleppsjárnsreykjum í Borgar-
firði, og spurði hann hvernig
ástætt væri með kennara þar.
Skólinn á Kleppjárnsreykjum er
grunnskóli án 9. bekkjar.
Hjörtur sagði, að við skólann
væru á milli 120 og 130 nemend-
ur. Samkvæmt reglugerð ættu að
vera 7 kennarar á 120 nemendur,
Framhald á bls. 18
Bráðabirgðalög til lausnar sjómannadeilunni:
Mótmælum — lögin ótímabær
— segir formaður Sjómannasambandsins
Nauðsynlegt vegna ástandsins
— segir formaður LÍÚ
FORSETI Islands hefur að beiðni
sjávarútvegsráðherra gefið út
bráðabirgðalög er ákveða kaup og
kjör sjómanna um land allt á
tímabilinu frá 16. febrúar sl. til
15. maf n.k. og auk þess kjör
sjómanna á togurum yfir 500 brl.
til 1. janúar n.k. Rökstuðningur
fyrir útgáfu þessara laga er sá
samkvæmt lögunum, að langvar-
andi óvissa hafi skapazt í kjara-
máluni sjómanna, þar sem ein-
stök félög og landssambönd hafi
feilt samninga, sem samninga-
nefndir sjómanna hafi undirritað
eða skuldbundið sig til að undir-
rita, og einnig séu dæmi þess, að
sjómannafélög hafi ekki átt aðild
að samninganefndum, sem unnu
að gerð þessara samninga.
Nokkur félög hafi samþykkt sam-
ningana, en sum þeirra, sem
felldu þá hafi staðið í málaferlum
út af gildi þeirra.
Segir í greinargerð iaganna, að
til þess að eyða þessari óvissu og
samræma kjör sjómanna beri
brýna nauðsyn til að lögbinda
þessa samninga, þannig að þeir
ákveði kaup og kjör sjómanna um
land allt, enda séu samningar
þessir gerðir i beinu framhaldi
þeirra breytinga, sem gerðar voru
á sjóðakerfi sjávarútvegsins með
lögum nr. 4 frá 12. febrúar sl. um
Stofnfjarsjóð fiskiskipa og nr. 15
frá sama tíma um útfluntings-
gjald af sjávarafurðum, en með
sjóðakerfisbreytingunni hafi
verið gert ráð fyrir, að samningar
af þessu tagi yrðu gerðir.
Sjómannasamtökin i heild
munu væntanlega mótmæla út-
gáfu þessara bráðabirgðalaga, að
því er Jón Sigurðsson, formaður
Sjómannasambands íslands, tjáði
Morgunblaðinu í gær. Hann
kvaðst þá ekki hafa fengið lögin i
hendur en hafa frétt af efni þess
kvöldið áður, eftir að hafa setið á
fundi með fulltrúum Sjómanna-
sambandsins og Farmanna- og
fiskimannasambandsins, þar sem
viðhorfin i þessum samningum
voru einmitt á dagskrá. Kvað Jón
ætlunina hafa verið þá að
sjómannasamtökin reyndu að
Framhald á bls. 18
Krafla:
Skjálfta-
tíðnin vex
JARÐFRÆÐILEG þróun á
Kröflusvæðinu er enn óbreytt
og fer tiðni jarðskjálfta heldur
vaxandi, eins og verið hefur
hingað til. Nú mælast að með-
altali um 76 jarðskjálftar við
Kröflu á sólarhring. Fjöldinn
kemst suma daganaallt upp í
90 skjálfta á soiarhring, en fer
einnig niður f 50 skjálfta aðra
daga. Jafnframt þvf sem jarð-
skjálftatfðnin hefur aukizt
hefur styrkleiki stærstu kipp-
anna einnig vaxið, að sögn
Páls Einarssonar jarðeðlis-
fræðings hjá Raunvfsinda-
stofnuninni.
Boranir við Kröflu ganga
vel. Er Jötunn nú kominn nið-
ur I um 800 metra I fóðringu,
en gufuborinn er kominn í um
420 metra. Ehgar breytingar
hafa orðið á eldri holunum,
sem boraðar hafa verið, sam-
kvæmt því sem Morgunblað-
inu var tjáð í Kröflu i gær.