Morgunblaðið - 18.09.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.09.1976, Blaðsíða 1
32 SIÐUR OG LESBOK 116. tbl. 63. árg. LAUGARDAGUR, 18. SEPTEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Simamynd AF KISSINGAR OG VORSTER. John Vorster forsætisráðherra og eiginkona hans Tiennie ásamt Henry Kissinger í garði opinbera forsætisráðherrabústaðarins i Pretoriu. Þeir hófu viðræður skömmu eftir að myndin var tekin í gær. 50 mílna krafa Breta ítrekuð Brussel, 17. september — Reuter. Háttsettur brezkur stjórnmála- maður ftrekaði í dag kröfu breta um 50 sjómflna einkafiskveiðilög- sögu, að sögn breskra heimilda f dag. Samkvæmt þeim hvatti John Tomlinson aðstoðarutanrfkisráð- herra Efnahagsbandalag Evrópu til að taka tillit til hagsmuna breta þegar það tekur ákvörðun um stefnu sfna f fiskveiðimálum f næstu viku. Bretland, sem fær 12 mflna einkslögsögu, við strendur sínar Framhald á bls. 18 Hafréttarráðstefnan: „Hagstæð niðurstaða” FUNDI hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna lauk I dag án þess að nokkur niðurstaða fengist á honum. Hefur verið ákveðið að ráðstefnan komi aftur saman næsta vor f New York. Af þessu tilefni hafði Morgunblaðið samband við tvo af fulltrúum tslands á ráðstefnunni, þá Hans G. Andersen sendiherra og Eyjólf Konráð Jónsson alþingismann og leitaði álits þeirra á fundinum og árangri hans. Hans sagði að á þessum fundi hefði athyglin beinst að því að reyna að ná samkomulagi um þá málaflokka, sem valda mest- um ágreiningi, og að talsverður árangur hefði náðst. „Aðalágreiningsefnið er enn um fyrirkomulag á alþjóða hafsbotnssvæðinu og má segja að heildarsamkomulag strandi á því atriði," sagði hann. „Aðal- atriði fyrir islenzku sendi- nefndina er að ákvæðin um Framhald á bls. 15 Þjóðarsorg í Kína lýkur með viðhöfn Sjá einnig frétt á bls. 15. □ -----------------------□ Peking, 17. september — Reuter. DAGURINN f dag var sfðasti dagur Mao Tse-tungs á viðhafn- arbörum i Höll þjóðarinnar f Peking, en um 350.000 landar hans hafa gengið framhjá Ifk- inu. Á laugardag er búist við að Framhald á bls. 18 Eyjólfur K. Jónsson. Hans G. Andersen. Helsingfors, 17. september — Reuter. UHRO Kekkonen, forseti Finnlands, féllst f kvöld á lausnarbeiöni Martti Kiettunens forsætisráðherra. Sagði hann að viðræður við flokksleiðtoga mundu hefjast á þriðjudag til að reyna að leysa hnútinn, sem leiddi til afsagnar stjðrnarinnar. Kekkonen fékk Miettunen til að mynda stjórn fyrir átta mánuðum sfðan, en sá síðarnefndi hafði þá dregið sig til baka úr stjórnmál- um. Þegar hann myndaði stjórn sína hafði landinu verið stýrt í sex mánuði af embættismanna- stjórn. Astæðan fyrir afsögn stjórnar- innar er að stjórnmálaflokkarnir fimm, sem eiga aðild að henni hafa ekki getað komið sér saman um fjárlög. Þessir flokkar eru Jafnaðarmannaflokkurinn, kommúnistar, Miðflokkurinn, Sænski þjóðarflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn. Miettunen sagði áður af sér f maí vegna ósamkomulags f ríkis- Sænsku kosningarnar: Sjónvarps- umræður ráða úrslitum Stokkhólmi 17. september — Reuter. SVlAR ganga tíl þingkosninga á sunnudag og er búist við að það muni velta á örfáum atkvæðum hvort stjórn jafnaðarmanna und- ir forsæti Olofs Palme hefdur velli eða hvort stjórn þriggja borgaraflokka tekur við. Sam- kvæmt skoðanakönnun, sem birt var f gær er aðeins um hálfs hundraðshluta munur á fylgi jafnaðarmanna og óopinberra bandamanna þeirra kommúnista og borgaraflokkanna. Styðja 48.9% sósfalisku flokkana en 48.4% hina borgaralegu. Orslit kosninganna geta oltið á kappræðufundi flokksleiðtog- anna f sjónvarpi f kvöld, þar sem aðalumræðuefnið verður væntan- lega kjarnorkumálastefna lands- ins. Er álitið að fundurinn muni hafa endanleg áhrif á óákveðna Framhald á bls. 18 stjórninni um skattamál, en Kekkonen fékk hann þá til að halda áfram, Helstu ágreiningsefnin núna voru krafa kommúnista um meiri fjárveitingar til byggingar- iðnaðarins, þar sem þeir hafa mikil áhrif og krafa jafnaðar- manna um að þak yrði sett á fjár- veitingar til landbúnaðar, en á það getur miðflokkurinn ekki sæst. Aukaskatt- ar vegna skjálftanna Udine 17. september Reuter. ITALSKA stjórnin fyrirskipaði i dag aukaskattlagningu á knatt- spyrnugetraunaseðla og bifreiða- eigendur, til að afla 163 milljarða Ifra (38 milljarða f kr.) til hjálp- ar fórnarlömbum jarðskjálftanna f Friuli-héraði á Norður-ltalfu. Ákvörðun um þetta var tekin á aukafundi rfkisstjórnarinnar f morgun, en áður hafði Giulio Andreotti forsætisráðherra hitt sendinefnd þingmanna, sem ný- Framhald á bls. 18 Pretoriu, 17. september Reuter. # ÞEGAR utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Henry Kissinger, kom til Suður-Afrfku f kvöld var spennan á milli svartra og hvftra fbúa landsins í hámarki frá því að kynþáttaóeirðir byrjuðu i landinu fyrir 3 mánuðum siðan. Blóðugar mótmælaaðgerðir gegn kynþátta- aðskilnaðarstefnu Suður- Afríkustjórnar fóru fram í borg- arhverfinu Soweto við Jóhannes- arborg og í hverfum svartra og kynblendinga í Höfðaborg. Að minnsta kosti 16 voru skotn- ir til ólífis og meir en 50 særðust þegar vopnuð lögregla bældi nið- ur óeirðir og reyndi að koma í veg fyrir þjófnaði og eyðileggingar. Hafa nú meir en 300 manns verið drepnir síðan i júni. Brennuvargar létu að sér kveða i hverfum hvitra í Jóhannesar- borg og kveiktu f byggingu dag- blaðs og skrifstofubyggingum há- skóla og fyrirtækja. Slökkviliðs- bflar fóru með hávaða um mið- borgina og hræðsla var á andlit- um hvitra, sem ekki höfðu áður komist í beina snertingu við árás- ir svartra á þjóðfélag þeirra. Að sögn lögreglunnar sungu andæfendur f Soweto mótmæla- söngva og báru spjöld þar sem heimsókn Kissingers var for- dæmd. Kissinger mun eiga þýð- ingarmiklar viðræður yfir helg- ina við John Vorster, forsætisráð- herra Suður-Afríku um framtfðar stjórnmálahlutverk hvíta minni- hlutans í landinu. Bandarfskir embættismenn segja að Kissinger Framhald á bls. 18 Kekkonen féllst á afsögn stjórnar Spenna milli hvítra og svartra í hámarki við komu Kíssingers

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.