Morgunblaðið - 18.09.1976, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.09.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 18. SEPTEMBER 1976 29 VEL-VAKAIMtDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 10—11 f.h. frá mánudegi til föstudags. §Um Kópavogs- kirkju og aðrar kirkjur Velviljaður kirkjugestur sendir eftirfarandi bréf: „Kópavogskirkja er ein af sér- kennilegustu kirkjum lands okk- ar og stendur á einum fegursta stað á höfuðborgarsvæðinu. Það- an er útsýni mikið og fagurt i allar áttir. Mjög tómlegt var um að litast ef horft var inn að altari og fátt þar til að gleðja augað. En nú hefur verið komið þar fyrir smekklegri lýsingu bak við altarið og gr nú miklu hlýlegra þangað að líta en áður var. Tepþi á kirkju- gólfi dökkgrátt að lit og heldur niðurdragandi. Nú hefur þar ver- ið gerð breyting til bóta og hefur rautt teppi verið lagt á kirkjugólf og kringum altarið. Mesta prýði kirkjunn„r eru gluggarnir með hinum fjöl- breyttu litum. En ósköp eru þeir samt dimmir og hleypa litlu ljósi gegnum sig. Raflýsing kirkjunnar er ágæt og bætir upp útilokun dagsljóssins. Þökk sem þeim er gengust fyrir endurbótum á Kópavogskirkju hið innra með hlýlegu gólfteppi og bættri lýsingu. Kirkjukórinn er staðsettur upp undir rjáfri á bak við kirkjugesti og er það mjög óviðkunnalegt. Kópavogskirkja er að visu ekki ein um þá ósmekk- vísi, því flestar nýjar kirkjur eru byggðar í þeim stil. Ekki skil ég tilganginn með slíkri endemistilhögun. Söngur kirkjukórs er mikilvægur þáttur í hverri guðsþjónustu. Það er afar óviðfelldið að hlusta á söng sem kemur aftan frá. Öllum er eigin- legt að snúa sér í átt til þeirra hijóma og þess söngs sem hlustað er á. Auk þess er ávallt ánægju- legt að horfa á þá sem sönginn flytja. Ef einhverjum þykir góð tiíhögun að hafa söngfölkið bak við áheyrendur, mætti eins vel hugsa sér að staðsetja prestinn þar einnig, þótt það sé fjarri mér að óska eftir slíku. Kirkja er öðrum þræði notuð til flutnings söngs og hljómlistar við hverja guðsþjónustu. Engum dytti í hug að byggja tónlistarsali með þeirri tilhögun að staðsetja hljómlistarfólk og söngfólk á bak við áheyrendur þá, sem njóta flutnings þeirrar listar. Þessi kirkjulega tilhögun er því áreið- anlega á villigötum og dregur m.a. úr þeirri ánægju sem fólk hefur af að koma í kirkju. Velviljaður kirkjugestur." Velvakandi þakkar bréfið og þessa ábendingu og er henni kom- ið á framfæri til þeirra sem hlut eiga að máli, hvort sem það eru arkitektar eða aðrir hönnuðir kirkjubygginga. Þá skulum við snúa okkur að næsta bréfi sem fjallar um sparn- að í stjórnsýslu. 0 Um sparnað í stjórnsýslu „Dagblöð hafa nýlega greint frá, að Bjargráðasjóður sé tómur og aðgerða sé þörf að afla sjóðn- um fjár. Einnig heftir mátt lesa, að Almannavarnir búi við þröng- an fjárhag og hafi til dæmis ekki getað komið dælum frá Vest- mannaeyjagosinu í hús og má þá af líkum ráða hvort téður dælu- búnaður sé í nothæfu ásigkomu- lagi eftir 2ja ára veru í porti Al- mannavárna. Senn mun Alþingi koma saman og mun þá efalítið koma til kasta þess að leysa vandamál þjóðfé- Iagsins af öllu tagi. Skal nú greint frá hugmynd um lausn eins mála- flokksins. Grundvallarstefnan er sú að sameina og einfalda starf- semi, sem þegar er komin á lagg- irnar. Væri ekki ráðlegt að sameina með löggjöf, Bjargráðasjóð, Við- lagatryggingu, Almannavarnir og Viðlagasjóð? Við sameiningu liti dæmið svona út: Bjargráðasjóður er tómur og fjárþurfi. Almannavarnir eru sveltar. Viðlagatryggingar með tekju- stofn. Viðlagasjóður á u.þ.b. 114 milljarð í skuldabréfum og hefur senn lokið störfum. Þar sem starfssvið þessara aðila er mjög skylt og byggist á þeirri sömu forsendum, sem sé tjónabót- um og tjónavörnum, þá virðist rökrétt að sameina áður nefnda starfsemi undir einn hatt, og mundu þá leyst fleiri en eitt vandamál með einu pennastriki. Reynslan hefur kennt okkur, að f landinu verður árvisst tjón af völdum náttúruhamfara, aðeins misstór milli ára. Er það þess vegna brýnt, að í landinu sé stofn- un, sem geti brugðið hart við þeg- ar ógæfan ber að dyrum. Það þarf að efla almannavarnir og peningar þurfa að vera tiltækir til að bæta orðið tjón svo fljótt sem auðið er. Þegar hið hörmulega snjóflóð féll á Neskaupstað i desember 1974, þá hafði Viðlagasjóður starfað i 114 ár. Björgunarstörf og tjónabætur voru greiddar úr Við- lagasjóði samstundis, en reglu- gerð um Norðfjarðardeild Við- lagasjóðs kom ekki fyrr en vorið 1975. Leysum þess vegna fjárhags- vandamál Bjargráðasjóðs og Al- mannavarna með tekjum Viðlaga- tryggingar og eignum Viðlaga- sjóðs og söfnum á eina hendi reynslu og getu þessara 4 aðila. Ef þessi leið væri farin, þá mundi ekki þurfa að leggja frek- ari álögur á skattborgarana. Þ.“ Jarðvegurinn varð grýttari og hún lét hestinn hægja á sér. Kanfna skauzt upp úr hoiu og þaut ð nýjan felustað. Klukkan var ekki ðtta að morgni. Morgunsólin hlýjaði henni notalega ð bakinu. Sfðar myndi hún sjðlfsagt verða fegin að hún hafði sett upp barðastóran hattinn. Var það kannski vegna Jack Seaverings, sem hún var að skipta sér af þessu? Af einhverri ðstæðu — hver svo sem hún var nú — var tilhugsunin lokkandi að geta sagt honum hvað hefði gerzt f þessari hættuferð. Hann hafði bannað henni að fara þangað. Haft áhyggjur af henni. En það var vegna þess að fyrsta tiiraun hennar til að hitta Helene hafði mistekizt að hún hafði tekið ðkvörðun um að gera eitthvað f málinu. Waiter hafði alltaf sagt hún værl þrjózk og þar höfðu honum ratazt rétt orð ð munn. Þegar hún kom upp ð næstu hæð sá hún girðinguna sem skildi löndin og reið þangað. Hún var komin yfir ð landar- eign Everest. Skömmu sfðar meðan hún var að reyna að ðtta sig á hver væri HÖGNI HREKKVÍSI „Jæja, þetta ætti ad duga handa honum.“ „Þú gleymdir listanum yfir fuglaréttina.“ Eg þakka af hjarta Sóknarnefnd Laugarnes- sóknar, Kvenfélaginu, Bræðrafélaginu og Æskulýðsfélaginu og öllum þeim mörgu vinum og kunningjum, er glöddu mig á 70 ára afmæli mínu þann 8. sept. síðastliðinn, með gjöfum, skeytum, blómum og návist sinni og gjörðu mér þannig daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll í nútíð og framtíð. GarðarSvavarsson. \iimiiiiiHiiin.... Félag járniðnaðarmanna v Allsherjar- atkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að allsherjaratkvæða- greiðsla skuli viðhöfð um kjör fulltrúa Félags járniðnaðarmanna til 33. þings Alþýðusam- bands íslands. Tillögum um sex fulltrúa og sex til vara ásamt meðmælum a.m.k. 76 fullgildra félagsmanna skal skilað til kjörstjórnar félagsins í skrifstofu þess að Skólavörðustíg 16, fyrir kl. 18.00 þriðjudaginn 21 . sept. n.k. Stjórn Félags járniðnaðarmanna Kynnið ykkur okkar verð Afskorin blóm, blómavendir, ódýrt grænmeti. tómatar 550 kr. kg. Agúrkur 300 kr. kg. Mjög ódýrir haustlaukar. Ódýri pottaplöntumarkaðurinn t. d. 5 tegundir af ódýrum burknum. Garðshorn Fossvogi sími 40500. ,H£LLESl! \ 7YPE 731 rWLLESBi \ TYPE 73* iffELLESEHS] V TVPE 737JI itfEULESE! V TYPE 731 formoi steelfli for mo1 i S VOIT TVPE 73? for motc formotol steei s votr voix Ungir or aldnir njóta þess að borða köldu Rovai búðingana. Bragðtegundir: — Súkkulaði. karamellu. vanillu og jarðarberja. Royal INSTANT PUDDIN' pu nii'"0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.