Morgunblaðið - 18.09.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.09.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1976 15 — Ávísanamálið Framhald af bls. 32 stundum komið fyrir að þeir hafi farið fram úr þeirri yfirdráttar- heimild, sem jafnaðarlega var umsamin og hafi þeir þá samið munnlega við bankann um þenn- an yfiryfirdrátt. Hafi bankinn á móti fengið tryggingar í formi fasteignaveða, tryggingavíxla, skuldabréfa og vöruvixla, sem bankinn hafi geymt. Mennirnir sögðu, að bankarnir hefðu tekið af þeim 2% i refsivexti á mánuði en þeir á móti fengið fé í veltuna. Sagði einn mannanna, að hann hefði eitt ár greitt samtals 400 þúsund f refsivexti vegna yfir- dráttar á reikningnum. 0 Fyrirspurnir hafa ekki verið sendar til bankanna um þessi sfð- asttöldu atriði, en það verður gert. Menn þeir, sem um ræðir, segjast hafa lánað hver öðrum stundum stórar upphæðir endur- gjaldslaust f formi ávíspnar. Avís- unin hafi verið greidd sfðar, stundum með annarri ávfsun. Lánin voru notuð til að laga stöðu bankareikninga, sem stóðu illa, til að borga toll, söluskatt og ýmis- legt fleira. Athugun á viðskipta- reikningum viðkomandi manna hafa sýnt, að margir þeirra hafa verið með yfirdrátt langtímum saman. Einn aðili viðurkenndi t.d. að hafa verið með hæst 6 milljón króna yfirdrátt og sagði að það hefði verið með munnlegu sam- þykki viðkomandi banka. Það hef- ur komið fyrir að mennirnir skiptust á ávísunum, en þá hafi alltaf önnur verið heimil en með hina hafi átt að fara f banka sfðar. • Umræddir menn hafa sagt, að tékkarnir sem á fyrrgreindan hátt fóru milli á rannsóknartímabilinu hafi vel getað verið mjög margar og þegar þær séu lagðar saman numið tugum milljóna króna. Hins vegar hafi hæstu lánaupp- hæðir verið ein milljón. Skammur tími gat liðið milli láns og greiðsiu, t.d. einn eða tveir dagar eða jafnvel að þetta gerðist sam- dægurs. 0 Grunur leikur á því að notaðir hafi verið fleiri reikningar en könnun Seðlabankans náði til og verður það sérstaklega kannað. Eins og fram kom á fyrri fundi setudómarans með fréttamönn- um, kvaðst hann þá vita um 2 reikninga sem enn væru opnir, og aðspurður í gær kvaðst hann ekki vita um það hvort búið væri að loka þessum reikningum. % Menn þeir, sem um ræðir, stunda eða hafa stundað einhvers konar viðskipti. Við þessa ávísanaiðju hafa þeir f sumum tilfellum notið hjálpar annarra, sem skrifað hafa upp á ávísanir, oft heilu heftin, en mennirnir hafa sfðan útfyllt þær. í öllum tilfeílunum nema einu er um að ræða eiginkonur viðkomandi manna. I einu tilfelli er um að ræða starfsmann fyrirtækis, sem einn mannanna rekur. 0 Ljóst er að sumir þeirra, sem stórtækastir hafa verið við ávísanaútgáfuna á rannsóknar- tímabilinu, hafa eitthvað borið sig saman og ráðgast við lögmenn áð- ur en þeir komu í réttinn, enda málið lengi á döfinni og kunnings- skapur verið með þessum mönn- um flestum, eins og að framan greindi. • Engin nöfn voru birt á fundin- um f gær. Hrafn Bragason sagði að enn ætti eftir að yfirheyra nokkra menn vegna málsins. Framburður vitna er tekinn upp á segulband og ritaður upp jafnóð- um af starfsmönnum við borgar- dóm. Hrafn Bragason sagði að þegar yfirheyrslum væri lokið og hann hefði fengið yfirsýn yfir málið og metið þátt hvers og eins í því, sæi hann enga ástæðu til að halda upplýsingum leyndum, þar á meðal nöfnum. Það yrði sfðan að verða ákvörðun fjölmiðla hvort þeir birtu nöfn eða ekki. — Portúgal Framhald af bls. 32 um löndum. Sagði Tómas, að hann gæti ekki skýrt frá neinu slíku fyrr en stjórn S.l.F. væri búin að koma saman til fundar, nema hvað allt hefði verið mjög jákvsett f þessum löndum. — Hafréttar- ráðstefnan Framhald af bls. 1 réttindi strandríkja til efna- hagslögsögu standa óhögguð og eftir þær eldraunir, sem þau ákvæði hafa gengið í gegnum virðist að engar breytingar verði á þeim okkur f óhag. Athyglin beinist nú aðalega að þvf að ná samkomulagi um alþjóða hafsbotnssvæðið og sér- stök áhersla verður lögð á það á næsta fundi og við getum út af fyrir sig ekkert haft út á það að setja.“ Eyjólfur Konráð sagði að við Islendingar gætum vel unað við niðurstöður þessa fundar haf- réttarráðstefnunnar. Sfðan sagði hann: „Störf hans eru að vísu ekki merkileg en allt það sem okkur varðar mestu, stendur óhaggað i öllum þeim textum sem til umræðu verða á næsta fundi, sem halda á í New York á vori komanda. Nú grípa mörg strandríki til einhliða útfærslu í 200 mflur. Þannig skapast ótvfræður þjóðarréttur hvað sem öllum orðaflaumi líður og afturhalds sjónarmiðin verða að víkja, hvort heldur um er að ræða 12 mílur, 50 mflur eða einhverja aðra vitleysu. Þessi fundur Hafréttarráð- stefnunnar hefur verið með allt öðrum blæ en sá sem haldinn var síðastliðinn vetur. Raunar lá f loftinu allan tímann að lítill sem enginn árangur mundi nást. Hlutverk okkar islenzku fulltrúanna hefur þvi nánast verið það eitt að gæta þess að ekki yrði hróflað við þeim ákvæðum um yfirráð strand- rfkja yfir 200 mflna efnahags- lögsögu, sem eru inni í textan- um frá í vor. Niðurstaðan varð lfka sú að sá texti stendur óbreyttur og formenn nefnd- anna fluttu aðeins innihalds- lausar ræður um störf þeirra nú í dag og tóku fram það, sem þeir segðu, væri óbindandi fyr- ir alla. I svo nefndum klúbbi 21 þar sem eru fulltrúar 10 strand- rfkja, 10 landluktra og land- fræðilegra afskiptra ríkja, auk formannsins, var mikið starfað. Þar kom fram tillaga um nokk- ur fiskveiðiréttindi handa land- luktum, en þó var sérákvæði um að þau réttindi bitnuðu ekki á ríkjum, sem um of væru háð fiskveiðum og vissu allir að þar væri átt við ísland, enda er greinin alltaf kölluð fslenzka greinin. Þessar tillögur voru svipaðar þeim, sem Jens Evensen, haf- réttarráðherra Norðmanna, lagði fram til samkomulags í vor. Strandrfkjahópurinn sam- þykkti að mótmæla þvf að þær fengju nokkurn „status“ held- ur yrðu þær einungis til um- ræðu á næsta fundi eins og fjöldi annarra hugmynda og sú varð niðurstaðan. Mér skilst að menn geri sér talsverðar vonir um árangur af fundinum á næsta ári, því meg- ináhersla verður þá lögð á að ná samkomulagi um hagnýtingu auðæfa hafsbotnsins utan 200 mílna, sem allt hefur strandað á fram að þessu. Engu er þó hægt að spá um framvinduna. Aðalatriðið fyrir okkur er þó það, að 200 mflna efnahagslög- saga er stöðugt að styrkjast. Við óttuðumst nokkuð að til at- kvæðagreiðslu yrði gengið. Hefði þá verið hugsanlegt að auðlindalögsöguhugtakiö hefði verið þynnt út eða einhver óskapnaður orðið úr öllu sam- an. En sú hætta fer að sjálf- sögðu minnkandi eftir því sem tíminn lfður. Má því segja, að h'agstæð nið- urstaða hafi orðið af hallæris- legum hafréttarfundi." Kínverskir borgarar votta Mao Tse-tung virðingu sfna á Torgi hins himneska friðar í Peking. Maos minnzt í Kína með 3 míútna þögn Kfnverska þjóðin kveður í dag hinzta sinn leiðtoga sinn Mao Tse-tung og minnist hans með þriggja mfnútna þögn. Hans verður minnzt kl.3 f dag að Peking-tíma á Torgi hins himneska friðar með útifundi sem verður út- varpað og sjónvarpað að sögn kín- ÖII bæjar og sveitarfélög hafa fengið boð um að efna til fund- ar fulltrúa verkamanna, bænda, hermanna og annarra aðila kl.3 til að gera þeim kleift að fylgjast með útsendingunni frá Torgi hins himneska friðar og hlýða á minningarræður helztu leiðtoga flokks, rikis og hers á hverjum stað. Flaggað hefur verið í hálfa stöng um allt Kína og við skrif- stofur Kínverja erlendis siðan 9.september. Siðan hefur einn- ig farið fram minningarathöfn daglega í Alþýðuhöllinni í Pek- ing, svo og í öllum félagasam- versku fréttastofunnar Hsinhua. Öll félagasamtök, herdeildir, verk- smiðjur, námur, fyrirtæki, verzlanir, alþýðukommúnur, skólar, hverfasam- tök og önnur félög hafa fengið boð um að gera alþýðu manna kleift aðfylgjast með athöfninni í útvarpi og sjónvarpi og láta f Ijós samúð sína. tökum og öðrum félögum að sögn Hsinhua. Á slaginu 3 i dag að Peking- tima á fólk úr öllum samtökum, herdeildum, verksmiðjum, námum, fyrirtækjum, verzlun- um, alþýðukommúnum og allir sem eru á ferli utandyra að undanteknum þeim sem ekki geta gert hlé á störfum sínum að nema staðar og minnast Maos með þriggja mínútna þögn segir í frétt kinversku fréttastofunnar. Jafnframt á alls staðar að gefa hljóðmerki þar sem því verður við komið eins og i járnbrautarlestum. skipum, herskipum og verk- smiðjum í þrjár mínútur i virðingarskyni. Kínverskum sendiráðum og ræðismannsskrifstofum hefur verið falið að skila þakklæti til ríkisstjórna, bræðraflokka og vinveittra manna í öðrum lönd- um og skýra þeim frá þeirri ákvörðun miðstjórnar kín- verska kommúnistaflokksins og rikisstjórnarinnar að bjóða eng- um erlendum fulltrúum til minningarathafnarinnar í Kina samkvæmt opinberri til- kynningu sem Hsinhua birti. Danir reyna að kaupa Bukovsky DANSKIR aðilar sem standa f tengslum við Sakharov-nefndina ætla að reyna að fá sovézka rithöf- undinn Vladimir Bukovsky keyptan úr haldi að sögn danska blaðsins Berlingske Tidende. Bu- kovsky afplánar sjö ára fangelsis- Bukovsky dóm f Vladimir-fangelsinu um 150 km frá Moskvu. Enn er ekki vitað hvar viðskipt- in fara fram og hvað sovézk yfir- völd vilja fá greitt fyrir að sleppa Bukovsky og útvega honum og Ninu móður hans vegabréfsáritun að sögn blaðsins. Austur-Þjóðverjar hafa sleppt mörg hundruð pólitfskum föngum á liðnum árum fyrir álitlegar pen- ingaupphæðir frá Vestur- Þýzkalandi. Sá sem staðið hefur fyrir þessum viðskiptum er dular- fullur austur-þýzkur lögfræðing- ur, dr. Wolfgang Vogel. DÖnsku aðilarnir sem ætla að reyna að fá Bukovsky leystan úr haldi hafa staðið í sambandi við dr. Vogel. Vladimir Bukovsky var dæmd- ur í sjö ára fangelsi fyrir fimm árum gefið að sök að hafa sent upplýsingar til Vesturlanda um meðferð pólitískra fanga í sovézk- um geðsjúkrahúsum. Núna líkist hann helzt fanga úr útrýmingar- búðum nasista f Auschwitz. Nina móðir hans heimsótti hann nýlega i fangelsið í fyrsta skipti I átta mánuði og daginn sem hún kom var hann sóttur úr köldum einangrunarklefa. Brezki kaupsýslumaðurinn Greville Wynne sem var hafður í haldi f Vladimir-fangelsi ákærður fyrir njósnir hefur staðfest óhugnan- legar lýsingar frú Bukovskys á einangrunarklefanum þar sem hitinn fer oft niður fyrir frost- mark. Auk þess þjáist Bukovsky af nýrnasjúkdómi. „Útlit sonar míns skelfdi mig. Hann var svo magur að hann lfkt- ist ekki mennskum manni. En hann hefur ekki látið bugast og það dró úr sársaukanum sem það olli mér að sjá hann i þessu ástandi," sagði frú Bukovsky. „Sonur minn var sendur i ein- angrunarklefa upp á vatn og brauð í óákveðinn tfma. Einn fangavarðanna, maður að ttafni Dynikov, segir að honum hafi vor- ið refsað fyrir tilraun til að smygla til mfn bréfi," sagði frú Bukovsky. Honum hafði þá verið meinað að skrifa móður sinni i nfu mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.