Morgunblaðið - 18.09.1976, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1976
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Telpa óskast
til sendiferða á skrifstofu blaðsins. Vinnu-
tími frá kl. 9—12 f.h.
Matsvein
og vélstjóra
vantar á togbát. Upplýsingar í síma 99-
3816, Þorlákshöfn.
Tryggingarfélag
óskar að ráða mann til skrifstofustarfa.
Umsóknir merktar: „Framtíð — 6215"
sendist afgr. blaðsins.
Hjúkrunarfræðing
vantar til að veita forstöðu kjarnanam-
skeiðum fyrir starfsstúlkur á sjúkrahúsun-
um, á Hvammstanga, Blönduósi, Sauðár-
króki, Siglufirði og Húsavík. Góð laun í
boði.
Upplýsingar í síma 95-4237.
r
Oskum eftir
að ráða
nú þegar, handlaginn mann til starfa í
málningadeild verksmiðjunnar.
Mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar hjá verkstjóra.
H.F. Raftækjaverksmiðjan Hafnarfirdi,
sími 50022.
Iðnfyrirtæki
í Kópavogi
óskar eftir konu eoa karli tii verksmiðju-
vinnu.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 4 — 6
næstu virku daga
Burstagerðin h. f.
Auðbrekku 36, Kópavogi.
Tækniteiknari
Orkustofnun óskar að ráða tækniteiknara
á teiknistofu stofnunarinnar.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri
störf, sendist Orkustofnun, Laugavegi
1 1 6, Reykjavík, fyrir 25. sept. n.k.
Orkustofnun.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Húsavíkur óskar að ráða nú
þegar hjúkrunarfræðinga. Húsnæði í
boði. Upplýsingar veita framkvæmdar-
stjóri og forstöðukona í símum 96-
4-1 3-33 og 96-4-14-33.
Sjúkrahúsið í Húsavík s.f.
Skrifstofuhúsnæði
Gott skrifstofuhúsnæði óskast til leigu nú
þegar. Staðsetning helzt í eða við mið-
borgina. Æskileg stærð 60 — 80 fermetr-
ar. Tilboðum sé skilað til Morgunblaðsins
fyrir 22. september merkt: Miðborg —
2801.
Framkvæmdastjóri
Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar h.f. oskar að
ráða framkvæmdastjóra.
Umsóknir um starfið skulu sendar Sól-
mundi Jónssyni skólastjóra Stöðvarfirði
eða Guðmundi Malmquist, Lálandi 5,
Reykjavík, sem veita allar nánari upplýs-
ingar. Umsóknarfrestur er til 10. október
n.k.
Gestamóttaka
Viljum ráða móttökustjóra í gestamóttöku
hótelsins. Viðkomandi verður að geta
talað, skrifað og annast telex þjónustu á
íslenzku og ensku og einu norðurlanda-
málanna.
Upplýsingar veita móttöku- og hótelstjóri
á hótelinu eftir helgi ekki í síma.
Skrifstofustarf
Ritari óskast — framtíðarstarf, góð
vinnuaðstaða Umsóknir sendist afgr.
blaðsins merkt: Ritari — 6216.
Beitingamenn
Vantar á 100 tonna bát, sem á að róa frá
Keflavík.
Upplýsingar hjá skipstjóra, Jóhanni
Péturssyni, í síma 92-1 641 og 1 736.
Batdur h. f.
Fóstra óskast
hálfan daginn að dagheimilinu við Hörðu-
velli.
Upplýsingar hjá forstöðukonu í síma
50721.
Þerna óskast
á m/s Herjólf. Uppl. í síma 98-1 792 milli
kl. 9 og 17 mánudag, þriðjudag og
miðvikudag.
Herjólfur h. f.
Vestmannaeyjum.
Fyrirtæki —
atvinnurekendur
Ungur maður með Samvinnuskólapróf
óskar eftir skrifstofuvinnu, margt kemur
til greina.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 22. sept. merkt:
„góð laun — 21 93".
Maður með
víðtæka
viðskiptaþekkingu
óskast til þess að veita forstöðu innkaupa-
skrifstofu vorri í New York. Skriflegar
umsóknir merktar „Trúnaðarmál" óskast
sendar skrifstofu félagsins Lækjargötu
1 2, Reykjavík fyrir 30. þ.m.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
Islenzkir Aðalverktakar s. f.
Afmœliskveðja:
Ásgeir Jónasson
og Kristín Jóns-
dóttir, Bíldudal
Attræður er i dag Asgeir Jónas-
son, Tjarnarbraut 9, Bildudal. Ás-
geir fæddist I Reykjafirði, Suður-
fjarðahreppi, þann 18. sept. 1896,
sonur hjónanna Jónasar Ás-
mundssonar, bónda og hrepp-
stjóra þar, og konu hans, Jónu
Ásgeirsdóttur frá Álftamýri í
Arnarfirði. Er hann elztur núlif-
andi systkina, sem voru 12 er upp
komust og eru 11 þeirra enn á lifi.
Svo sem titt var um sveitabörn í
Arnarfirði á bernskuárum Ás-
geirs fór hann snemma að taka
þátt í lífsbaráttunni, sem oft var
hörð, enda börnin npörg og mögu-
leikar takmarkaðir. Vandist hann
að sjálfsögðu á barnsaldri allri
algengri sveitavinnu, enda hefir
áhugi á landbúnaði fylgt honum
æ síðan Þá hefir sjómennska
ekki síður átt þátt í uppeldi Ás-
geirs og starfi. Eins og aðrir bræð-
ur hans hóf hann sjómennsku
strax á unglingsárum, fyrst I Arn-
arfirði, en fór síðan ungur að
heiman og stundaði sjómennsku
árum saman, langmest á togurum.
Varð hann fljótt eftirsóttur til
þeirra starfa sakir dugnaðar og
verklagni og var jafnan I skip-
rúmi með landsþekktum afla-
mönnum, sem á þeim árum gátu
valið úr stórum hópum vaskra sjó-
manna, en um þær mundir var
ekki auðvelt að komast í skiprúm
á togara.
Ásgeir kvæntist Kristínu Jóns-
dóttur, ættaðri af Skarðsströnd,
mikilli dugnaðar- og atorkukonu
og eignðuust þau fimm börn.
Elzta barn sitt, Fjólu misstu þau I
„Þormóðsslysinu“, og var það
þeim mikil sorg. Gengu þau ung-
um syni Fjólu í foreldrastað.
Hann var þá aðeins fárra mánaða
gamall, en ólst upp hjá Ásgeiri og
Kristlnu til fullorðinsára. öll
börnin og dóttursonurinn eru
löngu gift og eru dugnaðar- og
atorkufólk.
Ásgeir og Kristín stofnuðu
heimili á Bíldudal og hafa búið
þar síðan, ýmist í þorpinu sjálfu
eða inni i dalnum, eins og siðan
mun að vikið. Um 1940 hætti Ás-
geir sjómennsku og gerðist bóndi
að Hóli í Bíldudal um nokkurra
ára skeið og síðar að Litlu-Eyri.
Ásgeir var eins og fyrr segir mjög
hneigður til búskapar og hefir
alla tíð látið sig málefni bænda
miklu varða, enda verið fulltrúi
þeirra á ýmsum þingum og sam-
komum í áratugi. Auk búskapar á
fyrrgreindum stöðum var Ásgeir
um nokkurra ára skeið gæzlumað-
ur rafstöðvar í Bíldudal. Síðastlið-
in 25 ár hefir Ásgeir stundað
ýmsa vinnu á Bíldudal, aðallega
störf í telgslum við útgerð og fisk- —
vinnslu. Gengur hann enn að allri
vinnu sem ungur væri og vinnur
oft langan vinnudag. Ásgeir hefir
ávallt verið mikill félagshyggju-
maður, enda valizt til ýmissa trún-
aðarstarfa fyrir sveitunga sína.
Hann var einn af stofnendum
Kaupfélags Arnfirðinga og i
stjórn þess um árabil. I hrepps-
nefnd Suðurfjarðahrepps átti
hann sæti samfellt í 16 ár og sat
auk þess I ýmsum öðrum nefnd-
um og stjórnum. öll hans félags-
málastörf hafa einkennzt af vel-
vilja og heiðarleika, enda áunnið
sér traust og virðingu sveitunga
sinna.
Hér hafa verið rakin fáein atr-
iði úr æviferli Ásgeirs. Þó af
mörgu sé enn að taka, verður að
láta hér staðar numið. Asgeir hef-
ur verið sannkallaður gæfumað-
ur. Honum hefir verið gefin fá-
dæma likamshreysti, hefur tæp-
ast orðið misdægurt alla ævina,
þrátt fyrir strit og vosbúð oft og
tíðum. Ennþá er hann teinréttur
og léttur í spori og þekkir ekki
gigt nema af afspurn og gengur
enn til hvaða verka sem er af
áhuga og eljusemi. Hann hefir
ávallt verið glaður og léttur í
lund, greiðvikinn og vinsæll.
Hann er dæmigerður fulltrúi
þeirrar kynslóðar, sem með fá-
dæma atorku og þrautseigju hef-
ur byggt þann grunn, stein fyrir
stein, sem núverandi velmegunar-
Framhald á bls. 9