Morgunblaðið - 18.09.1976, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 18.09.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1976 13 „Hann hafði mikinn áhuga á garð- rækf yfirleitt, en brátt þróaðist garður- inn út I að verða svo gott sem rósir eingöngu. Hann pantaði allar slnar rósir inn sjálfur og prófaði sig áfram með ýmsar tegundir og afbrigði og hikaði ekki við að saga niður tré og annað til að opna garðinn og grisja fyrir rósunum " Ég held að hann hafi náð nokkuð langt I rósaræktuntnni, því þó hann væri leikmaður var fólk farið að leita til hans með ýmis vandamál og vanga- veltur I sambandi við rósir og ræktun þeirra." — Þar fyrir utan var hann mikill íþróttamaður og vann mikið að íþrótta- málum, ekki satt? ,,Jú, hann var alla tið eitilharður Vlkingur og var m.a. einn af stofnend- um sklðadeildar Vikings, var um skeið formaður félagsins og á seinni árum I fulltrúaráði þess. Hann var ákaflega félagslyndur að eðlisfari og hafði gam- an af þessari starfsemi. Ég held að það sé óhætt að segja að hann hafi verið mjög léttur og yfirleitt var mikið líf I kringum hann Hann talaði mjög hátt og var hávær og hann var fljótur að kynnast fólki, og t.d. voru margir af mínum vinum einnig vinir hans og ferðuðust með honum " — Nú stendur yfir sýning á verkum föður þins á Kjarvalsstöðum. Hvað get- urðu sagt okkur um hana? „Sýning þessi var fyrirhuguð nokkru áður en hann lézt og hann hafði sjálfur valið nokkrar myndanna, en það eru fyrst og fremst 3 aðrir menn, sem völdu restina og þessi sýning hefði aldrei komizt á laggirnar án þeirra hjálpar. Þetta eru þeir Haraldur J. Hamar, Mats Wibe Lund og Gísli B Björnsson, en þeir hafa eytt ótal stund- um við að velja myndirnar og siðan við aðkoma sýningunni upp. Myndirnar á sýningunni eru allar stækkaðar I Nor- egi og siðan settar á sérstakar álplötur frá Sviss Allar slnar myndir tók faðir minn á Nikon og lengst af Nikkonmat El. Frá fyrstu tið notaði hann alltaf sömu film- una, Kodachrome II. Það var ákaflega mikið verk að velja myndir úr öllum þeim fjölda mynda, sem eftir hann liggja. Myndirnar eru heldur ekki I nógu góðri reglu, þótt þær séu nokkuð vel varðveittar. Hann var mjög fljótur að velja sérstakt úrval og siðan var hann með afgangsmyndirnar í plast- pokum En hann flokkaði myndirnar ekki þannig að þær væru aðgengilegar fyrir aðra, né gerði skrá yfir þær, en þó vissi hann alltaf sjálfur hvar hverja mynd var að finna. En nú I dag virðast likur á að samstarf náist við góða aðila um skrásetningu og dreifingu á mynd- um hans." árós. RÆTT VIÐ GUNNAR GUNNARSSON, UM FÖÐUR HANS, GUNNAR HANNESSON, LJÓSMYNDARA Árni Ásbjarnarson, Hveragerði: Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. Álverksmiðja við Eyjafjörð? í Morgunblaðinu fimmtudaginn 9. sept. s.l. er sú frétt að fyrirhug- aðar séu á næstunni könnunarvið- ræður á milli Islenskra og norskra aðila um stofnun álverksmiðju við Eyjafjörð. Þetta finnst mér svo ill frétt og óhugnanleg að ég get ekki látið hjá líða að lýsa andúð minni á þeirri hugmynd sem að baki hennar er. í fyrsta lagi fæ ég ekki skilið hvaða til- gangi það þjónar fyrir okkar land og þjóð að auka hér stóriðju, sem án efa veldur aukinni mengun i lofti, á láði og í legi. Og það á þeim tímum sem okkur vantar fólk til starfa en ekki atvinnú fyrir fólkið. Á tíma þegar við flytjum úr landi mikið af okkar sjávarafurðum sem hálf unnið eða óunnið hráefni I stað þess að vinna það hér heima að sem mestu leyti í neysluhæfa mat- vöru. Auk þess sem margir mögu- leikar eru fyrir auknum iðnaði úr mörgum öðrum tegundum inn- lends hráefnis. Staðarvalið: Þá finnst mér staðarvalið hin mesta fjarstæða og ósvinna gagn- vart verndun lands og lýðs. Eyja- fjörður er ein veðurbliðasta sveit landsins. Hann er á annað hundr- að km. á lengd frá ystu nesjum til innstu byggða með fjallaraðir á báðar hliðar. Við botn fjarðarins er höfuðborg norðurlands, Akur- eyri. Ut með firðinum beggja vegna eru kaupstaðir og þorp. Veðráttu er þannig farið i þessari byggð að jafnvel á heitum sólar- dögum kemur hafgola inn fjörð- inn siðari hluta dagsins og þar að auki gætir norðanáttar nokkuð inn fjörðinn, þegar hún ríkir fyrir norðurströnd landsins sem oft vill verða. Hugsum okkur hve mikilli hættu er stefnt að Akureyringum og innsveitungum Eyjafjarðar með því að reisa og reka álverk- smiðju út með firðinum. Heilsuhæli f Eyjafirði: Um árabil hefir verið af Nátt- úrulækningafólki, bæði norðan lands og sunnan, unnið að undir- búningi byggingar náttúrulækn- ingahælis í Eyjafirði. Fram undir þetta hefir slíku hæli helst verið hugsaður staður að Skjaldarvík, vestan megin Eyjafjarðar. Á síð- ustu mánuðum, eða frá þvl að heitt vatn tók að streyma úr iðr- um jarðar um borholur við Lauga- land á Staðarbyggð hefir þó fjölg- að þeim sem vilja láta reisa nefnt hæli á Laugalandi, þar sem jarð- hitinn er við höndina. Hvað sem endanlegt kann að verða um stað- arval fyrir sllkan heilsubótarstað er það fjarstæða að hugsa sér verksmiðju I nágrenni hans. Allir unnendur hreinleika og heilbrigðs lifs, leggjumst á eitt og frábiðjum okkur óhollustu stór- iðnaðar hvar sem er á okkar fagra og góða landi og þó einkum inn i þröngum fjörðum og dölum því þar er mengunarhættan mun meiri en út á annesjum þar sem vindar ná betur að hreyfa loftið. ÞJÓNUSTA ÁN AFGJALDS FYRIR ÖLL VERSLUNARFYRIRTÆKI Við getum aðstoðað yður við að finna nýjar vörur i New York riki fæst einna mest af verslunar- varning á byggðu bóli Framleiðslan er gífurleg og verðlagið samkeppnishæft — allt frá raf- eindakerfum og vélum til fatnaðar Þar er að finna vörur, sem fyrirtæki yðar kanrr að þarfnast nú þégar Við getum veitt yður opinbera ÞJÓNUSTU ÁN AFGJALDS og látið framleiðendur i New York riki yita um þarfir yðar Allt sem þarf að gera er að skrifa okkur á bréfsefni fyrirtækis yðar, lýsa nákvæmlega vörunum, sem þér hafið áhuga á og, hvernig þér hyggist nota þær Látið okkur vita hvort fyrirtæki yðar mundi kaupa vörurnar fyrir eigin reikning eða í umboðssölu Getið um banka yðar. við- skiptasambönd yðar i Bandarikjunum eða annars staðar erlendis, venjulega greiðsluskil- mála (bankaábyrgð eða annars konar) svo og aðrar upplýsingar sem seljanda koma að gagni Sendið bréf yðar i flugpósti til: New York State Department of Commerce DEPT. LAFC International Division 230 Park Avenue New York, N.Y. 10017 U.S.A TELEX: 666705. Þegar við fregnum frá yður munum við senda upplýsingarnar til framleiðenda i New York riki sem best geta þjónað fyrirtæki yðar Þeir munu svara yður beint Svar berst fyrr ef beiðnir eru skrifaðar á ensku. NewYork Statei Skrifstofur í London og Tokyo Vi8 flytjum meira út en flest lönd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.