Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 7

Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 7
MOKGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976 30 ára bábilja um saltfisksölu Greinaflokkur Guð- mundar H. Garðarssonar, alþingismanns, um utan- ríkismál og utanríkisvið skipti, sem birzt hefur í Morgunblaðinu undanfar- ið, hefur farið illa í flnu taugarnar á ritstjórum kommúnistablaðsins. Guðmundur H. Garðars- son er viðskiptafræðing- ur, sem um langt árabil hefur starfað á vegum Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, og gjör- þekkir það viðfangsefni, er hann fjallar um í grein- um sínum. Staðreyndir utanrikisviðskipta okkar. sem hann dregur skýrt og skilmerkilega fram í dags- Ijósið, stangast gjörsam- lega á við staðlausar full- yrðingar kommúnista, sem gjarnan hagræða sögunni til samræmis við pólitísk áróðurssjónarmið. Þannig hefur'* kommúnistablaðið dag eftir dag (síðast i leiðara í gær) hamrað á þrjátiu ára bábilju sinni um saltfisk- sölu, sem það telur tengda því, að Sósialista flokkurinn hafi ekki kom- izt i rikisstjórn siðast á fimmta áratugnum, eins og hugur hans hafi þá staðið til (sem oftar endranær) Að hafa það sem sannara reynist Fróðlegt er í þessu sam- bandi að rifja upp kafla úr fyrstu grein Guðmundar H. Garðarssonar en hann segir: „Hið rétta og sanna í þessu máli er það að á fyrsta starfsári Bjarna Benediktssonar sem utan- ríkisráðherra árið 1947 gerði Thor Thors, þáver- andi sendiherra, samning við bandarísk . hernáms- yfirvöld i V Þýzkaiandi um sölu mikils magns freð- fisks. Var það liður í mat- vælaútvegun Vesturveld- anna til að forða þýzku þjóðinni frá hungurmorði árin 1947 og 1948. í framhaldi af þessum samningi var síðan gerður samningur um löndun mikils magns ísfisks í V- Þýzkalandi 1948 og 1949. — íslendingar fengu gott verð fyrir þess- ar afurðir. Hér var um gagnkvæma hagsmuni að ræða en ekki einhliða vanda I sölumálum ís-* lands á þeim árum. Ummæli hins bandariska sendifulltrúa (sem Þjóðviljinn hengir hatt sinn á) eru annað- hvort röng eða byggð á algjörum misskilningi. Það er svo annað mál að í sjálfu sér skipta ummæli einhvers erlends manns hér sáralitlu máli. Megin- atriðið er að í greinum Þjóðviljans er gengið fram hjá grundvallaratriðum um þróun utanríkismála íslands og þar með utan- rikisviðskipta á þessum tima og siðar." Mesta blóma- skeið í sögu þjóðarinnar Guðmundur segir áfram: „Umrædd skrif í Þjóð- viljanum eru svo einkenn- andi fyrir alla umræðu þessa blaðs og ákveðinna „menntamanna" Alþýðu- bandalagsins um utan- ríkismál, að timabært er að þeim sé svarað. Nauð- synlegt er að leiða sann- leika þessara mála i dags- Ijósið og undirstrika mikil- vægi þess að íslendingar séu þess vel meðvitandi, hvar raunverulegir hags- munir þeirra eru í þessum efnum. Fólk þarf að hafa greinargóðar og sannar hugmyndir um þróun islenzkrar utanrikisstefnu, sérstaklega á sviði utan- ríkisviðskipta, frá stofnun lýðveldisins íslands árið 1944, eða á mesta góð- æris- og framfaraskeiði þjóðarinnar. Án nokkurs vafa á hin velhugsaða, sjálfstæða og staðfasta stefna í utanrikismálum, sem mótuð var á upphafs- árum lýðveldisins i tíð Bjarna Benediktssonar, mikinn þátt i því að tryggja grundvöll þessa mikla blómaskeiðs." HOOVER er heimilisprýöi HOOVER Tauþurrkarar. StærS: Hæð 85 cm, breidd 59 cm, dýpt 55 cm. HleSsla: 3,5 kg, af þurrum þvotti. Þurrkkerfi: Tvö, annað fyrir náttúrulegan vefnað en hitt fyrir gerfiefni. Hitastig: 55 C, 75 C Tímastillir: 0 til 110 mínútur. Öryggi: Öryggislæsing á hurð, 1 3 A rafstraumsöryggi, Taurþurrkarinn er á hjólum. Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan. FÁLKIN N Suðurlandsbraut 8 Sími 8-46-70 HOOVER þvottavélar StærS: HxBxD. 85x59x55 sm. Þvottamagn: 5 kg af þurrum þvotti. Þvottakerfi: 1 2 til 16 algjörlega sjálfvirk þvottakerfi. Vatnsinntak: Heitt og kalt (blandar), eða eingöngu kalt vatn. VatnshæSir: Vélarnar velja á milli vatnshæða. Sápuhólf: Skúffa sem skipt er í 3 hólf, forþvottur, aðalþvottur og bætiefni. Hitastig: 30 gr. C, 40 gr. C, og 60 gr. C, og 95 C Öryggi: Öryggislæsing á hurð, vatnsöryggi á sápuskúffu. 1 3 A rafstraumsöryggi. Þvottatromla úr ryðfríu stáli. Vélarnar eru á hjólum. Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan. Þær falla því vel í innréttingar eða undir borð Einnig má sameina þvottavél og tauþurrkara á þann hátt að skorða þurrkarann ofan á vélina. wm HOOVER- VERKSMIÐJURNAR ÁBYRGJAST VARAHLUTI í 20 ÁR, EFTIR AÐ FRAMLEIÐSLU SÉRHVERRA TEGUNDA ER HÆTT Uppskeruhátíó Fyrsta Útsýnarkvöld vetrarins verður n.k. sunnudagskvöld, 26. sept. að Hótel Sögu, Súlnasal. SPÁNARKVÖLD ' — Costa Brava Gestir frá Lloret de Mar Kl. 19.00 Húsið opnað, svaladrykkir, sangria og aðrir lystaukar. Kl. 19.30 — Veizlan hefst stundvislega. hinn vin- sæli Ijúffengi réttur „Paella Valenciana" á borð- um — Matarverð aðeins kr. 1650. Myndasýning frá Costa Brava. Kl. 20.30 Skemmtiatriði. Ferðabingó: Spilað verður um 3 sólarferðir með Útsýn til Spánar og Italiu. Dans: Hin vinsæla hljómsveit hússins leikur. Ath.: Gestir, sem koma fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happ- drættismiða og vinningurinn er ókeypis Útsýnarferð, til Spánar eða ítaliu. Munið að panta borð snemma hjá yfirþjóni. Hjá. Útsýn komast jafnan færri að en vilja Útsýnarkvöld eru skemmtanir í sér- flokki þar sem fjörið og stemmningin bregzt ekki. FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN Ennþá getum við boðið dilkakjöt, hangikjöt og svið á gamla verðinu NÝMALBIKAÐUR VEGUR HEIM Á HLAÐ Kaupgarður Smiójuvegi 9 Kópavogi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.