Morgunblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 7
MOKGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976
30 ára bábilja
um saltfisksölu
Greinaflokkur Guð-
mundar H. Garðarssonar,
alþingismanns, um utan-
ríkismál og utanríkisvið
skipti, sem birzt hefur í
Morgunblaðinu undanfar-
ið, hefur farið illa í flnu
taugarnar á ritstjórum
kommúnistablaðsins.
Guðmundur H. Garðars-
son er viðskiptafræðing-
ur, sem um langt árabil
hefur starfað á vegum
Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, og gjör-
þekkir það viðfangsefni,
er hann fjallar um í grein-
um sínum. Staðreyndir
utanrikisviðskipta okkar.
sem hann dregur skýrt og
skilmerkilega fram í dags-
Ijósið, stangast gjörsam-
lega á við staðlausar full-
yrðingar kommúnista,
sem gjarnan hagræða
sögunni til samræmis við
pólitísk áróðurssjónarmið.
Þannig hefur'*
kommúnistablaðið dag
eftir dag (síðast i leiðara í
gær) hamrað á þrjátiu ára
bábilju sinni um saltfisk-
sölu, sem það telur
tengda því, að Sósialista
flokkurinn hafi ekki kom-
izt i rikisstjórn siðast á
fimmta áratugnum, eins
og hugur hans hafi þá
staðið til (sem oftar
endranær)
Að hafa það
sem sannara
reynist
Fróðlegt er í þessu sam-
bandi að rifja upp kafla úr
fyrstu grein Guðmundar
H. Garðarssonar en hann
segir:
„Hið rétta og sanna í
þessu máli er það að á
fyrsta starfsári Bjarna
Benediktssonar sem utan-
ríkisráðherra árið 1947
gerði Thor Thors, þáver-
andi sendiherra, samning
við bandarísk . hernáms-
yfirvöld i V Þýzkaiandi um
sölu mikils magns freð-
fisks. Var það liður í mat-
vælaútvegun Vesturveld-
anna til að forða þýzku
þjóðinni frá hungurmorði
árin 1947 og 1948. í
framhaldi af þessum
samningi var síðan gerður
samningur um löndun
mikils magns ísfisks í V-
Þýzkalandi 1948 og
1949. — íslendingar
fengu gott verð fyrir þess-
ar afurðir. Hér var um
gagnkvæma hagsmuni að
ræða en ekki einhliða
vanda I sölumálum ís-*
lands á þeim árum.
Ummæli hins
bandariska sendifulltrúa
(sem Þjóðviljinn hengir
hatt sinn á) eru annað-
hvort röng eða byggð á
algjörum misskilningi.
Það er svo annað mál að í
sjálfu sér skipta ummæli
einhvers erlends manns
hér sáralitlu máli. Megin-
atriðið er að í greinum
Þjóðviljans er gengið fram
hjá grundvallaratriðum
um þróun utanríkismála
íslands og þar með utan-
rikisviðskipta á þessum
tima og siðar."
Mesta blóma-
skeið í sögu
þjóðarinnar
Guðmundur segir
áfram:
„Umrædd skrif í Þjóð-
viljanum eru svo einkenn-
andi fyrir alla umræðu
þessa blaðs og ákveðinna
„menntamanna" Alþýðu-
bandalagsins um utan-
ríkismál, að timabært er
að þeim sé svarað. Nauð-
synlegt er að leiða sann-
leika þessara mála i dags-
Ijósið og undirstrika mikil-
vægi þess að íslendingar
séu þess vel meðvitandi,
hvar raunverulegir hags-
munir þeirra eru í þessum
efnum. Fólk þarf að hafa
greinargóðar og sannar
hugmyndir um þróun
islenzkrar utanrikisstefnu,
sérstaklega á sviði utan-
ríkisviðskipta, frá stofnun
lýðveldisins íslands árið
1944, eða á mesta góð-
æris- og framfaraskeiði
þjóðarinnar. Án nokkurs
vafa á hin velhugsaða,
sjálfstæða og staðfasta
stefna í utanrikismálum,
sem mótuð var á upphafs-
árum lýðveldisins i tíð
Bjarna Benediktssonar,
mikinn þátt i því að
tryggja grundvöll þessa
mikla blómaskeiðs."
HOOVER
er heimilisprýöi
HOOVER Tauþurrkarar.
StærS:
Hæð 85 cm, breidd 59 cm, dýpt 55 cm.
HleSsla: 3,5 kg, af þurrum þvotti.
Þurrkkerfi: Tvö, annað fyrir náttúrulegan
vefnað en hitt fyrir gerfiefni.
Hitastig: 55 C, 75 C
Tímastillir: 0 til 110 mínútur.
Öryggi: Öryggislæsing á hurð,
1 3 A rafstraumsöryggi,
Taurþurrkarinn er á hjólum.
Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan.
FÁLKIN N
Suðurlandsbraut 8 Sími 8-46-70
HOOVER þvottavélar
StærS: HxBxD. 85x59x55 sm.
Þvottamagn: 5 kg af þurrum þvotti.
Þvottakerfi:
1 2 til 16 algjörlega sjálfvirk þvottakerfi.
Vatnsinntak:
Heitt og kalt (blandar),
eða eingöngu kalt vatn.
VatnshæSir:
Vélarnar velja á milli vatnshæða.
Sápuhólf: Skúffa sem skipt er í 3 hólf,
forþvottur, aðalþvottur og bætiefni.
Hitastig:
30 gr. C, 40 gr. C, og 60 gr. C, og 95 C
Öryggi: Öryggislæsing á hurð,
vatnsöryggi á sápuskúffu.
1 3 A rafstraumsöryggi.
Þvottatromla úr ryðfríu stáli.
Vélarnar eru á hjólum.
Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan.
Þær falla því vel í innréttingar eða undir
borð
Einnig má sameina þvottavél og
tauþurrkara á þann hátt
að skorða þurrkarann ofan á vélina.
wm
HOOVER-
VERKSMIÐJURNAR
ÁBYRGJAST
VARAHLUTI
í 20 ÁR,
EFTIR AÐ
FRAMLEIÐSLU
SÉRHVERRA
TEGUNDA
ER HÆTT
Uppskeruhátíó
Fyrsta
Útsýnarkvöld
vetrarins verður n.k. sunnudagskvöld,
26. sept. að Hótel Sögu, Súlnasal.
SPÁNARKVÖLD '
— Costa Brava
Gestir frá Lloret de Mar
Kl. 19.00 Húsið opnað, svaladrykkir, sangria og
aðrir lystaukar.
Kl. 19.30 — Veizlan hefst stundvislega. hinn vin-
sæli Ijúffengi réttur „Paella Valenciana" á borð-
um — Matarverð aðeins kr. 1650.
Myndasýning frá Costa Brava.
Kl. 20.30 Skemmtiatriði.
Ferðabingó: Spilað verður um 3 sólarferðir með
Útsýn til Spánar og Italiu.
Dans: Hin vinsæla hljómsveit hússins leikur.
Ath.:
Gestir, sem koma fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happ-
drættismiða og vinningurinn er ókeypis Útsýnarferð,
til Spánar eða ítaliu.
Munið að panta borð snemma hjá yfirþjóni. Hjá.
Útsýn komast jafnan færri að en vilja
Útsýnarkvöld eru skemmtanir í sér-
flokki þar sem fjörið og stemmningin
bregzt ekki.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN
Ennþá getum
við boðið
dilkakjöt,
hangikjöt og
svið á gamla
verðinu
NÝMALBIKAÐUR VEGUR HEIM Á HLAÐ
Kaupgarður
Smiójuvegi 9 Kópavogi