Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 14

Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976 D Dayan dar Kissinaer SKÝRINGIN á velgengni Henry Kissingers utan- ríkisráðherra er sú að hann kann betur en fyr- irrennarar hans að nota völd Bandaríkjanna til að beita þrýstingi og áhrif- um, hótunum og loforð- um. Stundum fellur hann í hugleiðsluástand og gleymir stað og stund. Áður en það gerist nagar hann blýantinn svo menn vita hvað er í vændum. Þessi lýsing á Kissinger kem- ur fram í nýútkominni sjálfs- ævisögu fyrrverandi landvarn- arráðherra Israels, Moshe Day- ans, sem hefur þekkt hann í 20 ár og kveðst dá hann fyrir vizku, þekkingu, starfsþrek og hæfileika til að sjá mál í sam- hengi. Hann segir að tilraun hans til að bæta sambúðina við Kínverja hljóti að vekja aðdá- un. Hjá Dayan koma fram nýjar upplýsingar um leynilegar við- ræður í París sem leiddu til íhlutunar Breta og Frakka við Súez 1956. Hann segir að í októ- ber hafi Bretar afhent Frökk- um yfirlýsingu undirritaða af Anthony Eden forsætisráð- herra sem Frakkar hafi átt að afhenda Israelsmönnum til að róa þá og gera þeim kleift að sækja að Súez-skurði. Samkvæmt yfirlýsingunni ætluðu Bretar og Frakkar að krefjast þess að bæði Egyptar og Israelsmenn hörfuðu frá skurðinum og skerast i leikinn ásamt Frökkum ef annar hvor aðilinn neitaði að tryggja sigl- ingar um skurðinn. Tilganginn segir Dayan hafa verið þann að réttlæta innrás Breta og Frakka I Egyptalandi stjórn- málalega og siðferðilega. Jafnframt sögðu Bretar að þeir mundu ekki hjálpa Egypt- um í stríði milli þeirra og Israelsmanna en nefndu ekki Jórdaniu sem var i bandalagi með þeim. Davíð Ben-Gurion forsætisráðherra taldi yfirlýs- inguna ófullnægjandi grund- völl sameiginlegra aðgerða og sagði að Israelsmenn ættu ekki að hefja aðgerðirnar og koma fram sem árásaraðili. Seinna var málamiðlunarlausn fundin. Dayan lýsir einnig „undarleg- um fundi“ í Paris þar sem Sel- wyn Lloyd, utanrikisráðherra Breta, og Ben-Gurion hafi báðir tekið öfgafulla afstöðu en að Vinirnir Dayan lokum reynzt furðufúsir til samkomulags. Þeir hafi verið á ólíkri bylgjulengd og talið gagnslaust að sannfæra hvor annan, en kannski hafi það ein- mitt verið skýringin á því að samkomulag tókst. Selwyn Lloyd hafi sýnt einstaka hæfi- leika til að fela betri hliðar sínar og þvermóðskufull og fjandsamleg framkoma hans lýst fyrirlitningu á staðnum, fundarmönnum og umræðuefn- inu. „Orð hans liktust aðferð viðskiptavinar sem á i höggi við okrara,“ segir Dayan. „LÆKNASTÉTTIN hefur þungar áhyggjur af áhrifum sjónvarps á unglinga. Þegar þeir eru orðnir 18 ára hafa þeir horft á sjónvarp I 15.000 klukkustundir, en sótt skóla f aðeins 11.000 stundir. Þeir hafa séð 18.000 morð og margar aðr- ar tegundir ofbeldis og glæpa-“ Þetta sagði fyrrverandi for- maður félags lækna I Kali- forniu, Thomas Elmendorf, í vitnaleiðslum fyrir einni nefnd bandaríska þingsins fyrir nokkru og fullyrti að samband væri á milli aukinna glæpa i Bandaríkjunum og ofbeldis i sjónvarpi. Álit hans kemur heim við ýmsar rannsóknir sem hafa ver- ið gerðar að undanförnu á áhrifum sjónvarps á ungt fólk. Ein leið til úrbóta sem hefur verið rædd er að beita þrýstingi á auglýsendur ser.i standa straum af kostnaði við gerð of- beldisþætta, jafnvel með þvi að fá almenning til að kaupa ekki vörur sem þeir auglýsa. Forstöðumaður einnar slíkr- ar rannsóknar, Nicholas John- son, segir að sjónvarpið sé orðið „háskóli glæpamanna". Hann telur mikilvægt að flestir þeirra sjónvarpsþátta sem Síðustu mánuðurnír í lífi Maós Sidney Liu er fréttaritari Newsweek í Hong Kong og hefur fylgzt náið með gangi mála í Kínaveldi. Hér fer á eftir frásögn hans af síðustu mánuðun- um í Iífi Maós, en hún birtist í nýútkomnu tölublaði Newsweek: Allt þetta ár hefur það verið opinbert leyndarmál að Maó væri að deyja. I janúarmánuði lézt Chou En-lai, og athygli vakti, að Maó var ekki viðstaddur útför hans. Astæðan var einfaldlega sú, dr. Walter Birkmayer, kvaddur til Peking. Leynd hvíldi yfir þessari ferð, og sjálfur skýrir hann .svo frá: „Ég fékk hvorki læknisfræði- legar upplýsingar eða aðrar um liðan hans, að öðru leyti en þvi, Mynd þessi var tekin vló þaó tækifæri er Maó ræddi við Ali Bhutto, forseta Pakistans, fyrr á þessu ári. sem stóð í blöðum, en samkvæmt þvf var ljóst að hann var að dauða kominn." Meðan dr. Birkmayer dvaldist í Peking var nafn Maós aldri nefnt við hann, en þegar hann flutti fyrirlestur um fram- Stórmeistarinn Taimanov kennir íslendingum skák að Maó var þá orðinn svo óstyrk- ur, að hann hefði ekki getað stað- ið á fótunum meðan athöfnin fór fram. Siðar tjáðu mér kfnverskir menn, að Maó hefði oftar en einu sinni komið að dánarbeði Chou En-lais. Það hefði Maó gert með leynd, þar sem hann kærði sig ekki um að vekja á því athygli, að hann væri kominn að fótum fram. Þeir, sem hafa staðið augliti til auglitis við Maó á þessu timabili hafa greint frá því, að hrörnun hans hefði verið svo langt á veg komin, að óþægilegt hefði verið að dveljast í návist hans. Formað- urinn var fölur og fár — gat ekki setið uppréttur og hafði enga stjórn á talfærum sinum. Hann tuldraði samhengislaust á átt- hagamállýzku sinni, og í siðustu skiptin, sem hann hitti erlenda gesti. Túlkur sneri þvi, sem hann vildi koma á framfæri, yfir á máll- ýzku mandarína, og annar túlkur þýddi síðan á ensku. Meðan sýnt var, að Maó fór stöð- ugt aftur, var frægur austuriskur sérfræðingur í Parkinsonveiki, EINS OG fram kom I fréttum I sumar er von á sovézka stór- meistaranum Mark Taimanov hingað til lands og er ætlunin að hann leiðbeini og þjálfi hér fslenzka skákmenn. Um tlma var nokkuð óljóst hvort af þessu yrði, en á föstudaginn var barst stað- festing á að vænta mætti komu hans. Skákfélagið Mjölnir gengst fyrir komu hans hingað og hefur það notið góðrar aðstoðar og milligöngu Friðriks Ólafssonar I málinu. Ekki er endanlega ákveðið hve- nær Taimanov kemur, en alla vega verður það fyrir áramót og mun það koma í ljós innan tíðar þegar gengið verður frá samning- um. Taimanov hefur haldið sig í hópi fremstu skákmanna heims nú siðustu tvo áratugina og er því mörgum góðkunnur. Hann hefur einu sinni komið hingað til lands er hann tefldi á Reykjavíkurskák- mótinu 1968, en þar sigraði hann ásamt landa sinum Vasjúkoff með 10.5 vinningum, þriðji var Friðrik með 10 vinninga. Hugmynd Skákfélagsins Mjöln- is með komu Taimanovs er að reyna að bæta nokkuð þjálfunar- vandamál skákmanna, en þessi þáttur hefur verið vanræktur nokkuð og ekki haldizt f hendur við þróunina í öðrum greinum fþrótta. Starf Taimanovs verður þvi tvíþætt, annars vegar mun hann þjálfa meistaraflokksmenn og hins vegar kenna islenzkum þjálfurum góðar starfsaðferðir og leggja þannig grunn að áfram- haldandi þjálfunarstarfi. Sovét- menn hafa lagt mikla áherzlu á þessi mál og náð góðum árangri. Vonar Mjölnir að sem flestir notfæri sér tilsögn meistarans þvi hér er um einstakt tækifæri að ræða. Þá er ljóst að erfitt verður að fjármagna dvöl Taimanovs hér og hefur félagið þegar hafizt handa um lausn þess máls. Einn fyrsti liður í fjárölfuninni verða tekjur af hraðmóti, sem haldið verður dagana 26. og 28. sept. og lýkur sunnudaginn 3. okt. Tefldar verða stuttar skákir, 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Þátttöku er hægt að tilkynna í slmum 81817, 42768 og 26261 og þar má einnig fá nánari upplýsingar um mótið. farir í sambandi við meðhöndlun sjúklinga með Parkinson-veiki hinn 21. júní s.l., spurðu hinir kinversku starfsbræður hans fjöl- margra spurninga, t.d. hvernig gefa ætti lyfið L-Dopa, sem gefið hefur góða raun í baráttu við sjúkdóminn. „Enginn spurði hvað ætti að gefa Maó,“ segir dr. Birk- mayer, „en mig grunar, að lækn- arnir, sem önnuðust hann, hafi verið viðstaddir fyrirlesturinn." Maó kom siðast fram opinber- lega árið 1971, og þegar heilsu hans tók að hraka fyrir alvöru, hafði hann ekki aðra í kringum sig en nánustu fjölskyldu sina, þ.e.a.s. konu sína, Chiang Ching, tvær dætur, Li Min og Li Na, Yuan-Hsin, náfrænda, sem for- maðurinn kom fram við eins og hann væri hans eigin sonur, og náfrænku sina, Wang Hai-jung, sem er einn þeirra aðstoðarráð- herra, er fara með utanríkismál. Fjölskyldan fræddi Maó á því, sem var að gerast, og las oftast fyrir hann þar til hann sofnaði. Ég hefi fregnað, að oft á tiðum hafi hann ekki fengið aðrar frétt- ir en góðar fréttir. Enda þótt Maó væri orðinn las- burða, varð hann ekki elliær. Hann lét sér formsatriði I sam- bandi við móttöku erlendra sendi- manna I léttu rúmi liggja. Hug- myndina að heimboði þvi, sem hann fól David Eisenhower og Julie, dóttur Richards Nixon, að flytja forsetanum fyrrverandi, fékk hann greinilega fyrirvara- laust, og hafði f þvi sambandi ekkert sajjiráð við stjórnina í Pek- ing. Við ymis tækifæri voru yfir- lýsingar hans svo illskiljanlegar, að þeim, sem næst honum stóðu, var ómögulegt að ráða í þær. Allt þar til yfir lauk hafði Maó óbil- andi áhuga á málefnum rfkisins. Hann óskaði eftir nákvæmri skýrslu um jarðskjálftann, sem skók norðausturhluta landsins I júlílokr og eitt það siðasta, sem eftir honum er haft, var að hann tæki sér nærri tjón það, sem nátt- úruhamfarirnar ollu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.