Morgunblaðið - 23.09.1976, Side 27

Morgunblaðið - 23.09.1976, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976 27 fyrir miklum framkvæmdum á þessu sviði. Höfnin Varðandi hafnarsvæðið segir frá því í kynningunni, að þegar hafi verið mörkuð sú stefna að stækka tangann og nýja hafnar- svæðið með uppfyllingum. En fremur, að fyrirsjáanlegt sé, að fiskihöfnin muni fyrst og fremst stækka Sundahafnarmegin. Höfn verður þó ekki gerð þar nema með varnargörðum og dýpkun sjávarmegin. Könnun, sem Vita- og hafnarmálastofnunin gerði árið 1968 á botnlögum þessa svæð- is, sýnir, að auðvelt er að dýpka þarna. Hafnargerð er því mjög hagkvæm, þar sem efni, sem dælt yrði upp úr höfninni, nýttist til landvinninganna. Opinber þjónusta Nýtt skólahverfi er að rísa á Torfunesi og verður það einkum fyrir framhaldsdeildir. Aðeins er gert ráð fyrir barnaskóla i Hnífs- dal og lagt er til að á f jarðarsvæð- inu risi smábarna- og barnaskóli og e.t.v. gagnfræðaskóli siðar. FVrirhugað er að byggja nýtt barnaheimili, en nú er aðeins starfrækt eitt barnaheimili á ísa- firði. Einnig er gert ráð fyrir slíkri þjónustu í nýjum íbúða- hverfum. Elliheimili er gert ráð fyrir á uppfyllingu i námunda við nýja sjúkrahúsið, en það mun standa á svokallaðri Torfunesbót. Hugsanlegt er talið að gamla sjúkrahúsið verði nýtt fyrir opin- beraþjónustu bæjarins. Gamia kirkjan er talin geta staðið enn um langa framtið. Vatnsveitur Um vatnsveitur segir, að neyzluvatn tsfirðinga sé allmeng- að aur og gerlagróðri á vissum árstímum, enda sé það yfirborðs- vatn. Er fyfirhugað að taka vatn við upptök lækja er mynda Úlfsá til að ráða á þessu bót. Ekki er fullljóst, segir ennfremur, hvern- ig bæta mætti úr vatnsskorti í Hnífsdal. Auk þess, sem hér hefur verið getið, er í tillögunum fjallað um frárennsli, sorp og gatnakerfi. Á þessu ári verður væntanlega lokið við byggingu sorpbrennsluofns skammt utan við Hnífsdal, en hann er sameiginlegt átak ísfirð- inga, Bolvíkinga og Súðvíkinga. Gatnakerfinu er skipt niður í þrjár tegundir gatna, tengigötur, safngötur og húsagötur. Hlutverk tengigatna verður að greiða fyrir umferð milli einstakra hverfa, safngöturnar munu verða tengsl- in milli tengigatna annars vegar og húsagatna hins vegar, en húsa- götur verða eingöngu ætlaðar þeim, sem við þær búa og ekki fyrir gegnumakstur. Fyrirhugað mun vera að halda almennan fund á ísafirði um efni kynningarblaðsins áður en skipu- lagstillögurnar verða lagðar fram til staðfestingar samkvæmt lögum um skipulag. Minningarkort Minningarsjóðs Knattspyrnufélagsins Vals eru afgreidd að Hverfisgötu 50 (Hverfiskjöt- búðinni). Sími 12745 og í Valsheimilinu milli kl. 1 8.00 — 20.00 í síma 11134. Stjórnin. Frönskunámskeið Alliance Francaise fyrir byrjendur og lengra komna hefjast um mánaðamótin. Væntanlegir nemendur geri svo vel að mæta í Háskóla íslands, stofu 7 mánudaginn 4. októ- ber nk. kl. 18. Kennarar eru allir franskir. Stjórnin og auoveiaar i 4 Fáanlegar i gullálmi, «ik, hnotu og teak. X iíF'ií Uv Verð frá kr. 1080 per, fmm.sk V" wiw ' VdLttNDOR hf. Klapparstíg 1, Skeifan 19, Simar 18430 —82544 DAGUR DYRANNA Samband Dýraverndunarfélaga Islands hefur farið þess á leit við biskup landsins, að hann minni prestana á fastákveðinn dag dýr- anna 3. sunnudag í september ár- lega. Þessi dagur dýranna er þá 19. sept. að þessu sinni. Góð áform gleymast fljótt séu þau ekki tekin til framkvæmda. Og þarna er sannarlega gott áform. En hvernig verður vakað gagnvart þvl? Og hvernig verður ábendingum tekið? Ég veit að hér er full þörf að gef a góð ráð. Hver gæti gleymt hryllingssög- um frá siðasta vetri, þar sem blöð- in birtu dag eftir dag fréttir af ógæfubörnum, sem höfðu bók- staflega haft það að leik að pynta dýr— meira að segja drepa þau á þann hátt. Þarna voru kettir og fuglar leikföng þessara veslings barna. Mér varð þó á, að vorkenna foreldrum og kennurum þessara barna mest. Börnin eru ekki alin upp í þeim anda, sem virðir lífið á þann hátt, sem Einar Benedikts- son orðar þannig; Alheimsins líf er ein voldug ætt. Aðalmunur á vel gerðu og vel uppöldu barni og hinu, sem er vanrækt og án hand- leiðslu kemur hvergi betur i ljós en i umgengni við þá sem eru minni máttar, dýr, fatlaða, aldraða og yngri systkini. Drenglyndið, ein fegursta dyggð mannssálar, sem aldrei birtist bjartar en hjá góðum drengjum, kemur skýrast fram í vörn og vernd fyrir litilmagnann, ekki sizt aumstödd dýr og oln- bogabörn mannlifs. Og þar hef ég stundum séð drengi, sem taldir eru engin skólaljós og jafnvel, vond börn, bera langt af öðrum, þegar á hólminn var komið. En samt eru það litlar telpur, sem eiga góða mömmu eða ömmu, sem bera af I ástúð og umhyggju fyrir veikum dýrum og vesaling- um. Ein fegursta minning frá liðnu sumri er um fjórar litlar stúlkur hérna i borginni, sem höfðu fylgzt með hreiðri I gluggaholu hátt i húsvegg. Mikil var gleði þeirra, þegar fyrsti unginn datt hálf- fleygur niður i grasið undir veggnum. Þær hjálpuðu honum aftur og aftur uppi hreiðrið til móður sinnar og systkina. En hon- um þótti svo gaman að vera frjáls. Og síðast fór svo, að einhver eða eitthvað varð honum að fjörtjóni. En litlu stúlkurnar fundu hann dáinn í grasinu. Þær bjuggu hon- um ljómandi fallega kistu og mjúka hvilu með laufi og stráum og hvitu silki. Gerðu krossmark yfir, stóðu hátiðlegar ofurlitla stund, eins og þær væru að lesa, „faðir vor“ og gengu svo með þennan litla himingest til grafar. Þetta var við eldhúsgluggann minn svo að ég gat fylgzt óséður að mestu með öllu. Heill foreldr- um og kennurum svona barna. Fjarlægðin er mikil frá ógæfu- börnum, sem finna yndi i að kvelja, pynta og drepa, ganga um með byssur í hönd og afmynduð andlit og til þessara telpna, sem geta metið eitt líf lítils starra unga til elsku og virðingar. Fuglar og kettir, einkum Framhald á bls. 29 5 mínútur Taflan sýnin ánlegt tjön fynintaekis ef FIMM MÍNÚTUR TAPAST daglega af tinna hvens stanfsmanns VIKUKAUP FJÖLD 5 I STARFS 10 FÖLKS 30 Kr. 20.000 53.950 107.900 323.700 Kr. 25.000 6 7.600 135.200 405.600 Kr. 30.000 81.250 162.500 487.500 THMINN ÍR PENINQAR STIMRILKLUKKA hvetur starfsfólk til stundvísi SKRIFSTOFUVELAR H.F. tA r^a Hverfisgötu 33 Sími 20560

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.