Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976
27
fyrir miklum framkvæmdum á
þessu sviði.
Höfnin
Varðandi hafnarsvæðið segir
frá því í kynningunni, að þegar
hafi verið mörkuð sú stefna að
stækka tangann og nýja hafnar-
svæðið með uppfyllingum. En
fremur, að fyrirsjáanlegt sé, að
fiskihöfnin muni fyrst og fremst
stækka Sundahafnarmegin. Höfn
verður þó ekki gerð þar nema
með varnargörðum og dýpkun
sjávarmegin. Könnun, sem Vita-
og hafnarmálastofnunin gerði
árið 1968 á botnlögum þessa svæð-
is, sýnir, að auðvelt er að dýpka
þarna. Hafnargerð er því mjög
hagkvæm, þar sem efni, sem dælt
yrði upp úr höfninni, nýttist til
landvinninganna.
Opinber
þjónusta
Nýtt skólahverfi er að rísa á
Torfunesi og verður það einkum
fyrir framhaldsdeildir. Aðeins er
gert ráð fyrir barnaskóla i Hnífs-
dal og lagt er til að á f jarðarsvæð-
inu risi smábarna- og barnaskóli
og e.t.v. gagnfræðaskóli siðar.
FVrirhugað er að byggja nýtt
barnaheimili, en nú er aðeins
starfrækt eitt barnaheimili á ísa-
firði. Einnig er gert ráð fyrir
slíkri þjónustu í nýjum íbúða-
hverfum. Elliheimili er gert ráð
fyrir á uppfyllingu i námunda við
nýja sjúkrahúsið, en það mun
standa á svokallaðri Torfunesbót.
Hugsanlegt er talið að gamla
sjúkrahúsið verði nýtt fyrir opin-
beraþjónustu bæjarins.
Gamia kirkjan er talin geta
staðið enn um langa framtið.
Vatnsveitur
Um vatnsveitur segir, að
neyzluvatn tsfirðinga sé allmeng-
að aur og gerlagróðri á vissum
árstímum, enda sé það yfirborðs-
vatn. Er fyfirhugað að taka vatn
við upptök lækja er mynda Úlfsá
til að ráða á þessu bót. Ekki er
fullljóst, segir ennfremur, hvern-
ig bæta mætti úr vatnsskorti í
Hnífsdal.
Auk þess, sem hér hefur verið
getið, er í tillögunum fjallað um
frárennsli, sorp og gatnakerfi. Á
þessu ári verður væntanlega lokið
við byggingu sorpbrennsluofns
skammt utan við Hnífsdal, en
hann er sameiginlegt átak ísfirð-
inga, Bolvíkinga og Súðvíkinga.
Gatnakerfinu er skipt niður í
þrjár tegundir gatna, tengigötur,
safngötur og húsagötur. Hlutverk
tengigatna verður að greiða fyrir
umferð milli einstakra hverfa,
safngöturnar munu verða tengsl-
in milli tengigatna annars vegar
og húsagatna hins vegar, en húsa-
götur verða eingöngu ætlaðar
þeim, sem við þær búa og ekki
fyrir gegnumakstur.
Fyrirhugað mun vera að halda
almennan fund á ísafirði um efni
kynningarblaðsins áður en skipu-
lagstillögurnar verða lagðar fram
til staðfestingar samkvæmt lögum
um skipulag.
Minningarkort
Minningarsjóðs
Knattspyrnufélagsins Vals
eru afgreidd að Hverfisgötu 50 (Hverfiskjöt-
búðinni). Sími 12745 og í Valsheimilinu milli
kl. 1 8.00 — 20.00 í síma 11134. Stjórnin.
Frönskunámskeið
Alliance Francaise
fyrir byrjendur og lengra komna hefjast um
mánaðamótin.
Væntanlegir nemendur geri svo vel að mæta í
Háskóla íslands, stofu 7 mánudaginn 4. októ-
ber nk. kl. 18.
Kennarar eru allir franskir. Stjórnin
og auoveiaar i
4
Fáanlegar i gullálmi, «ik, hnotu og teak.
X iíF'ií
Uv
Verð frá kr. 1080 per, fmm.sk
V" wiw '
VdLttNDOR hf.
Klapparstíg 1, Skeifan 19,
Simar 18430 —82544
DAGUR DYRANNA
Samband Dýraverndunarfélaga
Islands hefur farið þess á leit við
biskup landsins, að hann minni
prestana á fastákveðinn dag dýr-
anna 3. sunnudag í september ár-
lega.
Þessi dagur dýranna er þá 19.
sept. að þessu sinni. Góð áform
gleymast fljótt séu þau ekki tekin
til framkvæmda.
Og þarna er sannarlega gott
áform. En hvernig verður vakað
gagnvart þvl? Og hvernig verður
ábendingum tekið? Ég veit að hér
er full þörf að gef a góð ráð.
Hver gæti gleymt hryllingssög-
um frá siðasta vetri, þar sem blöð-
in birtu dag eftir dag fréttir af
ógæfubörnum, sem höfðu bók-
staflega haft það að leik að pynta
dýr— meira að segja drepa þau á
þann hátt. Þarna voru kettir og
fuglar leikföng þessara veslings
barna.
Mér varð þó á, að vorkenna
foreldrum og kennurum þessara
barna mest. Börnin eru ekki alin
upp í þeim anda, sem virðir lífið á
þann hátt, sem Einar Benedikts-
son orðar þannig; Alheimsins líf
er ein voldug ætt. Aðalmunur á
vel gerðu og vel uppöldu barni og
hinu, sem er vanrækt og án hand-
leiðslu kemur hvergi betur i ljós
en i umgengni við þá sem eru
minni máttar, dýr, fatlaða,
aldraða og yngri systkini.
Drenglyndið, ein fegursta
dyggð mannssálar, sem aldrei
birtist bjartar en hjá góðum
drengjum, kemur skýrast fram í
vörn og vernd fyrir litilmagnann,
ekki sizt aumstödd dýr og oln-
bogabörn mannlifs.
Og þar hef ég stundum séð
drengi, sem taldir eru engin
skólaljós og jafnvel, vond börn,
bera langt af öðrum, þegar á
hólminn var komið.
En samt eru það litlar telpur,
sem eiga góða mömmu eða ömmu,
sem bera af I ástúð og umhyggju
fyrir veikum dýrum og vesaling-
um.
Ein fegursta minning frá liðnu
sumri er um fjórar litlar stúlkur
hérna i borginni, sem höfðu fylgzt
með hreiðri I gluggaholu hátt i
húsvegg. Mikil var gleði þeirra,
þegar fyrsti unginn datt hálf-
fleygur niður i grasið undir
veggnum. Þær hjálpuðu honum
aftur og aftur uppi hreiðrið til
móður sinnar og systkina. En hon-
um þótti svo gaman að vera frjáls.
Og síðast fór svo, að einhver eða
eitthvað varð honum að fjörtjóni.
En litlu stúlkurnar fundu hann
dáinn í grasinu. Þær bjuggu hon-
um ljómandi fallega kistu og
mjúka hvilu með laufi og stráum
og hvitu silki. Gerðu krossmark
yfir, stóðu hátiðlegar ofurlitla
stund, eins og þær væru að lesa,
„faðir vor“ og gengu svo með
þennan litla himingest til grafar.
Þetta var við eldhúsgluggann
minn svo að ég gat fylgzt óséður
að mestu með öllu. Heill foreldr-
um og kennurum svona barna.
Fjarlægðin er mikil frá ógæfu-
börnum, sem finna yndi i að
kvelja, pynta og drepa, ganga um
með byssur í hönd og afmynduð
andlit og til þessara telpna, sem
geta metið eitt líf lítils starra
unga til elsku og virðingar.
Fuglar og kettir, einkum
Framhald á bls. 29
5 mínútur
Taflan sýnin ánlegt tjön fynintaekis ef
FIMM MÍNÚTUR TAPAST
daglega af tinna hvens stanfsmanns
VIKUKAUP FJÖLD 5 I STARFS 10 FÖLKS 30
Kr. 20.000 53.950 107.900 323.700
Kr. 25.000 6 7.600 135.200 405.600
Kr. 30.000 81.250 162.500 487.500
THMINN ÍR PENINQAR
STIMRILKLUKKA
hvetur starfsfólk til stundvísi
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
tA
r^a
Hverfisgötu 33 Sími 20560