Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976
31
Minning:
Guðrún Jóhanna
Benedik tsdó ttir
Fædd: 25. janúar 1902.
Dáin: t janúar 1976.
Guðrún var búin að liggja all-
mörg ár á Sólvangi og þar var vel
um hana hugsað, hún þjáðist af
heilarýrnun sem jókst mjög eftir
þvi sem árin liðu.
Andlát hennar kom mér ekki á
óvart því ég var farinn aó sjá að
brátt kæmi að endalokunum og sá
að það var til lítils að heimsækja
hana, því miður.
Mér var tjáð að hún hefði þekkt
dóttur sina, Sigrúnu Viggósdóttur
er hún heimsótti hana að nóttu til,
þegar hún fékk hjartaáfall.
Guðrún var gift Gisla Viggó
Hólm Sigurjónssyni, sem kvaddi
þennan heim fyrir aldur fram.
Það var stundum erfitt heimilið
hjá Guðrúnu, en með góðra
manna hjálp-komst hún yfir það
versta áður en kallið kom.
Þau Gisli og Guðrún áttu fjögur
börn en það voru þau Rafn
Viggósson, Benedikt Hólm
Viggósson, Sigrún Viggósdóttir og
Kristín Viggósdóttir.
Þegar menn eru teknir að gaml-
ast eins og ég þá dettur margt í
djúp gleymskunnar.
Minar minningar varðandi Guð-
rúnu eru fyrst og fremst þær hve
léttlynd hún var, en kynni okkar
voru tiltölulega stutt en aldrei
gleymi ég völsunum sem við döns-
uðum eftir. Þótt kynni okkar hafi
Kristján Jóhanns-
son — Minning
Fæddur 22.9. 1922
Dáinn 1.9. 1976
Mér var harmur i hug, er ég
frétti að vinur minn Kiddi, en það
kölluðum við félagar hans hann
flestir, væri horfinn yfir móðuna
miklu. Það veldur alltaf sársauka
að sjá af góðum vini, en huggun í
hamri þegar maður á I hjarta sér
fyrirheit Krists, „ég fer til að búa
yður stað á himnum í húsi föður
mins“, og það er trúa min að þar
fáum við að sjást aftur á eilifðar-
ströndu.
Kristján var fæddur á Akur-
eyri, sonur hjónannna Tómasínu
Þorsteinsdóttur og Jóhanns Hall-
grímssonar. Ungur snerist hugur-
inn um sjómennsku.og á sjónum
upphófust okkar fyrstu kynni og
æxlaðist það svo að við áttum eftir
að vera oft samskipa á hinum
ýmsu togurum Bæjarútgerðar
Reykjavikur, og var hann þá
ávallt matsveinn.
Matsveinsstarf á fiskiskipum
hjá okkur íslendingum hefur
fengið mönnum sem það hafa
stundað mismunandi vinsældir,
en ég vil fullyrða að i það starf
hafi Kiddi komið, séð og sigrað,
enda natinn og samvizkusamur að
eðlisfari og lét sér annt um sam-
ferðamenn sína, dagfarsprúður
og vildi allra götu greiða. Þjón-
ustulundin var hans aðalsmerki
og það er ómissandi náðargjöf
hverjum þeim manni, sem slík
störf fyrir sig leggur.
Nú siðari árin hittumst við
Kiddi sjaldnar en ég hefði kosið,
en svo er ekki óalgengt þegar um
tvo sjómenn er að ræða, en ávallt
urðu það fagnaðarfundir, og fyrir
það verður minningin um hann
mér ávallt hugljúf, því þó ég vissi
að lif hans væri ekki alltaf dans á
rósum þá bar hann það ekki utaná
sér í vina hópi þó á móti blési,
enda kom maður ávallt hressari
og glaðari af hans fundi.
22. nóvember 1943 kvæntist
Kiddi eftirlifandi konu sinni
Rósu Pálsdóttur frá Reykjavík.
Ég þekki ekki þá konu, en veit
það eftir Kidda að það mun vera
mikil ágætiskona, þvi hann taldi
við mig það hafa verió sin æðsta
hamingja i lífi sinu að hafa eign-
azt hana. Mun hún hafa búið hon-
um þá Paradís sem sjómanninum
er ástrikt heimili þegar hann
kemur úr þreytandi striti sínu af
sjónum. Við tölum oft um erfiði
sjómanna á hafinu, en við megum
ekki gleyma þætti sjómannskon-
unnar, sem öll vandamál heimilis-
ins lenda einni á, þegar eiginmað-
urinn er langtímum á hafinu, en
Kidda var oft hugleikið við mig að
lýsa ánægju sinni með verk konu
sinnar og kom þá fleira til en
heimili þeirra því t.d. rak hann
verzlun hér i bænum um tima og
lenti það mest á hennar herðum
verið stutt þá voru þau góð og
innileg.
Hún trúði á annað lif og fylgdi
spiritismanum, og ég vona að hún
hafi nú þegar fengið réttar sann-
anir.
Vinur.
þar sem hann stundaði sjóinn fyr-
ir þvi.
Siðasta skipið er Kiddi sigldi á
var fragtskipið Suðri og mun and-
lát hans hafa borið að langt frá
ættjörðinni eða nánar tiltekið í
Líberiu, og um leið og ég kveð
Kidda með þakklæti i huga fyrir
alla okkar viðkynningu, vil ég
færa konu hans og syninum Tóm-
asi minar hugljúfustu samúðar-
kveðjur, og bið Guð að blessa ykk-
ur minninguna um góðan dreng
og verði ykkur huggun í harmi 23.
sálmur Davíðs, vers 1—5. „Drott-
inn er minn hirðir, mig mun ekk-
ert bresta, á grænum grundum
lætur hann mig hvilast, leiðir mig
rétta vegu sakir nafns síns. Jafn-
vel þótt ég fari um dimman dal
óttast ég ekkert illt, því þú ert hjá
mér, sproti þinn og stafur huggar
mig.“ Asgeir H.P. Hraundal.
Camillus Bjarnar-
son — Minningarorð
Fæddur 24.9 1905
Dáinn 12.9 1976
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur hið sama,
en orðstfr
deyr aldrei
hveim sér gódan getur.
Afi minn, Camillus Bjarnarson
málarameistari, lést í sjúkrahúsi
þann 12. þ.m. Mig langar til þess
að minnast hans með fáeinum
orðum. Um ætt hans eða ævistarf
ætla ég ekki að ræða, það gera
efalaust aðrir kunnugri. Það er
nú svo á meðan maður er ungur,
þá finnst manni dauðinn vera svo
fjarlægur og þrátt fyrir það að
vitað væri að afi var sjúkur og
búinn að vera á sjúkrahúsi öðru
hvoru nú á annað ár, þá hresstist
hann svo ótrúlega fljótt og okkur
virtist hann þá lita svo vel út
Nú fyrir stuttu ók hann I bíl
sinum hér um borgina, meðfram
höfninni að líta á skipin og það
sem þar var að gerast. Sjó-
mennsku stundaði hann á yngri
árum, og var hún honum I blóð
borin, þó svo að hann stundaði iðn
sína áratugum saman.
I heimsóknum minum á sjúkra-
húsið til hans þótti mér sárast að
sjá hann liggja aðgerðalausan I
rúminu. Hann hafði alltaf þurft
að hafa eitthvað fyrir stafni og
fannst mér legan hafa mikil áhrif
á hann. Hann gerði sér vel ljóst
hvert stefndi og talaði oft um það,
og nú eftir á gleðst maður yfir því
að vita að hann hvarf af þessari
jörð án ótta við það sem tæki við.
Hann var sú manngerð sem
hafði sínar ákveðnu skoðanir á
því sem var að gerast I kringum
hann og lét þær í ljós þó hann
stæði einn að baki þeim. Hræsni
og yfirborðsmennska fannst ekki
i fari hans og var hann óhræddur
við að segja frá hlutunum eins og
þeir voru.
Þegar svo nákomnir eru burt
kallaðir ríkir sorg og söknuður en
ef maður trúir þvi að dvölin fyrir
handan sé betri og fegurri en lífið
á þessari jörð þar sem helstefnan
rikir, þá verður sorgin margfalt
léttbærari.
Við barnabörnin munum sakna
þess að hafa hann ekki lengur á
meðal okkar. Sárastur verður þó
söknuðurinn hjá ömmu okkar,
konu hans Þuriði Tómasdóttur,
sem ekki er óeðlilegt þar sem þau
voru búin að lifa í farsælu hjóna-
bandi I hart nær hálfa öld, aðeins
f áar vikur að því væri náð.
Guð ljær líkn með þraut og
minningarnar um góðan dreng
munu ilja henni og draga úr sár-
asta söknuðinum. I þeirri trú
kveðjum við afa með kærri þökk
fyrir allt það sem hann var okkur.
Fyrir hönd barnabarnanna,
Skarphéðinn Þórisson.
Ingibjörg Jóhannesdóttir
Ólafsfirði — Minning
Fædd 22. nóvember 1906.
Dáin 31. ágúst 1976.
Það mun hafa verið snemma árs
1968 er leiðir okkar Ingu lágu
fyrst saman, en þá hafði ég nýlega
flutzt til Ólafsfjarðar með fjöl-
skyldu minni, og ekki alveg fritt
við, að hálfgerður leiði væri I
mér. Ekki hafði ég lengi dvalið á
staðnum, þegar ég kynntist Ingu,
en hún átti heima I næsta
nágrenni við okkur, og þá var sem
allur leiði hyrfi, er ég talaði við
hana. Hún var gædd þeim
einstaka hæfileika, að engum
leiddist i nærveru hennar.
Auk þess, að vera óvenju góð-
um gáfum gædd, hafði hún svo
næmt auga fyrir því broslega i
lífinu, og hnyttin svör hennar eru
mér ávallt ógleymanleg. Ekki
hafði ég lengi þekkt hana, er mér
varð ljóst, að llfið hafði ekki farið
um hana neinum silkihönskum,
en hún kvartaði aldrei, heldur var
hún þakklát fyrir það sem hún
fékk að halda eftir.
Inga giftist Ottó Guðnasyni, og
eignaðist með honum tvö börn,
Þóru og Guðna. Ekki fékk hún að
njóta sonarins lengi, því hann dó
ungur, svo og eiginmaður hennar,
sem dó nokkru sfðar. Inga eignað-
ist dóttur, Dönu, áður en hún gift-
ist, en ekki fékk hún að njóta
hennar, hún dó einnig ung. Þann-
ig stendur hún nú uppi með
dótturina, Þóru og snerist nú allt
hennar lif um að sjá sér og henni
farborða og mun hún oft hafa lagt
nótt við dag til að það tækist. Þóra
er gift Herði Sigurðssyni sjó-
manni, og eiga þau tvö börn, Ottó
og Guðna, en þau búa hér I Ólafs-
firði. Ég vil geta þess, að Inga
dáði tengdasoninn, öðrum frem-
ur, enda var hann henni sem besti
sonur. Ólafsfjörður getur verið
mikil snjóakista á vetrum, og
innilokun því mikil, þannig var
einmitt þennan vetur, er kynni
okkar Ingu hófust. Ég held þvi
fram, að hún hafi stytt þennan
fyrsta vetur minn mikið og efa-
laust átti hún sinn þátt I því, að
Ólafsfjörður varð i mínum augum
fagur bær, með hækkandi sól.
Inga átti við mikla vanheilsu að
striða nú seinni árin, en það var
sama, aldrei kvartaði hún. Sl. vet-
ur lágum við saman á sjúkrahús-
inu á Akureyri og var hún þá oft
þjáð, en það var eins, alltaf var
sami neistinn fyrir hendi, ein
setning, og allir komnir í gott
skap.
Ég er nú að ljúka þessum
fátæklegu orðum. Inga var aldrei
rík að veraldarauði, en tókst að
veita öðrum auð sem aldrei
verður mældur.
Ég og fjölskylda mín, vottum
Þóru, Herði og drengjunum,
okkar dýpstu samúð.
Ég veit að nú liður Ingu vin-
konu minni vel. Far þú I friði
friður guðs þig blessi.
Gógó.
UTSALA - BUTASALA — UTSALA
Útsalan hefst á morgun,
föstudaginn 24.9.
G&dínuhúsið s.f.,
Ingóffsstræti 1A,
Sími 16259
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmBmK? ara»