Morgunblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976 33 félk í fréttum „Andlit mittþótti bezt hœfa hryllingsmyndum ” + Charles Bronson er ekki aðeins hugaður og harður af sér í kvik- myndunum, hann er það einnig utan þeirra. Bron- son og kona hans, Jill Irelansmt börnum þeirra fimm búa næstum því i algerri einangrun á bú- garði í Vermont í Banda- rfkjunum. „Ég forðast stórborg- irnar, samkvæmi, bíla og fólk. Ég er hamingju- samur og þarf ekki á kunningjum og vinum að halda,“ segir Bronson. Hann er nú 55 ára gamall og hefur unnið sér inn milljónir dollara á kvik- myndaleik, enda einn af þeim leikurum, sem bezt eru launaðir í Holly- wood. „Fyrir fimmtán árum þótti andlit mitt ekki hæfa öðru en hryllings- myndum en nú fæ ég svo sannarlega /Jhlutverk hetjunnar,“ segir hann og dregur enga dul á að á yngri árum hafi hann ekki alltaf þrætt hinn gullna meðalveg dyggð- ugs lífernis. „Ég var það sem kallað er „kaldur karl“ og ég veit hvað það er að sitja f fangelsi. Nú slæ ég þó engan utan kvikmynda- veranna. Ég þarf ekki lengur á þvf að halda að sanna eitt eða annað fyr- ir sjálfum mér eða öðr- um með ofbeldi.“ Magadans er allra meina bót Linda leikur á als oddi + Vicky Canale, 29 ára gömul bandarfsk hús- móðir, var svo illa haldin af bakveiki að við henni blasti ekkert annað en hjólastóllinn. Læknir hennar ráðlagði henni þá að iðka magadans og Vicky lét tilleiðast, með hálfum huga þó. Árang- urinn var svo góður að allur bakverkur hvarf og hún gerðist magadans- mær að atvinnu. Vicky tók sér nafnið Sabra Star, setti upp ráðningarskrif- stofu og hefur nú meira en 100 magadansmeyjar á sfnum snærum. + Linda Blair hefur nú snúið aftur til Hollywood til að fara með aðalhlutverkið I nýrri mynd um „Særíngamanninn“, sem fjallar eins og kunnugt er um unglingsstúlku sem haldin er illum anda og lætur sér margt um munn fara sem ekki þykir sæma siðprúðri stúlku. Linda virðist ekki hafa beið neitt tjðn á sálu sinni þrátt fyrir þetta erfiða hlutverk en geislar þvert á móti af llfsfjöri og góðum anda. Til sölu Ford Mustang '71 V 8 sjálfskiptur með vökvastýri. Útborgun 800.000. Sími 32774. Fimleikar — Í.R. Vetraræfingar eru hafnar. 1. og 2. flokkur stúlkna þriðjud. miðvikud. og fimmtud. kl. 6.50. 3. flokkur stúlkna laugard. kl. 3.05. 4. flokkur stúlkna laugard. kl. 1.50. Allar æfingar eru í íþróttahúsi Breiðholtsskóla. Innritun og uppl. hjá kennurum í æfingartím- um. Stjórnin. VERÐLÆKKUN Lifur 500 pr. kg. Súpukjöt 500 pr. kg. V J Opiö til 10 föstudagai lokað laugardaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.