Morgunblaðið - 23.09.1976, Side 36

Morgunblaðið - 23.09.1976, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976 Börnin 1 Bjöllubæ ef‘ir INGIBJÖRÍiU JÓNSDÓTTUR Komið þið blessuð og sæl. Þið munið kannski eftir því, að síóast sagði ég ykkur um Jóu Gunnu og Magga, manninn henn- ar, sem voru bjölluhjón og bjuggu í stórum hvítum kassa á borðinu hjá vís- indamanni. Allar bjöllur og flugur eru hræddar við köngurlær og það voru Jóa Gunna og Maggi líka, þó að þau væru öðru vísi en aðrar bjöllur að því leyti, aó þau kunnu bæði aö tala og Jóa Gunna kunni líka að syngja. Jóa Gunna og Maggi áttu tólf börn, sex bjöllustráka og sex bjöllustelpur og nú er ein bjöllustelp- an hún Lilla litla búin að hætta sér niður á gólf, en þar hittir hún köngurló, sem er ósköp hrædd við ryksugur. — Nei, það er engin ryksuga hér, sagði Lilla ákveðin. — Ef hér væri ryksuga hefði ég frétt það. Ég er alveg hárviss um, að hér er engin ryksuga, bara fata, skrúbbur og tuskur. Ég hélt líka, að það ætti engin köngurló heima hérna. — Það á heldur engin köngurló heima hérna nema ég, sagði köngurlóin. Ég er viss um það. Satt að segja hélt ég, að ég væri eina köngurlóin í heiminum. Og köngurlóin hristi stóra höfuðið sitt vandræðalega og var dálítið angurvær í framan. þið trúið því kannski ekki, að köngur- lær geti verið angurværar í framan, en þessi köngurló gat það, svo mikið er víst — Segðu mér, hvers vegna þú hélst það, bað Lilla. — Er það saga? Mér þykja sögur skemmtilegar. — Ég skal segja þér sögúna, ef þú lofar mér að segja hvorki pabba þínum né mömmu, já, alls ekki neinum, að ég eigi heima hérna undir kommóðunni. Jæja, jæja, gengurðu að því? Lilla hugsaði sig lengi um. Eiginlega átti hún að segja mömmu sinni allt af létta, því að hún hafði heyrt, hvað mömmu hennar var illa við köngurlær, en sögur eru nú einu sinni sögur og margir krakkar gera hitt og þetta fyrir góða sögu og þá er alveg sama, hvort það eru mannabörn eða bjöllubörn. — Mig langar aó hlusta á söguna, sagði r vt» MtFINU \\ je Má ég bjóða herranum eina eða tvær brauðsneiðar með kaff- inu? Heyrðu, vinur. Allt okkar hús- munadras) er að verða forn- gripir, — eigum við ekki að selja það og fá okkur nýtt I heimilið? Já járnmeðalið sem ég fékk hjá þér, læknir, var áhrifamikið. Þeir eru búnir að stöðva mig við málmleitartækin á flug- vellinum I tvfgang. Langar þig að smakka eina peru? Jón og Páll voru að deilda um það, hver ætti að vera hæstráð- andi á heimilnu, maðurinn eða konan. — Ég er húsbóndi á mfnu heimili, sagði Jón. Og því skyldi ég ekki vera það? Það er þó ég, sem vinn fyrir matnum. — Þegar við giftum okkur, ég og konan mfn, sagði Páll, þá ákváðum við, að hún skyldi skera úr öllum smærri málum, en ég þeim stærri. — Og hvernig hefur það gengið? — Ennþá hafa það bara verið smærri mál, sem þurft hefur að skera úr. Málfræðslumaðurinn var bú- inn að vinna mál fyrir skjól- V______________________ stæðinginn, sem kom til að gera upp reikningana. — Hvað skulda ég þér mikið? — Já, við vorum nú vinir hann pabbi þinn og ég — ætli við segjum ekki 500 krónur. — Guði sé lof fyrir að þú þekktir ekki hann afa minn Kka. Hvenær fór þjófnaðurinn fram? spurði málafærslumað- urinn. — Ég hugsa —, sagði vitnið. — Það kemur ekki málinu við, hvað þú hugsar, við viljum fá að vita, hvað þú veizt. — Þá er eins gott fyrir mig að fara héðan. Eg tala ekki án þess að hugsa, ég er enginn mála- færslumaður. ____________________________J Fangelsi óttans Framhaldssaga eftir Rosemary Gatenby Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 28 ið úr kerrunni og hélt áfram ríð- andi. — Hesturinn kom heim af sjálfu sér, sagði Ira. — Hann hlýt- ur að hafa hrasað, þvf að hann var hruflaður á einum fæti. — t hvaða átt fór hún? — t áttina til búgarðs Everest. Og svo kom þriðja áfallið. Þreyttur og soltinn gekk hann inn I hótelið og stefndi að lyftunni. Þá kom hann auga á stúlku sem hallaði sér upp að súlu og var augsýnilega að blða einhvers. Hún var grönn með sftt dökkt hár. Það var furðulegt að vera svona langt fjarri og sjá manneskju,, sem var svona furðanlega lik henni... .Og svo hrökk hann við og uppgötvaði að það var hún I eigin persónu. Þegar hún kom auga á hann, gekk hún I áttina til hans. Fas hennar var einum of kæruleysis- legt og gaf til kynna að hún væri ekki alls kostar viss um að hann myndi fagna veru hennar á staðn- um. — Jæja, svo að þér eruð komn- ir aftur? — Þér hafið ekkert að gera hér. Ekki nokkurn hlut! — Það verður mitt eigið mál. — Nei. AIIs ekki. Það er .. Hann leit þreytulega á hana. — Þér takið næstu flugvél. Ég skal útvega miða. O svo farið þér rakleitt heim. — Nei. — Heyrið þér mig nú. Við skul- um reyna að komast að samkomu- lagi. Ég býð upp á drykk. Þegar þau sátu vjð barinn varp hann öndinni. — Hvers vegna I ósköpunum tókuð þér upp á þessu. — Vegna þess að vinir mínir eiga I hlut. — Ég veit það vel. En þetta gengur ekki. Þér gætuð eyðilagt allt. — Kærar þakkir. Hann pantaði drykk hjá þjón- inum. — Þér verðið að hafa hugfasl að ÉG hef góða afsökun fyrir að fá aíi heimsækja Everest. Það er fyrirfram ákveðið. Hann var staðráðinn í að segja henni ekki frá breyttum fundar- stað. — En það passar ekki inn I myndina að ÞÉR komið með. Það er of áhættusöm tilviljun. Þér hljótið að sjá það sjálfar að eng- inn getur tekið hana trúanlega. Þau sátu þegjandi og virtist ekki sérfega hlýtt millum þeirra. Hann braut heilann f ákafa hvernig hann ætti að snúa sér f málinu. — Ég býst við þér hafið séð blöðin f dag? — Já. Og ekkju Walters Carringtons er saknað og þér höfðuð rætt við hana um ástandið á búgarði Jamies. — Rétt er það. — Hesturinn hennar hnaut f holu. — Þvf trúi ég ekki. Hann sagði henní frá kerru- flutningi Sue Ann með hestinn. — Hún hefur sjálfsagt ætlað að faratU Helene og Jamie. — Já, og einhver hefur komið i veg fyrir það. — Það vitið þér ekkert um, Jack. Það getur ýmislegt hafa komið fyrir sem á sér sfnar eðli- legu skýringar. Hún gæti bara hafa snúið á sér fótinn. En það er nóg til þess að hún kemst ekki ieiðar sinnar og bfður einhvers staðar eftir hjálp. — Þeir hlytu að hafa fundið hana, ef hún væri lifandi. Hún hefði hafl einhver ráð með að gera vart við sig. Það er búið að leita að henni ba-ði úr flugvélum, fótgangandí og á hestum. Ég er sannfærður um að hún er annað- hvort dáin eða hún hefur verið lokuð inni. Hvað sem þvf lfður verðið þér að láta yður hverfa og ég held þér hljótið að skilja hvers vegna ég vil ekki að þér flækízt f málið. Meðan hann reyndi að sann- færa sig um að hann væri hinn fúlasti yfir þvf að hún var koinin gengu tveir menn inn f barinn. Þegar þér ruddu sér braut milli borðanna sá Jack að þar var kom- inn AP—blaðamaður sem hafði verið á Hardy með honum, þegar þeir hittu Everest. Jack bað Linn að hafa sig afsak- aðan og gekk yfir að borðinu lil hans. — Hæ, Douglas, sagði hann. — Skrifar þú fréttina um frú Carr- inglon? — Já, hefurðu frétl það? Ilún er fundin. Douglas sagði honum þá frétt sem hann hafði óttazt að hevra. — Ég var að koma þaðan. sagði hann svo. — Þetta er voðalegt að heyra ... riidd Jacks brast. — Ég þckkli hana. Það er að segja, ég hitti hana nú hara einu sinni. Ilann gekk aftur að borðinu og settist við hlið Linn. Drykkirnir hiifðu verið settir á borðið. — Ilann er blaðamaður frá Al’. — Færði hann yður sla>mar fréttir? — Sue Ann Carringtnn er fnnd- in og hafði verið dáin sfðan f ga>r. Hún hafði hálsbrotnað. Ef hann hefði aldrei farið að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.