Morgunblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976 37 VELA/AKAIMIDI Velvakandi svarar I síma 10- 100 kl. 10—11 f.h. frá mánu- degi tii föstudags. 0 Tillögur um skattamál Enn berast bréf viðvíkjandi skattamálunum. Menn hafa velt þeim fyrir sér á ýmsar hliðar og í þessu bréfi hér er stungið upp á að einfalda nokkuð skattaútreikn- ing: „Það er trúlega að bera í bakka- fullan lækinn að skrifa um skatta- mál — og þó. I öllu talinu um skattamisrétti hefur það komið mér nokkuð á óvart, að ekki skuli hafa verið nefnd sú leið til úr- bóta, sem mér og reyndar mörg- um fleirum, er ég hef fært þetta i tal við, virðist bæði réttiát og sjálfsögð. Á vegum Hagstofu Islands fer að staðaldri fram útreikningur á framfærsluvisitölu. Ég held að óhætt sé að fullyrða, að Hagstofan nýtur almenns trausts sem áreiðanleg og hlutlaus stofnun og sé þess vegna marktæk. Tillaga min er þessi: Fyrri hluta hvers árs verði Hag- stofunni falið að reikna út nauð- þurftartekjur næstliðins árs, a) fyrir einstakling b) fyrir hjón c) fyrir einstakling með barn eða börn á framfæri d) fyrir hjón með barn eða börn á framfærí. Þegar frádráttur fyrir börn (skv. c- og d-lið) væri þannig kominn inn i kerfið, mætti fella barnalífeyrisgreiðslur niður og einfalda þannig skattakerfið. Á svipaðan máta mættí gera út- svarsálagninguna einfaldari. Þessar nauðþurftartekjur verði algjörlega skattfrjálsar þ.e. að hvorki verði lagt á þær útsvar né tekjuskattur. «,Rökin fyrir framangreindri til- lögu eru augljós. Eins og orðið „nauðþurftir" ber með sér, yrði bókstafiega enginn afgangur tii greiðslu skatta i einni eða annarri mynd. J. G. (5253 — 4305)“. 0 Seinlæti í skilum Símnotandi i Garðabæ hafði samband við Velvakanda og sagði sögu nokkra í sambandi við greiðslu símareikninga. Sagðist hann hafa greitt sinn símareikn- ing i banka á föstudegi og á mánu- dag hefði kona sín síðan haft sam- band við sig í vinnuna og sagt honum að það væri búið að loka sima þeirra. Fannst manninum þetta kynlegt af símayfirvöldum að bíða ekki að minnsta kosti einn dag eftir þvi að bankarnir sendu skilagrein yfir þá sem hefðu hugsanlega greitt sinar skuldir fyrir helgina. Þegar hann spurð- ist fyrir um hverju þetta sætti var honum sagt að það væri svo og því yrði ekki breytt, að simstöðin lok- aði símum á ákveðnum tímum, það væri unnið eftir ákveðnu kerfi sem ekki yrði breytt. Var honum sagt að bankarnir gætu enga skýringar gefið á þessu, hvers vegna ekki bærist strax frá þeim skilagrein yfir þá sem greiddu. Einnig kom það fram i umræðum simnotandans við við- komandi símayfirvöld að það kæmi fyrir að bankarnir drægju það enn lengur en yfir eina helgi að gera grein fyrir þessum reikn- ingum. Þetta fannst manninum undarlegt þar sem hann vissi mörg dæmi þess að fólk treysti á þjónustu bankanna og svona dæmi væru ekki til að auka þetta traust. Með þessu móti væru bankarnir að sitja af sér viðskipt- in, því að maðurinn sagðist alveg eins vel geta greitt þetta á póst- húsinu þar sem leið hans lægi alveg jafn oft þangað og i banka. 0 Sjónvarps- málið „Hvernig stendur á því að hið opinbera sér þessu fólki fyrir kaffi og rafmagni og hita meðan það er við prjónaskap sinn?“ spurði einn viðmælenda Velvak- anda. Honum fannst það ótækt að það væri verið að útvega þessu fólki húsnæði i sínar fristundir á kostnað hins opinbera. Hann sagði jafnframt að hann héldi að þeir í sjónvarpinu ættu ekki þá samúð fólks sem þeir kannski héldu, og það væri ekki að sjá að margt af þvi væri mjög launalágt þegar litið væri í skattskrána. Þá sagði þessi viðmælandi Velvak- anda að honum fyndist alveg óhætt að einhver af yfirboðurum fólksins tilkynnti þvi að það skyldi fara heim og stunda sinn prjónaskap og annað þar, en ekki i húsnæði sjónvarpsins. Annað vildi hann taka fram og það er í sambandi við birtingu sjónvarpsdagskrárinnar. Honum fannst ekki ástæða til að vera að lesa og birta hana í sifellu og þurfa svo alltaf að heyra það að ekkert yrði af útsendingu það og það kvöldið. Verst væri þetta fyrir börnin, þau biðu fyrir fram- an tækin á kvöldin, og tryðu ekki orðum foreldra sinna um að ekk- ert sjónvarp væri, fyrr en þau sæju sjálf einungis stillimyndina á skerminum. Kona nokkur hringdi og sagðist vilja benda á það að oft hefðu komið fram nokkuð óréttma'tar ásakanir á hendur sjónvarps- starfsmönnum. Hún sagði að við yrðum að meta störf sjónvarps- manna þar sem þeir væru mjög fáir, þetta va'ri margfalt fáliðaðri stofnun en hliðstæðar erlendar og þvi væri það svo að sumir hefðu kannski á herðum sínum eitt og hálft starf eða jafnvel hátt í tvö, og því væri það að laun gætu orðið svo há, það væri eingöngu vegna mikillar yfirvinnu. tala víð hana, hugsaði hann, m.vndi hún vera lifandi enn. — Mér þykir leitt að heyra það. Yður gazt vel að henni, skildist mér. — Mér fannst eins og ég þekkti hana meira en ég gerði ... Hún minnti mig á einhvern ... Það var eins og að hugsa til þess að Eloise væri dáin, Imynda sér að hún hefði legið þarna I heilan sðlar- hring með hásinn mölbrotinn. Linn sagði bllðlega. — Þér megið ekki kenna yður um þetta. — Ég veit að minnsta kosti eitt, sagði hann hásum rómi. — Og það er að ég vil ekki að slfkt komi fyrir yður. Nú bið ég yður að halda heimleiðis til New York. — Nei. Rödd hennar var svo einkenni- leg að hann leit snöggt á hana. Torráðinn glampi var I augum hennar. Það var engin önnur lausn. Hann gat ekki bara skilið hana eftír hér og látið hana fara að snuðra I málum Everests án þess hún vissi um málið. H:nn ákvað þvf að segja henni HÖGNI HREKKVÍSI „Ég Vona bara að garnagaulið haetti. Er byrjuó með megrunarkúrana aftur Vil vekja sérstaka athygli á 10 tíma megrunar kúrum. Nudd — sauna — mælingar — vigtun — matseðiH. Nudd- og snyrtistofa Astu Baldvinsdóttur Hrauntungu 85, Kópavogi 'nÆíX OPIÐ TIL KL. 1 0 ÖLL KVÖLD. Bílastæði. Simi 40609. í baksturinn FYRSTA FLOKKS HEILHVEITI FÆST í NÆSTU BÚÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.