Morgunblaðið - 23.09.1976, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976
39
það er líka gott að það komi fram,
vegna þeirra skrifa sem orðið hafa
um laun mín í sumar, að þau eru
lakari en hjá tveimur enskum
þjálfurum hjá 2. deildarliðum og
þekkist slíkt líklega hvergi í heim-
inum nema hér. Ég hef fengið
hringingar frá Noregi og bréf frá
Bandaríkjunum á þessu hausti þar
sem mér eru boðin störf, en ég
mun gefa mér góðan tíma til að
skoða þau. Ég tel að árangur is-
lenzka liðsins hafi verið svo góður
undanfarin ár, að ég geti verið
vandlátur á val á störfum sem mér
bjóðast. Ég er t.d. ákveðinn í því
að taka ekki tilboðum um störf í
lægri deildunum ensku þótt mér
bjóðist þau.
SAMSKIPTIN VIÐ
INGA BJÖRN
— Ef ég lít enn einu sinni yfir
sumarið er einkum þrennt sem
hefur valdið mér vonbi^gðum. I
fyrsta lagi leikurinn í Finnlandi, í
öðru lagi úrslitin í leikjunum gegn
Belgíu og Hollandi og í þriðja lagi
Ingi Björn. Ég ber mikla virðingu
fyrir Inga Birni sem leikmanni og
harma það að hann skyldi yfirgefa
landlsliðshópinn eftir leikinn við
Belgíu. Ef hann hefði rætt við mig
áður en hann tók þessa ákvörðun
hefði þetta ekki þurft að fara
svona. Málið var það, að ég ætlaði
ekki að láta Inga Björn leika á
móti Belgum en hafði hann á
bekknum ef sérstök tilvik skyldu
koma upp, alveg eins og hann sat á
bekknum hjá Val í bikarleiknum á
móti Breiðabliki. Ingi Björn var þá
veikur, en Valsmenn ætluðu sér að
setja hann inná ef allt væri komið
i óefni. Ég tel að hann hafi ekki
verið búinn að ná sér þegar að
landsleiknum kom. Valsmenn
unnu örugglega og ekki þurfti að
setja Inga inná. Hins vegar kom
upp sú staða í landsleiknum við
Belga, að ég taldi rétt að reyna að
setja hann inná, þar sem það vant-
aði i liðið mann sem gæti komið á
fullu upp miðjuna, kannski leikið
á 1—2 menn og skotið á markið, en
enginn er betri í slíku en Ingi
Björn. Ég ætlaði að láta hann vera
inná í 15 til 30 mínútur í mesta
lagi og það gerði ég. Það er óþekkt
hér á landi að varamenn séu tekn-
ir útaf, en þetta gerist oft erlendis.
Ég var mjög óánægður að Ingi
Björn skyldi ekki verða áfram I
hópnum þvi ég ætlaði að láta hann
leika með á móti Hollandi. En
hann tók sina ákvörðun og breytti
henni ekki þótt hann væri beðinn
um það. En þetta breytir því ekki,
að ef ég verð hér næsta sumar og
Ingi Björn verður eins góður og
hann var í sumar mun ég velja
hann í liðið.
Ég hef verið gagnrýndur fyrir
að nota fáa leikmenn úr Val í
landsliðið. Að mínu mati er Valur
bezta liðið á Islandi í dag og hinn
rússneski þjálfari liðsins hefur lát-
ið liðið leika þá knattspyrnu, sem
ég tel að dugi bezt á tslandi. En
hún er gjörólík því sem ég tel
henta landsliðinu bezt og ég hef'
fyrst og fremst leitað manna, sem
ég tel að hafi getað útfært það
leikkerfi sem ég hef lagt upp. Ef
ég hefði haft nægan tima til að
undirbúa landsliðið hefði það ekki
verið neitt vandamál að láta fleiri
Valsmenn vera með landsliðinu,
svo að þeir gætu vanizt því kerfi
sem ég nota, en því miður var
tíminn alltof naumur.
KANN VELVIÐ
SIG A lSLANDI
— Ég vil að lokum að það komi
skýrt fram, að ég hef kunnað ákaf-
lega vel við mig á tslandi. Fólkið
er vingjarnlegt og skemmtilegt að
vinna með knattspyrnumönnum
og forystumönnum knattspyrn-
unnar. Núna í haust hef ég í fyrsta
skipti sem ég man eftir misst af
byrjun knattspyrnuvetíðarinnar í
Englandi. Og það skrítna er, að ég
hef ekkert saknað ensku knatt-
spyrnunnar. Þetta sýnir bezt að ég
er farinn að kunna mjög vel við
mig hér á tslandi. Ég hef aldrei
kvænst, hef verið kvæntur knatt-
spyrnunni. Hér á tslandi hefur
mér skilizt betur að maður verður
stundum að útiloka knattspyrn-
una, hafa sitt einkalíf. Og einka-
lífsins hef ég hveggi notið betur
en hér á Islandi. _ SS.
ÚRSLIT [
RON-RICO
Helztu úrslit I hinni árlegu Ron
Rico-golfkeppni, sem fram fór á
Hvaleyrarvellinum við Hafnar-
fjörð, dagana 4. og 5. september
s.l., urðu þessi:
3. flokkur:
Jón Karlsson, GR 193
Samúel J ónsson, G R 196
Björn Karlsson, GK 197
2. flokkur:
C. Keyser, K 186
Kári Knútsson, GK 189
Pétur Eliasson, GK 189
1. flokkur:
Helgi Hólm, GS 168
Guðjón Guðmundsson, GK 171
Hilmar Þórðarson, GR 172
Meistaraflokkur:
Hálfdan Karlsson, GK 156
Júllus R. Júliusson, GK 159
Magnús Halldórson, GK 163
Helgina 11. og 12. september
fór svo fram keppni I kvenna-
flokki og urðu úrslit þessi:
Hanna Gabrielsdóttir 145
Inga Magnúsdóttir 147
Kristín Þorvaldsdóttir 148
Meðfylgjandi myndir eru af
sigurvegurunum í keppninni og
fulltrúa fyrirtækisins sem gaf
verðlaunin.
Framarar gáfust upp og
fengu skell á móti Þrótti
(JRSLIT urðu nokkuð óvænt er
Reykjavíkurmótinu í handknatt-
leik var haldið áfram á þriðju-
dagskvöldið. Þróttur sigraði Fram
örugglega og KR átti í erfiðleik-
um með Fylki. Leikirnir hófust
ekki fyrr en 25 mínútum eftir
boðaðan tíma vegna fjarveru
dómara og er það leitt hvernig
þeir lítilsvirða íþróttina með
skeytingarleysi slnu. En snúum
okkur nú að gangi leikjanna.
Fram — Þróttur 17—24
Fyrri hálfleikur var jafn og
skiptust liðin á um að skora, I
leikhléi var staðan 12—11 Fram I
vil, en I seinni hálfleik tók Þrótt-
ur forystu og hélt henni til leiks-
Grav enn á skotskónum
ANDY Gray skoraöi tvö mörk fyrir Ii8
sitt, Aston Villa, er það mætti Nor-
wich City i þriðju umferð ensku
deildarbikarkeppninnar i knatt-
spyrnu i fyrrakvöld. Hefur Gray þar
me8 skoraS 11 mörk i þeim niu
leikjum sem hann hefur leikið á
þessu keppnistimabili með Villa.
Nægðu þessi tvö mörk Aston Villa til
sigurs i leiknum, þar sem leikmenn
Norwich náðu aðeins einu sinni alla
Iei8 i mark Villa me8 knöttinn.
Óvæntustu úrslitin í leikjunum i
fyrrakvöld urðu i viðureign Arsenal.
sem nú er i þriðja sæfi i 1. deild og
2. deildar liðsins Blackpool. George
Armstrong skoraðí lyrir Arsenal á
17. minútu i þeim leik. en Dick
Walsh jafnaði fyrir Blackpool á 58
minútu. Eftir það sótti Blackpool-
liðið ákaft, en frábær frammistaða
Jimmy Rimmer i markí Arsenal kom
i veg fyrir að 2. deildar liðið gengi
með sigur af hólmi.
Úrslit leikja i deildarbikarkeppn-
inni i fyrrakvöld urðu:
Aston Villa — Norwich 2—1
Blackpool — Arsenal 1 — 1
Charlton — West Ham 0—1
Millwall — Orient 0—0
Nottingham — Coventry 0—3
Q.P.R. — Bury 2—1
Sheffield Wed — Watford 3— 1
loka. Það var ljótt að sjá til Fram-
ara I þessum leik, en þeir hrein-
lega gáfust upp I lokin þegar þeim
tókst ekki að vinna upp forskotið
og Þróttarar gerðu fjögur mörk á
slðustu minútunni. Flest mörk
Þróttar gerðu þeir Konráð Jóns-
son, 7, og Halldór Bragason, 6, I
vörninni var Sigurður Þorgrlms-
son beztur og Sigurður Ragnars-
son var góður I markinu. Þrótt-
arar léku þennan leik vel bæði I
vörn og sókn og ættu að geta orðið
góðir I vetur þegar Friðrik Frið-
riksson bætist I hópinn, en hann
er nú á sjúkrahúsi. Framarar
voru slakir I þessum leik og áttu
ekki annað skilið en tap. Flest
mörk Fram gerði Pálmi Pálma-
son, 7 alls.
Fylkir — KR 16—19.
Þetta var slakur leikur af
beggja hálfu og mikið um klaufa-
leg mistök. Bezti maður leiksins
var markmaður KR, Pétur
Hjálmarsson, en hann var I mark-
inu allan leikinn og varði nokkuð
vel. Flest mörk KR gerðu Hilmar
Björnsson, 5, og Haukur Ottesen,
4. Flest mörk Fylkis gerðu Einar
Einarsson, 6, og Gunnar Baldvins-
son, 4. H.G.
Mörg A-
námskeið
ívetur
- Það fyrsta á vegum
ÍBR hefst 5. október
EINS og flestum er kunnugt
hefur verið unnið að þvi und-
anfarin tvö ár að skipuleggja
fræðslustarfsemi fyrir leið-
beinendur I fþróttum og hafa á
vegum Iþróttahreyfingarinnar
verið haldin leiðbeinendanám-
skeið sem hafa tekizt með
miklum ágætum. Til þess að
frétta hvað framundan væri I
málum þessum hafði Mbl.
samband við Jóhannes Sæ-
mundsson, Iþróttakennara,
fræðslufulltrúa iSl.
— Það skipulag sem nú er
unnið eftir er fólgið I því, að
náminu er skipt I fjögur stig,
sagði Jóhannes, og kallast þau
A-, B-, C- og D-stig. Fyrst er
A-stigið, sem er almennt nám,
ætlað öllum iþróttagreinum.
Lýkur þvi með prófi og öðlast
þátttakendur að þvi loknu leið-
beinendaréttindi hjá iþrótta-
hreyfingunni. Að loknu A-stigi
á að vera unnt að taka B-
námskeið og hljóta 1. stigs
þjálfararéttindi. B-, C- og D-
námskeið eru nám I ákveðinni
iþróttagrein.
Jóhannes sagði, að þessa
dagana væri verið að vinna að
þvf, hvernig þessu námi yrði
hagað, hvernig samvinna sér-
sambanda og fþróttakennara-
skólans yrði hagað, hvernig
samvinna sérsambanda og
fþróttakennaraskólans yrði og
sv. frv. Sú hugmynd hefði
komið fram, að hvert sérsam-
band ynni með fþróttakenn-
araskólanum að samningu
námsefnis fyrir leiðbeinendur
i iþróttum. Mætti þá nota það
námsefni til kennslu, bæði hjá
sérsamböndunum og fyrir
nemendur fþróttakennaraskól-
ans. Sagði Jóhannes, að þetta
hefði gefið góðar undirtektir
og mjög brýnt væri, að gengið
yrði skipulega til verks og að
allir störfuðu saman að þessu
sameiginlega hagsmunamáli
fþróttahreyfingarinnar.
Jóhannes sagði er.nfremur,
að f vetur yrðu haldin nám-
skeið fyrir leiðbeinendur f
iþróttum viðs vegar um landið.
A-stigs námskeið fyrir leið-
> beinendur hefðu verið haldin
hjá allmörgum skólum og einu
fþróttabandalagi s.l. vetur. Nú
væru ráðgerð A-stigs námskeið
á eftirtöldum stöðum f vetur:
1 Reykjavfk á vegum Iþrótta-
bandalags Reykjavfkur og á
það að hef jast 5. október n.k.; f
Leirárskóla f Borgarfirði; I
Menntaskólanum á tsafirði; i
Reykjaskóla i Hrútafirði; f
Menntaskólanum á Akureyri
og einnig verður á Akureyri
námskeið fyrir almenning á
vegum IBA; i Laugaskóla f
Þingeyjarsýslu og i Eiðaskóla
á vegum Ul A.
— Það eru ef til vill fleiri
sem hafa áhuga á þvf að halda
A-stigs námskeið nú f vetur,
Framhald á bls. 28
STAÐAN
STAÐAN I Reykjavikurmótinu I
handknattleik er nú þessi:
A-riðiII:
Víkingur 2 2
IR 1 1
Armann 2 1
Valur 2 0
Leiknir 1 0
B-riðilI:
Þróttur 2 2
KR 2 1
Fram 2 0
Fylkir 2 0
0 0 47—42 4
0 0 24—15 2
0 1 31—39 2
0 2 38—40 0
0 1 19—23 0
0 0 48—30 4
1 0 34—31 3
1 1 32—39 1
0 2 29—43 0