Morgunblaðið - 23.09.1976, Page 40
Al*(JLYSINÍJASÍMINN ER:
22480
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
ifioT0imbIníiiíi
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976
Litsjónvarpssmyglið:
Hófu rannsókn í
sumarleyfi sínu
Grunsemdir um málið nái til fleiri umdæma
SKÓLAFÖLKIÐ setur hvarvetna svip á byggð bðl og stöðugt verða
töskurnar úttroðnaði af bðkum hvað sem öðru Ifður. Mærin sð
fremri virðist ekki kippa sér upp við hlassið en eitthvað hefur sú
aftari áhyggjur af innihaidi buddu sinnar. Ljðsmynd Mbl. Friðþjðf-
Sölubann sett á kart-
öflur úr Þykkvabænum?
Bændur óánægðir með verð og telja 41—50% hækkun nauðsynlega
RANNSÓKN á litsjðnvarpssmygl-
inu var fram haldið I Reykjavík
og Hafnarfirði i gær. Sá angi
málsins, sem sakadðmur Reykja-
vlkur rannsakar, snýst um smygl
á litsjðnvörpum f gámi með m.s.
Dettifossi en rannsðknin f
Hafnarfirði mun á þessu stigi
ekki beinast að ákveðnu skipi
heldur ákveðnum einstaklingum.
Rannsðknarmenn f Hafnarfirði
fundu í fyrradag litsjðnvarpstæki
f húsi á Selt jarnarnesi. Hafði tæk-
ið verið falið. Liggur fyrir játning
um að tækinu hafi verið smyglað
til landsins. Sveinn Björnsson,
yfirlögregluþjðnn rannsðknar-
lögreglunnar f Hafnarfirði, sagði
við Mbl. i gær, að grunur væri um
fleiri tæki en svo virtist sem
menn hefðu falið þau.
Sveinn vildi Iftið tjá sig um
málið en Mbl. hafði fregnir af þvf
að f gær hefði átt að kalla til
yfirheyrslu tvo menn, hæsta-
réttarlögmann og starfsmann toll-
gæzlunnar. Löggæzlumennirnir
úr Keflavfk, Kristján Pétursson
og Haukur Guðmundsson, vinna
ekki lengur að rannsókn litsjðn-
varpssmyglsins, sem þeir hófu
upphaflega rannsðkn á, en sak-
sóknari rfkisins tók úr höndum
þeirra og flutti til sakadóms
Reykjavíkur. Þeir voru einnig
upphafsmenn að rannsókn þeirri
sem fram fer f Hafnarfirði en
þeirri rannsókn hleyptu þeír af
stað f sfnum eigin frftfma
(sumarleyfi)
TOLLVERÐ 130—170
ÞtJSUND KRÓNUR
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. aflaði sér í gær, er talið að
vörugámur taki um 30 litsjón-
varpstæki. Litsjónvarpstæki
kosta í verzlun í Reykjavík
290—320 þúsund krónur, og er
tollur af slfkum tækjum 130—170
þúsund krónur, þannig að ríkis-
sjóður hefur orðið af dágóðum
tolltekjum ef tækjum hefur verið
smyglað inn í einhverjum mæli.
RANNSÓKN AFRAM
1 HAFNARFIRÐI
Guðmundur Jóhannesson
dómari við bæjarfógetaembættið
í Hafnarfirði sagði í viðtali við
Mbl. í gær, að hann teldi að allt of
mikið hefði verið gert úr þessu
máli. Hann sagði að þeir Kristján
Framhald á bls 22.
Óvíst hvort
Norglobal
kemur
NO ER óvfst hvort norska
bræðsluskipið Norglobal fæst
leigt til loðnubræðslu við Is-
land á komandi loðnuvertfð.
Framkvæmdastjóri Norglobal,
Jan Fossbakk f Tromsö, stað-
festi þetta f samtali við Morg-
unblaðið f gær og sagði ástæð-
una vera vaxandi þrýsting sjó-
manna og útgerðarmanna
norskra loðnuskipa, sem vilja
hafa skipið f eigin þágu. — A
sfðustu loðnuvertfð tók
Norglóbal á móti um 65 þús-
und lestum af loðnu af 400
þús. lesta heildarafla og var
útflutningsverðmæti afurð-
anna úr skipinu 550 milljónir
króna.
Jan Fossbakk sagði i samtal-
inu við Morgunblaðið, að
norskir sjómenn og útgerðar-
menn vildu hafa Norglobal
fyrir utan strönd Finnmarkar í
Noregi i vetur á meðan loðnu-
vertíðin stæði yfir þar, þar sem
Framhald á bls 22.
MIKIL óánægja er rfkjandi
meðal kartöflubænda f Þykkva-
bænum með kartöfluverðið sem
ákveðið var á dögunum. Hefur
Mbl. fregnað það, að ýmsir bænd-
ur f Þykkvabænum vildu setja
sölubann á kartöflur til Græn-
metisverzlunarinnar þar til
leiðrétting hefði fengizt. Ingvi
Markússon á Parti, formaður
Félags kartöfluframleiðenda f
Þykkvabænum, sagði f samtali við
Mbl. f gær að engar slfkar aðgerð-
ir hefðu verið ákveðnar. Sagði
Ingvi það rétt vera, að bændur
teldu verðið alltof lágt, en það er
að meðaltali 56,67 krónur til
bænda hvert kg. Telja bændur að
verðið þurfi að vera 80—85
krónur kg en það er 41—50%
hækkun. Ingvi staðfesti, að engar
kartöflur hefðu verið afgreiddar
til Grænmetisverzlunarinnar f
þessari viku.
Ingvi sagði að Félag kartöflu-
framleiðenda hefði sent landbún-
aðarráðuneytinu bréf með beiðni
um breytingu á reglugerð þess
efnis að 2. flokkur yrði færður
niður um 2 millimetra. Væri það
mikið hagsmunamál bænda að fá
þetta f gegn, en ekkert svar hefði
borizt frá ráðuneytinu. Þegar
Mbl. talaði við Ingva í gærkvöldi,
Stækkun álversins:
Ákvörðun
tekin inn-
an 6 vikna
,,F,G á von á þvf að ákvörðun um
stækkun álversins verði tekin
innan 6 vikna,“ sagði Ragnar
Halldórsson forstjóri Isals f sam-
tali við Mbl. f gær.
Svo sem kunnugt er af fréttum
liggur fyrir heimild um stækkun
álversins sem nemur 10 þúsund
tonna ársframleiðslu. Ef stækkun
verður ákveðin, verður skáli 2
lengdur þannig að hann verði
jafnstór skála 1. Verður kerjum
fjölgað um 40 þannig að þau verði
samtals 320. Þegar þau verða öll
komin í gagnið verður fram-
leiðsluaukning verksmiðjunnar
14,3% miðað við það sem áður
var.
Aðalforstjórar Alusuisse eru
væntanlegir til landsins í nóvem-
ber og verður hugsanleg stækkun
álversins vafalaust ofarlega á
baugi á fundum þeirra hér.
Alverð hefur farið ört hækk-
andi á heimsmarkaði að undan-
förnu, og er það helzta ástæðan
fyrir því að stækkun álversins
kemur nú sterklega til greina.
var hann að ljúka kartöfluupp-
töku. Kvaðst hann ætla að halda
til höfuðborgarinnar í dag til að
ræða við ráðamenn landbúnaðar-
ins um málefni kartöflubænda I
Þykkvabænum.
Ingvi sagði að allur tilkostnaður
við kartöflurækt hefði aukizt stór-
lega á síðustu árum, áburðar-
kostnaður t.d. um 116% á s.l.
tveimur árum og vélar hefðu
hækkað um 500% á s.l. fjórum
árum. Hefði kartöfluverð ekki
hækkað nándar nærri eins mikið
og tilkostnaðurinn og væri þetta
vissulega bagalegt, sérstaklega í
árferði eins og nú, þegar upp-
skeran væri lítil.
Þegar Mbl. bar undir Ingva
sögusagnir um að einstaka
bændur vildu kanna hvort hægt
væri að selja framleiðsluna til
útlanda til að fá réttlátt verð,
kvað hann það lausasagnir, sem
ekki væri takandi mark á.
Mælt hjá Breta:
76% aflans
var stór-
þorskur
STARFSMENN Landhelgis-
gæzlunnar fóru I gær um borð I
tvo brezka togara, sem voru á
veiðum undan Suð-Austurlandi,
nánar tiltekið útaf Seley, til að
kanna aflasamsetningu. Voru
þetta togararnir Ross Altair H-
279 og Ross Trafalgar H-279.
Þegar Mbl. ræddi við Gunnar
Ólafsson í stjórnstöð Landhelgis-
gæzlunnar í gær lágu fyrir niður-
stöður um afla Ross Trafalgar. Af
Framhald á bls 22.
Hvolfþakshús fyrir andabú
hitað með vindmylluafli
A Eystri-Hellum I Gaulverjabæ
er risið nýstárlegt hús. Það er
205 rúmmetra hvolfþakshús,
sem í fyrstu verður notað fyrir
andabú en siðar sem gróður-
hús. Einar Þorsteinn Asgeirs-
son, arkitekt, hefur hannað
húsið en hann sýndi lfkön af
slfkum húsum á sýningu f
fyrra. Astráður Guðmundsson,
bóndi, trésmiður og Ifkan-
smiður sem býr á Hellum,
hefur reist húsið og hyggst
byggja slfk hús fyrir aðra lfka,
enda þegar komnar pantanir
um 3 hús og enn stærri sem
Einar Þorsteinn er að gera
áætianír um.
Jafnframt þvf hefur hann
gert líkan og tilraunir með sér-
staka gerð af vindmyllum eins
og farið er að nota í Banda-
ríkjunum, Frakklandi og
Kanada, og hyggst Astráður
hita upp hvolfhúsið með raf-
magni frá vindmyllunni.
Myllan er ekki hin hefðbundna
vængjamylla, heldur leikur á
lóðréttum ási.
Framhald á bls 22.
Grindín að hvolfþakshúsinu, sem reist var á Eystri-Hellum, ádur en hún var þakir.
Líkan af vindmyllunni, sem framleiða á
rafmagn fyrir andabúið á Kystri-Hellum.