Morgunblaðið - 16.12.1976, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
277. tbl. 63. árg. FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gary Gilmore
Aftöku
Gilmore
frestað
Salt LakeCity, 15. desember. Reuter.
GARY Gilmore verður leiddur
fyrir aftökusveit 17. janúar
samkvæmt úrskurði f dag og
hann kallaði dómarann, sem
tók ákvörðunina, raggeit fyrir
að fresta aftökunni í einn
mánuð.
Þar með hefur verið ákveðið
f annað en ef til vill sfðasta
skipti að fresta aftökunni sem
Gary Gilmore krefst að fari
fram og verður fyrsta aftakan f
Bandarfkjunum f 10 ár ef af
henni verður.
Ákvörðunina í dag tók
Robert Bullock sem dæmdi
Gilmore til dauða f október
fyrir að myrða hótelstarfs-
mann. Gilmore hafði farið
fram á að hann yrði þegar í
stað tekinn af lifi.
Bullock ákvað í þess stað að
fresta aftökunni f 30 daga svo
Framhald á bls. 26
Reynt að smygla
10 kllóum af hero-
ini til Finnlands
Helsinki 15. des. Ntb.
FINNSKIR tollverðir fundu í dag tíu kílð af herðini í
farangri tveggja manna frá Singapore, sem komu til
Helsinki með flugvél. Söluverð þessa eiturs er um 40
milljónir finnskra marka eða hátt í tvo milljarða ísl.
krðna. Eitrið var falið í 28 niðursuðudðsum og fannst við
venjulega öryggisleit, sem hefur verið efld mjög I
Finnlandi upp á sfðkastið.
Finnska tollgæzlan telur ekki,
að ætlun Singaporemannanna
hafi verið að reyna að selja allt
þetta magn í Finnlandi, heldur
hafi Helsinki verið einn af fleiri
áfangastöðunum, og sennilega
hafi hluti herófnsins átt að fara til
Danmerkur, Svfþjóðar og Noregs.
Tollverðir í Helsinki hafa hvað
eftir annað lagt hald á heróín upp
a síðkastið og vegna þessa hefur
eftirlit verið hert á flugvöllum og
á landamærastöðvum. Þetta er þó
langmesta magn sem náðst hefur
í einu að því er segir í Ntb-
fréttum.
Minnstu munaði að smyglurun-
um tækist að komast út úr flug-
stöðinni án þess að grunur vakn-
aði i þeirra garð. Af einhverri
ótiltekinni ástæðu fengu þó toll-
verðir grun á mönnunum tveimur
og hófu leit í farangri þeirra.
Fréttir Ntb-fréttastofunnar
herma að finnska tollgæzlan
harmi að fréttirnar hafi spurzt út
þar sem auðveldara hefði verið að
rannsaka málið áfram ef ekki
hefði spurzt út um það strax.
Talsmaður finnsku tollgæzlunn-
ar sagði, að smyglurum ætti nú
senn að fara að skiljast að þar
væri eftirlit orðið svo strangt að
eiturlyfjasmyglarar myndu hafa
vit á að forðast að reyna að kom-
ast með eiturlyf inn í landið.
Ekkert lát er á óeirðum á vesturbakka Jórdanár. Israelskir hermenn
skutu I gær arabfskan ungling þegar þeir bældu niður mótmæla-
aðgerðir f úthverfum Jerúsalems og flestar verzlanir voru iokaðar.
Myndin sýnir fsraelska hermenn hjálpa félaga sfnum sem særðist f
óeirðum f Kalandiya.
Bretar lækka útgjöld
um 2,5 milljarða punda
London, 15. desember. Reuter.
BREZKA stjórnin boðaði f dag
2.5 milljarða punda niðurskurð
rfkisútgjalda á næstu tveimur ár-
um til að tryggja vfðtæka erlenda
aðstoð.
Rádherra biðst
lausnar í Bonn
Bonn, 15. desember. AP. Reuter.
HELMUT Schmidt var endur-
kjörinn kanzlari með naumum
meirihluta f neðri deiid vestur-
þýzka þingsins f dag og skömmu
síðar sagði Walter Arendt, verka-
lýðs- og féiagsmálaráðherra sig úr
stjórninni.
Herbert Ehrenberg var skipað-
ur eftirmaður Arendts sem hefur
sætt harðri gagnrýni fyrir að
fresta 10% hækkun ellilauna sem
var eitt heizta baráttumái sósfal-
demókrata í kosningunum 3.
október.
Stjórnin samþykkti þessa
ákvörðun en dró hana til baka á
föstudaginn þótt óttazt sé að
hækkunin, sem á að taka gildi 1.
júlí, geti torveldað tilraunir til
að grynnka á glfurlegum skuldum
sem fyrirsjáanlegt er að eftir-
launasjóður rfkisins kemst i og
Arendt hefur verið gagnrýndur
fyrir.
Stjórn Schmidts hefur haldið
því ákveðið fram að Arendt yrði
áfram í stjórninni svo að það kom
á óvart þegar tilkynnt var
Framhald á bls. 26
Denis Healey fjármálaráðherra
sagði á þingi að aðalforstjóri
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, dr.
Johannes Witteveen, styddi ráð-
stafanirnar, en tveggja centa
lækkun pundsins á gjaldeyris-
mörkuðum þykir sýna að þær séu
ekki taldar nógu róttækar.
Niðurskurðurinn nær til land-
varna. aðstoðar við erlend rfki,
skóla, húsnæðismála og mennta-
mála. Tollar verða hækkaðir á
tóbaki og áfengi. Þegar Healey
hafði lokið ræðu sinni voru gerð
hróp að honum frá bekkjum
stjórnarandstæðinga og vinstri-
sinna úr flokki hans sem kröfðust
þess að hann segði af sér.
Healey sagði að dr. Witteveen
væri reiðubúinn að mæla með að
IMF samþykkti beiðni Breta um
3.9 milljarða dollara lán. Hann
sagði að Bretar gætu fengið fyrsta
milljarðinn fyrst í janúar og ann-
an milljarðinn í árslok 1977. Jafn-
framt mundu Bretar taka boði
Bandaríkjanna um 500 milljón
dollara til að treysta varagjald-
eyrissjóðinn og vestur-þýzku boði
um 350 milljón dollara.
Auk þess kvaðst Healey eiga
von á alþjóðlegu samkomulagi
fljótlega til" að treysta innstæður
útlendinga i London I pundum,
alls að upphæð sex milljarðar
punda. Varagjaldeyrir Breta
nemur nú 3.6 milljörðum dollara
og hefur ekki verið minni í fimm
ár. Lánin munu auðvelda
Englandsbanka að verja pundið
ef það kemst í hættu.
Seinna sagði Healey á blaða-
mannafundi að IMF hefði kynnt
sér efnahagshorfur Breta eins
rækilega og hægt væri og lánveit-
ingin sýndi að Bretar nytu trausts
erlendra ríkisstjórna og stofnana.
Framhald á bls. 26
Samningar Bandaríkjanna
og EBE hafa siglt 1 strand
Briissel, 15. desember. AP
VIÐRÆÐUR Bandarfkjanna og
Efnahagsbandalagsins um 200
mflna fiskveiðilögsögu hafa siglt
f strand vegna þess að Banda-
rákjamenn vilja ekki útiloka
þann möguleika að fangelsa land-
helgisbrjóta.
og fremst áhugamál Evrópu-
manna þar sem þeir veiða meira á
bandarískum miðum en Banda-
Framhald á bls. 26
10% hækkunar
á olíuverdinu
Minnst
krafizt
Doha, Qatar, 15. desember. Reuter.
Olfuráðherrar Lfbýu,
Venczúela og Iraks sögðu eftir
fyrsta fundinn á ráðstefnu Sam-
taka olfuframleiðslulanda
(OPEC) f Qatar f dag að þeir
væru þess fullvissir að samkomu-
lag tækist um nýja olfuhækkun á
næsta ári þrátt fyrir þá yfirlýs-
ingu Ahemd Zaki Yamani, olfu-
ráðherra Saudi-Arabfu, að hann
muni beita sér fyrir óbreyttu
olfuverði f sex mánuði.
A fundinum í dag hvöttu íran,
írak, Libýa og Alsir til meira en
10% hækkunar, Iran stakk upp á
25% hækkun en Saudi-Arabía
lagði til að frysting verðsins frá
þvi I október 1975 yrði framlengd
i sex mánuði i viðbót. Fulltrúi
íraks sagði blaðamönnum að af-
staða Saudi-Arabíu væri aðeins
„byrjunarleikur."
Oliuráðherra traks, Tayeh
Abdel-Karim, sem vill 25%
hækkun, sagði I dag að meirihluti
OPEC-ríkjanna vildi olíuhækkun
sem mundi að minnsta kosti halda
í við verðbólguna. Þar með er
talið að hann hafi átt við skýrslu
sem OPEC hefur sent frá sér og
segir að kaupmáttur OPEC-
landanna hafi minnkað um 26.9%
síðan oliuverðið var hækkað um
10% I október 1975.
Um yfirlýsingu Yamanis sagði
Abdel-Karim að það væri meiri-
hlutans að ákveða hvort hækka
Framhald á bls. 26
Talsmaður EBE kvað slfkt vera
f andstöðu við evrópska hefð og
venjan væri sú að sekta land-
helgisbrjóta og gera afla þeirra
og veiðarfæri upptæk.
Bandarisku samninga-
mennirnir sögðu að samkvæmt
lögunum um 200 milna fiskveiði-
lögsögu Bandaríkjanna væri gert
ráð fyrir þvi að hægt væri að
handtaka og stundum fangelsa
landhelgisbrjóta og það væri i
samræmi við bandariskar venjur.
Bandarikin og EBE eru einnig
ósammála um hvort leysa beri
ágreining með gerðardómi.
Bandarikjamenn telja slíkt brjóta
gegn lögunum um 200 mílna land-
helgi þeirra.
Samningurinn sem
viðræðurnar standa um er fyrst
Rólegar
kosningar
á Spáni
Madrid, 15. desember. Reuler. —AP.
STJORN Adolfo Suarez forsætis-
ráðherra á Spáni var spáð yfir-
burðasigri f þjóðaratkvæðinu sem
fór fram f dag um áætlanir henn-
ar um afnám einræðis Francos.
Þjóðaratkvæðagreiðslan ferfram í
skugga ránsins á Antonio de Oriol
y Urquijo, forseta ráðgjafanefnd-
ar rikisstjórnarinnar, sem skæru-
liðar maoista vilja aðeins sleppa f
Framhald á bls. 26