Morgunblaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 21
MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTÚbAGUR 16. DESEMBER 1976 21 Do Amaral, leiðtogi miðdemð- krata Sa Carneiro, leiðogi sóslaldemó- arata flokks hans hefur þó drjúgur hluti þjóðarinnar það mikið traust á flokknum að hann vill og trúir því að sá flokkur eigi að glíma við efnahagsástandið í land- inu. Sú ákvörðun Soaresar að láta mjög umdeildan ráðherra land- búnaðarmála, Lopes Cardoso, vlkja úr embætti fyrir skömmu og eiga þar með á hættu að fylgis- menn Cardosos sneru baki við flokknum, sýndi töluvert hug- rekki, sem gefur ef til vill fyrir- heit um að Soares sé að sækja í sig veðrið og muni verða aðsópsmeiri í framtíðinni. Skipan Antonios Barretos, viðskiptaráðherra, í starf landbúnaðarráðherra hefur mælzt betur fyrir en margir þorðu að vona og það er skoðun margra I Portúgal, að takist að efla landbúnaðinn og auka fram- leiðslu hans I landinu sé mikið unnið. Kommúnistaflokkurinn bætti verulega stöðu sína frá því í þing- kosningunum, fékk nú um 18% og miðað við úrslitin i þingkosn- ingunum er það veruleg aukning. Oft hefur verið jafnað til þeirra 7% sem frambjóðandi flokksins, Octavio Pato, fékk í forsetakosn- ingunum. Það er ekki alls kostar réttur samjöfnuður, þar sem Ot- elo Carvalho fékk 16% og er talið vist að fjölmargir fylgismenn kommúnista hafi veitt honum at- kvæði sitt vegna megnar óánægju með Pato, sem þótti litt verðugur frambjóðandi. Fylgisaukning kommúnista er ögn meiri en sem svarar því sem Sósíalistaflokkurinn missti og getur það komið mæta vel heim og saman við það, að óánægðir sósíalistar, sem finnst Mario Soar- es ekki hafa sýnt nægilega rót- tækni, hafi því hallazt að komm- únistum nú i þessum kosningum. Sósialdemókratar undir forsæti Francisco Sa Carneiros (hétu áð- ur alþýðudemókratar) fengu 24% eða svipað og í þingkosningunum og miðdemókratar undir forsæti Freitos do Amarals fengu um 16%, einnig mjög áþekkt hlutfall og I aprilkosningunum. Hvor tveggja úrslit benda til að þessir flokkar hafi ekki sýnt það mikið harðfylgi I stjórnarandstöðu að til þeirra flykktust nýir kjósendur að svo stöddu. Hafa þó báðir flokkar haldið uppi talsvert hressilegri gagnrýni á Soares- stjórnina siðan hún settist að völdum. Niðurstaða þessara kosninga mun sjálfsagt ekki skipta neinum sköpum I Portúgal. Fylgisaukning kommúnista er ekki það veruleg að þeirra áhrif ættu að aukast neitt að marki. Fylgisaukning Framhald á bls. 29 Teikning skv. lýsingu Stewarts og Margulis á Hughes á banabeðinu. Þar kemur m.a. fram að Hughes var andlega kvalinn og ruglaður, en skeytti engu um hirðu likama sins og útlits, að hann fékk stundum köst sem nálguðust hreina geðveiki, bjó við hálf- gerðar fangelsisaðstæður og lézt sökum skorts á nýrnavél, sem hans eigin læknisfræðirann- sóknarstofnun hafði hjálpað til að smfða. Hughes var orðinn eiturlyfja- neytandi og sprautaði sig með einhverjum lyfjum mörgum sinn- um á dag, sem gerðu hann ruglað- an og syfjaðan. Ekki er vitað hvaða lyf var hér um að ræða, en meðan hann var í Las Vegas tók hann stóra skammta af Valium á degi hverjum. Utlit Hughes var hroðalegt. Tætingslegt skegg náði niður á maga og hárið niður á mitt bak. Neglurnar á fingrum hans urðu allt að 5 cm langar og táneglurnar liktust stundum tappatogara, er þær voru sem lengstar. Hann var oftast allsnakinn eða i þunnum nærbuxum. Þrisvar á þessu tíma- bili hitti hann gesti að máli og lét þá raka sig og þrifa. Þrátt fyrir að 4 læknar önnuð- ust hann reglulega var heilsa hans ömurleg. Hann var fyrir nokkrum árum 190 cm á hæð, en hafði lækkað niður i 182 cm og vó aðeins 58 kg. Hann þjáðist af gigt og minnisleysi og stöðugum melt- ingar- og hægðatruflunum og sat eitt sinn 72 klukkustundir sam- fellt á salerni. Eftir að hann fór frá Banda- ríkjunum 1970 hætti hann að fylgjast með fréttum og vissi stundum ekki hvaða mánuður var. Eina, sem hann gerði, var að liggja upp i rúmi eða sitja i stól og horfa á kvikmyndir og yfirleitt sömu myndirnar aftur og aftur og hafði t.d. er hann lézt séð mynd- ina Ice Station Zebra 150 sinnum. Hann drakk ekkert nema lindar- vatn, sem tekið var á flöskur á vorin i Mainefylki. Ferðalög hans og leyndin, sem yfir öllu varð að hvíla, kostaði um 150 milljónir dollara á ári. Hughes bjó sjálfur til þá einangrun, sem hann dvaldist i siðustu árin, en að sögn þeirra Stewarts og Marguils reyndu læknarnir og aðstoðarmenn hans sex, sem allir voru mormónar, ekkert til þess að fá hann til að breyta lífsháttum sínum sem hreinlega leiddu hann til dauða. Þeir hafa algerlega neitað að svara öllum spurningum, en munu þurfa að koma fyrir rétt í sambandi við deilurnar um erfða- skrá Hughes og þeim 14 málum, sem höfðuð hafa verið á hendur fyrirtækjum Hughes. Er talið að mörg ár muni líða þar til allt verður komið á hreint um dánar- bú hans og þá 2,3 milljarða dollara, sem talið er að hann hafi látið eftir sig. Hughes var um 70 ára er hann lézt og hafði þá ekki sézt opinberlega um nær 25 ára skeið. Snyrtistofan Sólheimum 1 Hef opnað snyrtistofu að Sólheimum 1, sími 36775. Andlitsböð Augnbrúna- og Húðhreinsun augnháralitun Handsnyrting Augnbrúnaplokkun Fótsnyrting Vaxmeðferð. Kvöldföðrun Þórdís Lárusdóttir, snyrtisérfræðingur. snjódekk Sérstök Volvo snjódekk, negld og ballanséruð, tilbúin á felgum fyrir Volvo árgerðir 1975, ’76 og '77. Kynnið yður verð og kjör. Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200 SÉRA GUNNAR BENEDIKTSSON HEFUR ALDREI VERIÐ HREIN- SKILNARI OG OPINSKÁRRI UM EINKAMÁL SÍN OG ÆVIKJÖR EN í ÞESSARI BÓK. FRÁSAGNARGÁFA ÞESSA BYLT- INGARSINNAÐA KLERKS ER ÞJÓÐKUNN, PENNI HANS LÉTTUR EN HVASS. Góð bók er gulli betri ÖRN OG ÖRLYGUR Vesturgötu 42, Sími: 25722

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.