Morgunblaðið - 16.12.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976
Nýr bátur
til Þingeyrar
Þingeyri —15. desember
NÝSTOFNAÐ hlutafélag
Sæhrímnir hefur fest kaup á bát
úr Grindavfk — Sigurberg GK 85,
sem gerdur verður út frá Þingeyri
undir nafninu Sæhrfmnir IS 100.
Báturinn er eikarbátur, smfðaður
1 Danmörku 1955 og er 51 tonn.
Hluthafar að Sæhrímni eru
fimm, þeir Páll Björnsson, skip-
stjóri og stjórnarformaður, Haf-
steinn Aðalsteinsson, stýrimaður,
Njáll Torfason, vélstjóri,
Sigurður Þ. Gunnarsson, landfor-
maður og Páll Pálsson, sem mun
annast bókhald útgerðarinnar.
Áformað er að báturinn leggi upp
afla sinn í hraðfrystihúsi Kaup-
félags Dýrfirðinga.
Báturinn hreppti hið versta
veður á leiðinni hingar en hinir
nýju eigendur létu mjög vel af
sjóhæfni skipsins.
— Hulda.
Sambandsleysi
eftir að sjálf-
virkni síminn
var tekinn
í notkun
Björk, Mývatnssveit,
14. desember.
FYRIR sfðustu helgi voru 10 hús
f Vogahverfi tengd við sjálfvirku
sfmstöðina f Reykjahffð. Ekki
tókst nú þessi endurbót hjá okkur
í sfmamálum betur en svo f byrj-
un að í gær voru fimm húsanna
orðin sambandslaus vegna bilun-
ar og er svo enn. En vonandi
kemst sfminn fljótlega f lag aftur.
Fyrr á þessu ári var Reykja-
hlfðarhverfið, Kfsiliðjan og
Krafla tengd við sjálfvirku sfm-
stöðina f Reykjahlfð. Stöð þessi er
gerð fyrir 100 númer og er nú
þegar búið að ráðstafa þeim öll-
um. Þannig að nýir notendur geta
ekki vænst þess að fá sjálfvirkan
sfma, nema stöðin verði stækkuð
fyrst. — Kristján.
INNLENT
Ljósm. Þórir Guðmundsson.
Tíu ára
dreng-
ur lær-
brotnar
UM kvöldmatarleytið f gærkvöldi
höfðu orðið 17 umferðaróhöpp f
Reykjavfk frá þvf f gærmorgun
Þrír slösuðust f þessum óhöppum.
Langalvarlegasta slysið varð
klukkan 12,25 f gærdag, þegar 10
ára drengur varð fyrir bíl á Hofs-
vallagötu. Lærbrotnaði drengur-
inn. Myndin sýnir þegar drengur-
inn er fluttur af slysstað.
að bæjarstjórnin
detti á undan mér”
99
Húsavfk, 15. des.
FYRSTU verulegu snjóa þessa
vetrar gerði í byrjun desember-
mánaðar, en síðan um helgi hefur
verið hér þíðviðri og hálka mikil á
gangbrautum. í morgun, þegar
hagyrðingurinn landskunni, Egill
Jónasson, var á leiðinni út á
bæjarskrifstofu kom I huga hans
þessi visa.
Nú er hfilka hvar um fold ég fer,
á fjörunni þó nógur sandur er.
1 einlægni þvf bænir fram ég ber,
að bæjarst jórnin detti & undan mér.
Vísuna skildi Egill eftir í bæjar-
skrifstofunni. _ FrétUr„„,.
íbúðarskúrar fuku á
2 bíla og eyðilögðu þá
Kiðafelli 15. desember
I nótt var hér ofsarok, það mesta
sem komið hefur á þessum vetri,
svo mikið að íbúðarskúrar, sem
vegagerðarmenn hafa búið í í
sumar, fuku um og lentu á tveim
bílum, sem stóðu í námunda við
þá. Annar bíllinn gjöreyðilagðist,
en hinn er mjög illa farinn. Til
þess að forðast meira tjón var
Einn af mjölgeymunum 6 I
örfirisey er þegar kominn f
fulla hæð, og byrjað er á
hinum fimm. Þegar farið verð-
ur að geyma mjölið I þeim
verður mjög auðvelt að skipa
þvf út, en þá verður þvf dælt
um borð f flutningaskipin.
Ljósm. Mbl.RAX
stórum malarbílum ekið að skúr-
unum, sem uppi stóðu og voru
þeir bundnir við bflana. Einn
skúranna gjöreyðilagðist er hann
fauk.
Skúrarnir voru tjóðraðir niður
með tunnum, fylltum af möl.'Þó
var það ekki nóg.
Nú er lokið við að bera slitlag á
nýja kaflann, svo að umferð um
hann mun hefjast á
næstunni. Hjaiti.
Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan h.t
reisir 6 geyma undir fiskimjöl
Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan h.f. er um þessar
mundir að reisa sex 200 tonna mjölgeyma við síldar- og
loðnuverksmiðju fyrirtækisins f Örfirisey og er þetta í
fyrsta sinn á íslandi sem fiskimjöl verður geymt laust í
tönkum, en hingað til hefur það ávallt verið sekkjað í 50
kílóa poka.
Að sögn Jónasar Jónssonar, for-
stjóra Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjunnar, þá verður hægt að
geyma 1000 tonn af mjöli í geym-
unum, en einn geymirinn þarf
alltaf að vera tómur, ef ofhitun í
mjöli verður í einhverjum þeirra.
Ef það kemur 'fyrir, er mjölinu
dælt á milli og við það kólnar það
á ný, en sjálfvirkur útbúnaður
mun fylgjast með hitastigi í mjöl-
inu.
— Mér hefur veríð það ljóst í
mörg ár, að laust mjöl er það sem
koma skal og sjálfur hefði ég vilj-
að byrja á þessu fyrir löngu, en af
ýmsum ástæðum, aðallega fjár-
hagsástæðum höfum við ekki
treyst okkur til þessa fyrr en nú.
Enn vitum við ekki hvenær tekst
að ljúka verkinu, en það verður
ekki á loðnuvertíðinni. Þá sagði
Jónas, að þegar fram í sækti hefði
það sparnað í för með sér að
geyma mjölið laust. T.d. spöruð-
ust umbúðirnar, en 50 kg. mjöl-
poki úr pappír kostar nú hátt í
100 krónur.
— Ennfremur hafa margir stór-
ir mjölkaupendur hætt að kaupa
annað en ósekkjað mjöl og er það
alltaf að aukast að menn kaupi
eingöngu ósekkjað mjöl. Með
þessu má segja, að við séum að
færa út markaðinn. Hins vegar
höfum við ekki hugsað okkur að
hætta alveg að selja sekkjað mjöl.
Ymsir smærri kaupendur vilja fá
það þannig. Þá getum við ekki
framleitt eingöngu ósekkjað mjöl,
til þess eru geymarnir ekki nógu
margir. Á hinn bóginn höfum við
áætlað að selja það örar til að nýta
geymanna sem bezt, en það fer
eðlilega eftir markaðsástandi á
hverjum tíma, hve ört við getum
selt það, sagði Jónas að lokum.
Lyflæknis-
deildin í
nýja álmu
Akranesi 15. des. 1976
HINN 10. des. s.l. var ný lyf-
læknisdeild tekin í notkun i
Sjúkrahúsi Akraness. Þetta er 6.
áfangi nýbyggingar sjúkra-
hússins, sem er afhentur. Lyf-
læknisdeildin er með rými fyrir
30 sjúkrarúm, ásamt setustofu og
nauðsynlegum þjónustuher-
bergjum. Einnig eru þarna bóka-
söfn lækna og sjúklinga. Heilsu-
gæslustöð var tekin til starfa í
Framhald á bls. 26
SKÍRNIR — elzti núlif andi
fjölmiðill íslendinga 150 ára
Sigurður Lfndal, forsetl Hins fslenzka bókmenntafélags, Þorsteinn Gylfason, Úlafur Pálmason og
Úlafur Jónsson, rftstjóri Skfrnis, á fundi með fréttamönnum I gær. (ljósm. Mbl. Úl. K. Mag.)
á þessu ári og f gær boðuðu
forystumenn þess fréttamenn á
sfnn fund. Var þar greint frá
þáttum f sögu Skfrnis, nýút-
komnum Skfrni og fleiri atr-
iðum f starfi félagsins.
Skfrnir kom fyrst út árið 1827
og hefur komið út allar götu
sfðan, að einu ári undanskildu.
Sigurður Lfndal, forseti Hins
fslenzka bókmenntafélags,
rakti sögu Skfrnis, en Ólafur
Jónsson, ritstjóri Skfrnis,
greindi frá nýútkomnu hefti
Skfrnis. Flytur Skfrnir 1976
meðal annars grein eftir Ólaf.
sem nefnist „150 ár“, en ritið er
að þessu sinni 285 blaðsáður og
rita auk Ólafs þau Ragnheiður
Heiðreksdóttir, Vésteinn Ólafs-
son, Kristjan Albertsson, Þórir
Ólafsson, Þór Whitehead,
Helga Kress, Sveinbjörn Rafns-
Framhald & bls. 26
ELZTI núlifandi fjölmiðill hér
á landi er 150 ára um þessar
mundir, er það SKlRNIR, tlma-
rit Hins fslenzka bókmennta-
félags. Félagið sjálft er 160 ára
Rasmus Kristján Rask — helzti
hvatamaðurinn að stofnun
Hins fslenzka bókmenntafélags
fyrlr 160 árum.