Morgunblaðið - 16.12.1976, Page 14

Morgunblaðið - 16.12.1976, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ;TIMMTUDAG(íK~16. DESEMBER 1976 velli og íþróttasal og eftirlit með gerðum þeirra er i lágmarki. Fangarnir vinna flestir i hanzka- verksmiðju innan búðanna og svo við ýmis þjónustustörf. Þeir eru alls 360 og búa i hermannabrögg- um, sem innréttaðir eru sem svefnskálar. John Hadden yfirfangavörður sagði nýlega við fréttamenn að Ehrlichmann væri fremur þögull Maðurínn í mið- stöðvarklefanum Ehrlichmann byrjaður að afplána refsingu sína FYRIR tveimur árum var John Ehrlichmann einn valdamesti maður Bandarfkjanna sem nánasti samstarfsmaður Nixons forseta, í dag afplánar hann 30 mánaða fangelsisvist 1 Swift Trail-fangelsinu f Safford f Ari- zona með þvf að annast 6 mið- stöðvarkatla, sem halda hita f fangelsinu, auk þess sem hann hefur eftirlit með skólpkerfinu. Ehrlichmann byrjaði að afplána refsingu sfna i lok október sl. og mætti 4 dögum fyrr en dómarinn hafði fyrirskipað til að losna við fréttamenn. Swift Trail-fangelsið líkist fremur hermannabúðum en fangelsi, engir veggir umlykja það, enginn gaddavír og engir varðturnar. Þær 30 ekrur, sem búðirnar standa á, eru aðeins merktar með skiltum: „Stanz, landamerki". Fangarnir, sem flestir eru Mexíkanar, sem dæmd- ir hafa verið fyrir að koma inn í Bandarikin á ólöglegan hátt, hafa afnot af tennisvelli, baseballvelli, handboltavelli, 18 holu smágolf- Ehrfichmann og Swift Trail-fangelsið. og niðurdreginn og héldi sig mest út af fyrir sig, en léki þó öðru hverju tennis og gripi í spil með samföngunum. Hadden sagði að menn virtu löngun Ehrlichmanns til að fá að vera í friði, hann væri kurteis við þá en héldi þeim í hæfilegri fjarlægð. Hann hefur unnið um helgar ög boðizt til að taka vaktir í veikindaforföllum annarra fanga og farið fram á það að verða fastur á næturvaktinni f miðstöðvarklefanum. Gott mataræði er í fangelsinu og Ehrlichmann að sögn jafn- þybbinn og hann var þótt þarna séu ekki Sans Souci-matseðlar í boði eins og i Washington. Ehrlichmann kom með sfna eigin biblíu í fangelsið og er að sögn eins meðfangans mjög trúrækinn. Hann klæðist kakhibuxum og skyrtu eins og aðrir fangar og varð að raka af sér skeggið, sem hann safnaði eftir Watergateupp- ljóstrunina. Hadden fangavörður segir, að það kæmi sér ekki á óvart þótt Ehrlichmann hefði í huga að skrifa bók um dvöl sfna í fangelsi, hann yrði væntanlega búinn að afplána refsingu sína um páska 1977. Leitinni að Nessie lokið í ár Byrjað á ný strax eftir áramót LEITINNI að Nessie, Loch Ness- skrfmslinu svokallaða, er lokið f ár og birtu leiðangursmenn New York Times og Bandarásku vís- indaakademfunnar niðurstöður athugana þessa umfangsmikla vfsindaleiðangurs f tímaritinu TECHNOLOG Y Rewiev um síð- ustu mánaðamót. Þar segir að þótt árangurinn hafi óneitanlega valdið vonbrigðum hafi hann ekki orðið til þess að draga kjarkinn úr mönnum. Leiðangur þessi, sem var fullkomnasta vísindatilraun til þessa til að ráða Loch Ness- gátuna, var að störfum við Loch Ness í allt sumar og fram á haust án þess að tækist að finna nýjar sannanir til að skýra þetta dular- fulla og þjóðsagnakennda fyrir- bæri. Leiðangursmenn notuðu við rannsóknir sfnar fullkomnustu bergmálstæki, sem völ var á, og fullkomnasta ljósmynda- og kvik- myndabúnað til töku neðan- sjávar. Alls voru teknar 108000 myndir, en aðeins 33 þeirra sýndu eitthvert lff, fiska eða ála. Það sem vakti hvað mesta athygli leiðangursmanna var hve litið var af fiski á grunnslóðum í vatninu og telja þeir hugsanlega skýringu á því að hinir miklu þurrkar sumarsins hafi lækkað vatnsyfirborðið svo mikið, að lax- inn hafi ekki lagt úr djúpinu f hefðbundna hrygningarleiðangra. Nær enginn lax hafi verið á Heimsmeist- arakeppnin í skák 1978 Næsta einvígi um heims- meistaratitilinn í skák fer fram árið 1 978, en margir eru þegar farnir að velta fyrir sér hver muni verða áskorandi núver- andi heimsmeistara, Karpovs frá Sovétríkjunum Snemma á næsta ári hefst keppni 8 manna um það hver eigí að tefla við Karpov um titilinn. Þessir 8 menn heyja fyrst 4 einvigi og tefla 1 2 skák- ir. Sigurvegararnir halda áfram keppni, en hinir 4 falla úr. Fjórmenningarnir, sem halda Tafllok Hvítur leikur og vinnur. eftir GUNNAR GUNNARSSON áfram, tefla síðan í tveimur einvígjum 1 6 skákir. Þeir tveir, sem eftir standa þá, tefla síðan til úrslita um áskorendaréttinn 20 skákir. Ef keppendur verða jafnir í einhverju þessara ein- víga, tefla þeir áfram þar til annar hvor vinnur skák. í sumar s.l. voru haldin tvö millisvæðamót til keppni um 6 sæti af þessum 8 í áskorenda- flokki. Tveir skákmenn þurftu ekki að tefla um þannan rétt, vegna þess þeir höfðu hann fyrir, en það voru þeir Fishcer, fyrrverandi heimsmeistari, og Kortsnoj, frá Sovétrikjunum, en hann varð nr. 2 í síðustu áskorendakeppni eftir mikla keppni víð Karpov. Sú keppni reyndist vera óbein keppni um heimsmeistaratitilinn, þar sem Fischer mætti ekki til leiks, sællar minningar. Þeir sex skákmenn, sem komust áfram úr millisvæðamótunum, voru Mecking frá Brazilíu, sem sigr- aði í Filippseyjum, Hort frá Tékkóslóvakíu og Polugaj evsky frá Sovét Sigurvegari í hinu mótinu, sem haldið var í Sviss var Larsen frá Dan- mörku, Petrosjan frá Sovét og Portisch frá Ungverjalandi. Þessir 8 skákmenn eru númeraðir eftir vissri reglu, þannig, að nr. 1 verður fyrrver- andi heimsmeistari, nr. 2 verð- ur sá sem varð nr. 2 í áskor- endakeppninni síðustu og nr. 3 til 8 verða keppendur eftir röð þeirra á millisvæðamótinu. Þannig verður nr. 3 sá sem varð nr. 1 í Filippseyjum, nr. 4 sem varð nr. 1 í Sviss og svo framvegis. Síðan er dregið um það hverjir fyrstu 4 í röðinni lepda á móti skákmönnum nr. 5 til 8. Og nú er búið að draga og útkoman var þessi: Fischer — Hort, Larsen — Portisch, Petrosjan — Kortsnoj, Meck- ing — Polugajevsky. Þessir keppendur eiga að tilkynna þátttöku fyrir 1. jan. 1 977. Þá er bara biða og sjá hvort Fischer mætir í þessa keppni og byrjar sömu hringrásina aft- ur, en sjaldan hefur einn skák- maður gjörsigrað svo andstæð- inga sína eins og Fischer gerði þá, þegar hann tefldi við Lar- sen og vann 6 — 0 og Taimanov sömuleiðis og siðan Petrosjan og endaði hér í Reykjavík með þvi að sigra Spassky. Mæti Fischer ekki til leiks á Spassky næsta rétt til keppni. Þeir Larsen og Portisch hafa« áður teflt saman í áskorenda- flokki og þá sigraði Larsen naumlega 5,5 á móti 4,5. Áður en Fischer veitti Larsen þessa ráðningu árið 1971, voru margir þeirrar skoðunar að Lar- sen ætti góða möguleika á heirrsmeistaratitlinum, en það tók Larsen talsverðan tíma að ná sér eftir það áfall, en hann virðist vera á uppleið aftur. Kortsnoj er nú landflótta i Hol- landi og teflir varla við Petrosj- an i Sovétríkjunum af ótta við að verða kyrrsettur þar. Polugajevsky teflir við Meck- ing, sem orðinn er nánast þjóð- hetja í sinu heimalandi, Brazi-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.