Morgunblaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 15
MORGÚNÖLAöJÐ, FIMMTUDA<JUIU6. DESEMBER 1976
15
„Við vorum undir sama
þaki svo til allan tímann”
Mary Hemingway gefur út bók um ár sín með nóbelsskáldinu
grunnslóðum til þess að draga
Nessie úr djúpinu f fæðuleit.
Hinn heimsfrægi neðansjávar-
ljósmyndari Charles Wyckoff seg-
ir að þrátt fyrir vonbrigði sfn sé
hann sannfærður um að eatthvað
leynist f djúpi Loch Ness og f
sama streng tekur leiðangurs-
stjórinn, dr. Robert H. Rines. Báð-
ir segja þeir að ýmislegt, sem
gerzt hafi í sumar, réttlæti enn
meiri umsvif og útgjöld á næsta
ári og þeir segjast munu halda
ótrauðir áfram, þar til þeir finni
eitthvað.
Það sem mesta athygli þeirra
vakti voru atvik 30. júnf og 1. júlf.
Þá daga varð stjórnandi berg-
málstækjanna, dr. Harold E.
Edgerton, var við merki um ferðir
einhvers stórvaxins fyrirbæris.
Hann lýsir þvf á eftirfarandi hátt:
„Eftir að þetta hafði hreyfzt f átt
til lands í u.þ.b. eina mfnútu frá
þvf að merkin fyrst komu fram á
mælunum stöðvaðist fyrirbærið
um 75 m frá tækjunum, hélt þar
kyrru fyrir i um eina mínútu en
byrjaði sfðan að fjarlægjast með
sama hraða og það hafði nálgazt.
Á mælapappírunum sjást einnig
tvö merki, sem gætu verið endur-
kast frá fiskum, sem hefðu orðið
fyrir styggð. Fyrirbæri þetta kom
því miður ekki nógu nálægt
neðansjávarvélunum til að það
festist á filmu. Sama sagan endur-
tók sig daginn eftir, en þá heyrð-
ist einnig í neðansjávarhátölurum
einhvers konar skrölthljóð."
Sem fyrr segir eru leiðangurs-
menn staðráðnir í að halda áfram
og verður byrjað í febrúar með
ljósmynda- og bergmálsbúnað-
inum, en er vorar á að senda
kafara niður með sjónvarpsöku-
vélar til þess að rannsaka ýmis
atriði á botninum, sem
leiðangursmönnum finnast for-
vitnileg og gætu hugsanlega gefið
einhverja skýringu eða leiðbein-
ingar. Er i athugun hvort hægt sé
að fá lftinn kafbát til aðstoðar.
Verður þvf enn bið á því að
leyndardómnum um Nessie verði
ljóstrað upp.
MARY Hemingway, ekkja
nóbelsskáldsins, Ernest
Hemingways, sem nú er 68
ára að aldri, gaf fyrir
skömmu út bók um þau 17
ár, sem hún átti með manni
sínum. Bókin „How it was“
hefur hlotið misjafna
dóma, en Mary lætur það
sér, að sögn, í léttu rúmi
Ernest og Mary Hemingway
skömmu fyrir lát hans.
liggja, þrátt fyrir að 8 ára
vinna liggi að baki. Frá því
að Mary kom að manni
sínum fyrir 15 árum, þar
sem hann lá í blóði sínu
eftir að hafa framið sjálfs-
morð með haglabyssu
hefur lif hennar verið ein
sjálfsblekking að því er
hún sjálf segir, hún hafi
aldrei getað viðurkennt
andlát hans, því að hennar
líf hafi verið svo stór hluti
af honum.
Mary segir um bók sfna, að auð-
vitað sé hún mjög persónuleg lýs-
ing á Hemingway en fullyrðir að
hún sé jafnframt raunsæ lýsing á
nóbelsskáldinu, þar á meðal sfð-
ustu erfiðleikaárum hans. „Það
hafa verið skrifaðar aðrar ævisög-
ur, en margar þeirra hafa verið
ónákvæmar. Ég var með mannin-
um dag og nótt, hann hafði ekki
skrifstofu, sem hann gat flúið í
eins og flestir menn, við vorum
undir sama þaki svo til allan tím-
ann.“
Fundum þeirra Mary og Ernest
Hemingways bar saman 1944, en
þá hafði hún verið stríðsfréttarit-
ari um nokkurt skeið fyrir Daily
Express og sfðar Time-Life.
Hemingway bað hennar f 2. skipti
sem þau hittust, en bæði þurftu
að ganga í gegnum skilnað áður
en þau giftust á Kúbu 1946, það
var 4. hjónaband hans og 3.
hennar.
„Ég hætti að vinna, því að ég
taldi að það yrði miklu athyglis-
verðara að búa með Ernest en
nokkurt annað starf, sem f boði
var og ég sé ekki eftir því.“
Mary minnist með mestri
ánægju samverustunda þeirra á
safariferðum um Afrfku þrátt
fyrir að þau hafi þá lent í tveimur
flugslysum, sem nærri kostuðu
þau lifið. Þau hjón eignaðust
engin börn saman, Mary missti
fóstur skömmu eftir giftinguna
og gat ekki átt börn eftir það, en
Hemingway átti 3 börn með fyrri
konum sfnum. Mary las bækur
manns síns, meðan hann var að
skrifa þær. en segist aldrei hafa
látið álit satt f ljós, nema hann
hafi spurt hana og viðurkennir
þó, að hún hafi beðið hann um að
láta ekki gamla kúbanska fiski-
manninn deyja f bókinni „Gamli
maðurinn og hafið" og Heming-
way þyrmdi lífahans.
Úm lff sitt með skáldinu segir
Mary, að Hemingway hafi aðeins
tvisvar á 17 hjónabandsárum
þeirra hagað sér verulega illa svo
að hún hafi hugsað um skilnað, en
viðurkennir að sfðustu árin hafi
hún stundum óttazt að hann
myndi ráða henni bana.
Mary Hemingway hefur á
undanförnum árum haft nóg að
gera við umsjón dánarbúsins.
Hún hefur séð um útgáfu 4 bóka
eftir lát skáldsins og gefið öll
skjöl hans til Kennedybókasafns-
ins. Hún skrifast á við bók-
menntafræðinga, sem hafa sér-
hæft sig f Hemingway, og hefur
strengt þess heit að koma f veg
fyrir að nokkuð það verði gefið út
á prenti, sem varpað geti skugga á
minningu hans.
Mary fyrir framan húsið f Ketchu, Idaho, þar sem skáldið lézt.
líu, og er ört vaxandi skákmað-
ur.
Með þessari keppni verður
fylgst af áhuga um allan heim,
þvl þarna verður örugglega um
harða og tvísýna keppni að
ræða í öllum einvígjunum.
Keppnisreglur um
heimsmeistaratitilinn.
Frá aldaöðli hefur það verið
mikið þrætuepli hversu margar
skákir eigi að tefla I siðasta loka
einvíginu um heimsmeistara-
titilinn. Hér I Reykjavík átti að
tefla 24 skákir, en Fischer var
búinn að tryggja sér sigur eftir
21 skák, en einvígið endaði
12,5—8,5.
Alþjóðaskáksambandið,
FIDE stendur alltaf frammi fyrir
miklum vanda þegar taka á
ákvörðun um þetta atriði.
Fischer kom með þá tillögu
fljótlega eftir að hann varð
heimsmeistari að einvígis-
skákirnir skyldu vera ótiltekinn
fjöldi, en einungis reiknað með
vinningsskákum, jafntefli ekki
tekin með og sá yrði sigur-
vegari, sem hlyti 9 vinninga.
En ef þeir yrðu jafnir; 9—9 átti
heimsmeistarinn að halda titlin-
um samkvæmt tillögu Fischers.
Þessari tillögu hans var hafnað,
en hins vegar samþykkt að sá
yrði sigurvegari sem fyrstur
fengi 10 vinninga og jafntefli
ekki talin með og skákafjöldi
yrði ótiltekinn. Vegna óánægju
með þessa tilhögun, sem ekki
virðist ýkja frábrugðin tillögu
Fischers, neitaði hann að tefla
eins og kunnugt er.
Nú hefur komið fram tillaga
um að reglunum verði breytt
enn einu sinni, þannig: sá sem
sigrar I sex (6) skákum hlýtur
titilinn, en jafntefli eru ekki
talin með og skákafjöldi er ótil-
tekinn. Verði jafntefli, 5—5
úrskurðast keppnin jafntefli, en
heimsmeistarinn heldur titlin-
um, en áskorandinn hlýtur rétt
á að skora á heimsmeistarann
aftur eigi seinna en innan eins
árs, en ekki fyrr en eftir 9
mánuði. Verði þá aftur jafntefli,
5—5, heldur heimsmeistarinn
titlinum næstu 4 ár.
Fulltrúi Sovétríkjanna og
heimsmeistarinn Karpov eru
algjörlega á móti þessari tillögu
og vilja takmarka fjölda
einvigisskáka við töluna 30, 6
vinningsskákir og engin jafn-
tefli tekin með Ákvörðun um
þetta verður ekki tekin fyrr en I
april á næsta ári.
Sama sagan ætlar því að
endurtaka sig, þvi þegar
„Karpov var inntur eftir áliti
hans á þessum reglum (um
ótiltekinn fjölda skáka) svaraði
hann: ,,Ég hef ekki i hyggju að
verja titil minn, verði þessar
reglur viðhafðar.”
Og forseti FIDE, dr. Max
Euve svaraði þessari athuga-
semd Karpovs: „Karpov gæti
orðið fyrsti heimsmeistarinn,
sem bæði vinnur og tapar titlin-
um án þess að tefla eina ein-
ustu skák ”
Lausn: 1. Hf2 — Hxf2, 2. a7 —
He2, 3. Kxf3 — He8, 4. Bc7 —
Kh.3, 5. Bb8 — Hxb8, 6. axb8H og
hvftur mðtar með hróknum. Ekki
6. axb8D, þvf þá er svartur patt.