Morgunblaðið - 16.12.1976, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIf>,iFIMMTUDA;GTJ*lfi. DESEMBER 1976
17
Úr fórum
Stefáns
Vagnssonar
BÓKACTGÁFAN Iðunn hefur
sent frá sér bðkina „(Jr fórum
Stefáns Vagnssonar frá Hjalta-
stöðum".
t fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir m.a.
Stefán Vagnsson (1889—1963),
sem kenndi sig við Hjaltastaði I
Blönduhlíð, er mörgum kunnur
fyrir visnagerð sfna og þjóðlegar
frásögur, þótt hann sendi ekki frá
sér bók i lifanda lífi. Sumar stök-
ur hans urðu landfleygar, og
sýnishorn af sögum, sem hann
skrásetti, birtust m.a. I Grá-
skinnu, safni þeirra Sigurðar Nor-
dals og Þórbergs Þórðarsonar. Ur
fórum Stefáns Vagnssonar er
stórt safn af lausu máli og
bundnu, og hefur drýgstur hluti
þess hvergi verið prentaður áður.
Bókin flytur fjölbreyttar frásagn-
ir af mönnum, sem höfundurinn
kynntist, ýmsar endurminningar
hans sjálfs, þjóðlífslýsingar og
þætti, m.a. mjög sjálfstæða könn-
un á samskiptum Bólu-Hjálmars
og Blöndhlíðinga, syrpu af þjóð-
sögum og að síðustu kveðskap
Stefáns af ýmsum toga.
I inngangi eru birtar greinar
um Stefán eftir Jón Sigurðsson á
Reynistað og Sigurð Nordal, en
Hannes Pétursson valdi bókarefn-
ið og bjó til prentunar.
FFSI vill að
keypt verði
bræðsluskip
Á Formannaráðstefnu Farmanna-
og fiskimannasambands tslands,
sem haldinn var I Reykjavfk fyrir
skömmu, var samþykkt að leggja
til við rlkisstjórnina, að hún beiti
sér fyrir því, að keypt verði til
landsins skip með fullkominni
fiskmjölsverksmiðju, með gufu-
þurrkara og öðrum þeim tækjum,
sem stuðla að góðri framleiðslu.
t fréttatilkynningu, sem Mbl.
hefur boriít frá F.F.S.I., segir að
ennfremur hafi verið samþykkt,
að kanna verði hvort hagkvæmt
sé að reyna fiskimjölsverk-
smiðju, sem knúin er jarðvarma.
Aukið fé til
Félagsstofn-
unar stúdenta
vegna viðhalds-
kosnaðar
í breytingartillögum til fjár-
laga, sem lögð voru fram á
Alþingi I gær, er reiknað með
að fjárveiting til Félagsstofn-
unar stúdenta hækki úr 7,6
milljónum króna, eins og upp-
haflega var gert ráð fyrir, I 11
milljónir. Jón Árnason, for-
maður fjárveitinganefndar
alþingis, sagði I viðtali við
Morgunblaðið I gær að þessi
aukning væri aðallega hugsuð
til viðhalds á stúdenta-
görðunum.
Óli Björn Kærnested I hinni nýju verzlun sinni, Búsport.
— Ljósm.: RAX.
Ný verzlun í Breið-
holti — Búsport
NVLEGA opnaði Óli Björn
Kærnested verzlun i Breiðholti,
nánar tiltekið f Arnarbakka 2,
sem hlotið hefur nafnið Bú-
sport. Verzlar hann þar með
aliar algengustu gjafavörur,
búsáhöld og sportvörur. Verzl-
unin er f verzlanamiðstöðinni
við Breiðholtsskóla.
ÓIi Björn Kærnested sagði f
viðtali við Morgunblaðið, að
hann myndi kappkosta að
þjóna Breiðholtsbúum hvað
varðar búsáhöld, gjafavörur og
sportvörur. í verzlanakjarnan-
um f Arnarbakka hefði til
þessa ekki verið unnt að fá
þessar vörur og kvaðst hann
vonast til þess að fólk tæki
þessari þjónustu vel.
„Med hörkunni
hafa þeir þad”
— ný bók eftir Ragnar Þorsteinsson
KOMIN er út ný bók eftir Ragnar
Þorsteinsson, „Með hörkunni
hafa þeir það“. Hefur hún að
geyma nfu æviþætti og sex smá-
sögur.
Guðmundur G. Hagalfn skrifar
formála og segir þar m.a.:
Æviþættirnir lýsa allt að því
átakanlega þeim lífskjörum og úr-
ræðum til lifsbjargar, sem fjöldi
manna vlðs vegar um land átti við
að búa á fyrstu þremur áratugum
þessarar aldar, þrátt fyrir bætta
þjóðarhagi frá þvi sem þeir voru
lakastir.
Um smásögnurnar er svo það að
segja, að þar gætir mjög þess, sem
ríkast er I fari höfundarins, ein-
lægrar samúðar I garð litilmagn-
ans og glöggs skilnings á aðstæð-
um hans; ennfremur aðdáunar á
þreki og sönnum manndómi, hvar
og hvernig sem þessir eiginleikar
koma fram. Þá er þar að finna
kimni og glettni, og siðast en ekki
sizt ber þess að geta, að eins og i
ævaþáttunum bera þær frásagnir
af, þar sem höfundur lýsir fanga-
brögðum slyngra sjómanna við
Ægi I æstu skapi. Þær eiga sér
sárafáar hliðstæður í Islenskum
bókmenntum, enda má þar með
sanni segja, að ,,sá kló, sem
kunni“.
Bókin er 190 bls. að stærð. Ut-
gefandi er Vikurútgáfan.
leikið vió
É '1 '
James
Diáey
LEIKIÐ VIÐ DAUÐANN
eftir James Dickey. Æsispennandi bók, seiðmögnuð og
raunsæ. Hefst eins og skátaleiðangur, endar eftir
magnaða baráttu um líf og dauða bæði við menn og
máttarvöld.
eftir Jöhann Hafstein. Mikilsverð heimild um megin-
þætti íslenzkrar þjóðmálasögu siðustu 35 ára — mesta
umbrotaskeiðs i atvinnu- og efnahagsmálum sem yfir
landið hefur gengið.
Inga
Borg
PLÚPP •
fer til Islands
PLÚPP FER TIL
ÍSLANDS
eftir sænska barnabókahöfundinn Ingu Borg. Bráð-
skemmtilegt ævintýri í máli og myndum um sænska
huldusveininn Plúpp og það sem hann kynnist á
Islandi.