Morgunblaðið - 22.12.1976, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.12.1976, Blaðsíða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1976 Gjöf ta Ármanns- stofunnar ÁRMANNSSTOFU í Sjálfstæðis- húsinu, Bolholti, sem gerð var til minningar um Ármann Sveins- son, barst nýlega myndarleg pen- ingagjöf, kr. 40.000,- frá Fjölni, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu. Með tilkomu Ármannsstofu hef- ur skapast aðstaða fyrir sjálf- stæðisfólk til að vinna að hugðar- efnum sínum með hjálp bóka- og blaðakosta Sjálfstæðisflokksins. í Ármannsstofu liggja ennfrem- ur frammi nýleg tímarit um stjórnmál og önnur þjóðfélags- mál. (Fréttatilkynning frá Sjálfstæóisflokknum). AEG HANDVERKFÆRI Fjölbreytt úrval AEG handverkfæra til iðnaðar- bygginga- og tómstundavinnu. Vandið valið og notið sterk og vönduð verkfæri. Speglun Hljómplatan frá Eik sem fólkið hefur beðið eftir. Einnig fyrirliggjandi á kasettum. Farið nú varlega í jólaumferðinni Eik-útgáfan ______Halldór Jónsson, verkfræðingur:_ Um vegi og viðbúnað Fyrir meira en áratug kynntist ég dálítið starfi og áætlunum við- víkjandi almannavörnum á tslandi. Þá var uppi dálítill áhugi meðal fólks og ráðamanna á því, iivað yrði um Island og tslendinga ef til stríðs kæmi. Þá áttu Rússar um 350 atómsprengjur og ailir voru hræddir við þær. Nú eiga þeir meira en 3500 stykki og þær jafn- vel stærri, en enginn er hræddur við þær. Ef maður bara ekki hugsar um það — þá fer það, segja Þjóðverjar um timburmenn. Varnir landsins Það hefur verið allnokkuð til umræðu undanfarið, hvort Islendingar hefðu skjól eða ekki af varnarliðinu og Nato. Eða hvort Nato hefði skjól af okkur. Hinir „ábyrgu" hafa talið að stöðvar Nato hérlendis væru sjálf- sagt framlag okkar til varna hins vestræna heims. Hinir „óábyrgu" telja sjálfsagt að kúga fé af Nato og könum fyrir stöðvarnar að dæmi Francos, Tyrkja, Norð- manna og annarra samvizku- lausra fjárkúgara, taka það inn á fjárlög og halda veizlu. Enn aðrir, sem eru bara núil, tala um það, að Kaninn og Nato skuldi okkur tölu- vert þar sem þeir eiga samkvæmt samningi að verja okkur líka, ekki bara sjálfa sig eins og þeir geri núna. í stað þess að sitja með okkar blíðasta bjánaglott og biða eftir því hvort það komi hvellur ef bomban springur þá ættum við að hugsa svolítið um það hvað við ætlum að gera, ef þeir ætla að fara að striða þarna útí henni veröld. Getum við gert eitthvað Það eru til þrjár varnir gegn kjarorkusprengjum. Sú fyrsta og nauðsynlegasta fyrir framhaldið er að vera ekki mættur þar sem þær springa. Sú næsta er að vera ekki mættur og hafa auk þess tiltækt afdrep ef geislavirku úr- falli rignir niður eða geta fljót- lega forðað sér til staðar þar sem það kemur ekki. Sú þriðja er að vera í kassa, sem þolir bombuna. Þessir kassar eru líkast til dýrir, enda telja hvorki Bandaríkja- menn né Rússar sig hafa ráð á þeim og þá liklega ekki við. Þá er að athuga tvær fyrstu leiðirnar. Ef maður þarf að láta sig hverfa snarlega, þá verður maður að hafa bæði greiða leið og fararskjóta. Sá fararskjóti sem almenningi er hvað aðgengi- legastur er bíilinn. En hvað er bíll án brauta. Hætt er við að það myndaðist fljótlega stífla ef of margir reyna að komast af Suður- nesjum í einu. Svo er hætt við að fljótlega syrfi að fólki þó að það kæmist út á land þar sem viðbúnaður virðist enginn vera til þess að mæta slíkri stöðu. Samt höfum við nýlega reynslu af því, að skyndilegir fólksflutningar í stórum stil eru vel mögulegir skipulagslega séð hér hjá okkur og að við myndum ráða við verk- efnið ef við værum undirbúnir. Það er held ég auðsætt, að dátarnir á Miðnesheiði vernda okkur ekki baun gegn bombunni, hún getur hvenær sem er dottið niður um skorsteininn hjá aðmírálnum þar suður frá. Þar hjálpar okkur aðeins okkar eigin andvari og fyrirhyggja. Nú kann einhver að segja. Það eru til annars konar stríð, þar sem dátarnir duga okkur vel. Jú, mikið rétt, en það er erfitt að segja fyrir um þróun átaka, ef þau hefjast á annað borð. Það getur meira að segja verið að það komi ekkert stríð, þó að Maó blessaður hafi ekki haft mikla trú á því. Það er yfirleitt heldur óskynsamlegt að athuga ekki afleiðingarnar ef hið versta skyldi koma fyrir. Ég man vel, að menn frá Almannavörnum stóðu inni í bæ í Vestmannaeyjum og horfðu á Surtsey gjósa. Hún var þá notalega fjarlæg. Samt var gerð áætlun og athugun á því, hvernig bregðast ætti við ef. . . Mér vitanlega spillti sú áætlun ekkert fyrir þegar til stykkisins kom. Halda menn eitt augnablik, að það sé af engu sem Rússar þjálfa árlega 20 milljónir manna í almannavörnum. Fólksflutninga- æfingar frá helstu borgunum eru stöðugt haldnar og fólk á lans- byggðinni er æft í að taka á móti mörgu fólki úr borgunum. Rússar eyða meira en billjón dollurum á ári í almannavarnir og það er vitað að þeir stefna að þvi að missa „aðeins" 10—20 milljón manns í fyrstu hrinu kjarnorku- styrjaldar. Ef Rússar telja fólks- flutninga og viðbúnað til almannavarna nauðsynlega hvers vegna ekki við. Hvers konar stríðshætta í sambandi við styrjaldir er auðvelt að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Án þess að seilast inn á verksvið Hermanns Kahn og Randstofnunarinnar, getur maður á leikmannsvísu stillt upp nokkrum dæmum. 1. Rússar gera leifturáras á ísland með venjulegum vopnum og taka það. Bandarikjamenn beita ekki kjarnorkuvopnum á móti. Rússar hafa ísland. 2. Styrjöld brýst út í Evrópu eða Mið-Austurlöndum. Fyrst er barizt með venjulegum vopnum og Vesturveldin bíða ekki algeran ósigur strax. Bandaríkin hefja liðsflutninga. Þeir hafa ísland. 3. Bandaríkin setja Rússum úr- slitakosti, svipað og í Kúbu- deilunni. Báðir aðilar vígbúast. 4. 3. í öfugri röð. 5. Varnarstöðin í Keflavík er lögð niður. Við göngum úr Nato. „Þjóðfrelsisfylkingin" gerir byltingu með eða án aðstoðar kúbanskra sjálfboðaliða. Varsjár- bandalagið vill auka ítök sín hér. 6. Alger kjarnorkustyrjöld er sem allír reikna með er vasatalva frá Texas Instruments með Minni, Konstant og Prósentu Texas Instruments DÞÚRM SlMI B15QO-AHMÚLA11 V_______________/ ......./ Taflfélag Húsavíkur endurvakið Húsavík 20. desember. TAFLFÉLAG Húsavíkur hefur nú verið endurvakið og hefur það starfað með miklum blóma það sem af er vetri. Firmakeppni félagsins lauk fyrir nokkru. Alls tóku 82 fyrirtæki þátt í keppn- inni. Sigurvegari varð Lands- banki Island,, og vann bankinn til bikars, sem Samvinnubankinn hafði gefið. Fyrir Landsbankann tefldi Kári Kárason. Ólafur Ólafs- son lyfsali var aðal hvatamaður- inn að endurreisn Taflfélagsins, en formaður er Hjálmar Theodórsson. fréttaritari. háð. Suðurnes og Reykjavík hverfa af kortinu. Styrjöld lokið. I öllum þessum tilvikum, nema 1. og 5., er eina vörn íslendinga á Suðurnesjum að forða sér þaðan i tæka tíð og vörn annarra Is- lendinga að geta flutt sig til. í 1. og 5. tilviki myndi Suðurnesja- fólki vera haldið í gislingu heima hjá sér, til þess að storka mann- gildissjónarmiðum Bandaríkja- manna og fólksflutningar bannaðir. Gott vegakerfi og annar viðbúnaður til almannavarna er því greinilega forsenda þess að íslendingar séu varðir minnstu ögn. Samkvæmt samningi ber Nato að stuðla að vörnum okkar. Þarna stendur verulega upp á þá. Að vanrækja þessa hluti er hins vegar í þágu kommúnista. Það mættu hinir „ábyrgu“ athuga. Hvað fleira þarf Samhliða góðu vegakerfi er margt annað, sem þarf að aðgæta. Við þurfum að geta fiskað og heyjað þó allt sé komið til and- skotans í henni veslu. Við getum hvorugt nema við eigum vara- birgðir af olíu f stað þess að nú eigum við aldrei meira en olíu til nokkurra vikna. Sama gildir um ýmislegt annað erlent kruðeri, sem yrði illfáanlegt fljótlega eftir stríð. Við þurfum að eiga tiltækar búðir á ýmsum stöðum landsins til þess að hýsa margt fólk um stundarsakir. (Stöðvarhúsið við Kröflu er ágætt ef ekki kemur gufa né gos). Nei, það er ekki skynsamlegt af okkur að nota ekki samningsaðstöðuna sem við höfum nú á friðartímanum til þess að láta vini okkar í Nato hjálpa okkur til þessara hluta, sem þei vita ofur vel, að þeim ber að gera. Eða hvað skildist ykkur á Luns? Svo er það annað mál, hvað við gætum notað þessa vegi og annað á friðartímanum til þess að berja á byggðavandamálinu og byggja upplandið. 18.11.1976 Halldór Jónsson verkfr. Strætis- vagnar vanbúnir til aksturs í hálku t Ályktun sem bifreiðastjórar hjá Strætisvögnum Reykjavíkur hafa sent frá sér er m.a. bent á þá geysilegu hættu sem skapast f umferðinni þegar 50 stérir strætisvagnar eru f umferðinni, algjörlega vanbúnir til aksturs f hálku. Lýsa vagnstjórarnir allri ábyrgð á hendur stjórn SVR og áskilja sér rétt til að stöðva akstur á þeim leiðum, sem viðkomandi bflstjórar telja ófærar. Ályktun bifreiðastjóranna er svohljóðandi: „Bifreiðastjórar hjá S.V.R. leyfa sér að benda stjórn S.V.R. á þá geysilegu hættu sem skapast í umferðinni þegar allt að 50 stórir strætisvagnar eru í umferðinni, algjörlega vanbúnir til aksurs í hálku. Síðbúnar aðgerðir sva sem salt- burður koma oft lítið að haldi. Höfum við margsinnis bent á nauðsyn þess að vagnarnir verði búnir negldum hjólbörðum og ítrekum þá skoðun okkar. Þar sem okkur er kunnugt um þá hættu, sem stafar af strætis- vögnum, einsog nú er ástatt, lýs- um við allri ábyrgð á hendur stjórnar S.V.R. og áskiljum okkur rétt til að stöðýa akstur á þeim leiðum, sem viðkomandi bflstjór- ar telja ófærar. Væntum við þess að stjórn S.V.R. taki mál þetta föstum tökum og bæti úr ástandi vagn- anna hið fyrsta."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.