Morgunblaðið - 18.01.1977, Qupperneq 2
IORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANUAR 1977
Skjálftum
við Kröflu
fjölgar enn
JARÐSKJÁLFTUM á Kröflu-
svæðinu fer enn fjölgandi og
frá kl. 15 í fyrradag, þar til kl.
15 í gær komu 90 jarðskjálftar
fram á jarðskjálftamælum í
Reynihlíð og var það sami fjöldi
og sólarhringinn á undan. Af
þessum fjölda mældust 19 af
styrkleika 2 á Richterkvarða
eða, stærri, að því er Páll
Einarsson jarðeðlisfræðingur
tjáði Mbl. í gær.
Þá heldur landrisið á Kröflu-
svæðinu áfram, en hefur þó
verið ívið minna síðustu daga
en fyrr í þessum mánuði.
Jarðskjálftavakt er f Reynihlíð allan sólarhringinn og eru vakt-
menn þess albúnir að senda út aðvörunarmerki ef eitthvað óvænt
virðist vera í aðsigi. Myndina tók Friðþjófur af Halinu
Guðmundsson á jarðskjálftavakt f fyrradag.
Getur orðið sprengi-
gos við Kröflu?
I NYUKOMNU Fréttabréfi Verk-
fræðingafélags tslands ritar
Valdimar Kr. Jónsson verkfræð-
ingur grein, sem nefnist „Kröflu-
ketill“.
1 greininni ræðir Valdimar
nokkuð um hugsanlegt sprengi-
gos á Kröflusvæðinu og útskýrir
hvað það er, sem veldur sprengi-
gosum. Valdimar segir m.a. I
grein sinni:
„Hvað gerist þá þegar land
byrjar skyndilega að síga og sígur
á nokkrum dögum niður í það,
sem það hefur risið á nokkrum
mánuðum? Það er almenn
vitneskja, að þegar ýtt er undir
þunna skel þá endar það með því
að skelin springur. Gufan ryðst þá
upp í sprungurnar og kemst þann-
ig upp í kaldari jarðlog. Við það,
að gufan kólnar þéttist hún og
breytist í vatn og rúmmál hennar
minnkar mikið. Landið sígur því
skyndilega, en við það lokast
Framhald á bls. 39
Pottur brotinn í neyðarvörnum við Kröflu:
Ekkert verið rætt við starfsmennina
vegna hugsanlegs hættuástands nú
segir formaður starfsmannafélagsins
TVEIR starfsmenn Almannavarna rfkisins fóru norður til Kröflu f
gærdag til að kanna hvernig neyðarvörnum á staðnum er háttað en
forsvarsmenn Almannavarna telja að þar sé pottur brotinn f veiga-
miklum atriðum, þrátt fyrir upplýsingar um að varnir á þessum
slóðum væru f lagi og stóðu forsvarsmenn Almannavarna f þeirri trú
til skamms tfma. Nú hefur annað komið á daginn, eins og áður segir,
en áhöld munu vera um það hver beri raunveruiega ábyrgð á þvf hvað
úrskeiðis hefur farið. Forsvarsmenn Almannavarna töldu að Orku-
stofnun annaðist þennan þátt en hún mun vera aðeins einn aðilinn af
mörgum, sem annast átti að koma upp neyðarkerfi þvf sem fara á f
gang ef hættuástand verður á svæðinu og nú hefur reynzt að miklu
leyti óvirkt.
í samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Guðjón Petersen, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna
ríkisins, að tilgangurinn með þvi
að senda mennina tvo að Kröflu
væri að fá á hreint hvaða búnaður
væri þar i lagi og hvaða búnaður
virkaði ekki. Guðjón sagði, að I
fyrsta lagi væri nú komið á dag-
inn að viðvörunarkerfið sjálft við
Kröflu væri mjög athugavert,
þannig að aðeins virkuðu tvær
sírenur af fimm, sem komið hefði
verið fyrir á þremur aðalmann-
virkjunum á staðnum. Öðrum
tveimur hefði mátt koma i gang
með því að klifra upp á sírenun-
um á mannvirkjunum sjálfum.
I öðru lagi sagði Guðjón, að
komið hefði i ljós að fjarstýri-
magnari, sem Almannavarnir réð-
ust í að kaupa í haust og óskað var
eftir að settur yrði upp i bæki-
stöðvum jarðskjálftavaktarinnar
að Mývatni til að unnt væri að
ræsa sírenurnar i Kröflu þaðan,
hefði ekki endanlega verið settur
upp fyrr en í desember og farizt
hefði fyrir að kenna starfsmönn-
um skjálftavaktarinnar að nota
þetta tæki, eins og þó hefði verið
óskað eftir. Reyndar kvaóst Guð-
jón hafa fengið þær fréttir til
viðbótar í fyrradag, að magnari
þessi virkaði alls ekki af einhverj-
um ástæðum, og þannig aldrei
komizt í gagnið.
Þetta kvað Guðjón hafa verið
aðal athugasemdir forsvarsmanna
Almannavarna varðandi neyðar-
varnirnar við Kröflu en auk þess
hefðu verið gerðar athugasemdir
við snjóruðning frá Kröflu niður í
Mývatnssveit. Kröflunefnd hefði
tjáð Almannavörnum um að
þarna væru snjóruðningstæki fyr-
ir hendi, en aftur á móti hefði
hann fengið þær fréttir að stjórn-
andi þessara tækja væri hér syðra
í leyfi. Siðan hefði þó komið í ljós,
að á svæðinu er annar maður, sem
kann að fara með þessi tæki.
Raunar væri ekki vitað um ástand
annars þeirra, þar sem það hefði
ekkert verið notað til þessa né
heldur væri ljóst hvort áhafnir
væru á ýtunum á svæðinu. Þetta
stæði nú til að athuga.
Guðjón viðurkenndi að áhöld
Framhald á bls. 39
Yfir 30 millj.
kr. fyrir jörd
í Árnessýslu
ÞAÐ ER ekki oft, sem jarðir á
Suðurlandi eru auglýstar til
sölu, en ein slfk var þó auglýst
f Morgunblaðinu f gær. Sigurð-
ur Sveinsson, lögfræðingur á
Selfossi, sagði f samtali við
Morgunblaðið í gær, að það
væri alveg hending að jarðir f
Árnessýslu væru auglýstar til
sölu á frjálsum markaði, og s.l.
fimm ár hefði hann aðeins
fengið 5 jarðir til sölu eða eina
á ári.
Jörðin, sem nú væri til sölu,
væri ekki langt frá Þjórsár-
brúnni. Hún væri föl á 32—34
milljónir króna, og væri fénað-
ur og tæki metin á 7 millj. kr.,
en alls væru 33 mjólkandi kýr í
fjósi, og rými væri fyrir sam-
tals 40.
Kvað Sigurður að fjósið og
hlaðan væru mjög nýleg, og
eldra fjós væri í sæmilegu
standi. Þá hefði íbúðarhúsinu
verið haldið vel við. Sagði
hann að fjöldi manna hefði
þegar hringt og spurt um jörð-
ina.
Undirbúningi Frím-
ex ’77 miðar vel
iðmundur og Friðrik
ra á skákmót í Sviss
— JU ÞAÐ er rétt, Guðmundi
hefur verið boðið á mót f Genf á
Sviss, þar sem ég verð meðal
keppenda. Það má eiginlega segja
að við séum að verða eins og sam-
vaxnir tvfburar, sagði Friðrik
Ölafsson stórmeistari, þegar Mbl.
ræddi við hann úti f Hollandi f
gær.
Mótið í Sviss verður fjórða mót-
ið, erlendis sem þeir félagar tefla
báðir. í tveimur fyrstu mótunum
gekk þeim frekar illa og byrjunin
á Wijk Aan Zee skákmótinu hefur
ekki verið allt of góð. — Það ætti
að koma endanlega í ljós á mótinu
í Sviss, hvort það hefur ill áhrif
að við teflum svona saman á móti
erlendis, sagði Friðrik. Við höfum
hingað til talið það betra að hafa
styrk hvor af öðrum á svona móti
og teljum það enn, þótt árangur-
inn láti kannski á sér standa.
Óákveðið hvað
gert verður við
Aðalstræti 12
ENN ER óákveðið hvað gert verð-
ur við húsið að Aðalstræti 12, sem
skemmdist mikið af eldi á nýárs-
nótt. Sveinn Snorrason Iögfræð-
ingur, sem hefur umsjá með hús-
inu fyrir hönd eigenda þess, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær,
að enn væri mjög óljóst hvað gert
yrði við húsið. Skipulag yfir þetta
svæði vantaði nú algjörlega og á
meðan svo væri, væri vart hægt
að taka ákvörðun um framtíð
hússins.
Mótið í Genf hefst 25. marz.
Þátttakendur verða 12 — 14, þar
af margir stórmeistarar, en ekki
er vitað nákvæmlega hverjir
verða meðal þátttakenda.
SAMKVÆMT fréttatilkynningu
frá Félagi frímerkjasafnara mið-
ar undirbúningi að frfmerkjasýn-
ingunni Frfmex ‘77 vel, en áætlað
er að halda hana í Álftamýrar-
skóla dagana 9. til 12. júnf f sum-
ar. Hefur þátttökueyðublað nú
veriðsent til frfmerkjasafnara.
'Nokkrir erlendir aðilar hafa|
þegar tilkynnt þátttöku. Eru það
m.a. aðilar í Danmörku, Svíþjóð
og í Bandaríkjunum. I sambandi
við sýninguna verður opið sér-
stakt pósthús með sérstimpli, gef-
in verða út umslög og fleira, sem
nánar verður greint frá síðar.
Þá segir í fréttatalkynningunni,
að hafi safnarar ekki fengið þátt-
tökueyðublað, geti þeir snúið sér
til Frimerkjahússins, Frímerkja-
miðstöðvarinnar eða formanns
sýningarnefndar, Guðmundar
Ingimundarsonar, Bogahlíð 8.
Skila ber þátttökutilkynningum
fyrir 1. apríl. Þá er tekið fram, að
sýningin hefur hlotið viðurkenn-
ingu Landssambands íslenzkra
frímerkjasafnara, sem þýðir að
söfn, sem hljóta silfur eða meira f
viðurkenningarskyni, eru hlut-
geng á alþjóðlegar sýningar.
Meir en
hæna á mann
ALIFUGLABÆNDUR hafa um
þessar mundir vaxandi áhyggjur
af offramleiðslu á eggjum og hef-
ur þessi offramleiðsla leitt til
þess að egg eru nú boðin á verði,
sem að áliti framleiðenda nægir
ekki til að standa undir fram-
leiðslukostnaði. Kom þetta m.a.
fram á almennum bændafundi I
Fólkvangi á Kjalarnesi s.l.
laugardag en þar var rætt nokkuð
um málefni alifuglabænda. Talið
er að I landinu séu nú rúmlega
240 þúsund varphænur og að
meðaitaii verpir hver hæna 10
kiióum af eggjum á einu ari eða
180 til 200 eggjum.
Að sögn kunnugra má gera ráð
fyrir að hver maður neyti að
meðaltali á einu ári sem svarar 10
kílóum að eggjum. Það svarar því
til að eina varphænu þurfi á
hvern Ibúa landsins, sem nú eru
um 220 þúsund. Samtök eggja-
framleiðenda auglýstu í haust að
Framhald á bls. 39
Wijk Aan Zee skákmótid:
íslenzku stór-
meistararnir
án vinnings
eftir þrjár umf.
Wijk Aan Zee, Hollandi,
frá fréttamanni Mbl. Berry
Withuis:
AÐ LOKNUM þremur umfcrð-
um ( Hoogovenskákmótinu eru
fslenzku stórmeistararnir Frið-
rik Ólafsson og Guðmundur
Sigurjónsson enn án vinnings.
Friðrik hefur gert jafntefli I
þremur fyrstu umferðunum,
gegn Guðmundi, Böhm og
Kurajica en Guðmundur hefur
gert tvö jafntefli, gegn Friðrik
og Kurajica, en i 3. umferð
tapaði hann óvænt fyrir
júgóslavneska skákmanninum
Nikolac. Friðrik er nú ( 5—7
sæti með 1V4 vinning en Guð-
mundur I 9—10 sæti með 1
vinning. Efstir og jafnir eru
stórmeistararnir Geller frá
Sovétrikjunum og Sosonko,
Hollandi, með 2M vinning. Ekk-
ert var teflt á mánudag en á
þriðjudag verður 4. umferðin
tefld og teflir þá Friðrik við
Nikolac og Guðmundur við
Timman. Báðir fslenzku stór-
meistararnir hafa svart.
2. umferð:
í 2. umferð urðu úrslit þau f
öðrum skákum en að framan er
getið, að Kavalek vann Nocolac,
Geller og Sosonko eru efstir og jafnir f Wijk Aan Zee með 2‘A
vinning.
Geller sigraði Ligterink en
jafntefli gerðu Timman og
Sosonko, Barczay og Miles.
Jafnteflisskákir fslenzku
meistaranna voru stuttar, skák
Guðmundar og Kurajica var 12
leikir en skák Friðriks og Böhm
var 14 leikir. I þessari umferð
vakti skák þeirra Kavaleks og
Nikolacs mesta athygli. Kava-
lek átti í hinum mestu vand-
ræðum lengst af og var kominn
með tapað tafl, en f tfmahraki
urðu Júgóslavanum á mistök
þannig að hann missti hrók og
tapaði taflinu. Geller vann
öruggan sigur á Ligterink.
Framhald á bls. 38